Morgunblaðið - 14.12.2002, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Fram – HK 22:22
Framhús, 1. deild karla, Essodeildin, föstu-
dagur 13. desember 2002.
Gangur leiksins: 0:1, 3:2, 5:3, 6:4, 6:7, 9:9,
9:11, 10:11, 11:15, 12:16, 14:18, 16:19, 18:20,
19:21, 21:22, 22:22.
Mörk Fram: Héðinn Gilsson 6, Guðjón
Finnur Drengsson 4/2, Hafsteinn A. Inga-
son 3, Hjálmar Vilhjálmsson 3, Valdimar F.
Þórsson 2/1, Gunnar B. Jónsson 1, Magnús
K. Jónsson 1, Haraldur Þorvarðarson 1,
Þorri Björn Gunnarsson 1.
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 8
(þar af 1 sem fór aftur til mótherja), Seb-
astian Alexandersson 7.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk HK: Ólafur Víðir Ólafsson 8/6, Atli
Þór Samúelsson 4, Samúel Árnason 4, Már
Þórarinsson 2, Elías Már Halldórsson 2,
Alexander Arnarson 2.
Varin skot: Björgvin Gústavsson 18/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: 180.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Stefán
Arnaldsson.
FH – Þór Ak. 32:22
Kaplakriki:
Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 6:3, 8:6, 12:9,
15:11, 17:12, 23:16, 27:18, 30:20, 32:22.
Mörk FH: Logi Geirsson 14/8, Guðmundur
Pedersen 5, Björgvin Rúnarsson 5, Ólafur
Björnsson 3, Arnar Pétursson 2, Magnús
Sigurðsson 1, Heiðar Örn Arnarson 1,
Andri Berg Haraldsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 22/3 (þar
af 5 til mótherja), Jónas Stefánsson 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Þórs: Páll V. Gíslason 5/1, Árni Þór
Sigtryggsson 4, Goran Gusic 4, Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson 4/1, Hörður Sigþórsson
2, Aigars Lazdin 2, Halldór Oddsson 1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 9 (þar af
3 til mótherja), Hafþór Einarsson 3.
Utan vallar: 8 mínútur (Hörður Flóki rautt
spjald fyrir síendurtekin mótmæli seint í
síðari hálfleik).
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Jónas Elí-
asson, mistækir.
Áhorfendur: Um 150.
ÍBV – Víkingur
Vestmannaeyjar:
Gangur leiksins: 1:0, 3:5, 8:9, 10:10, 12:10,
13:10, 17:12, 20:12, 27:17, 28:18.
Mörk ÍBV: Davíð Óskarsson 6/2, Michael
Lauritzen 5, Sigurður Ari Stefánsson 5,
Sigurður Bragason 5, Robert Bognar 3,
Kári Kristjánsson 3, Sigþór Friðriksson 1.
Varin skot: Viktor Gigov 16 (þar af 2 aftur
til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Víkings: Eymar Kruger 5/1, Davíð
Guðnason 3, Ragnar Hjaltested 3, Björn
Guðmundsson 2, Sverrir Hermannsson 1,
Þórir Júlíusson 1, Bjarni Ingimarsson 1,
Karl Grönvold 1, Pálmar Sigurjónsson 1.
Varin skot: Sigurður Sigurðarson 6 (þar af
1 aftur til mótherja). Jón Árni Traustason 1
Utan vallar: 10 mínútur
Áhorfendur: 130
Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Hilmar
Guðlaugsson. Frekar slakir.
Staðan:
Valur 15 11 3 1 406:312 25
ÍR 15 11 0 4 435:393 22
HK 16 10 2 4 451:425 22
Haukar 14 10 1 3 404:323 21
Þór 16 10 0 6 455:416 20
KA 14 8 3 3 382:355 19
FH 16 8 2 6 429:409 18
Fram 16 7 3 6 402:395 17
Grótta/KR 14 7 1 6 360:320 15
Stjarnan 15 5 1 9 383:418 11
ÍBV 16 4 2 10 367:458 10
Afturelding 14 3 2 9 326:361 8
Víkingur 16 1 2 13 400:488 4
Selfoss 15 0 0 15 367:494 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hamar – Skallagrímur 104:99
Íþróttahúsið í Hveragerði, úrvalsdeild
karla, Intersportdeildin, föstudagur 13.
desember 2002.
Gangur leiksins: 28:17, 60:44, 85:72, 104:99
Stig Hamars: Robert O Kelley 34, Svavar
Birgisson 28, Lárus Jónsson 19, Svavar
Pálsson 10, Marvin Valdimarsson 6, Hall-
grímur Brynjólfsson 3, Ægir Gunnarsson
2, Hjalti Pálsson 2.
