Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA 4 B ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ARNAR Þór Viðarsson skor- aði eitt marka Lokeren sem vann stórsigur á Mons, 4:0, í belgísku 1. deildinni í knatt- spyrnu um helgina. Arnar Þór skoraði síðasta mark leiksins. Lokeren fékk auka- spyrnu utan vítateigs. Arnar Grétarsson renndi á nafna sinn sem skaut þrumuskoti sem hafði viðkomu á varn- armanni og þaðan fór bolt- inn í netið. Arnar Þór lagði upp þriðja mark Lokeren í leikn- um en hann átti mjög góðan leik og fékk heiðursskipt- ingu þegar skammt var til leiksloka. Arnar Grétarsson lék allan leikinn og stóð fyr- ir sínu og sömu sögu er að segja um Rúnar Kristinsson, sem kom inn í lið Lokeren að nýju. Rúnari var skipt útaf um miðjan síðari hálfleik en hann var þá orðinn ansi þreyttur enda búinn að gefa sig allan í leikinn. Lokeren er í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Club Brügge, en toppliðið tapaði óvænt fyrir Sint-Truiden. Arnar Þór inn- siglaði stórsigur Lokeren WILLUM Þór Þórsson, þjálfariKR, og Valdimar Pálsson, þjálfari Þórs/KA/KS, voru útnefndir þjálfarar ársins í efstu deild karla og kvenna í knattspyrnu á aðal- fundi Þjálfarafélags Íslands sem haldinn var um helgina. Það voru þjálfarar liðanna í efstu deild karla og kvenna sem stóðu að kjörinu í samvinnu við Þjálf- arafélagið. Willum Þór stýrði KR-ingum til sigurs á Íslandsmótinu í sumar og varð hann þar fyrsti þjálfarinn sem nær þeim árangri að vinna Íslandsmeitaratitil í öllum deild- um en hann hefur á þjálfaraferli sínum þjálfað lið Þróttar og Hauka og tók svo við vestur- bæjarliðinu síðastliðið haust. Lið Þórs/KA/KS náði í sumar undir stjórn Valdimars Pálssonar besta árangri sínum frá upphafi en norðankonur höfnuðu í 5. sæti í efstu deild kvenna. Á aðalfundinum fengu Gunnar Magnús Jónsson, Keflavík, Hlynur Svan Eiríksson, Þór Akureyri, Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, og Þrándur Sigurðsson, Víkingi, við- urkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka félaga sinna en allir hafa þeir lagt mik- inn metnað í þjálfunina og verið knattspyrnuþjálfarastéttinni til sóma við störf sín eins og segir í fréttatilkynningu frá Þjálf- arafélaginu. Willum Þór og Valdi- mar þjálfarar ársins Morgunblaðið/Brynjar Gauti Willum Þór Þórsson, þjálfari KR. Henry valdi að margra mati rétten hann var afar sterkur spretthlaupari á yngri árum. Norski landsliðsmaðurinn Ronny Johnsen sem glímdi við Frakkann fljúgandi í vörn Aston Villa segir að Henry sé einstakur og að hann hrelli varnarmenn og markverði í Evrópu allri. „Hann er einstakur leikmaður, enginn fer eins hratt yfir og Henry í dag, hann veit það sjálfur og er alltaf líklegur til þess að ná knettinum þrátt fyrir að hann hlaupi fyrst framhjá varnarmönnum,“ segir Johnsen sem í gegnum tíðina hefur farið langt vegna hraða síns en hann lék áður með Manchester United. „Þegar sá gállinn er á honum er nán- ast vonlaust að stöðva hann enda er vopnabúið gott hjá honum – hraði og gabbhreyfingar í bland við fína tækni. Mér finnst eins og fætur hans snerti vart grasið þegar hann fer á sprettinn,“ bætir Johnsen við. Frúin leikur í James Bond Það er margt annað sem gerir Henry að fréttaefni en afrek hans á knattspyrnuvellinum en unnusta hans, hin breska Nicole Merry, leik- ur í nýjustu James Bond-kvikmynd- inni „Die Another Day“ og er Merry ein af „The Ice Palace Girls“ í mynd- inni. Þau skötuhjú Henry og Merry hafa leikið í fjölmörgum auglýsing- um fyrir bifreiðaframleiðandann Renault. Sú herferð varð ekki eins öflug og stefnt var að þar sem franska