Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 1
2002  LAUGARDAGUR 14. DESEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A EVRÓPUBARÁTTA HAUKA OG GRÓTTU/KR/ B4 GÆTI það gerst að erkifjendurnir úr Norður- London, Arsenal og Tottenham, myndu samein- ast um að reisa heimavöll fyrir liðin á As- hburton Grove? Stjórnarformaður Tottenham, Daniel Levy, segir í viðtali við enska blaðið Evening Standard að félagið sé að íhuga val- kosti sem standa til boða fyrir White Hart Lane, sem þarf að endurbyggja. Það hefur alltaf verið erfitt fyrir stuðningsmenn liðsins að koma sér til og frá vellinum og engar úrbætur á því sviði í sjónmáli. „Ef félög geta nýtt betur heimavelli sína er það mikill kostur fyrir alla aðila,“ segir Levy, en Arsenal hefur þegar ákveðið að flytja frá Highbury og byggja nýjan völl á Ashburton Grove. Kostnaður við framkvæmdina hefur aukist til muna og segir Levy að Tottenham sé tilbúið að ræða við Arsenal um samvinnu ef áhugi reynist fyrir hendi hjá Arsenal. Erkifjendur með sama heimavöll? Johnson getur þegar í stað leik-ið með íslenska landsliðinu eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu. Pettersons verður ekki gjaldgengur með landsliðinu fyrr en eftir um tvö ár þar hann lék síðast með landsliði Lettlands í byrjun þessa árs og reglur IHF, kveða skýrt á um að þrjú ár frá því að leikmaður sem skiptir um ríkisfang lék fyrir sitt fyrrverandi landslið þar til hann má leika fyrir aðra þjóð sem hann hefur fengið ríkisborgararétt hjá. Vonir standa til þess að Eradze verðir löglegur með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Portúgal í næsta mánuði. Að sögn Guðmundar Þ. Guðmunds- sonar landsliðþjálfara þá er verið að kanna hver staða Eradze er um þessar mundir. „Við höfum sent fyrirspurn til IHF vegna Eradze og væntum svara við því á næst- unni. Við þurfum að fá á hreint hvenær hann er löglegur í æfinga- leikjum landsliðsins og nákvæm- lega hvenær hann má leika með landsliðinu á HM. Þessi og fleiri atriði verður að fá að hreint áður en kemur að því að velja Eradze í landsliðið. Við viljum að sjálfsögðu ekki vera í neinni óvissu vegna þessa,“ sagði Guðmundur sem reiknar með að velja æfingahópinn vegna HM um miðja næstu viku. Hvort þessi atriði verða komin á hreint þá ræðst af því hversu fljótt svör berast frá IHF, að sögn Guð- mundar sem að öðru leyti vildi ekki tjá sig um hvort Eradze verð- ur valinn í landsliðið eða ekki. IHF skoðar þátttöku Eradze með landsliðinu ÞREMUR þekktum íþróttamönnum sem eru af erlendi bergi brotnir hefur verið veittur íslenskur ríkisborgararéttur samkvæmt tillögu allsherjarnefndar Alþingis sem samþykkt var á þingfundi í fyrrakvöld. Þetta eru handknattleiksmennirnir Roland Eradze, markvörður hjá Val, Alexandrs Pettersons, leikmaður Gróttu/KR, og körfuknattleiks- maðurinn Damon S. Johnson hjá Keflavík. HSÍ hefur þegar sent fyr- irspurn til Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, er varðar þátt- töku Eradze með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu.  HEIÐAR Ingi Marinósson náði að bæta sinn fyrri árangur í 100 m skriðsundi á EM. Heið- ar synti á 50,70 sekúndum og nægði sá árangur honum í 40. sæti af 46 keppendum.  