Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 12
Arsene Wenger, knattspyrnu-stjóri Arsenal, hrósaði Frakk-
anum Thierry Henry í hástert eftir
sigur meistaranna á Aston Villa en
Henry hefur farið mikinn í liði Ars-
enal í undanförnum leikjum. „Henry
er hreint ótrúlegur leikmaður. Hann
er í fantaformi og fyrir mér er það
engin spurning um að hann eigi að fá
nafnbótina knattspyrnumaður árs-
ins í Evrópu,“ sagði Wenger sem sá
Henry skora tvö af mörkum Arsenal
á móti Aston Villa eftir að Robert
Pires hafði opnað markareikninginn
fyrir meistaraliðið.
„Það var á brattann að sækja en
ég er samt að mörgu leyti sáttur við
frammistöðu minna manna. Við vor-
um í þeirri stöðu að geta jafnað met-
in í seinni hálfleik en svo kom víta-
spyrnan og eftir að Henry skoraði úr
henni voru úrslitin ráðin. Lið Arsen-
al er feikilega sterkt og maður hefur
það á tilfinningunni að liðið geti
skorað mörk að vild,“ sagði Graham
Taylor, stjóri Aston Villa, eftir leik-
inn.
Þungi fargi létt af United
Þungu fargi er létt af Alex Fergu-
son og strákunum hans í Manchester
United en eftir að hafa tapað fimm
leikjum í röð fyrir Liverpool sótti
United þrjú stig á Anfield. Leiksins
verður aðallega minnst fyrir hræði-
leg mistök sem pólski markvörður-
inn Jerzy Dudek gerði sig sekan um í
síðari hálfleik. Hann færði þá Diego
Forlan mark á silfurfati þegar hann
missti knöttinn á milli fóta sér og
Úrúgvæinn þakkaði pent fyrir sig og
renndi knettinum í autt markið. For-
lan bætti öðru marki við skömmu
síðar en fyrirliðinn Sami Hyypia lag-
aði stöðuna fyrir Liverpool með
marki níu mínútum fyrir leikslok.
Liverpool pressaði stíft á lokamín-
útunum en vörn United hélt velli og
stórbrotin markvarsla Fabien
Barthez þegar hann varði skot Diet-
mar Hamans í slána kom í veg fyrir
að Liverpool jafnaði metin.
Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
var að vonum svekktur með úrslit
leiksins og hann sagði að Dudek
fengi að hvíla þegar Liverpool leikur
við Ipswich í deildabikarkeppninni
annað kvöld.
„Við verðum að sjá til eftir leikinn
við Ipswich hvort Dudek fái stöðu
sína aftur en auðvitað kostuðu mis-
tök hans okkur sigurinn. Fyrsta
mark í svona leik er alltaf mjög mik-
ilvægt og það gaf leikmönnum Man-
chester aukið sjálfstraust. Dudek
var mjög sár eftir leikinn en ég vil
samt ekki skella skuldinni á einn
leikmann. Við erum búnir að ganga í
gegnum erfitt tímabil að undanförnu
líkt og Arsenal lenti í en vonandi eru
bjartari tímar framundan,“ sagði
Houllier en Liverpool hefur aðeins
hlotið eitt stig af 12 mögulegum í síð-
ustu fjórum leikjum í deildinni og
tapaði deildarleik á Anfield í fyrsta
sinn í eitt ár.
„Sigurinn var ákaflega mikilvæg-
ur og gefur liðinu gott sjálfstraust
fyrir leikinn við Arsenal um næstu
helgi. Mér fannst mitt lið spila leik-
inn af mikilli festu og áræðni og sam-
heldnin var til fyrirmyndar. Ég held
að við séum að komast í góðan gír,“
sagði Alex Ferguson, stjóri Man-
chester United.
Það er ljóst að spennandi meist-
arabarátta er framundan á Eng-
landi, þar sem Arsenal, Manchester
Unitged, Liverpool og Chelsea, sem
vann Sunderland 3:0, koma til með
að setja mark sitt á.
Everton loks stöðvað
Newcastle sigraði Everton, 2:1, og
stöðvaði þar með sigurgöngu Ever-
ton sem fyrir leikinn hafði unnið sex
leiki í röð og ekki fengið mark á sig í
rúmar átta klukkustundir. Kevin
Campbell kom Everton yfir á 17.
mínútu en tíu mínútum síðar varð
liðið fyrir áfalli þegar varnarmann-
inum Joseph Yobo var vikið af leik-
velli. Lengi vel leit þó útfyrir að
Everton færi með sigur af hólmi en
tvö mörk á síðustu 7 mínútum leiks-
ins tryggðu Newcastle sigurinn. Al-
an Shearer jafnaði með glæsilegu
viðstöðulausu skoti og hinn óstýriláti
Craig Bellamy skoraði sigurmarkið
skömmu síðar sem verður að skrifast
á reikning Richards Wrights, mark-
varðar Everton.
Leeds í vandræðum
Mikill þrýstingur er kominn á
Terry Venables, stjóra Leeds, að
segja starfi sínu lausu en lærisveinar
hans eru í 16. sæti eftir 2:1 ósigur á
heimavelli fyrir Charlton. Harry
Kewell náði forystu fyrir Leeds á 42.
mínútu en tvö mörk á síðustu 10 mín-
útunum tryggðu Charlton sætan sig-
ur.
