Morgunblaðið - 03.12.2002, Page 3

Morgunblaðið - 03.12.2002, Page 3
félögunum. Fyrir vikið er enginn vafi á að þýska 1. deildin er sú besta í heiminum,“ segir Atli og stefnir ótrauður á að komast í þann hóp með Friesenheim. Íslendingar eru í miklum metum Níu Íslendingar leika í hinni sterku 1. deild. Atli segist fylgjast með þeim í fjarlægð þar sem eðli- lega fari mestur sinn tími í þjálfun Friesenheim. Hann fylgist aðal- lega með umfjöllun um Íslend- ingana í gegnum blöð og sjónvarp. Greinilegt er að íslensku leik- mennirnir séu í miklum metum hjá Þjóðverjum og af þeim fari mjög gott orð. Þeir er duglegir, ósér- hlífnir og falla vel að þýskum sið- um og venjum. Ólafur Stefánsson nýtur mikillar virðingar í þýskum handknattleik að sögn Atla, enda oft verið valinn besti leikmaður deildarinnar. „Það verður erfitt fyrir Alfreð Gíslason og hans menn í Magdeburg að finna leikmann sem getur tekið við hlutverki Ólafs. Hann er einfald- lega svo rosalega góður leikmaður, menn eins hann eru ekki á hverju strái,“ segir Atli og bætir við að Sigfús Sigurðsson hafi komið afar sterkur inn í lið Magdeburg. „Það var um það rætt hér að Sigfús væri ekki öfundsverður af því að reyna að fylla skarð Guéric Kerv- adec, en þær raddir hafa nú þagn- að að mestu. Patrekur Jóhannesson og Guð- jón Valur Sigurðsson leiki þýðing- armikil hlutverk hjá Essen. Pat- rekur hafi þroskast mikið, sé yfirvegaður og greinilegur leiðtogi liðsins innan vallar sem fyrirliði þess. Guðjón fórni sér eins og venjulega í hvern leik þótt hann sé notaður í nánast flestar stöður á vellinum. „Ég vildi gjarna sjá hann meira í vinstra horninu þar sem Guðjón er að mínu mati sterkari en sá sem leikur á móti honum,“ segir Atli um sinn gamla lærisvein hjá KA. „Guðjón hefur bætt sig mikið í Þýskalandi og var hann góður fyrir.“ Sömu sögu má segja um Einar Örn sem hafi leikið vel fyrir Wall- au Massenheim. „Félagið ætlaði bara að gera reynslusamning við Einar Örn fyrst en þegar þeir sáu hversu góður hann var þá voru þeir ekki lengi að gera við hann lengri samning.“ Þá segir Atli að Sigurður Bjarnason og Róbert Sighvatsson leiki mikilvæg hlutverk hjá Wetzl- ar. Það hafi best sýnt sig þegar Sigurður meiddist og var frá keppni í haust að liðið saknaði mjög krafta hans, hvorki hafi gengið né rekið á meðan hans naut ekki við. Gylfi Gylfason hefur verið óheppinn hjá Wilhelmshaverner þrátt fyrir að leika mikið því leik- ur liðsins sé lítt stílaður upp á hornaspilið og því hafi hann ekki skorað mikið á leiktíðinni. „En lið- inu gengur vel í deildinni, hefur komið á óvart.“ Gústaf Bjarnason hafi fengið ágæta dóma fyrir frammistöðu sína með GWD Minden þrátt fyrir að liðinu hafi ekki gengið sem skyldi og sé nú í næstneðsta sæti 1. deildar. „Það er greinilegt að þeim um- sögnum sem íslensku leikmennirn- ir að þeir leika stór hlutverk og eru liðum sínum mikilvægir og bera Íslandi gott vitni,“ segir Atli. Vinsældir handknattleiksins hafa aukist mikið Atli segir að miklar breytingar til batnaðar hafi átt sér stað í þýskum handknattleik á þeim fimmtán árum sem liðin eru síðan hann lék þar. Vinsældirnar hafi aukist til muna og umfjöllun fjöl- miðla vaxið að sama skapi. Erlend- um leikmönnum hafi fjölgað og það hafi orðið til þess að bæta leik- inn. „Þegar ég var hérna sem leik- maður, var algengt að leikið væri í íþróttahúsum sem tóku kannski eitt þúsund mann. Nú er leikið í margfalt stærri húsum og jafnvel dæmi um að átján þúsund manns komi á leik. Kiel spilar alltaf fyrir fullu húsi, liðlega tíu þúsund manns, og hér ræða menn um að stækka þurfi húsin eða fara með leikina í stærri hallir vegna auk- inna vinsælda,“ segir Atli. Ekki tjaldað til einnar nætur Atli segir að hjá Friesenheim sé ekki tjaldað til einnar nætur. Vissulega verði það vonbrigði tak- ist liðinu ekki að fara upp en þá verði bara að bíta í skjaldarrendur og fara upp ári síðar. „Við erum með langtímasamninga við styrkt- araðila þannig að það verður ekk- ert hrun hér þótt við förum ekki upp. Nú þegar er farið að leggja lín- urnar fyrir næstu leiktíð og vænt- anlega verður gengið frá sem flestum atriðum s.s. leikmanna- málum fyrir lok janúar. Þetta er allt annað umhverfi en heima á Ís- landi þar sem ekkert var hægt að velta fyrir sér næstu leiktíð fyrr en sú sem stóð yfir var búin. Í Þýskalandi er þetta unnið á allt annan hátt og það er kærkomið og lærdómsríkt að fá tækifæri til að kynnast því hvernig þessum hlut- um er háttað hér,“ segir Atli Hilm- arsson, þjálfari RSG Friesenheim.                          !   !                       " #$%       ! " #$    $%         &$     &'         &                    '()  *()  $    +),-  )*..*/*..0 iben@mbl.is ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 B 3  JÓHANN R. Benediktsson, knatt- spyrnumaður úr Keflavík, hefur fengið heimild til að æfa með liði Grindavíkur. Nágrannaliðin á Suð- urnesjum ræða þessa dagana um fé- lagaskipti Jóhanns, sem er samn- ingsbundinn Keflavík til ársins 2004.  EINAR Ottó Antonsson, unglinga- landsliðsmaður í knattspyrnu frá Selfossi, er genginn til liðs við 1. deildar lið Keflavíkur.  ARNAR Þór Viðarsson, fyrirliði Lokeren, var í gær valinn í lið vik- unnar í belgísku knattspyrnunni af dagblaðinu Het Nieuwsblad. Arnar skoraði eitt marka liðsins í 4:0 sigri á Mons-Bergen.  DAVY De Beule, samherji Arnars hjá Lokeren, var valinn leikmaður vikunnar af blaðinu. De Beule sagði aðspurður við Het Nieuwsblad að Rúnar Kristinsson væri uppáhalds- leikmaðurinn sinn í Belgíu.  GUÐMUNDUR Hrafnkelsson stóð í marki Conversano þegar liðið vann Sassari, 27:22, á útivelli í ítölsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Conversano er sem fyrr í efsta sæti ítölsku 1. deildarinnar.  SCOTT Ramsay, skoski knatt- spyrnumaðurinn frá Grindavík, skoraði sitt fyrsta mark fyrir KR á sunnudaginn þegar liðið vann Þrótt R., 3:1, í æfingaleik í Egilshöll.  LOGI Gunnarsson skoraði 18 stig fyrir Ulm sem sigraði Crailsheim Merlins, 90:79, á útivelli í þýsku 1. deildinni í körfuknattleik á laugar- daginn. Ulm er í 5. sæti eftir 10 um- ferðir með 14 stig. FÓLK ÓLAFUR Stefánsson fór fyrir liði Magde- burg þegar liðið bar sigurorð af Wisla Plock frá Póllandi, 31:29, á útivelli í Meistaradeild Evrópu í handknattleik um helgina. Ólafur var markahæstur með 8 mörk, þar af 3 úr víta- köstum, og með sigr- inum tryggði Magde- burg sér sæti í 8 liða úrslitunum. Magdeburg hafði frumkvæðið allan tím- ann. Liðið komst í 4:0 og hafði fjögurra marka forskot í hálfleik, 16:12. Pólverjunum tókst að jafna metin í 18:18 en Magdeburg átti góðan endasprett og innbyrti öruggan sigur. Ólafur skoraði eins og áður segir 8 mörk og þeir Joel Abati, Nenand Perunicic og Sigfús Sig- urðsson skoruðu 4 mörk hver. Ungverska liðið Fotex Vespr- ém, sem lagði Magdeburg á dög- unum, er sömuleiðis komið í 8 liða úrslitin. Ungverjarnir unnu nauman sigur á Panellinios í Aþenu, 17:16, og eru með fullt hús stiga eftir fjóra leiki. Minden úr botnsætinu Í þýsku úrvalsdeildinni hélt sig- urganga Lemgo áfram. Lemgo sótti Grosswallstadt heim og sigr- aði, 31:29. Lemgo hefur unnið alla 14 leiki sína í deildinni og hefur fjögurra stiga for- skot á Flensburg sem tapaði óvænt fyrir Hamburg. Sigurður Bjarna- son skoraði 5 mörk fyrir Wetzlar og Ró- bert Sighvatsson eitt þegar liðið gerði jafntefli á úti- velli á móti Tus N- Lübbecke, 20:20. Gústaf Bjarnason skoraði 3 mörk fyrir Minden sem komst úr botnsæti deild- arinnar með því að vinna Eisenach, 27:26, á útivelli. Minden hefur 8 stig eins og Will- statt/Schutterwald en Göppingen, Pfullingen og Wetzlar hafa öll 9 stig. Einar Örn Jónsson átti mjög góðan leik fyrir Wallau Massen- heim sem gerði jafntefli, 26:26, við Pfullingen. Einar skoraði 6 mörk í leiknum og var næst- markahæstur sinna manna. Gylfi Gylfason komst ekki á blað fyrir Wilhelmshavener sem bar sigurorð af Göppingen, 23:22. Essen tapaði fyrir Nordhorn, 30:28. Patrekur Jóhannesson skoraði 4 mörk fyrir Essen og Guðjón Valur Sigurðsson 1. Essen er í fjórða sæti deildarinnar, 10 stigum á eftir forystusauðunum í Lemgo. Ólafur fór fyrir Magdeburg Sigfús Sigurðsson sækir að marki Wisla Plock.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.