Morgunblaðið - 08.01.2003, Qupperneq 1
2003 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR BLAÐ B
LÍKURNAR á að enski knatt-
spyrnumaðurinn Lee Sharpe leiki
með Grindavík í úrvalsdeildinni í
sumar hafa minnkað verulega. Sig-
urbjörn Dagbjartsson, einn þeirra
sem hyggjast standa straum af komu
þessa fyrrverandi leikmanns Man-
chester United til landsins, segir þó
að málið sé ekki úr sögunni.
„Við teljum að við séum komnir
langt með að mæta fjárhagslegum
kröfum hans. Hann gaf okkur afsvar
í gær án þess að á það reyndi, en einn
okkar fer síðar í mánuðinum til Eng-
lands, færir honum fisk eins og hon-
um hafði áður verið lofað, og þá fær
hann formlegt tilboð frá okkur í
hendurnar,“ sagði Sigurbjörn við
Morgunblaðið í gær.
Sharpe vill fá um 400 þúsund krón-
ur fyrir hvern leik sem hann spilar
með Grindavík, sem gerir um 7 millj-
ónir króna ef hann yrði með í öllum
leikjum í úrvalsdeildinni. „Okkar til-
boð er ekki alveg svo hátt, en með
aukagreiðslum og ef allt gengur upp,
gæti hann farið nærri þeirri upphæð.
Þetta skýrist síðar meir, en þó ekk-
ert yrði af þessu á ég von á að Sharpe
komi eftir sem áður í heimsókn til
okkar í sumar þar sem góð kynni
hafa tekist milli hans og okkar,“
sagði Sigurbjörn Dagbjartsson.
Litlar
líkur á að
Sharpe
komi
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TEITUR ÞÓRÐARSON ÆTLAR SÉR AÐ BERJAST UM GULL MEÐ LYN / B4
FÆREYSKA landsliðið í knatt-
spyrnu mætir vel undirbúið til
leiks gegn Íslendingum í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða 7.
júní. Henrik Larsen landsliðsþjálf-
ari kallar saman 25 manna hóp til
æfinga um aðra helgi á Tóftum og
aftur í Þórshöfn tveimur vikum
síðar. 14. febrúar fer færeyski
hópurinn í níu daga æfingabúðir
til Spánar og eftir það kemur hann
af og til saman frameftir vori. Í lok
apríl leika Færeyingar tvo lands-
leiki við Kasakstan á heimavelli.
Færeyingar standa vel að vígi
því flestallir leikmanna þeirra
spila með færeyskum liðum og
þeir eiga auðvelt með að kalla hóp-
inn saman.
Í 25 manna hópnum sem boð-
aður hefur verið fyrir fyrstu æf-
ingarnar eru fjórir fyrrum leik-
menn íslenskra liða. Það eru þeir
Jens Martin Knudsen, Sámal Joen-
sen og John Petersen sem spiluðu
með Leiftri og Pól Thorsteinsson
sem lék með Val.
Leikurinn við Ísland á Laugar-
dalsvellinum 7. júní er fyrsti
leikurinn af fimm hjá Færeyingum
á þessu ári. Þeir eiga síðan eftir
heimaleiki við Þýskaland, Ísland
og Litháen og útileik gegn Skot-
landi. Færeyska liðið gerði jafn-
tefli við Skota, 2:2, og tapaði 2:0 í
Litháen og 2:1 í Þýskalandi í
fyrstu þremur leikjum sínum í
keppninni.
Góður undirbúningur
hjá Færeyingum
DÖNSKU Olsen-bræðurnir eiga að syngja
dönskum handknattleiksmönnum og dönsku
þjóðinni baráttuanda í brjóst á meðan heims-
meistaramótið stendur yfir í Portúgal. Bræð-
urnir, sem slógu eftirminnilega í gegn þegar
þeir unnu Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva fyrir nærri þremur árum, hljóðrituðu
nýlega baráttusöng tileinkaðan danska lands-
liðinu sem á eftir að óma í Danmörku á meðan
keppnin fer fram. Lagið heitir „Vi tænder lys-
et“ eða „Við kveikjum ljósið“. Lagið verður
frumflutt ásamt myndbandi á blaðamannafundi
danska landsliðsins í íþróttamiðstöðinni í
Ballerup á morgun. Olsen-bræðurnir vilja með
laginu leggja sitt lóð á vogarskálarnar til þess
að blása danska karlalandsliðinu baráttuanda í
brjóst með von um að það komi heim með verð-
laun frá HM eftir 26 ára bið.
Olsen-bræður
kveikja á Dönum
Eradze lék sinn fyrsta landsleikfyrir Íslands hönd sl. laugardag
í Kaplakrika en hann lék áður með
landsliði Georgíu þar
sem hann er fæddur.
„Ég var tauga-
óstyrkur fyrir fyrsta
leikinn og það var
mjög skrítið að upplifa það að standa
úti á gólfinu og heyra þjóðsöng Ís-
lands. Þegar ég fékk tækifæri í síð-
ari hálfleiknum var gaman að finna
stuðninginn frá félögum mínum í
landsliðinu og áhorfendum. Ég geri
miklar kröfur til mín og veit einnig
að margir búast við því að ég verji öll
skot sem koma á markið. Í lands-
leikjum er maður að glíma við at-
vinnumenn sem skjóta betur á
markið en áhugamenn hér á Íslandi.
Það er staðreynd.“ Eradze lék ekki í
þriðja leiknum vegna meiðsla í baki
sem eru ekki alvarleg. „Það vill eng-
inn taka áhættu þegar aðeins tvær
vikur eru þar til HM hefst í Portú-
gal. Ég tel mig eiga jafna möguleika
á við hina markmennina á að komast
í lokahópinn og er bjartsýnn á að
leika fyrir íslenska landsliðið á HM.“
Eradze sagði að landslið Georgíu,
sem hann lék með áður væri ekki
eins sterkt og það íslenska. „Georgía
er ekki með Ólaf Stefánsson, Patrek
Jóhannesson, Guðjón Val Sigurðs-
son og Sigfús Sigurðsson. Ég yrði
stoltur og glaður ef ég fengi tæki-
færi á stórmóti,“ sagði Eradze.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varnarmenn Slóveníu tóku fast á Íslendingum í gær og komst Sigurður Bjarnason hvorki lönd né strönd að þessu sinni.
„Skrítið að heyra
þjóðsönginn“
„ÞETTA voru æfingaleikir og það gengur á ýmsu þegar verið er að
prófa nýja hluti. Ég hef að minnsta kosti ekki miklar áhyggjur þessa
stundina þrátt fyrir að við höfum tapað frekar illa í þriðja og síðasta
leiknum gegn Slóvenum,“ sagði markvörðurinn Roland Valur
Eradze að loknum þriðja leik Íslendinga gegn Slóvenum í Laug-
ardalshöll.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson