Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 8

Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 8
HANDKNATTLEIKUR 8 B ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Leikurinn fór hægt af stað og voruliðin lengi að þreifa fyrir sér. FH-ingar náðu þó strax yfirhöndinni og eftir stundarfjórð- ung var kominn fimm marka munur. Sókn gestanna virk- aði bitlaus og var að- eins Þórólfur Nielsen sem átti góða spretti og sá til þess að munurinn yrði ekki meiri, í hálfleik leiddu heimamenn með fjórum mörkum, 16:12. Síðari hálfleikurinn byrjaði á svip- uðum nótum og sá fyrri endaði. Mun- urinn hélst í fjórum mörkum og allt stefndi í öruggan sigur heimamanna. En um miðbik hálfleiksins var eins og Stjörnumenn rönkuðu við sér. Á tíu mínútna kafla náðu þeir að jafna leik- inn og gera tilkall til beggja stiganna. Leikurinn var í járnum síðustu mín- úturnar. Þegar fimm mínútur voru eftir voru gestirnir komnir með tveggja marka forystu. Zoltan Bel- ánýi fékk tækifæri til að auka muninn frekar þegar fyrirliði heimamanna, Sigurgeir Ægisson, fékk dæmt á sig vítakast – og var einnig rekinn útaf í tvær mínútur – en Jónas Stefánsson varði. Þess í stað skoraði Logi Geirs- son í næstu sókn FH-inga, þeir unnu svo boltann aftur og náðu að jafna 25:25. Um leið og flautað var til leiks- loka fengu Stjörnumenn svo dæmt á sig aukakast en skot Björgvins Rún- arssonar fór vel framhjá. „Við byrjuðum leikinn vel og vor- um með ágætis forystu framan af. Undir lokin urðum við einfaldlega kærulausir, héldum að við værum með unninn leik í höndunum og gáf- um þeim annað stigið,“ sagði Logi Geirsson, leikmaður FH, vonsvikinn að leik loknum. Greinilegt var á leik Stjörnunnar að liðinu var dýrkeypt að missa í meiðsl markahæsta mann sinn, Vil- hjálm Inga Halldórsson. En ef Þór- ólfur Nielsen spilaði eins og hann gerði í síðari hálfleiknum þurfa þeir ekki að örvænta, hann skoraði átta mörk og fiskaði mörg þeirra sjö víta sem Zoltan Belánýí skoraði úr. „Við vorum ekki á tánum til að byrja með og gáfum þeim alltof mikið forskot. En við komum sterkir til baka, spiluðum gríðarlega vel í seinni hálfleik og það var ekkert nema klúð- ur að taka ekki bæði stigin. Við eigum að geta unnið þetta FH-lið og áttum að gera það í þessum leik,“ sagði Sig- urður Gunnarsson, þjálfari Stjörn- unnar. Öruggur Haukasigur Leikur ÍBV og Hauka á laugardagbyrjaði fjörlega og héldu heima- menn í við bikarmeistarana lengst af í fyrri hálfleik. Eyja- menn brugðu á það ráð að taka tvo Haukaleikmenn úr umferð frá fyrstu mínútu og tók það gestina talsverðan tíma að finna svör við því. Haukar sigu þó aðeins fram úr á lokakafla fyrri hálfleiks og höfðu þriggja marka forystu er gengið var til bún- ingsherbergja. Það var svo allt annað uppi á teningnum í síðari hálfleik og ef einhvern tíma er hægt að segja að aðeins eitt lið hafi verið á vellinum var það í síðari hálfleik í leiknum. Haukarnir skoruðu hvert markið á fætur öðru og komust fljótlega tíu mörkum yfir og eftir það var aðeins formsatriði að klára leikinn. Viggó Sigurðsson notaði tækifærið og gaf varamönnum Haukaliðsins tækifæri á að spreyta sig og juku þeir forystu Haukamanna sem endaði 19:33. Jas- on Ólafsson var sterkur í liði gest- anna og einnig skilaði Þorkell Magn- ússon sínu vel í leiknum. Hjá heimamönnum átti