landsliðið fór með skottið á milli fóta sér frá Heimsmeistara- keppninni í Japan og Suður-Kóreu sl. sumar, titilvörnin endað með því að liðið vann ekki leik í riðlakeppn- inni og skoraði ekki mark. Henry og Merry búa í glæsilegu einbýlishúsi í Hampstead-hverfinu í Norður-London, Húisð er 650 fm og greiddi Henry um 770 milljónir fyrir eignarréttinn. Í næsta nágrenni búa margir félagar hans úr Arsenal, Sylvain Wiltord, Robert Pires og Patrick Vieira. Leiðinleg knattspyrna á Ítalíu Henry var uppgötvaður af útsend- urum Mónakó í Frakklandi, þá 13 ára gamall, og lék með liðinu frá 1995–1999 en var þá seldur til Juv- entus á Ítalíu. Vera hans hjá „gömlu konunni“ var ekki löng því í ágúst sama ár var hann seldur til Arsenal. Upphaflega var Henry notaður sem vængmaður en eftir að besti vinur hans, Nicolas Anelka, fór frá Arsenal til Real Madrid, fór Henry í fremstu víglínu. „Ég var aldrei sáttur við leikstíl Juventus og ítalskra liða al- mennt. Þar er aðeins hugað að varn- arleiknum sem er eins langt frá leik- stíl Arsenal og hugsast getur. Hér ætla ég að vera um langa tíð,“ segir Henry sem sló í gegn á HM í Frakk- landi 1998 og varð markahæsti leik- maður liðsins í keppninni sem Frakkar unnu. Gerir aðra leikmenn betri Wenger telur það einn besta kost Henry að hann er ekki einungis markaskorari heldur skapar hann mikið fyrir félaga sína. „Henry er vel gefinn og með mikinn metnað. Hann er aðeins 25 ára og á bestu árin eftir fram yfir þrítugsafmælið. Í dag er erfitt að sjá veikleika hjá honum en hann er ekki með bestu skallamönn- um deildarinnar en getur samt sem áður skallað vel ef sá gállinn er á honum,“ sagði Wenger við breska blaðamenn á dögunum er hann var inntur eftir helsta veikleika Henrys. Henry telur sig eiga enn eftir að launa Wenger traustið sem knatt- spyrnustjórinn sýndi honum er hann var aðeins 16 ára gamall og í her- búðum Mónakó. „Ég taldi mig eiga möguleika á að komast í aðalliðið er ég var orðinn 20–21 árs gamall. Wenger horfði hinsvegar á alla leiki unglingaliðsins, hann kom mér og flestum á óvart með því að velja mig í aðalliðið er ég var 17 ára,“ segir Henry en Wenger hvarf á braut frá Mónakó og fór að þjálfa lið í Japan. Henry lék að mestu á vængnum með Mónakó og Wenger var af og til í sambandi við hann frá Japan. „Wen- ger sagði mér að ég væri „nr. 9“, og ætti að vera framherji, en það gerð- ist lítið hjá mér eftir að hann fór frá Frakklandi.“ Henry var í stutta stund á mála hjá Juventus og eftir að tímabilinu lauk sumarið 1999 hittust þeir Henry og Wenger í flugvél sem var á leið frá Tórínó til París í Frakklandi. Henry hafði ekki náð sér á flug með Juventus enda var honum ætlað að leika sem vængmaður með varn- arhlutverk og Henry var lítt hrifin af því að þurfa elta andstæðingana upp að hornfána til þess að tækla þá dug- lega. „Wenger heldur því fram að þetta hafi verið tilviljun að við hittumst þarna í flugvélinni en þeir sem þekkja hann vel vita að það er ekki rétt. Þarna spjölluðum við saman og ég sagði honum að ég vildi leika und- ir hans stjórn á ný. Hann gaf mér tækifæri hjá Arsenal sem framherji og í frjálsu hlutverki, og það var und- ir mér komið að nýta það sem best,“ segir Henry og bætir því við að hug- ur hans sé hjá Arsenal og þar vilji hann vera. Færi ekki til Real Madrid „Ég hef engan áhuga á að leika með Real Madrid á Spáni. Ég vil vinna Meistaradeildina með Arsenal og launa traustið sem liðið hefur sýnt mér.