Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 5
skóla sem unglingur fór ég þangað á
þeim forsendum að geta launað for-
eldrum mínum það sem þau lögðu á
sig fyrir okkur. Þau leyfðu sér lítið til
þess að við gætum lifað eins og aðrir
ungir Frakkar. Í dag hef ég tækifæri
til þess að launa þeim ríkulega til
baka,“ segir Henry en Wenger segir
að fáir knattspyrnumenn nálgist æf-
ingar og keppni af meiri eldmóð en
Henry. „Hvernig get ég annað en
lagt mig fram þegar maður á borð við
Patrick Viera segir í búningsklefan-
um, ætlar þú að vinna leikinn í dag
fyrir okkur Henry? Félagar mínir í
Arsenal, Wenger og stuðningsmenn-
irnir gefa mér aukið sjálfstraust á
hverjum degi.“
Meistaradeildin aðeins eftir
Henry vantar aðeins verðlaun í
Meistaradeild Evrópu, því hann er
Heims- og Evrópumeistari með
franska landsliðinu og unnið enska
meistaratitilinn og ensku bikar-
keppnina með Arsenal. Henry hefur
skorað 95 mörk fyrir Arsenal í 172
leikjum, þar af 67 í 114 leikjum í
ensku úrvalsdeildinni. Að meðaltali
skorar hann 0,55 mark í leik en ef að-
eins er tekið mið af ensku deildinni
skorar Henry tæplega 0,6 mark í leik
að meðaltali. Fáir framherjar geta
státað sig af slíkum árangri.
Reuters
Thierry Henry í loftköstum að fagna marki sem hann skoraði gegn Roma á Ólympíuleikvanginum í Róm í sl. viku. Hann skoraði þrjú
mörk í leiknum, sem Arsenal vann, 3:1. Arsenal lagði Aston Villa með sömu markatölu á laugardaginn og skoraði Henry þá tvö mörk.
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 B 5
Íslendingaliðunum í þýsku úvals-deildinni í knattspyrnu gekk illa í
leikjum sínum um helgina. Hertha
Berlín sótti Bayern München heim á
ólympíuleikvanginn í München og
beið þar lægri hlut, 2:0, og Bochum,
lið Þórðar Guðjónssonar, fékk slæma
útreið á heimavelli sínum.
Eyjólfur Sverrisson var í leik-
mannahópi Herthu-liðsins en fékk
ekki að spreyta sig. Michael Ballack
skoraði bæði mörk Bæjara sem hafa
stungið af og stefna óðfluga að enn
einum meistaratitlinum. Ballack
skoraði fyrra markið með góðu skoti
á 40. mínútu og það síðara úr víta-
spyrnu á 71. mínútu.
„Við sýndum það með okkar
frammistöðu að það er engin tilviljun
að við erum í toppsætinu,“ sagði Ott-
mar Hitzfeldt, þjálfari Bayern, en
hans menn eru ósigraðir á heimavelli
í síðustu 26 leikjum í deildinni.
Þórður Guðjónsson og félagar
hans í Bochum steinlágu á heimavelli
fyrir grönnum sínum í Armenia
Bielefeld, 3:0. Þórður var í byrjunar-
liði Bochum en var skipt útaf á 63.
mínútu.
Meistararnir í Dortmund eru átta
stigum á eftir Bayern München en
Dortmund vann nauman útisigur á
Nürnberg, 2:1. Heimamenn komust
yfir strax á 3. mínútu en Lars Ricken
og Ewerthon tryggðu meisturunum
sigur í seinni hálfleik.
Hvorki gengur né rekur hjá Bayer
Leverkusen í deildinni en liðið, sem
varð í öðru sæti á þremur vígstöðvum
á síðustu leiktíð, tapaði á heimavelli
fyrir Hamburg, 3:2, og situr í 13. sæti.
Og til að auka á vandræði Lever-
kusen verður brasilíski varnarmað-
urinn Lucio frá í nokkrar vikur en
hann þarf að gangast undir aðgerð á
fæti.
Kaiserslautern vann sinn annan
sigur í deildinni þegar liðið lagði
Wolfsburg, 2:0. „Við sýndum með
þessum leik að við erum ekki dauðir,“
sagði Belginn Erik Gerets, þjálfari
Kaiserslautern. Sigurinn var dýr-
keyptur hjá lærisveinum Gerets því
framherjinn Miroslav Klose sem
skoraði 5 mörk fyrir Þjóðverja á HM
í sumar, meiddist illa á hné og verður
frá í nokkra mánuði af þeim sökum.
Tap hjá Bochum
og Herthu Berlín
SÆNSKIR fjölmiðlar greindu frá því í gær
að Teitur Þórðarson, þjálfari norska liðs-
ins Brann, væri einn þeirra þjálfara sem
AIK frá Stokkhólmi væri með í sigtinu sem
næsti þjálfari félagsins en Tékkinn Dusan
Uhrin, fyrrum landsliðsþjálfari Tékka,
sagði upp störfum hjá félaginu fyrir
skömmu en hann tók við þjálfun liðsins í
maí.
„Ég hef ekkert heyrt frá forráðamönn-
um AIK en ég er vel kunnugur þessum
fréttum enda búinn að svara nokkrum
blaðamönnum frá Svíþjóð síðustu daga um
þetta mál. Mér finnst bara mjög gaman og
mikill heiður að vera nefndur til sögunnar
sem hugsanlegur þjálfari hjá einu stærsta
félagi á Norðurlöndum og að sjálfsögðu
mun ég skoða það með opnum huga ef mér
býðst starf hjá því,“ sagði Teitur Þórð-
arson í samtali við Morgunblaðið í gær.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Teitur er
orðaður við AIK en hann sagði við Morg-
unblaðið að félagið hefði haft samband við
sig í vor áður en Tékkinn var ráðinn til
liðsins og boðið honum að þjálfa en það
hefði ekki gengið upp þar sem hann var
samningsbundinn Brann.