„Við vorum værukærir þegar líða
fór á seinni hálfleikinn og var refsað
grimmilega fyrir það,“ sagði Venabl-
es eftir leikinn en ósigurinn var sá
níundi hjá Leeds á leiktíðinni og sá
fimmti í röð á heimavelli.
Allt stefnir í að spennandi meistarabarátta sé framundan í Englandi
Martröð hjá pólska
markverðinum Dudek
AP
Diego Forlan, leikmaður Manchester United, fagnar fyrra marki sínu gegn Liverpool á Anfield.
■ Úrslit/B10
■ Staðan/B10
PÓLVERJINN Jerzy Dudek,
markvörður Liverpool, upplifði
skelfilega martröð á Anfield í
fyrradag í stórleik Liverpool og
Manchester United í ensku úr-
valsdeildinni. Dudek færði
Diego Forlan mark á silfurfati
þegar hann missti knöttinn á
milli fóta sér. Úrúgvæinn þakk-
aði pent fyrir sig, renndi knett-
inum í autt markið og skoraði
svo annað mark framhjá Dudek
þremur mínútum seinna áður
en Sami Hyypia lagaði stöðuna
fyrir Liverpool. Arsenal styrkti
þar með stöðu sína í toppsæt-
inu. Meistararnir unnu sann-
færandi sigur á Aston Villa, 3:1,
og eru með fjögurra stiga for-
skot á Liverpool. Chelsea er í
þriðja sæti, fimm stigum á eftir
Arsenal með 30 stig og Man-
chester United og Everton
koma þar á eftir með 29 stig.
JÚGÓSLAVINN Darko Kovace-
vic skoraði bæði mörk Real Socied-
ad sem gerði sér lítið fyrir og sigraði
Barcelona, 2:1, í spænsku 1. deild-
inni í knattspyrnu á sunnudaginn.
Baskaliðið hefur komið gríðarlega á
óvart og sjöundu vikuna í röð trónir
liðið á toppnum.
BÖRSUNGAR, sem hafa farið á
köstum í Meistaradeildinni, léku
tveimur leikmönnum færri síðustu
mínúturnar. Thiago Motta fauk útaf
á 76. mínútu og Marc Overmars þeg-
ar skammt var til leiksloka.
BÖRSUNGAR komust yfir þegar
Sander Westerweld, markvörður
Sociedad, skoraði sjálfsmark á 33.
mínútu en Kovacevic jafnaði verð-
skuldað sjö mínútum síðar. Hann var
svo aftur á ferðinni í upphafi síðari
hálfleiks þegar hann færði sér í nyt
mistök í vörn Börsunga.
MEISTARARNIR í Valencia urðu
að gera sér markalaust jafntefli að
góðu á móti Alaves og þar með hefur
Real Socied fjögurra stiga forskot á
Valencia í efsta sætinu. Marga lyk-
ilmenn vantaði í lið Valencia og ekki
bætti úr skák þegar markvörðurinn
Santiago Canizares var borinn af
velli eftir aðeins 14 mínútna leik.
EVRÓPUMEISTARAR Real
Madrid fengu frí en leik þeirra á
móti Sevilla var frestað þar sem
Real Madrid mætir í kvöld Olimpia
frá Paragvæ í árlegum leik Evrópu-
meistaranna og S-Ameríkumeistar-
anna og fer leikurinn fram í Tókýó.
CHRISTIAN Vieri, framherji Int-
er, var án efa maður helgarinnar á
Ítalíu. Þessi stóri og kröftugi leik-
maður gerði sér lítið fyrir og skoraði
öll fjögur mörk sinna manna sem
sigruðu Brescia, 4:0. 55.000 áhorf-
endur á San Síró í Mílanó sáu Vieri
skora tvö mörk í sitt hvorum hálf-
leiknum og Vieri er langmarkahæst-
ur í ítölsku deildinni með 12 mörk.
EKKI gekk eins vel hjá hinu
Mílanóliðinu en AC Milan varð að
láta sér lynda 1:1 jafntefli á móti
Empoli. Úkraínumaðurinn Andrei
Shevchenko kom Milan-liðinu til
bjargar en hann jafnaði metin fyrir
sína menn.
FÓLK
ALAN Shearer, framherji
Newcastle, sem á dögunum
náði þeim glæsilega áfanga
að skora sitt 200. mark í úr-
valsdeildinni sagði eftir sig-
ur Newcastle á Everton að
markið sem hann skoraði
væri í hópi þeirra þriggja
bestu sem hann hefur skorað
á ferlinum.
„Þetta mark fer á topp
þrjú listann hjá mér,“ sagði
Shearer sem fékk uppreisn
æru en um helgina var hann
úrskurðaður í tveggja leikja
bann í Meistaradeildinni.
„Það var afar sætt að sjá
boltann fara inn. Líklega
fara níu af tíu svona skotum
langt upp í stúku en ef mað-
ur reynir ekki þá gerist ekki
neitt,“ sagði Shearer enn-
fremur.
Shearer skoraði markið
með glæsilegu viðstöðulausu
skoti utan vítateigs, án efa
eitt allra fallegasta markið
sem skorað hefur verið í úr-
valsdeildinni á þessari leik-
tíð.
Shearer
með mark
ársins?