Viktor Gigov markvörður stórleik í fyrri hálfleik og varði þrettán skot. Aftur á móti urðu varin skot aðeins þrjú í seinni hálfleik. Eyjaliðið var í heild sinni slakt í leiknum. Tap hjá Þór á heimavelli HK-liðið æðir upp töfluna og er núfarið að blanda sér í toppbarátt- una fyrir alvöru. Á laugardaginn gerði HK sér lítið fyr- ir og lagði Þór í Íþróttahöllinni á Ak- ureyri en Þórsarar höfðu ekki tapað heimaleik í vetur og raunar ekki í tæpt ár. Lokatölur urðu 31:28, HK í vil. „Mér fannst ekki leiðinlegt að sigra hérna,“ sagði Árni Stefánsson, þjálfari HK, glottuleitur eftir leikinn en hann er Þórsari að upplagi. „Þetta var að sjálfsögðu takmarkið. Grunnurinn að sigrinum lá í því að vörnin small saman og við keyrðum á leikgleði og baráttu. Síðan var sóknarleikurinn fjölbreyttur hjá okkur og sigurinn raunar aldrei í hættu,“ sagði Árni. Óhætt er að segja að spútnikliði Þórs hafi fatast flugið að undanförnu og í þessum leik gekk flest á afturfót- unum. Markvarslan lítil, vörnin mis- tæk og sóknarleikurinn iðulega óhemju vandræðalegur. Þá var mikill munur á stemmningunni í liðunum; stöðug hvatningarhróp og fagnaðar- læti á bekknum hjá HK en öllu nei- kvæðari bylgjur í kringum heima- menn. Í fyrri hálfleik fór Jaliesky Garcia á kostum hjá HK og skoraði 8 mörk og 5-1 vörnin hamlaði mjög sóknar- leik Þórs. Þar var Páll Gíslason eini maðurinn sem sýndi klærnar og skoraði hann 8 mörk í hálfleiknum. Staðan í leikhléi var 13:17. Þórsarar minnkuðu muninn fljótlega í 16:18 í seinni hálfleik en þá skoruðu gestirn- ir fjögur mörk í röð og eftir það höfðu þeir fastatak á leiknum og skipti engu þótt heimamenn gerðu ýmsar breytingar og reyndu m.a. 6-0 kerfi í sóknarleiknum um tíma. Allir í byrjunarliði HK léku vel. Reyndar var markvarslan ekki stór- brotin, enda Þórsarar gjarnan ein- færir um það að klúðra sóknunum auk þess sem vörn HK varði fjölmörg skot. Garcia hafði hægt um sig í seinni hálfleik en þá fór Alexander Arnarsson að blómstra. Atli Þór Samúelsson og Samúel Árnason skoruðu líka lagleg mörk. Páll Gísla- son og línumaðurinn Hörður Sig- þórsson voru nánast þeir einu sem léku af eðlilegri getu í liði Þórs. Mosfellingar nældu sér í stig gegn Víkingi Bjarki Sigurðsson, þjálfari og leik-maður Aftureldingar, bjargaði einhverju af heiðri Mosfellinga þegar hann skoraði jöfnun- armark tveimur sek- úndum fyrir leikslok gegn sínu gamla fé- lagi, Víkingi, á sunnudaginn. Víkingar fóru því eftir 25:25 jafntefli heim með eitt stig en það er samt kærkomið því þeir hafa aðeins 4 stig eftir 14 leiki. Mosfellingar spiluðu vörnina fram- arlega en tókst samt ekki að brjóta Víkinga á bak aftur. Eftir tíu mínútna leik hafði Víkingur forystu. Þá var einum leikmanni Víkings vikið af velli í tvær mínútur og það nýttu heima- menn sér til hins ítrasta og skoruðu þrjú mörk á meðan. Víkingar gáfust ekki upp og komust aftur yfir en Mos- fellingar voru komnir á bragðið og náðu mest fimm marka forystu. Fljót- lega eftir hlé fóru Víkingar að ná sér á strik og að sama skapi gerðust heima- menn heldur værukærir, margar sóknir fóru í súginn með óvönduðum leik auk þess sem þeir fóru að kvarta við dómara um ýmislegt í stað þess að líta í eigin barm. Víkingar héldu sínu striki og slógu ekki af fyrr en þeir voru komnir með fjögurra marka for- ystu, 23:19, og sjö mínútur