„Ég er á tvö ár eftir af mínum samningi
við Brann en staðan hefur breyst mikið á
undanförnum misserum. Framtíð félagsins
er mjög ótrygg vegna fjárhagserfiðleika
og það veit í raun enginn hvernig málin hjá
félaginu koma til með að þróast,“ sagði
Teitur.
AIK hafnaði í fimmta sæti á nýliðinni
leiktíð í sænsku úrvalsdeildinni en félagið
er eitt það sigursælasta í Svíþjóð. AIK hef-
ur tíu sinnum hampað meistaratitlinum,
síðast árið 1998, og sjö sinnum borið sigur
úr býtum í bikarkeppninni en þess má geta
að AIK sló ÍBV út í UEFA-keppninni í sum-
ar.
Teitur til AIK?
Teitur Þórðarson, þjálfari Brann.
HEIÐAR Helguson skoraði 7. mark
sitt á leiktíðinni fyrir Watford sem
sigraði Burnley, 2:1, í ensku 1.
deildinni. Heiðar skoraði fyrsta
markið í leiknum þegar hann skall-
aði knöttinn í netið á 40. mínútu.
Heiðar fór af velli á 80. mínútu en
hann þótti líflegur í framlínu Wat-
ford sem hafði fyrir leikinn ekki
unnið í síðustu fimm leikjum. Wat-
ford er í sjöunda sæti deildarinnar,
17 stigum á eftir toppliði Ports-
mouth.
Stoke batt enda á átta leikja tap-
hrinu og nældi í eitt stig í viðureign
sinni við Gillingham. Stoke lenti
undir í upphafi síðari hálfleiks þeg-
ar markvörðurinn Mark Crossley,
sem Stoke er með í láni frá Middles-
brough, gerði sig sekan um mistök
en Stoke tókst að jafna fjórum mín-
útum síðar þegar Clive Clark skor-
aði með þrumufleyg af um 20 metra
færi. Clark meiddist illa á hné undir
lok leiksins og verður frá í nokkrar
vikur.
Brynjar Björn Gunnarsson, Pétur
Hafliði Marteinsson og Bjarni Guð-
jónsson voru allir í byrjunarliði
Stoke og léku allan leikinn. Pétur
fékk gullið tækifæri til að tryggja
Stoke öll stigin en hann skallaði
framhjá marki Gillingham í góðu
færi undir lok leiksins. Stoke er sem
fyrr í fallsæti en liðið situr í þriðja
neðsta sæti með 15 stig, tveimur
stigum á eftir Grimsby.
Hermann Hreiðarsson náði sér
ekki á strik með Ipswich þegar liðið
tapaði fyrir Nottingham Forest, 2:1.
Hermann var tekinn af velli á 53.
mínútu en Ipswich lenti 2:0 undir en
klóraði í bakkann á lokamínútunni.
Ívar Ingimarsson kom ekkert við
sögu í liði Wolves sem gerði marka-
laust jafntefli við Rotherham.
Sjöunda
mark
Heiðars
LÁRUS Orri Sigurðsson átti mjög
góðan leik í vörn WBA í 1:0 sigri
liðsins á Middlesbrough. Daniele
Dichio tryggði nýliðunum öll stigin
með marki 18 mínútum fyrir leiks-
lok og um leið fyrsta sigur WBA í
tíu leikjum. Gary Megson, stjóri
WBA, hrósaði varnarmönnum sín-
um eftir leikinn en Lárus og sam-
herjar hans í vörninni höfðu undan-
tekningalaust betur á móti sóknar-
mönnum „Boro“.
„Þetta voru frábær úrslit enda lið
Middlesbrough sterkt og með
marga góða leikmenn innanborðs.
Við eigum erfitt með að skora mörk
en á meðan við höldum marki okkar
hreinu er ég ánægður,“ sagði Meg-
son eftir leikinn.
Eiður Smári Guðjohnsen lék allan
síðari hálfleikinn fyrir Chelsea sem
sigraði Sunderland, 3:0, á Stamford
Bridge. Hlutirnir fóru ekki að
ganga hjá Chelsea fyrr en Eiður
Smári og Emmanuel Petit komu
inná en Claudio Ranieri, stjóri
Chelsea, notaði leikhléið til að gera
breytingar á liði sínu. Chelsea skor-
aði öll þrjú mörk sín í síðari hálf-
leiknum. William Gallas skoraði það
fyrsta á 58. mínútu, Marcel Desailly
bætti við marki á 84. mínútu og
Jimmy Floyd Hasselbaink innsigl-
aði svo sigur þeirra bláklæddu þeg-
ar hann skoraði þriðja markið á 89.
mínútu. Þetta var fimmti sigur
Chelsea í síðustu sjö leikjum.
„Það var erfitt að brjóta niður
sterkan varnarmúr Sunderland.
Mér fannst ég verða að gera breyt-
ingar á liðinu í hálfleik og þær tók-
ust einstaklega vel. Eiður og Petit
frískuðu mikið upp á leik liðsins,“
sagði Ranieri eftir sigur sinna
manna.
Lárus
öflugur í
vörn WBA