Fráköst: 22 í vörn, 18 í sókn.
Stig Skallagríms: Valur Ingimundarson
29, Pétur Sigurðsson 23, Hafþór Gunnars-
son 23, Isaac Hawkins 16, Ari Gunnarsson
4, Finnur Jónsson 2, Pálmi Sævarsson 2.
Fráköst: 11 í vörn, 28 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson.
Áhorfendur: Um 200.
Keflavík – Breiðablik 117:90
Keflavík:
Gangur leiksins: 2:0, 6:6, 8:20, 13:26, 27:26,
31:29, 36:30, 47:39, 51:43, 55:45, 57:52,
64:55, 84:65, 86:67, 92:69, 104:79, 117:90.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 30, Gunn-
ar Einarsson 18, Guðjón Skúlason 12, Fal-
ur Harðarson 12, Magnús Þ. Gunnarsson
12, Kevin Grandberg 11, Sverrir Sverris-
son 10, Davíð Þ. Jónsson 6, Gunnar Stef-
ánsson 3, Arnar F. Jónsson 3.
Fráköst: 28 í vörn, 15 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kenneth Tate 36, Jón
Arnar Ingvarsson 16, Pálmi Sigurgeirsson
15, Mirko Virijevic 10, Friðrik Hreinsson 4,
Ísak Einarsson 4, Ágúst Angatýsson 3,
Eggert Baldvinsson 2.
Fráköst: 19 í vörn, 13 í sókn.
Villur: Keflavík 15 – Breiðablik 27.
Dómarar: Gunnar Freyr Steinsson og Sig-
mundur Herbertsson.
Áhorfendur: 70.
Njarðvík – KR 86:93
Njarðvík:
Gangur leiksins: 0.5, 8:11, 13:11, 16:19,
24:21, 24:24, 24:27, 34:27, 43:42, 43:45,
43:47, 52:59, 60:64, 61:69, 65:69, 65:71,
67:73, 67:80, 82:88, 86:91, 86:93.
Stig Njarðvíkur: Gary M. Hunter 40, Frið-
rik Stefánsson 13, Teitur Örlygsson 11, Páll
Kristinsson 10, Ólafur A. Yngvason 3, Sig-
urður Einarsson 3, Ragnar Ragnarsson 2,
Þorsteinn Húnfjörð 2, Halldór Karlsson 2.
Fráköst: 20 í vörn, 9 í sókn.
Stig KR: Darrell Flake 30, Magnús Helga-
son 14, Baldur Ólafsson 13, Ingvaldur
Magni Hafsteinsson 13, Steinar Kaldal 11,
Jóel Sæmundsson 7, Óðinn Ásgeirsson 5.
Fráköst: 20 í vörn, 11 í sókn.
Villur: UMFN 16 – KR 26.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson.
Áhorfendur: 200.
ÍR – Snæfell 86:88
Seljaskóli:
Gangur leiksins: 2:0, 6:13, 10:18, 22:22,
22:24, 26:31, 37:33, 43:43, 48:47, 55:49,
57:58, 61:63, 66:65, 69:70, 74:70, 78:79,
84:83, 84:88, 86:88.
Stig ÍR: Eugene Christopher 26, Ólafur
Þórisson, 16, Eiríkur Önundarson 11, Sig-
urður Þorvaldsson 11, Ómar Örn Sævars-
son 9, Hreggviður Magnússon 5, Benedikt
Pálsson 4, Fannar F. Helgason 4.
Fráköst: 18 í vörn, 13 í sókn.
Stig Snæfells: Clifton Bush 36, Hlynur
Bæringsson 13, Helgi R. Guðmundsson 13,
Jón Ó. Jónsson 11, Lýður Vignisson 6,
Georgi Bujukliev 5, Sigurbjörn I. Þórðar-
son 4.
Fráköst: 26 í vörn, 18 í sókn.
Villur: ÍR 18 – Snæfell 13.
