Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 B 3
Partille Cup
2003
Vinsælasta unglingamótið í handbolta.
Úrval Útsýn í Smáranum verður með beint
leiguflug til Gautaborgar 27/6 til 7/7 á
Partille Cup. Í augum flestra er Partille Cup
óopinber heimsmeistarakeppni
unglinga í handbolta.
Allt skipulag og umgjörð mótsins er eins og best gerist
og frábærir skemmtigarðar eins og Skara Sommarland
og Liseberg heimsóttir. Frábært verð 49.900 kr.
Innifalið í verði: Flug, skattar, gisting, 19 máltíðir, rútur
til og frá flugvelli, dagsferð í Skara Sommerland, aðgan-
gur í Liseberg, mótsgjald og íslensk fararstjórn.
Nánari upplýsingar hjá
Úrval Útsýn í Smáranum,
sími 585 4100
tölvupóstur thorir@uu.is
GUNNAR Gunnarsson verður
eftirlitsmaður á leik Barcelona og
Essen í EHF-bikarnum í hand-
knattleik sem fram fer í Barcelona í
dag. Þar eiga Patrekur Jóhannes-
son, Guðjón Valur Sigurðsson og
félagar þeirra afar erfiðan útileik
fyrir höndum.
JAMES Beattie, leikmaður South-
ampton, hefur verið útnefndur leik-
maður mánaðarins í ensku úrvals-
deildinni. Beattie skoraði fjögur
mörk í síðasta mánuði.
STEVE Bruce, knattspyrnustjóri
Birmingham, hefur svo gott sem
tryggt sér varnarmennina Ferdin-
and Coly frá Lens og Didier Domi
frá Paris St. Germain. Hermt er að
þeir eigi aðeins eftir að ganga frá
samningum um laun við Birming-
ham. Takist það verði þeir löglegir
með Birmingham í ensku úrvals-
deildinni strax í upphafi næsta árs.
FINIDI George hefur verið sagt
að hann megi fara frá Ipswich til
annars félags án endurgjalds.
George kom til félagsins fyrir einu
og hálfu ári fyrir um 400 millj.
króna frá Real Mallorca. Hann var
meiddur hluta úr síðustu leiktíð og
hefur ekki tekist að tryggja sér fast
sæti í Ipswich-liðinu á yfirstandandi
keppnistímabili.
JÓN Nordal Hafsteinsson, hæsti
leikmaður körfuknattleiksliðs Kefl-
víkinga varð að horfa á félaga sína
tapa fyrir ÍR. Hann á enn við
meiðsli að stríða en reiknar með að
hefja æfingar í næstu viku.
ENDURTAKA varð uppkast milli
Eugene Christopher og Kevin
Grandberg og í leik ÍR og Keflavík-
ur í gærkvöldi. Grandberg stökk
upp og sló boltann beint útaf en þar
sem Eugene reyndi ekki við upp-
kastið var Keflavík dæmdur bolt-
inn.
EUGENE Christopher lagði sitt
af mörkum í sigri ÍR á Keflavík í
gærkvöldi. Hann skoraði úr 13 af 15
tveggja stiga skotum, þremur af 8
þriggja og fimm af 6 vítaskotum auk
þess að taka 7 fráköst og ná bolt-
anum tíu sinnum. Eugene spilaði 37
mínútur.
FÓLK
Eyjamenn hafa sjálfsagt veriðstaðráðnir í að láta Valsmenn
hafa fyrir hlutunum í byrjun leiks í
gærkvöldi. Þeir tóku þá Markús
Mána Mikaelsson og Snorra Stein
Guðjónsson úr um-
ferð allan leikinn og
reyndu þannig að
riðla sóknarleik
Vals. Þessi staða
kom Valsmönnum ekki á óvart og
eftir að Eyjamenn höfðu leitt
fyrstu 15 mínútur leiksins sigu
Valsmenn fram úr og eftir heldur
dapran og leiðinlegan fyrri hálfleik
höfðu þeir fjögurra marka forskot,
12:8. Í seinni hálfleik héldu Vals-
mönnum engin bönd. Þeir keyrðu
upp hraðann í leiknum, léku á köfl-
um frábærlega og Eyjamenn vissu
hreinlega ekki hvaðan á þá stóð
veðrið.