eftir. Hófst þá darraðardans og það mega Mos- fellingar eiga að þegar þeir loks vökn- uðu af sínum væra blundi, ruku þeir upp. Þegar 30 sekúndur voru eftir höfðu Víkingar boltann og eins marks forskot og Birgir Sigurðsson þjálfari þeirra tók leikhlé. Tuttugu sekúndum fyrir leikslok reyndu Víkingar skot en það fór framhjá. Bjarka Sigurðssyni tókst að jafna á síðustu sekúndunum fyrir heimamenn. „Ég ætlaði ekki að skjóta því við vorum sex á móti fjórum og ég gat hugsanlega sent boltann en þegar ég fékk færi á góðum stað nýtti ég það,“ sagði Mosfellingurinn Bjarki eftir leikinn en hann var ekki sáttur við lið sitt. „Annars var þetta var lélegt hjá okkur. Við getum ekki leyft okkur neitt kæruleysi því við erum í basli í neðri hluta deildarinnar. Við gátum því ekki vanmetið Víkinga fyrir leik- inn því við höfum engin efni á því en einhvern veginn gerðist það. Mér fannst kæruleysi í sóknarleiknum, menn voru að reyna eitthvað upp á eigin spýtur og mikið af mistökum með sendingar en við það náðu Vík- inga hraðaupphlaupum sem gerðu þeim kleift að jafna og ná síðar for- ystunni. Vörnin var líka götótt á tímabili og menn sem eiga ekki að missa mótherja framhjá sér gerðu einmitt það.“ Markverðirnir Reynir Þór Reynisson og Ólafur H. Gíslason skiptu með sér leiknum og stóðu sig ágætlega ásamt Sverri Björnssyni, sem sýndi mikla baráttu. Sigurður Sigurðarson markvörður Víkinga átti góðan leik og var sáttur við stigið. „Það er ekki svo sárt að ná bara einu stigi hérna þótt ég hefði auðvitað viljað bæði en þó gott að við séum að komast á beinu brautina því við höfum verið að tapa með tíu marka mun. Það styttist í sigurinn og gott að við erum farnir spila sem lið en ekki einstaklingar,“ sagði Sigurð- ur eftir leikinn. „Vörnin hefur ekki verið góð undanfarið en við höfum náð að berja okkur saman síðustu vikuna og þetta er að smella saman hjá okkur. Strákarnir eru farnir að leggja sig meira fram og við ætlum að taka á mótinu af fullum krafti.“ Ragnar Hjaltested átti góða spretti eins og Þórir Júlíusson og Davíð Guðnason. Góður endasprettur dugði Stjörnunni ekki Morgunblaðið/Golli Magnús Sigurðsson sækir að marki gömlu félaganna sinna – Stjörnumennirnir Zoltan Belányi og Þórólfur Gunnlaugsson til varnar. LÍF og fjör var í Kaplakrika á sunnudagskvöldið þegar FH- ingar fengu nágranna sína úr Stjörnunni í heimsókn. Gestirnir komust ekki almennilega í gang fyrr en langt var liðið á síðari hálfleik en það nægði þeim til að ná öðru stiginu af von- sviknum Hafnfirðingum. Leik- urinn endaði 25:25 eftir spenn- andi lokamínútur og mislukkað aukakast heimamanna eftir að leiktíminn var úti. Andri Karl skrifar Sigursveinn Þórðarson skrifar Stefán Þór Sæmundsson skrifar Stefán Stefánsson skrifar Sjálfsmark á Varmá SIGURÐUR Sigurðarson, markvörður Víkinga, gaf sig allan í leikinn við Aftureldingu. Stundum var kappið mikið og eitt sinn er hann var búinn að verja skot og ætlaði að koma bolt- anum fram völlinn, sló hann óvart boltanum í eigið mark – Sigurður horfði forviða á boltann í netinu. Reyndar munaði minnstu að Sigurður endurtæki leikinn, en þá var búið að flauta á brot. „Ég held að þetta sé fyrsta sjálfsmarkið mitt og þau voru næstum því tvö en sem betur var flautað áður,“ sagði Sigurður brosandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.