Morgunblaðið - 03.12.2002, Qupperneq 9
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 B 9
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is
www.icelandair.is
NBA-veisla! - Sjáðu Michael Jordan
Verð aðeins
48.810 kr.*
Síðustu söludagar.
Tryggðu þér sæti!
WashingtonWizards
og New York Knicks
5. - 8. desember
Pantaðu í síma
50 50 700
eða á söluskrifstofu
okkar í Kringlunni
á mann í tvíbýli
* Innifalið: Flug, flugvallarskattar, þjónustugjöld, gisting í
3 nætur á Holiday Inn Downtown og miði á leikinn.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri.
Síðasta leiktímabil þessa mikla snillings.
DAGRÚN Inga Þorsteinsdóttir,
úr Ármanni, setti Íslandsmet í há-
stökki stúlkna 13–14 ára um
helgina þegar hún vippaði sér yf-
ir 1,66 metra. Þar með bætti hún
26 ára gamalt met Írisar Jóns-
dóttur úr UMSK sem hún setti á
Akranesi 15. apríl 1976, en Íris
stökk 1,63 metra.
Metið setti Dagrún Inga á
Haustleikum ÍR sem fram fóru
um helgina þar sem 320 krakkar
14 ára og yngri öttu kappi en í
fyrra voru keppendur 180 talsins.
Bergvin Oddsson úr Óðni í
Vestmannaeyjum setti einnig Ís-
landsmet á mótinu, en hann
keppir í flokki blindra. Bergvin
varpaði kúlu 11 metra slétta.
Dagrún
Inga setti
met
IOC, Alþjóðaólympíunefndin, fund-
ar þessa dagana í Mexíkó og hefur
IOC ákveðið að fresta atkvæða-
greiðslu þar sem ákveða átti fram-
tíð slagbolta (softball), hafnabolta
og nútímafimmþrautar. Mikil um-
ræða hefur verið í ýmsum nefnd-
um á vegum IOC þess efnis að
minnka umfang ÓL og fækka þar
með keppnisgreinum. IOC ákvað á
fundi sínum að fresta ákvörðun
sinni fram yfir ÓL í Aþenu árið
2004 og verða því áðurnefndar
greinar enn á dagskrá í Grikk-
landi. Það hefur ekki gerst síðan
árið 1936 að íþróttagrein hefur
verið tekin af dagskrá Ólympíu-
leika.
IOC ætlar
ekki að
skera niður
„HVER hefði trúað því að lítt
þekktur nýliði frá lítilli eyju
sem Þjóðverjar kannast aðeins
við vegna Geysis og eldfjalla
hafi verið valinn leikmaður
nóvembermánaðar í þýsku úr-
valsdeildinni í körfuknattleik?“
spyr greinarhöfundur á heima-
síðu þýska körfuknattleiks-
sambandsins er hann kynnir ís-
lenska landsliðsmanninn Jón
Arnór Stefánsson til sögunnar
en hann var útnefndur sem
besti leikmaður deildarinnar í
nóvember.
„Þessi útnefning kom mér
verulega á óvart og ég hafði
ekki leitt hugann að þessum
hlutum. Þetta var svo langt frá
mér, enda er liðinu ekki búið
að ganga of vel í vetur, en töl-
fræðin hjá mér í nóvember var
með ágætum. Slík viðurkenning
á að geta hjálpað mér að ná
enn lengra. Því má ekki gleyma
að þetta er aðeins krydd í til-
veruna því ég á enn langt í
land ef ég ber mig saman við
Ólaf bróðir minn hjá Magde-
burg. Hann var leikmaður árs-
ins í fyrri í úrvalsdeildinni og
ég má því ekki ofmetnast við
þetta, “ sagði Ólafur. Bernard
Thompson, þjálfari Trier sem
Jón Arnór leikur með, segir að
Íslendingurinn sé besti „táning-
urinn“ sem hann hafi séð til
þessa í Evrópu, en Jón Arnór
varð tvítugur í september sl.
Thompson lék á sínum tíma í
NBA-deildinni og sem atvinnu-
maður í Þýskalandi.