KOLBRÚN Ýr Kristjáns- dóttir náði ekki að fylgja eftir góðum árangri sínum í 50 m flugsundi á EM í fyrra. Þá komst hún í undanúrslit. Nú hafnaði Kolbrún í 21. sæti af 26 þátttakendum á 28,55 sek, sem er 76/100 úr sekúndu frá Ís- landsmetinu sem hún setti á EM í fyrra þegar hún hreppti 14. sætið.  ÍRIS Edda Heimisdóttir náði sér ekki á strik í 200 m bringu- sundinu í gær frekar en í 50 m bringusundinu í fyrradag. Íris rak lestina í hópi átján kepp- enda á 2.36,26 mín. Það er rúm- lega 2,5 sekúndum frá hennar besta og um 4 sekúndum frá 13 ára gömlu Íslandsmeti Ragn- heiðar Runólfsdóttur. Örn var aðeins 8/100 úr sekúndufrá bronsverðlaunum í bak- sundinu. Heimsmethafinn Thomas Rupprath frá Þýskalandi vann örugglega á 23,66 og annar varð landi hans Stev Theoloke á 24,29. Bronsverðlaunin vann Darius Grigalonis frá Grikklandi á 24,62. Allir keppendurnir í úrslitunum syntu á skemmri tíma en 25 sek- úndum, sá sem varð áttundi kom í mark á 24,90 sem sýnir vel hversu jafnt og gott sundið var. Aðeins leið rúmlega hálftími frá því að Örn keppti í undanúrslitum 100 m skriðsundsins og þangað til hann var kominn í eldlínuna á ný í úrslitum í 50 m baksundi. Í 100 m skriðsundinu var hann nærri því að komast í úrslitin sem fram fara í dag. Örn náði þriðja besta tímanum í undanrásum í 100 m skriðsundi í gærmorgun á 48,59 sekúndum og bætti eigið Íslandsmet um leið um 97/100 úr sekúndu. Fyrra metið setti Örn á Íslandsmeistaramótinu innanhúss í Vestmannaeyjum fyrir nærri þremur árum. Áður en að undanúrslitasundinu í 100 m skriðsundi kom um miðjan dag í gær tryggði hann sér sæti í úrslitum í 50 m baksundi með því að ná fimmta besta tímanum í und- anúrslitum á 24,87 sekúndum. Síð- an leið rúmur hálftími og komið var að undanrásum 100 m í skriðsundi. Örn var á fjórðu braut, náði ekki góðu viðbragði og átti á brattann að sækja. Millitími hans eftir 25 metra var 23,37 og var hann fimmti í sínum riðli. Því sæti hélt hann allt til enda og kom í mark á 48,57. Til þess að komast í átta manna úrslit- in í dag þurfti að synda á 48,50 þannig að Örn var mjög nærri sæti í úrslitum. Það gafst hins vegar lítill tími til að kasta mæðinni því eftir skrið- sundið kom röðin að úrslitum í 50 m baksundi. Þar hafnaði Örn í fjórða sæti eftir gríðarlega keppni við Grikkjann Grigalionis um bronsið en Þjóðverjarnir voru í sérflokki og hirtu gull- og silfurverðlaunin. Örn heldur áfram keppni á EM í dag. Þá verður hann í eldlínunni í 100 m baksundi, grein sem hann vann á EM fyrir tveimur árum. Ár- degis syndir hann í undanrásum og væntanlega í milliriðlum um miðjan dag. Úrslit í 100 m baksundi fara fram á morgun. Örn Arnarson var hársbreidd frá verðlaunasæti í 50 m baksundi á EM í Riesa Morgunblaðið/Sverrir Örn Arnarson, sem hér bragðar vatnið, var ekki langt frá því að komast á verðlaunapall í 50 m baksundi á EM. Setti þrjú Íslandsmet ÖRN Arnarson varð í fjórða sæti í 50 m baksundi á Evrópumeist- aramótinu í 25 m laug í Riesa í austurhluta Þýskalands í gær. Hann synti á 24,70 sekúndum og bætti fyrra Íslandsmet sitt um 9/100 úr sekúndu en það setti Örn þegar hann vann til silfurverðlauna í þessari grein á EM í Valencia fyrir tveimur árum. Þá varð Örn í 9. sæti í undanúrslitum í 100 m skriðsundi í gær á 48,57 sekúndum og bætti met sitt frá því fyrr í gær. Alls setti Örn því þrjú Íslandsmet í gær, þar af tvö á innan við einni klukkustund. Heiðar Ingi bætti sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.