“ Frakkinn ungi er vinsæll á meðal knattspyrnuáhugamanna en hann segir að Englendingar kunni manna- siði í samskiptum sínum utan vallar. „Hér í London gengur fólk að manni á veitingastað og spyr kurteislega hvort ég geti áritað eitt og annað. Það er sjálfsagt mál en á Ítalíu og Frakklandi sest fólk niður við hlið mér á veitingastað líkt og gamlir kunningjar. Englendingar gera ekki slíkt.“ Foreldrar Henrys eru innflytjend- ur og ólst hann upp í hörðu umhverfi í úthverfi Parísar. „Eldri bróðir minn Willy segir að ég hafi ekki hugsað um annað en knattspyrnu og hafi því ekki tekið eftir öllum lögreglubílun- um og átökunum sem voru daglegt brauð á L’Essonne. Þegar ég fékk boð um skólagöngu í knattspyrnu- Hinn jarðbundni Thierry Henry valdi knattspyrnuna í stað frjálsíþrótta „Mér líður eins og Ofurmanni í Arsenal- keppnistreyjunni“ HEITASTI framherji ensku úrvalsdeildarinnar, Thierry Henry, hélt uppteknum hætti er Arsenal tók á móti Aston Villa á laugardag. Frakkinn skroraði í tvígang, fyrst beint úr aukaspyrnu og síðan úr vítaspyrnu en Arsenal vann leikinn 3:1 og er á toppi ensku úrvals- deildarinnar og Henry er markhæstur ásamt Gianfranco Zola, Chelsea, með 9 mörk. „Mér líður eins og Ofurmanni þegar ég fer í Arsenaltreyjuna,“ segir hinn 25 ára gamli Henry sem stóð frammi fyrir því sem unglingur að velja á milli frjálsíþrótta og knattspyrnu. Reuters ’ Ég hef engan áhuga á að leika með RealMadrid á Spáni. Ég vil vinna Meistaradeild- ina með Arsenal og launa traustið sem liðið hefur sýnt mér. ‘ Sigurður Elvar Þórólfsson tók saman Kona vill stjórna í Íran KONA sem starfað hefur hjá knattspyrnusambandi Írans undanfarna þrjá áratugi, Kadijeh Sepanji, hefur gefið kost á sér sem næsti forseti knattspyrnusambands lands- ins. Umsókn Sepanji vekur athygli þar sem konur í Íran mega ekki horfa á knatt- spyrnuleiki og geta aðeins sparkað í knött sjálfar innan- húss og án þess að nokkur karl sé til staðar að horfa á þær leika knattspyrnu. „Ég tel mig geta leyst starfið vel af hendi og er einnig að vekja athygli kvenna hér í Íran á að við verðum að taka af skarið sjálfar ef eitthvað á breytast í okkar þjóðfélagi,“ segir Sep- anji sem er ekki bjartsýn á að fá starfið.  HELGI Kolviðsson og félagar hans í Kärnten steinlágu fyrir Ried, 5:0, í austurrísku 1. deildinni í knatt- spyrnu um helgina. Helgi var í byrj- unarliðinu en var skipt útaf á 59. mínútu þegar staðan er 4:0.  HELGI Valur Daníelsson sat á varamannabekk Peterbrough allan leikinn þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Swindon í ensku 2. deildinni.  JÓHANNES Harðarson kom ekk- ert við sögu í liði Groningen sem gerði 1:1 jafntefli við Herenveen í hollensku 1. deildinni. Jóhannes sat á varamannabekknum allan leikinn en lið hans er í næstneðsta sæti.  JÓHANNES Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Real Betis sem sigraði Bilbao, 1:0, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á sunnudag.  ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði KR-inga, lék með lögregluliðinu Leiftra á Íslandsmótinu í innanhús- knattspyrnu um helgina. Leiftri lék í 4. deildinni og með Þormóð innan- borðs vann liðið sig upp um deild.  HLYNUR Stefánsson, fyrrum leikmaður ÍBV, var lykilmaður í Eyjaliðinu Smástund sem vann sig upp í 1. deildina. Smástund varð efst í sínum riðli og fór upp í 1. deildina ásamt ÍR, Aftureldingu og ÍA.  BRAD Friedel var hetja Black- burn þegar liðið sigraði Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Friedel, sem var að leika sinn fyrsta leik eftir aðgerð á fæti, varði vítaspyrnu frá Steve Marlet undir lok leiksins.  GRAEME Souness, stjóri Black- burn, segir Friedel vera besta mark- vörðinn í ensku úrvalsdeildinni. FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.