ÍBV skoraði fyrsta mark sitt eft-
ir hlé þegar tæpar 9 mínútur voru
liðnar af hálfleiknum en á þeim
tíma settu Valsmenn boltann sex
sinnum í mark ÍBV og höfðu tíu
marka forskot, 18:8. Pálmar Pét-
ursson markvörður sem vanalega
vermir bekkinn á meðan Roland
Eradze stendur vaktina í markinu,
lék allan leikinn og stóð sig hreint
stórkostlega, sérstaklega í síðari
hálfleiknum.
Þá varði hann 16 skot, mörg
hver úr gráupplögðum færum
Eyjamanna og var óumdeilanlega
maður þessa leiks. Sannarlega
mikið efni þar á ferð. Bjarki Sig-
urðsson lék einnig frábærlega en
hann skoraði 8 mörk og þá voru
þeir Hjalti Pálmason og Ragnar
Ægisson að leika virkilega vel í
mögnuðu Valsliði.
Trufan mættur í slaginn á ný
Valsmaðurinn nýbakaði Alexei
Trufan vakti mikla lukku meðal
stuðningsmanna Vals þegar hann
kom inn í Valsvörnina í síðari hálf-
leiknum en í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn upplýsti Geir
Sveinsson, þjálfari Vals, að end-
anleg staðfesting á félagaskiptum
Trufans til Vals hefði ekki fengist
fyrr en eitthvað var liðið á leikinn.
Geir sagði að Trufan hefði byrjað
að æfa með Valsliðinu fyrir fáein-
um vikum og þá hefði verið sótt
um félagaskipti fyrir hann. Trufan,
sem kominn er nokkuð yfir fer-
tugt, er mikill fengur fyrir Vals-
liðið og mun án efa verða þeim
mikill styrkur það sem eftir lifir
keppnistímabilsins.
Eyjamenn voru hvorki fugl né
fiskur í þessum leik. Aðeins á upp-
hafsmínútunum léku þeir þokka-
lega en eftir því sem leið á leikinn
varð leikur þeirra vandræða- og
ráðleysislegri. Sem dæmi um það
er að þeir skoruðu aðeins 7 mörk
úr 31 sókn í síðari hálfleik, sem er
22,5% sóknarnýting. Viktor Gigov
markvörður lék þeirra best og
varði hann 8 skot í fyrri hálfleikn-
um. Einhverra hluta vegna var
honum skipt út af í upphafi síðari
hálfleiks og lék hann ekki nema
um 15 mínútur af þeim síðari.
ÍBV engin
fyrirstaða
fyrir Val
ÞAÐ kom engum á óvart að Valsmenn völtuðu yfir Eyjamenn í 1.
deild karla í handknattleik í gærkvöldi. Fyrstu 15 mínútur leiksins
náðu Eyjamenn að trufla leik toppliðs Vals en þegar upp var staðið
skildu 13 mörk liðin að en Valur sigraði, 28:15.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
a með fjögur stig í plús. Í þessum
hluta fór Kristinn Friðriksson á
um og skoraði 15 stig og lengst af
sum hluta var munurinn 10 til 15
byrjun síðari hálfleiks juku
mamenn muninn sem mestur varð
tig, en gestirnir frá Hveragerði
ðust hetjulega og um miðjan síð-
leikhluta voru Óli Barðdal og
ropov komnir útaf með fimm vill-
n Axel, Clifton og Helgi allir með
ar þannig að Hamarsmenn gengu
gið og náðu að minnka muninn og
ar ein mínúta lifði af leiknum var
nurinn þrjú stig.
n með baráttu og yfirveguðum
náðu Tindastólsmenn að halda
gnum hlut og ná í stigin sem allt
rist um.
liði Tindastóls átti Axel Kárason
g góðan dag og barðist vel í sókn
var sterkur í vörninni, Clifton,
stinn, Carter og Óli áttu ágætan
og Antropov var mjög traustur í
ninni og ógnaði vel undir körfunni.
