Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 4
SÆNSKI handknattleikskappinn
Magnús Wislander, fyrrverandi leik-
maður Kiel og núverandi leikmaður
Gautaborgarliðsins Redbergslid,
verður með íslenska hópnum sem
tekur þátt í Partille Cup – unglinga-
mótinu í handknattleik í Gautaborg í
sumar. Ferðaskrifstofan Úrval-Út-
sýn hefur samið við Wislander um að
hann verði með íslenska hópnum.
ÞRÁTT fyrir að verma tréverkið í
varamannaskýli enska úrvalsdeild-
arliðsins Liverpool þessa dagana
segir pólski landsliðsmarkvörðurinn
Jerzy Dudek að hann sé enn í að-
alhutverki hjá liðinu. Dudek hefur
ekki leikið sl. ellefu leiki með liðinu
en Chris Kirkland tók stöðu hans í
byrjunarliðinu eftir að Dudek hafði
gert sig sekan um mistök í nokkrum
leikjum í röð. „Ég tel ekki að tíma-
bilinu sé lokið hjá mér. Ef ég væri
hjá öðru félagi og í öðru landi þá væri
ég kannski að líta í kringum mig en
ekki ef maður er hjá Liverpool,“ seg-
ir Dudek.
SERGEI Rebrov og Jean Tigana,
knattspyrnustjóri Fulham, ræddu
saman í gærkvöldi um hugsanleg
kaup Fulham á Rebrov. Tottenham
mun hafa slegið verulega af verðinu
á Úkraíunumanninum og sættir fé-
lagið sig nú við eina millj. punda, um
130 millj. króna fyrir leikmanninn
sem það keypti á ellefu földu þessu
verði fyrir fáum árum.
RÚSSNESKI leikmaðurinn Andr-
ej Kanchelskis, 34 ára, gekk til liðs
við Sheff. Wed. í gær, en liðið fékk
hann að láni frá Southampton.
INTER Milanó vill fá Argentínu-
manninn Gabriel Batistuta frá
Róma til að taka við hlutverki landa
síns Hernan Crespo, sem verður frá
keppni næstu þrjá mánuðina vegna
meiðsla.
LEEDS hefur átt í viðræðum við
Brasilíumanninn Kleberson síðustu
daga en í gær sigldu þær í strand og
hann kemur ekki til enska liðsins.
FÓLK
Þurfa að
fá sér
vinnu
FULHAM, eina knatt-
spyrnufélagið í Evrópu sem
hefur haft atvinnulið í
kvennaflokki, hefur neyðst
til að draga saman seglin.
Samningum við leikmenn
hefur verið sagt upp og þeim
boðið að halda áfram sem
hálf-atvinnumenn, þannig
að stúlkurnar þurfa að finna
sér vinnu til hliðar við knatt-
spyrnuna. Forráðamönnum
Fulham hefur ekki tekist að
afla nægilegra tekna til að
halda úti atvinnuliði lengur.
Þjálfarinn, Gaute Haugenes,
er hættur af þessum sökum
og er á leið heim til Noregs
ásamt tveimur norskum
leikmönnum liðsins.
Fulham tók upp atvinnu-
mennsku hjá kvennaliði sínu
fyrir tveimur árum. Í kjöl-
farið vann liðið ensku 1.
deildina með miklum yfir-
burðum síðasta vetur og
varð jafnframt bikarmeist-
ari með því að sigra
Doncaster Belles, 2:0, í úr-
slitaleik. Liðið er nú með
fimm stiga forystu í úrvals-
deildinni og er ósigrað í
fyrstu tíu leikjum sínum á
tímabilinu.
Ensk lið hafa treyst því að leik-menn frá Norðurlöndunum
væru góð kaup. Þeir eru ódýrir,
vinnusamir og fljótir að tileinka sér
lífsmynstrið í þeim löndum þar sem
þeir leika. Knattspyrnustjórar
enskra liða hafa einnig sagt að einn
aðalkostur leikmanna frá Norður-
löndum sé sá að þeir maldi aldrei í
móinn á æfingum eða í leikjum og
láti lítið að sér kveða utan vallar. Nú
er öldin hinsvegar önnur og hafa
sparksérfræðingar á Norðurlöndum
leitt að því líkum að knattspyrnu-
menn frá þessum heimshluta séu
farnir að aðlagast aðstæðum of vel.
Aðfaranótt þriðjudags var norski
landsliðsmaðurinn Eirik Bakke
handtekinn þar sem hann reyndist
vera drukkinn undir stýri.
Bakke mætir fyrir rétt í dag
vegna málsins sem hressir hinsveg-
ar lítið uppá ímynd Leeds, sem hef-
ur verið mikið í sviðsljósinu að und-
anförnu.
Schwarz í réttarsalinn
Sænski leikmaðurinn Stefan
Schwarz þarf einnig að svara fyrir
syndir sínar í réttarsal á næstunni.
Hann er sakaður um að hafa ökkla-
brotið 15 ára gamlan ungling í
Sunderland, en hópur unglinga
grýtti snjóboltum í bíl Svíans sem
brást hinn versti við og tuskaði ein-
hverja úr hópnum til með þessum
afleiðingum. Hinn 33 ára gamli
Schwarz hefur lítið leikið með Sund-
erland í vetur en er einn af aðstoð-
arþjálfurum liðsins.