Dómarar: Georg Andersen og Einar Þór
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: Um 200
Staðan:
KR 10 8 2 903:786 16
Grindavík 10 8 2 919:804 16
Keflavík 10 7 3 1014:820 14
Haukar 10 6 4 879:821 12
Tindastóll 10 6 4 910:884 12
ÍR 10 6 4 874:867 12
Njarðvík 10 6 4 809:809 12
Snæfell 10 4 6 790:801 8
Hamar 10 4 6 943:1034 8
Breiðablik 10 3 7 901:957 6
Skallagrímur 10 1 9 772:916 2
Valur 10 1 9 750:965 2
1. deild karla
Stjarnan – Þór Þ....................................71:56
KFÍ – Ármann/Þróttur.........................93:86
Reynir S. – ÍS ........................................94:80
Staðan:
Reynir S. 8 7 1 721:598 14
KFÍ 7 6 1 612:577 12
Þór Þorl. 8 5 3 617:572 10
Ármann/Þróttur 8 5 3 711:674 10
Fjölnir 7 3 4 598:631 6
Stjarnan 7 2 5 508:517 4
Selfoss/Laugd. 6 2 4 448:478 4
ÍS 8 1 7 572:637 2
Höttur 5 1 4 307:410 2
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Chicago – Detroit ..................................76:86
Minnesota – Atlanta............................113:95
Utah – New Orleans..............................88:93
KNATTSPYRNA
Holland
Groningen – Roda .....................................3:2
Jóhannes Harðarson var í leikmannahópi
Groningen en kom ekki við sögu.
Belgía
St. Truiden – Genk ....................................0:1
Lommel – Mons.........................................0:1
UEFA-dráttur
Dregið var í 16 liða úrslit í Sviss í gær:
Slavia Prag – Besiktas
Hertha Berlín – Boavista
Malaga – AEK Aþena
Wisla Krakow – Lazio
Anderlecht – Panathinaikos
Celtic – Stuttgart
Porto – Denizlispor
Auxerre – Liverpool
Leikirnir fara fram 20. og 27. febrúar.
8 liða úrslit:
Malaga/AEK – Hertha Berlín/Boavista
Slavia Prag/ Besiktas – Wisla Krakow/-
Lazio
Celtic/Stuttgart – Auxerre/Liverpool
Porto/Denizlispor – Anderlecht/Panathin-
aikos
Leikirnir fara fram 13. og 20. mars.
SKÍÐI
Heimsbikarkeppnin í risasvigi kvenna í Val
d’Iser í Frakklandi:
1. Carole Montillet, Frakkl................1.07,46
2. Daniela Ceccarelli, Ítalíu ...............1.07,69
3. Michaela Dorfmeister, Aust. .........1.07,74
4. Renate Götschl, Aust. ....................1.07,96
5. Fraenzi Aufdenblatten, Sviss........1.08,03
6. Kirtsen Clark, Bandar. ..................1.08,05
7. Karen Putzer, Ítalíu .......................1.08,09
Árni taldi að varnarmaður Fram hefðistaðið innan vítateigslínu, en dóm-
arar leiksins voru því ekki sammála –
dæmdu aukakast sem HK
tókst ekki að nýta sér.
Eftir leikinn hélt Árni
áfram að þruma yfir dóm-
urum og þurftu liðsstjórar
og leikmenn HK að halda aftur af honum.
Engin eftirmál hlutust af þrátt fyrir að
þolinmæði dómaranna virtist hafa verið
teygð eins langt og hún náði.
Þegar blásið var til orrustu, virtist ró-
legt yfir leikmönnum liðanna. Það reynd-
ist aðeins vera lognið á undan storminum
– leikmenn liðanna voru svo sannarlega
tilbúin í slaginn og Sebastian Alexand-
ersson, fyrirliði Fram, sagði eftir leikinn
að spenna væri jafnan á milli liðanna.
„Liðin eru nýbúin að dragast saman í
undanúrslitum í bikarnum og einhverra
hluta vegna hafa aldrei verið neinir sér-
stakir kærleikar á milli leikmanna Fram
og HK,“ sagði Sebastian.
Leikurinn var jafn lengst af fyrri hálf-
leiks. Framarar náðu tveggja marka for-
ystu snemma í hálfleiknum en HK-ingar,
sem léku án Jalieski Garcia, en hann
tognaði í baki á æfingu í vikunni og var
hvíldur í þessum leik, náðu tveggja marka
Spen
þrun
lokam
LOKAMÍNÚTURNAR í leik Fram og HK í
spennuþrungnar Liðin skildu jöfn, 22:22
síðari hálfleiks. Árni Stefánsson, þjálfar
stemningu í lið sitt allan leikinn, var væ
á lokasekúndunum þegar brotið var á A
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Njarðvíkingar gerðust heldurmakindalegir eftir góða byrjun
með góðri hittni og dugnaði í frá-
köstum en supu
seyðið af því. Vörnin
var sterk og kvört-
uðu KR-ingar mikið í
dómara út af glímu-
tökunum, til dæmis hélt Þorsteinn
Húnfjörð vesturbæingnum Darrell
Flake alveg niðri en Njarðvíkingar
sluppu við villu fram á 14. mínútu.