Jón Arnór hefur skorað 14,3
stig að meðaltali til þessa, tekið
2,6 fráköst og gefið 4 stoðsend-
ingar í leik.
Jón Arnór fékk 503 stig í
kjörinu, Gordan Firic kom þar
næstur með 447 stig og Quadre
Lollis varð þriðji með 401 stig.
„Ég veit ekki hvernig kosn-
ingin fer fram en þetta er ekki
netkosning líkt og hjá þekktum
sjónvarpsmönnum á Íslandi,“
bætti Jón Arnór við í léttum
tón.
Jón Arnór Stefánsson vekur athygli í Trier.
Besti
„táningurinn“
í Evrópu
Við gengum til þessa leiks við erf-iðar aðstæður,“ sagði Gústaf
Adolf Björnsson, þjálfari Hauka í
leikslok, en á föstu-
dag lést Ísleifur Val-
týsson faðir Hörpu
Melsted fyrirliða
Hauka. Í upphafi
leiks var mínútu þögn í Haukahúsinu í
minningu hans. „Við svona aðstæður
er erfitt að undirbúa lið, þá ræður um-
hyggja leikmanna og forráðamanna
liðsins að sjálfsögðu öllu og hefðbund-
inn undirbúningur riðlast. En ég er
mjög stoltur af því hvernig stelpurnar
unnu úr því og þó að við höfum fengið
á baukinn hjá Gróttu/KR í fyrri hálf-
leiknum þá komu þær til baka og
sýndu góðan karakter hér undir lok
leiksins. Við erum komin í baráttu við
Stjörnuna um sæti tvö og ætlum að
halda okkur þar,“ sagði Gústaf.
Gróttu/KR liðið kom mjög ákveðið
til þessa leiks og Aiga Stefanie fór
hreinlega á kostum í liði þeirra fyrstu
12 mínútur leiksins. Þá skoraði hún 6
af 7 mörkum Gróttu/KR, mörk sem
voru í öllum regnbogans litum. En
Haukastúlkur eru ekki fæddar í gær
og þær unnu sig smátt og smátt inní
leikinn. Hanna G. Stefánsdóttir fór þá
mikinn, skoraði 6 mörk og höfðu
Haukar þriggja marka forskot í leik-
hléi, 13:10.
Dálítið fum og fát var yfir Hauka-
liðinu framan af síðari hálfleik og þeg-
ar tæpar 13 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik jafnaði Grótta/KR
17:17. Á þessum tíma náðu Hauka-
stúlkur ekki að ljúka nema 6 af 16
sóknum sínum með skoti og þar af
rötuðu 4 þeirra í markið. Grótta/KR
náði síðan tveggja marka forystu þeg-
ar um 10 mínútur voru eftir, 19:21, en
þá misstu þær Kristínu Þórðardóttur
útaf í þriðja sinn og var það of stór biti
fyrir Gróttu/KR-liðið.
Markvarsla beggja liða var vægast
sagt slök en enginn markvarðanna
náði sér á strik í þessum leik. Aiga
Stefanie fór mikinn í liði Gróttu/KR
sem fyrr er sagt og þá var Þórdís
Brynjólfsdóttir sterk og greinilegt að
hún er að komast í sitt fyrra form.
Hjá Haukum lék Hanna best auk
þess sem Tinna Halldórsdóttir var
mjög sterk í síðari hálfleiknum.
Morgunblaðið/Golli
Inga Fríða Tryggvadóttir, leikmaður Hauka, skorar eitt af þrem-
ur mörkum sínum í leiknum gegn Gróttu/KR.
HAUKASTÚLKUR fylgja liði Stjörnunnar í Garðabæ eins og skugg-
inn en þessi lið berjast um 2. sæti 1. deildar kvenna í handknattleik.
Á laugardag tóku Haukar á móti Gróttu/KR að Ásvöllum og höfðu
heimastúlkur betur, 26:23, í hörkuleik. Stjarnan lagði Fylki/ÍR að
velli, 26:19, og á sunnudag fögnuðu FH-stúlkur sigri á KA/Þór
22:20, eftir að hafa verið yfir í leikhléi, 13:7.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Haukar lögðu
Gróttu/KR