Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 1

Morgunblaðið - 07.12.2002, Page 1
2002  LAUGARDAGUR 7. DESEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A MEISTARASLAGUR Á OLD TRAFFORD / B4 ÞRÍR þekktir erlendir íþróttamenn, sem allir hafa leikið hér á landi í nokkur ár, fá að öllum líkindum íslenskan ríkisborgararétt fyrir áramót. Þetta eru Roland Eradze, markvörður Vals í handknattleik, Damon Johnson, leikmaður Keflvíkinga í körfu- knattleik og Aleksandrs Petersons, leikmaður Gróttu/KR í handknattleik. Allsherjarnefnd Alþingis lagði til á fimmtudag- inn að ellefu einstaklingar fengju íslenskan rík- isborgararétt fyrir áramótin en alls bárust nefnd- inni 20 beiðnir um slíkt. Venjulega eru þetta frumvarp frá alls- herjarnefnd af- greitt án mikillar umræðu á Alþingi og má því búast við þessir ein- staklingar verði Íslendingar fyrir áramótin. Allir hafa þessir leikmenn verið orðaðir sem möguleigir leikmenn landsliða Íslands á næstu árum. Eradze lék með Georgíumönnum fyrir tæpum þremur árum og hann gæti orðið lög- legur með íslenska landsliðinu í janúar. Reglan er sú að hafi leikmaður leikið landsleik þurfa að líða þrjú ár þar til hann leikur fyrir sitt nýja land og auk þess þarf viðkomandi að hafa leikið í tólf mán- uði í viðkomandi landi áður en hann getur leikið landsleik með nýju þjóðinni. Samkvæmt þessu gæti Eradze orðið löglegur með íslenska landsliðinu á HM í Portúgal eftir ára- mótin, þó ekki í fyrstu leikjum, en hann gæti farið með til Portúgals og komið inn sem sextándi maður á fjórða degi mótsins en þá eru síðustu forvöð að bæta í hópinn og þá væru liðin þrjú ár frá síðasta landsleik hans fyrir Georgíu að því er best er vitað. Petersons lék með Lettum á þessu ári og þarf því að bíða í þrjú ár og sama er að segja um Johnson. Eradze löglegur með Íslandi á HM í Portúgal? Aðal Álaborgarliðsins er öflugvörn og sökum þess skorar það mikið úr hraðaupphlaupum,“ segir Ágúst sem segist hafa safnað saman miklu af upplýsingum um liðið og sé því vel búinn undir leikinn. „Við leggjum áherslu á að halda hraðan- um niðri og freista þess þannig að æsa Danina aðeins upp. Okkar markmið í leiknum er skýrt, við ætlum okkur að vinna til þess að hafa eitthvað veganesti fyrir síðari leikinn ytra eftir viku,“ segir Ágúst. Aalborg HSH hefur í sínum röðum tvo norska landsliðsmenn, Börge Lund og Håvard Tvedten, og einn danskan landsliðsmann, Bo Christan Pedersen, sem leikur á línunni. Norðmaðurinn Lund ætti að vera Íslendingum að góðu kunnur því hann lék með Bodö gegn Haukum í Evrópukeppninni fyrir tveimur árum og stóð sig vel auk þess sem hann átti góða spretti með norska landsliðinu gegn því íslenska í vináttulandsleikj- um hér á landi í fyrrahaust. Lund er alhliða leikmaður sem getur leikið á miðjunni og eins í skyttustöðunum bæði vinstra og hægra megin. Tvedten er hins vegar vinstri horna- maður. Ágúst segir Norðmennina vera sterka og þeir leiki lykilhlutverk í liði Aalborg HSH. Aalborg HSH er eitt best rekna handknattleikslið Danmerkur. Það er nú í 5. sæti dönsku úrvalsdeild- arinnar og hefur rétt úr kútnum und- anfarnar vikur eftir að hafa byrjað keppnistíðina illa í haust. Eftir að skipt var um þjálfara um mánaða- mótin október/nóvember er liðið komið á sigurbraut. „Okkar markmið er að reyna að vinna leikinn, ekki að fara inn á völl- inn og vinna með tíu mörkum, en að sjálfsögðu munum við ekki slá hend- inni á móti því að vinna með sem mestum mun gefist möguleiki á því. En þetta er sterkt lið og við förum með báða fætur á jörðinni í leikinn,“ sagði Ágúst. Það er skarð fyrir skildi hjá Gróttu/KR að varnarmaðurinn sterki, Einar Baldvin Árnason, getur ekki tekið þátt í leiknum. Þá leikur einnig vafi á því hvort Davíð Ólafsson getur spilað með þar sem hann er í prófi í Háskóla Íslands í dag sem skarast við leikinn. „Þátttaka Davíðs veltur á því hversu fljótur hann er með prófið,“ segir Ágúst sem einnig verður án Alfreðs Finnssonar í leikn- um, en hann er meiddur á nára. Í hans stað kemur Ingimar Jónsson, sem verið hefur frá. „Það vantar eitthvað í hópinn hjá okkur, en það kemur maður í manns stað og við erum staðráðnir í að leggja okkur alla fram og vonumst eftir öflugum stuðningi áhorfenda. Þeir geta verið ómetanlegir í leik sem þessum,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR. Tilbúnir í orrustuna við Aalborg HSH „ÞETTA virðist vera sterkt lið sem leikur dæmigerðan danskan handknattleik með 6/0 vörn og stuttum og hröðum sóknum,“ segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, um andstæðinga sína en í dag mætir Grótta/KR liðið Aalborg HSH í Áskorendakeppni Evrópu í handknattleik. Þetta verður fyrri leikur liðanna í 4. umferð keppn- innar og fer hann fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Agnar Magnússon, fyr- irliði Gróttu/ KR, verður í eldlínunni í dag þegar félagið mætir danska liðinu Aalborg í Áskorenda- keppni Evrópu. Roland Eradze markvörður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.