Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 B 3  ARNAR Kárason var ekki með fé- lögum sínum í KR þegar þeir unnu Njarðvík. Hann hefur verið veikur og er ekki með honum í slaginn fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári.  ÞORSTEINN Húnfjörð lék sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í gær- kvöldi. Hann er tveggja metra hár miðherji, sem hóf keppnistímabilið í herbúðum Keflvíkinga.  HERMANN Hauksson, aðstoðar- þjálfari KR-inga, lék tvö tímabil með Njarðvík áður fyrr. Njarðvíkingar birtu því mynd af honum á forsíðu leikskrár sinnar og leit drengurinn nokkuð unglega út – enda myndin tekin 1985. Menn spurðu sig hvort hér væri háð sálfræðistríð.  SEBASTIAN Alexandersson, fyr- irliði og markvörður Framliðsins, var mættur að nýju í mark Fram gegn HK í gærkvöldi eftir sex vikna fjarveru.  JAILESKI Garcia, leikmaður HK, horfði á leik Fram og HK úr áhorf- endastúkunni. Hann tognaði í baki á æfingu í vikunni en HK-ingar gera sér vonir um að hann verði tilbúinn í næsta leik sem verður gegn Aftur- eldingu 18. desember.  HJÁLMAR Vilhjálmsson, leik- maður Fram, fékk skurð við augað snemma leiks gegn HK. Félagi hans í Framliðinu, Gunnar B. Jónsson, varð fyrir því óhappi að slá hann þeg- ar þeir stóðu þétt saman í Fram- vörninni.  SKOTINN Kenny Dalglish vill að forráðamenn írska og skoska knatt- spyrnusambandsins láti rannsaka atkvæðagreiðslu framkvæmda- stjórnar UEFA sl. fimmtudag er ákveðið var hverjir fengju EM í knattspyrnu árið 2008. Austurríki og Sviss fengu keppnina og segir Dalglish að áhrifamenn frá Sviss hafi breytt framkvæmd atkvæða- greiðslunnar sér í hag á síðustu stundu. „Það er alveg ljóst að Sviss hefur beygt reglurnar sér í hag. Og það hafa þeir gert á allra síðustu metrunum í atkvæðagreiðslunni,“ segir Dalglish og bætir því við að framkvæmdastjórn UEFA njóti ekki lengur trausts. FÓLK Við erum búnir að vera í mikillilægð og margir krísufundir hafa verið haldnir upp á síðkastið hjá okkur og það kom bara ekki til annað en að vinna þennan leik. Vonandi kveikir sigurinn í liðinu og eykur sjálfstraustið í hópnum,“ sagði Logi í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn en hann hefur farið á kostum í síðustu leikjum FH-inga. „Það hef- ur gengið vel hjá mér og ég þakka það séræfingum sem ég hef stundað af kappi. Ég æfi tvisar á dag því ef maður ætlar að geta eitthvað í þessu verður maður bara að æfa eins og vitleysingur. Þeir sem þora þeir skora,“ sagði Logi í sigurvímu, ánægður með sigur sinna manna og ekki síður frammistöðu sína. FH-ingar náðu undirtökunum snemma leiks. Þeir komust í 4:1 og hleyptu Þórsurum eftir það aldrei inn í leikinn. Það var einkum ágætur varnarleikur og góð markavarsla Magnúsar Sigmundssonar í marki FH-inga sem varð til þess að FH- ingar héldu Þórsurum í hæfilegri fjarlægð í fyrri hálfleik auk þess sem Logi var iðinn við kolann, bæði á vítalínunni og í sóknarspili FH-liðs- ins. FH-ingar hertu tökin í upphafi síðari hálfleiks. Magnús og Logi héldu uppteknum hætti og fljótlega í hálfleiknum var munurinn orðinn sex mörk. Þórsarar lögðu árar í bát og í stað þess að