já Hamri var Svavar Birgisson
gbestur og sínum gömlu félögum í
dastóli erfiður, en einnig barðist
elly vel og var varnarmönnum
ður, þá var mikil barátta í leik
usar Jónssonar.
ristinn Friðriksson var ánægður
eikslokum: „Við áttum fínan leik í
m fyrstu leikhlutunum, en síðan
ur þetta bakslag hjá okkur og við
m að missa tuttugu stiga forskot
r á síðustu mínútunum og vorum
nar heppnir að ná þessum sigri.
a er eitthvað sem við verðum að
jast yfir og laga, því að svona get-
þetta ekki gengið, við erum með
nn í hendi okkar en erum að
pa þeim inn í leikinn, sem á bara
að koma fyrir,“ sagði Kristinn
ðriksson að leikslokum.
Morgunblaðið/Jim Smart
ikmaður ÍR, á fullri ferð og Damon Johnson á hæla honum.
JÚGÓSLAVNESKIR körfu-
boltabræður, Darko Ristic og
Milos Ristic, eru væntanlegir til
Borgarness um næstu helgi.
Þeir verða löglegir með Skalla-
grími hinn 17. desember, í tæka
tíð fyrir fallslaginn við Val sem
fram fer þremur dögum síðar.
„Við erum staðráðnir í að halda
liðinu í úrvalsdeildinni og feng-
um því þessa tvo leikmenn til
okkar til að styrkja hópinn,“
sagði Ólafur Helgason, formað-
ur körfuknattleiksdeildar
Skallagríms, við Morgunblaðið í
gær. Ólafur sagði að ekki væru
fyrirhugaðar frekari breyt-
ingar á leikmannahópi Skalla-
gríms.
Darko Ristic er 27 ára gamall
framherji og kemur frá franska
3. deildarfélaginu CO Briochin
en þar hefur hann leikið frá því
í haust. Hann er rúmir tveir
metrar á hæð og skoraði á dög-
unum 40 stig í deildaleik með
franska liðinu. Hann lék í fimm
ár með Radnicki í Júgóslavíu,
þar af tvö ár í úrvalsdeild, og
einnig með Zastava í 2. deild.
Milos Ristic er tvítugur bak-
vörður, 1,93 m á hæð, og hefur
hann einnig verið í herbúðum
CO Briochin í vetur.
Bræður frá Júgó-
slavíu í Borgarnes
Hilmar átti
ekki að fá laun
„ÞETTA virðist allt ætla að bless-
ast,“ sagði Hilmar Þórlindsson,
handknattleiksmaður hjá spænska
liðinu Cangas, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. Forseti félags-
ins hótaði á dögunum að hætta að
greiða leikmönnum laun vegna þess
að sumir þeirra fóru til annars
sjúkraþjálfara en hann vildi.
Hilmar, sem hefur mikið þurft að
sækja til sjúkraþjálfara liðsins, sagði
hann vera persónulegan vin forseta
félagsins, en ekki þekktan fyrir störf
í sambandi við sjúkraþjálfun íþrótta-
manna. „Sjúkraþjálfarinn, sem vinn-
ur sjálfboðavinnu fyrir félagið, hef-
ur látið leikmenn sitja á hakanum,
þar sem hann hefur mikið að gera í
starfi á eigin sjúkraþjálfunarstofu.
Það er alveg ljóst að ég hefði náð
mér miklu fyrr ef ég hefði meiðst
heima. Þetta er allt ágætis fólk sem
er á stofunni, en það vantar mikið af
tækjum og tólum til að meðferðin
verði nútímalegri og árangursrík-
ari,“ sagði Hilmar í gærkvöldi.
„Margir leikmenn gáfust upp á að
sækja sjúkraþjálfun hjá vini forset-
ans og fóru annað. Forsetinn var
ekki ánægður með það og hótaði öllu
illu. Ég ræddi aftur við forsetann í
dag og þá var hann heldur rólegri og
okkur sýnist að þetta verði allt í lagi
hjá flestum,“ sagði Hilmar, sem hef-
ur verið meiddur á læri – reif upp úr
vöðva þar í haust, en segir að allt sé
þetta á réttri leið, þótt hægt fari.