Staðan var 36:29 heimamönnum í vil
en þá urðu kaflaskil. Í stað þess að
spila áfram af öryggi og einbeita sér
að leiknum slökuðu þeir á en staðan í
hálfleik var 45:53 fyrir KR.
Njarðvíkingar náðu ekki upp bar-
áttu eftir hlé auk þess að missa tökin
á vörninni og Darrell Flake fékk að
raða niður körfum óáreittur. Gest-
irnir úr Reykjavík náðu því að halda
forskotinu, sem varð mest 13 stig, í
upphafi fjórða leikhluta en þá virtust
Njarðvíkingar eingöngu binda vonir
við að Gary M. Hunter myndi gera út
um leikinn fyrir þá. Hann fékk hins
vegar litla hjálp og varð oft að taka
skot úr erfiðum færum. Aftur á móti
var KR-ingum launað fyrir barátt-
una með góðri hittni. Undir lokin
tóku þó Njarðvíkingar á sig rögg en
náðu mest að saxa forskotið í fimm
stig og þar við sat.
„Við töpuðum fyrir liði, sem lang-
aði aðeins meira til að vinna en við,“
sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir leikinn. „Mér
fannst við falla of mikið í þá gryfju að
horfa á útlendinginn okkar eftir að
hann byrjaði vel. Menn ætluðu bara
að standa og dást að honum taka
leikinn á eigin spýtur en það vinnur
enginn einn maður leiki. Það gekk
vel í byrjun að fara alveg í gegnum
leikkerfin okkar og ná góðum skot-
um en síðan ætluðu menn að redda
hlutunum sjálfir. Við erum ekki með
lið sem þolir það. Í lokin kom ör-
vænting en við þurftum meiri orku
og meiri heppni til að vinna. Við
fáum aldrei neinar jólagjafir frá KR
því þeir hafa unnið okkur hérna í
Njarðvík í mörg ár og alltaf í desem-
ber.“ Gary M. Hunter, sem lék sinn
fjórða leik fyrir Njarðvíkinga, fór á
kostum til að byrja með. Hann skor-
aði 40 stig, hitti úr 8 af 13 inni í teig
og 6 af 12 þriggja stiga skotum en
tók aðeins 2 fráköst. Hann skilaði því
sínu en félagar hans máttu alveg
skila sínu.
Hins vegar var liðsheildin mun
meiri hjá KR og margir lögðu hönd á
plóg. Magnús Helgason og Ingvald-
ur Magni Hafsteinsson voru drjúgir
auk þess að Steinar og Jóel Sæ-
mundsson áttu góða spretti og Darr-
ell og Baldur Ólafsson komu til eftir
slaka byrjun. „Við vissum alveg að
við vorum mjög daufir til að byrja
með og ræddum það í leikhléi,“ sagði
Steinar Kaldal, fyrirliði KR, eftir
leikinn. „Við sáum að við gætum náð
þeim þrátt fyrir hvað við værum
daufir og bættum þá aðeins í en ekki
nægilega mikið fyrr en í síðari hálf-
leik. Við mættum þá af meiri hörku
en þegar Njarðvíkingar fara að
pressa okkur förum við á taugum og
hættum að stilla nægilega vel upp.
Þeir ná að saxa á forskotið en höfðu
of lítinn tíma í lokin. Við unnum helst
á liðsheildinni því útlendingurinn
okkar var ekki alveg eins áberandi
svo að við hinir tókum þá meira á.“
Snæfell sigraði í spennuleik
Nýliðar Snæfells sigruðu í gær-kvöld ÍR-inga, 88:86, í æsi-
spennandi leik í íþróttahúsi Selja-
skóla. Snæfellingar
unnu þar með sinn
fjórða leik í vetur og
eru með í baráttunni
um sæti í úrslita-
keppninni.
Snæfell byrjaði leikinn betur og
náði mest átta stiga forskoti í fyrsta
leikhluta en sú forusta var fljót að
fara og leikurinn jafnaðist út. Liðin
skiptust síðan á að hafa forystuna
það sem eftir lifði leiks en ÍR-ingar
voru þó yfirleitt skrefinu á undan
Snæfellingum.
Þegar ein mínúta var eftir af leikn-
um skoraði Hlynur Bæringsson úr
tveimur vítaskotum og kom Snæfelli
þremur stigum yfir. ÍR missti bolt-
ann í næstu sókn en Snæfellingar
náðu ekki að nýta sér það. Tuttugu
sekúndur voru eftir, ÍR með boltann
en þremur stigum undir. Eugene
Christopher reyndi að jafna leikinn
fyrir ÍR-inga en hann hitti ekki úr
tveimur þriggja stiga skotum. Eftir
það síðara náði Clifton Bush boltan-
um fyrir Snæfell, ÍR-ingar brutu á
honum þegar sjö sekúndur voru eft-
ir. Bush tryggði Snæfelli sigurinn
með því að setja fyrra vítaskotið nið-
ur og koma þeim fjórum stigum yfir,
88:84. Það skipti því engu máli að
Bush mistækist seinna skotið og að
Ómari Erni Sævarssyni tækist að
skora fyrir ÍR á lokasekúndunni, ÍR-
ingar urðu að játa sig sigraða.
Bush var langatkvæðamestur
Snæfellinga og skoraði alls 36 stig,
en auk hans áttu Hlynur Bærings-
son og Helgi Guðmundsson ágætan
leik. Hjá heimamönnum var Eugene
Christopher með 26 stig en Ólafur
Þórisson átti mjög góða innkomu.
Blikar lítil fyrirstaða
Keflvíkingar tóku á móti Breiða-bliki í gærkvöld. Heimamenn
áttu ekki í teljandi erfiðleikum með
andstæðinga sína og
unnu að lokum sann-
gjarnan sigur,
117:90.
Gestirnir í Breiða-
bliki komu ákveðnir til leiks og náðu
fljótt yfirhöndinni í leiknum, þeir
Jón Arnar Ingvarsson og Kenneth
Tate voru öflugir og röðuðu niður
stigunum og áður en langt var liðið á
leikinn voru Blikarnir komnir með
13 stiga forystu, 13:26. Heimamenn
vöknuðu hér heldur betur til lífsins
og tóku leikinn í sínar hendur,
Magnús Þór Gunnarsson og Damon
Johnson fóru þá fyrir sínum mönn-
um og sneru leiknum sér í vil. Gest-
irnir úr Kópavoginum skoruðu ekki
stig það sem eftir var af fyrsta leik-
hluta en Keflvíkingarnir skoruðu
næstu 14 og komust yfir 27:26 fyrir
lok leikhlutans. Þegar flautað var til
hálfleiks var munurinn orðinn fimm
stig heimamönnum í vil, 55:52.
Keflvíkingar beittu pressuvörn í
varnarleik sínum þegar líða fór á
leikinn og réðu Blikarnir mjög illa
við að komast í gegnum hana og
misstu þeir boltann allt of oft til
heimamanna á sínum eigin vallar-
helmingi. Keflvíkingarnir stungu
gestina af í seinni hálfleik en gest-
irnir sátu eftir og varð niðurstaðan
27 stiga sigur Keflvíkinga.
Damon Johnson átti skínandi góð-
an leik fyrir heimamenn í Keflavík,
var með þrefalda tvennu, skoraði 30
stig, tók 10 fráköst og átti 10 stoð-
sendingar. Magnús Þór átti góðan
leik, Gunnar Einarsson átti mjög
góðan seinni hálfleik.
Kenneth Tate skoraði 30 stig í
fyrri hálfleik og hélt Breiðabliki inni
í leiknum.
Hamar vann botnslaginn
Þetta var mikilvægur sigur fyrirokkur, þetta var botnslagur svo
einfalt var það,“ sagði Pétur Ingv-
arsson, leikmaður og þjálfari Ham-
ars, eftir að lið hans hafði unnið
Skallagrím í Hveragerði 104:99.
„Við áttum möguleika allt þar til í
lokin en þetta er búið að vera erfitt
hjá okkur að undanförnu, fjórir
meiddir og ég er að leika í 37 mín-
útur í þessum leik,“ sagði hinn fer-
tugi Valur Ingimundarson, þjálfari
Skallagríms, sem var stigahæstur
þeirra í leiknum með 29 stig.
KR-ingar
uppskáru
EFSTA sæti úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik er frekar valt og
fengu Grindvíkingar aðeins að spóka sig þar í sólarhring því KR-
ingar náðu með 93:86 sigri á Njarðvík í Njarðvík að taka það af
þeim. Njarðvíkingar byrjuðu mjög vel en gerðust þá frekar væru-
kærir og KR linnti ekki látum fyrr en sigur var í höfn. Keflvíkingar
fengu Blika úr Kópavoginum í heimsókn og unnu 114:90, Hamars-
menn fengu Skallagrím til Hveragerðis og unnu 104:99 en í Breið-
holtinu náði Snæfell að leggja ÍR að velli 88:86.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Brynjar
Víðisson
skrifar
Benedikt
Rafn Rafnsson
skrifar