Morgunblaðið - 04.01.2003, Side 1
2003 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍÞRÓTTAMENN Í 27 GREINUM VERÐLAUNAÐIR AF ÍSÍ / B2
JÓHANNES Harðarson, knattspyrnumaður hjá
Groningen í Hollandi, hefur verið leigður til
þarlends 1. deildarliðs, Veendam, út þetta tíma-
bil. Jóhannes er á öðru ári sínu hjá Groningen
en hefur engin tækifæri fengið með liðinu í úr-
valsdeildinni í vetur og spilaði aðeins þrjá leiki
með því á síðasta tímabili.
Jóhannes hefur reynslu af því að spila í 1.
deildinni í Hollandi því hann lék þar í hálft ár
með Maastricht áður en hann fór til Groningen
sumarið 2001.
Veendam er í 10. sæti af 18 liðum í 1. deild
með 22 stig eftir 16 leiki, 18 stigum á eftir efsta
liðinu ADO Den Haag. Keppni í deildinni hefst
að nýju eftir vetrarfrí þriðjudaginn 28. janúar
og þá taka Jóhannes og félagar í Veendam ein-
mitt á móti efsta liði deildarinnar ADO Den
Haag.
Jóhannes leigð-
ur til Veendam
Pálmi og
Bjarni
aftur til
Groningen
Knattspyrnumennirnir Pálmi
Rafn Pálmason úr Völsungi
og Bjarni Hólm Aðalsteins-
son úr Fram, sem báðir eru
18 ára, eru á förum til hol-
lenska úrvalsdeildarfélagsins
Groningen í annað sinn. Þeir
æfðu hjá félaginu í nóvember
og að sögn Ólafs Garðarsson-
ar, umboðsmanns, stóðu þeir
sig það vel að Groningen
bauð þeim til sín öðru sinni.
Pálmi og Bjarni fara utan á
þriðjudag og verða í viku hjá
félaginu, og fyrirhugað er að
þeir spili leik með 23 ára liði
Groningen.
Þá eru miklar líkur á að
Hjálmar Þórarinsson, hinn
16 ára gamli sóknarmaður úr
Þrótti í Reykjavík, fari til
reynslu til Utrecht í Hollandi
síðar í þessum mánuði.
ENSKA úrvalsdeildarliðið Charlton
hefur áhuga á að leigja Jóhannes
Karl Guðjónsson frá spænska liðinu
Real Betis út þetta leiktímabil. Ekki
er þó víst að af því verði því Charlton
vill fá Jóhannes Karl til Lundúna í
nokkra daga áður en gengið verður
frá leigusamningi en forráðamenn
Betis eru eitthvað tregir og vilja
fyrst ganga frá samningi áður en Jó-
hannes Karl fer til Englands.
„Það er ekki komið formlegt tilboð
en Charlton vill fá mig en það virðist
standa eitthvað í forráðamönnum
Betis. Ég hefði helst viljað fá sölu en
Betis vill það ekki vegna þess að ég
hef lækkað mikið í verði. Félagið vill
leigja mig og vonast til að ég standi
mig vel og hækki þá í verði á ný. Ég
skil því ekki alveg hvers vegna það
vill ekki leyfa mér að fara til Eng-
lands í einhverja daga áður en geng-
ið er frá samningi,“ sagði Jóhannes
Karl í samtali við Morgunblaðið.
Salamanga í 2. deildinni á Spáni vildi
einnig fá Jóhannes Karl en hann
sagði nei við því tilboði.
Charlton
vill leigja
Jóhannes
Karl
Eiður Smári var í byrjunarliðinugegn Aston Villa helgina fyrir
jól og skoraði þá fyrra markið í 2:0
sigri. Þrátt fyrir það var hann á vara-
mannabekknum á ný fimm dögum
síðar og lék í 10 mínútur gegn South-
ampton, spilaði síðan allan leikinn
gegn Leeds 28. desember en sat enn
og aftur á bekknum gegn Arsenal á
nýársdag og lék í 20 mínútur.
Útlit er fyrir að hann verði á ný í
byrjunarliðinu í dag þegar Chelsea
tekur á móti Middlesbrough í 3. um-
ferð ensku bikarkeppninnar, þar
sem Gianfranco Zola meiddist og fór
af velli í leiknum gegn Arsenal.
Alex Ferguson hefur áður sýnt
Eiði Smára áhuga en nokkuð var
rætt um að hann myndi gera tilboð í
hann í ágúst á nýliðnu ári. Ekkert
varð þó af því og Claudio Ranieri
hefur af og til fullyrt að Eiður sé ekki
til sölu, frekar en aðrir leikmenn fé-
lagsins. Þó er talið fullvíst að
Chelsea væri reiðubúið að selja hann
fyrir 11–12 milljónir punda, eða um
hálfan annan milljarð íslenskra
króna, ef slíkt tilboð bærist. Chelsea
er í miklum fjárhagsvandræðum og
skuldar rúmlega 12 milljarða króna.
Manchester United vantar tilfinn-
anlega sóknarmann en liðið er ekki
með sömu breidd þar og áður eftir að
Andy Cole og Dwight Yorke hurfu á
braut. Ruud van Nistelrooy hefur
aðallega séð um að skora mörkin en
hefur þó ekki verið jafn atkvæðamik-
ill í úrvalsdeildinni í vetur og hann
hefur verið í meistaradeild Evrópu.
Ferguson hefur ekki farið dult með
áhuga sinn á að bæta úr þessu, og
auk þess að svipast um eftir sókn-
armanni hefur hann rennt hýru auga
til tveggja kantmanna, Simon Davies
hjá Tottenham og Damien Duff hjá
Blackburn.
Ferguson enn með
Eið Smára í sigtinu
ENSKI netmiðillinn Manchester Online sagði í gær að Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Manchester United, hefði enn á ný beint
sjónum sínum að Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Þar kom
fram að Eiður hefði lýst yfir óánægju sinni með það hve takmörkuð
tækifæri hann hefði fengið í byrjunarliði Chelsea að undanförnu við
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóra félagsins. Ferguson væri því
kominn í viðbragðsstöðu á ný og hefði mikinn hug á að fá íslenska
sóknarmanninn til liðs við sig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðið í handknattleik mætir landsliði Slóveníu í dag í Kaplakrika í Hafnarfirði og annað kvöld í Laugardalshöllinni. Þessi mynd
var tekin á æfingu landsliðsins í gær og má sjá Ólaf Stefánsson, Róbert Sighvatsson, Birkir Ívar Guðmundsson, Sigfús Sigurðsson
og Gunnar Berg Viktorsson í leik. Viðtal við Guðmund Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfara á B4.