reyna að saxa á for- skot FH-inga og komast þar með inn í leikinn hengdu þeir haus og eyddu kröftum sínum að nöldra í dómurum leiksins. Ágæt barátta var í liði FH og greinilegt var að menn þar á bæ ætl- uðu að selja sig dýrt eftir slakt gengi í síðustu leikjum. Magnús Sig- mundsson og Logi Geirsson fóru fremstir meðal jafninga. Magnús varði jafnt og þétt allan leikinn og meðal annars þrjú vítaköst og Logi yljaði stuðningsmönnum FH með fallegum töktum ekki ósvipuðum þeim sem karl faðir hans, Geir Hall- steinsson, var þekktur fyrir á árum áður. Guðmundur Pedersen og Björgvin Rúnarsson léku sömuleiðis vel og Magnús Sigmundsson var geysiöflugur í vörninni og hélt skytt- unni Aigars Lazdin algjörlega í skefjum. Þórsarar voru sjálfum sér verstir. Þeir fóru illa með vítaköstin, voru klaufar í hraðaupphlaupunum og höfðu nánast allt á hornum sér. Mesta púðrið hjá þeim fór í að svekkja sig á dómgæslunni og allt frá fyrstu mínútu virkuðu leikmenn liðsins afar þreyttir og ekki síst knattspyrnukappinn Páll Viðar Gíslason og skyldi engan undra enda búinn að standa í ströngu allt árið. Páll var þó einna skástur í norðanlið- inu en víst er að Þórsarar léku langt undir getu og höfðu litla trú á því sem þeir voru að gera. Tíu marka Eyjasigur Eyjamenn nældu í tvö dýrmætstig í Eyjum í gærkveldi þegar Víkingur kom í heimsókn. ÍBV liðið lék með sorgarbönd til minningar um Valtý Þór Valtýsson sem lést langt fyrir aldur fram hinn 1. desember sl. Valtýr Þór lék hand- knattleik með Þór í mörg ár og hafði verið tímavörður á leikjum ÍBV und- anfarin ár. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af í fyrri hálfleik og talsverð harka í leiknum og greini- legt að liðin ætluðu að selja sig dýrt til að ná í þau tvö stig sem í boði voru. Eymar Kruger fór mikinn í liði gest- anna í fyrri hálfleik og skoraði öll fimm mörk sín þá. Eyjamenn voru lengst af undir í hálfleiknum en skor- uðu þrjú síðustu mörk hálfleiksins og leiddu 12-10 þegar flautað var til leikhlés. Eyjamenn tóku svo öll völd á vellinum í upphafi síðari hálfleiks og breyttu stöðunni úr 13-12 í 20-12, þeir spiluðu gríðarlega öfluga vörn í síðari hálfleik og komust gestirnir lítt áleiðis. Fyrir vikið fengu Eyja- menn hraðaupphlaup sem þeir nýttu vel. Leikurinn róaðist talsvert síð- ustu mínúturnar enda úrslitin ráðin, tíu marka sigur ÍBV. Mikil barátta var í öllu Eyjaliðinu en ef það ætti að taka einn leikmann úr sem skaraði fram úr var það Michael Lauritzen. Hann spilaði einungis seinni hálfleik- inn en skoraði fimm mörk hvert öðru glæsilegra. Viktor Gigov var einnig öflugur í markinu og varði 16 skot. Hjá Víkingum bar mest á Eymar Kruger í fyrri hálfleik en hann sást varla í þeim síðari. Annars átti Vík- ingsliðið dapran dag. forystu og höfðu yfir í leikhléi 10:11. HK- byrjaði seinni hálfleikinn með látum og náði mest fjögurra marka forskoti 11:15. Framarar með Héðin Gilsson í broddi fylkingar náðu að brjótast út úr vandræð- unum og knúðu fram jafntefli 22:22, eins og áður er lýst. „Það er alltaf gaman að glíma og eiga við menn sem hafa heilbrigt keppnisskap, eins og Árni þjálfari HK-manna