Eiður Smári Guðjohnsen er einn-
ig nefndur á nafn í útekt norska
dagblaðsins Aftenposten á afrekum
knattspyrnumanna frá Norðurlönd-
um utan vallar. Eiður Smári við-
urkenndi sl. sunnudag að hafa átt
við spilafíkn að etja og tapað a.m.k.
50 milljónum ísl. kr. á tæplega hálfu
ári.
Ráðist á ljósmyndara
Sænski landsliðsmaðurinn Johan
Mjällby komst í kast við skosku lög-
regluna á dögunum er jólaveisla
Glasgow Celtic fór úr böndunum og
nokkrir leikmenn liðsins þurftu að
gista fangageymslur Glasgowborg-
ar.
Mjällby og nokkrir félagar hans
úr Celtic réðust á ljósmyndara sem
myndaði þá í gríð og erg í jólaveisl-
unni. Þeir mæta fyrir rétt í Skot-
landi í mars.
Knattspyrnumenn frá Norðurlöndum í sviðsljósinu í Englandi
Farnir að aðlagast
aðstæðum of vel
ATVINNUKNATTSPYRNUMENN frá Norðurlöndum hafa haft orð á
sér fyrir að vera „ljúfir“ og „góðir“ drengir sem hægt sé að stóla á
en á undanförnum vikum hefur þessi ímynd fengið á sig brotsjó, þar
sem hvert atvikið hefur rekið annað þar sem leikmenn frá Norð-
urlöndunum hafa verið í aðalhlutverki.
Sigurður
hjá Stoke
SIGURÐUR Donys Sigurðs-
son, 16 ára knattspyrnumað-
ur úr Einherja frá Vopna-
firði, dvelur um þessar
mundir hjá Stoke City í Eng-
landi og verður þar í einn
mánuð, eða fram í miðjan
febrúar. Hann æfir og spilar
með unglingaliði félagsins.
Sigurður var hjá úrvalsdeild-
arfélagi Middlesbrough fyrr í
vetur og þótti standa sig vel
þar og vakti athygli fleiri
enskra félaga.
Koukalova hafði fyrir leikinnaldrei unnið leik á stórmóti.
Seles vann fyrsta settið í leiknum,
6:7. Koukalova, sem er í 113. sæti á
styrkleikalista mótsins, rétt marði
annað settið eftir að Seles, sem er í
sjötta sæti listans, meiddist, 7:5 og
það þriðja endaði 6:3. Eftir sigurinn
fer hin tvítuga tékkneska stúlka inn
á lista 100 efstu í fyrsta sinn á sínum
ferli.
„Ég fann mikið til“
Hin 29 ára gamla Seles fékk með-
höndlun hjá sjúkraþjálfara eftir að
hún meiddist og gekk því ekki heil til
skógar það sem eftir lifði leiksins.
„Ég fann mikið til í ökklanum og
vissi að ég myndi eiga í vandræðum
það sem eftir væri leiksins,“ sagði
Seles en hún og fleiri keppendur á
mótinu hafa kvartað yfir stömu yfir-
borði keppnisvallarins í Melbourne.
„Það er eins og yfirborðið sé klístrað
og það kom mér á óvart þar sem
hitastigið var ekki það hátt að þessu
sinni.“
Koukalova er fædd og uppalin í
Prag og segir hún að árangur Mart-
inu Navratilovu hafi vakið áhuga
hennar á íþróttinni. „Ég er glöð að
hafa lagt Seles að velli því hún er ein
af tíu bestu tenniskonum allra tíma.
Samt sem áður er ég vart farin að
trúa því að þetta hafi í raun og veru
gerst,“ sagði Koukalova.
Leikur best á leirvöllum
Úrslit í flestum öðrum leikjum
gærdagsins komu ekki á óvart þar
sem m.a. Serena Williams komst í 3.
umferð. Hins vegar er Brasilíumað-
urinn Gustavo Kuerten úr leik en
hann tapaði fyrir Tékkanum Radek
Stepanek í 2. umferð en Kuerten
kann illa við sig á öðrum keppnisvöll-
um en þeim sem eru gerðir úr leir
enda hefur hann þrívegis sigrað á
opna franska meistaramótinu sem
fram fer á leirvöllum.
Reuters
Monica Seles meiddist á ökkla og varð að játa sig sigraða.
STÓRU stjörnurnar í tennisheimi kvenna eiga margar erfitt upp-
dráttar á opna ástralska meistaramótinu í tennis sem fram fer í
Melbourne. Monica Seles frá Bandaríkjunum féll úr leik í gær en
hún hefur ávallt komist í fjórðungsúrslit keppninnar í þau átta
skipti sem hún hefur tekið þátt í henni. Seles hefur unnið mótið í
fjögur skipti á sínum ferli en hún átti ekki möguleika gegn Klöru
Koukalovu frá Tékklandi eftir að Seles hafði snúið sig á ökkla í öðru
setti leiksins.
Monica
Seles úr leik
í Melbourne
ALEX Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester
United, hefur afskrifað Liv-
erpool í meistarabaráttunni í
Englandi. Hann segir að það
séu aðeins fjögur lið sem eiga
möguleika á meistaratitli –
Arsenal, Manchester United
og Chelsea, ásamt New-
castle, sem á til góða heima-
leik við Chelsea.
Afskrifar
Liverpool