Morgunblaðið - 10.01.2003, Side 1
2003 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SEX NÚLL VÖRNIN Í HANDKNATTLEIK ER DEYJANDI VÖRN / C4
STEVE Bruce, knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Birmingham, óskaði eftir því við
forráðamenn Ipswich fyrr í þessari viku að fá
Hermann Hreiðarsson að láni. Ipswich hafnaði
þegar í stað beiðni Bruce en bauð íslenska lands-
liðsmanninn til sölu fyrir 2,5 milljónir punda,
sem samsvarar 325 milljónum íslenskra króna.
Birmingham tók ekki þessu boði en keypti í
staðinn annan leikmann frá Ipswich, Jamie
Clapman, fyrir 1,3 milljónir punda og Stephen
Clemence frá Tottenham fyrir 250.000 pund en
sú tala getur hækkað upp í 900.000 pund nái
leikmaðurinn að spila tiltekinn fjölda með liðinu.
WBA gerði Ipswich í upphafi leiktíðarinnar
tilboð í Hermann upp á 3,3 milljónir punda, 430
milljónir króna, sem var tekið en ekkert varð að
félagaskiptunum þar sem Hermann vildi ekki
ganga í raðir WBA.
Ipswich bauð
Hermann til sölu
ALEXANDERS Pettersons, leik-
maður Gróttu/KR, æfir um þessar
mundir með danska úrvalsdeildar-
liðinu Team Tvis Holstebro, eftir
því sem fram kom á heimasíðu
félagsins. Þar kemur fram að
Pettersons sé hjá félaginu við
æfingar alla þessa viku með samn-
ing fyrir næstu leiktíð í huga.
Einnig er sagt frá því að Petter-
sons hafi mikinn áhuga á að leika í
Danmörku á næsta keppnistíma-
bili en það muni skýrast eftir að
hann hafi dvalið hjá félaginu í viku
við æfingar hvort af samningavið-
ræðum verði.
Þá kemur það einnig fram að
Pettersons hafi verið bestur leik-
manna Gróttu/KR þegar þeir
sendu Aalborg HSH út úr Áskor-
endakeppni Evrópu í síðasta mán-
uði.
Team Tvis Holstrebro er sterk-
asta félagslið Dana á vesturhluta
Jótlands. Það varð til fyrir nokkr-
um árum þegar lið Holstebro
Håndbold 90 og Tvis KFUM voru
sameinuð. Team Tvis Holstrebro
er í 10. sæti í dönsku úrvalsdeild-
inni af 13 liðum með 10 stig þegar
þrettán leikir eru að baki.
Petter-
sons æfir í
Danmörku
OLA Lindgren, fyrirliði sænska
handknattleikslandsliðsins og leik-
maður Nordhorn í Þýskalandi, tek-
ur við þjálfun Nordhorn í vor þegar
Kent-Harry Anderson flytur sig
yfir til Flensborgar. Lindgren, sem
er 38 ára og er leikjahæsti lands-
liðsmaður Svía, hefur spilað 367
landsleiki og reiknar með að leika
sína síðustu landsleiki á HM í
Portúgal. Áður hafði hann ætlað sér
að leika með sænska landsliðinu
fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu á
næsta ári.
Lindgren gerði í fyrradag þriggja
ára samning við Nordhorn, en hann
er núverandi fyrirliði liðsins.
Lindgren segist reikna með að
hætta að leika með sænska landslið-
inu að aflokinni heimsmeistara-
keppninni. „Ef menn þjálfa í efstu
deild í Þýskalandi þá verða þeir að
einbeita sér að því. Það er ekki
mögulegt að hafa mörg járn í eld-
inum á saman tíma,“ segir Lind-
gren.
Lindgren
hættir með
Svíum
Ívar fékk mjög góða dóma fyrirframmistöðu sína í leikjunum
sem hann spilaði og var í þrígang
valinn maður leiksins. Jones, sem
er orðinn valtur í sessi eftir slakt
gengi sinna manna á undanförnum
vikum, ákvað að taka Ívar út úr
liðinu og í síðustu leikjum liðsins
hefur hann ekki verið í leikmanna-
hópnum.
Ólafur Garðarsson, umboðsmað-
ur Ívars, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að ensku 1. deild-
arliðin Brighton og Sheffield
Wednesday hefðu sett sig í sam-
band við Wolves með það fyrir
augum að fá Ívar að láni en því
höfnuðu forráðamenn Úlfanna.
Þess má geta að knattspyrnustjóri
Brighton er Steve Coppell, sem
keypti Ívar frá ÍBV til Brentford á
sínum tíma.
„Ég vill komast á leigu en Jones
hefur neitað því. Hann segir að ég
sé í átján manna hópnum hjá sér
og hann vill halda mér í honum.
Mitt hlutskipti í dag er að vera
fyrir utan liðið.
Ég er að vonum svekktur að fá
ekki tækifæri sérstaklega þar sem
mér gekk vel. Ég hef aldrei verið í
eins vel upplagður og einmitt nú,
en maður verður bara að taka
þessu og grípa tækifærið þegar
það gefst,“ sagði Ívar við Morg-
unblaðið.
Úlfarnir
vilja ekki
lána Ívar
ENSKA 1. deildarliðið Wolves hefur hafnað beiðni tveggja enskra
liða auk liða frá Norðurlöndum um að fá landsliðsmanninn Ívar Ingi-
marsson að láni. Ívar, sem gekk í raðir Úlfanna sl. sumar hefur verið
úti í kuldanum hjá knattspyrnustjóranum Dave Jones að undan-
förnu– eftir að hafa verið fastamaður liðsins í upphafi leiktíðar.
Morgunblaðið/Golli
Á ferðinni! Þessi skemmtilega mynd sýnir Kolbrúnu Stefáns-
dóttur, leikmann kvennaliðs Vals í handknattleik, á leið í
hraðaupphlaup í leik gegn FH á dögunum. Fjórir leikir verða
leiknir í 1. deild kvenna í kvöld.
KEFLVÍKINGAR hafa fengið
bandarískan körfuknattleiksmann
til landsins til reynslu og mun
hann væntanlega ganga til liðs
við Keflvíkinga á næstu dögum.
Leikmaðurinn heitir Edmund
Saunders, er rúmlega tveir metr-
ar á hæð og 24 ára gamall. Hann
lék á sínum tíma með Connecti-
cut-háskólanum og varð há-
skólameistari 1999. Síðan þá hef-
ur hann reynt ýmislegt en lítið
gengið og segir á heimasíðu fé-
lagsins að ekki sé litið á hann sem
stórstjörnu sem eigi að bjarga
málunum heldur er hann ætlaður
til að styrkja liðið undir körfunni.
Damon Johnson og Kevin
Grandberg eru samningsbundnir
Keflavík en þeir eru báðir fæddir
í Bandaríkjunum en eru nú með
íslenskt ríkisfang. Hrannar Hólm,
formaður Keflavíkur, sagði í gær
að ólíklegt væri að liðið yrði með
þá alla í herbúðum liðsins út leik-
tíðina. „Saunders mun leika með
Keflavík í kvöld gegn Njarðvík í
bikarkeppninni, fáum við leik-
heimild fyrir hann,“ sagði Hrann-
ar.
Saunders til
Keflvíkinga