hefur. Hann nær alltaf upp gríðarlegri stemn- ingu í þeim liðum sem hann þjálfar eða umgengst – það er alltaf gaman að eiga við lið, sem eru með þannig stríðsmenn innanbúðar. Við erum ekki sáttir við að ná aðeins einu stigi. Þetta er þó leikur sem við eigum að vinna. Við fórum mjög illa með alltof mörg dauðafæri og misnot- um tvö vítaköst. En það var mikil spenna og mikil læti í þessum leik og menn gerðu mörg mistökum,“ sagði Sebastian. Héðinn Gilsson átti stórleik í liði Fram í síðari hálfleik, skoraði þá 5 mörk og átti a.m.k. tvær línusendingar sem gáfu mörk. Það var engu að síður innkoma Sebast- ians Alexanderssonar í markið sem var vendipunktur í leiknum. Atli Þór Samúelsson, Samúel Árnason og Jón Bersi Ellingsen voru bestu leik- menn HK-liðsins. Morgunblaðið/Kristinn Atli Þór Samúelsson úr HK virðist afar undrandi á peysutökum Guðlaugs Arnarssonar úr Fram. nnu- gnar ínútur 1. deild karla í handknattleik voru 2, eftir að HK hafði verið yfir lengst af ri HK, sem hafði myndað gríðarmikla gast sagt ósáttur við að fá ekki vítakast Alexander Arnarsyni. 14 mörk Loga og sigur hjá FH-ingum Eftir dapurt gengi í undanförnum leikjum ráku FH-ingar af sér slyðruorðið og unnu tíu marka sigur á Þór, 32:22, á heimavelli sín- um í Kaplakrika. Logi Geirsson hélt uppteknum hætti í liði Hafnfirð- inga. Þessi skemmtilegi tvítugi leikmaður skoraði 14 mörk úr 16 skottilraunum en á dögunum gerði hann sér lítið fyrir og skoraði 16 gegn HK. Guðmundur Hilmarsson skrifar Sigursveinn Þórðarson skrifar HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: Evrópukeppni bikarhafa: Ásvellir: Haukar - Ademar Leon .........16.30 1. deild karla, Essodeild: KA-heimili: KA - Valur .........................16.30 Sunnudagur: 1. deild karla, Essodeild: Varmá: UMFA - Stjarnan .........................17 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur - Fjölnir .....................14 1. deild kvenna: Grindavík: UMFG - Haukar.................17.15 Bikarkeppni kvenna, Doritos-bikarinn: Hveragerði: Hamar - KR .....................16.30 Keflavík: Keflavík B - Hekla .....................14 Bikarkeppni karla, Doritos-bikarinn, 16- liða úrslit: Hlíðarendi: Valur - KR B...........................16 Sunnudagur: Bikarkeppni karla, Doritos-bikarinn, 16- liða úrslit: Hveragerði: Hamar - Reynir S. ...........19.15 Keflavík: Keflavík - Haukar .................19.15 Kennarah.: ÍS - Ármann/Þróttur.........19.15 Ólafsvík: Reynir H. - ÍR ............................16 Sauðárkrókur: Tindastóll - Höttur...........19 Stykkishólmur: Snæfell - Þór Þ. ...............15 1. deild karla: Selfoss: Selfoss - Stjarnan.........................20 Mánudagur: 1. deild kvenna: Keflavík: Keflavík - KR ........................19.15 Kennaraháskóli: ÍS - UMFN ...............19.30 Bikarkeppni karla, Doritos-bikarinn, 16- liða úrslit: Njarðvík: UMFN - UMFG........................20 BLAK Laugardagur: 1. deild kvenna: Fylkishöll: Fylkir - Nato ...........................16 1. deild karla: Hagaskóli: Þróttur - ÍS..............................14 UM HELGINA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.