Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Um þessar mundir er starfs-hópur að vinna leiðbein-ingar um nýrætkun ogmeðferð skóga. Þessi vinna er unnin í framhaldi af ályktun sem gerð var á aðalfundi Skógrækt- arfélags Íslands í Reykholti í haust. Jón Geir Pétursson skógfræð- ingur er í forsvari fyrir starfshóp þennan. „Í hópi þessum er Sigurður Magn- ússon frá Náttúrufræðistofnun Ís- lands, Arnór Snorrason og Brynjar Skúlason frá Skógrækt ríkisins, Trausti Baldursson frá Umhverf- isstofnun, Sherry Curl frá Lands- hlutabundnum skógræktarverk- efnum, Einar Þorleifsson frá Fuglaverndunarfélaginu, Heiðrún Guðmundsdóttir frá Landvernd, Agnes Stefánsdóttir frá Fornleifa- vernd ríkisins. Frá Skógræktar- félagi Íslands er ég fulltrúi ásamt Þuríði Ingvadóttur og Einari Gunn- arssyni. Þarna fer fram mjög umfangs- mikil vinna í þeim skilning m.a. að hún tekur til fjölmargra þátta, svo sem landvals til skógræktar þar sem á að greina hvar á að rækta skóg og hvar ekki. Síðan ætlum við að veita nokkuð ítarlegar leiðbeiningar um nýræktun og meðferð skóga þannig að sú ræktun geti verið sem mest í sátt við umhverfið.“ Er því ekki þannig varið núna? „Það má segja að svona leiðbein- ingar hafi vantað. Nú eru áform um að auka mjög skógrækt í landinu og þá er orðið tímabært að ítarlegar leiðbeiningar um það efni séu settar fram.“ Kemur skógrækt við t.d. forn- leifaþátt? „Já, í landinu eru ógrynni forn- minja og þeir sem rækta skóg vilja að sjálfsögðu taka tilliti til þeirra því þær viljum við varðveita, leiðbein- ingarnar taka til þess hvernig eigi að varðveita fornminjar og hvar er hægt að leita sér upplýsinga hvað telst til fornminja. Eins erum við líka með þessu að gera fólk meðvitað um hluti eins og fornminjar, það er ekki fyrirliggj- andi alls staðar þekking á hvar þær er að finna og hverjar þær eru, við ætlum m.a. að gefa leiðbeiningar um hvernig á að tilkynna um fund forn- minja ef til slíks kemur.“ En stafar fuglum einhver hætta af skógrækt? „Skógrækt hefur veruleg áhrif á lífríkið. Þannig getur skógrækt haft áhrif á fuglalífið. Þau áhrif geta verið mismunandi á mismunandi fuglateg- undir. Til þess að fyrirbyggja það að skógræktin hafi óæskileg eða slæm áhrif á fuglalífið þá viljum við draga fram þá þætti sem geta stuðlað að því að svo verði ekki. Sérstaklega tengist það umræðum um röskun á votlendi.“ Verða í þessum leiðbeiningum beinar ráðleggingar hvað varðar skógrækt? „Það er meiningin að þarna verði settar fram leiðbeiningar sem geta gagnast öllum þeim sem stunda skógrækt á Íslandi, hvort sem hún verður í stórum eða smáum stíl.“ Hvað ber helst að varast? „Það eru margir þættir sem tengj- ast skógræktinni sem við viljum að fólk hafi í huga, hlutir eins og teg- undasamsetning, jarðvinnsla, að hugað sé að jöðrum skóganna, aðlög- un þeirra að landslagi, efnanotkun, auk þátta eins og fornminja, sem fyrr gat, og lífríki.“ Hvernig miðar þessu starfi? „Því miðar ágætlega, stefnt er að því að leiðbeiningarnar komi út fyrir næsta aðalfund Skógræktarfélags Íslands sem fyrirhugaður er í lok ágúst í Varmahlíð í Skagafirði.“ Á þessi vinna sér fyrirmynd er- lendis frá? „Já. Við höfum sérstaklega litið til reynslu frá Bretlandseyjum. Ástæða þess er sú að þar hefur verið und- anfarna áratugi stunduð umfangs- mikil skógrækt á stöðum sem áður voru skóglausir. Þess vegna er mun meira á því að græða að afla upplýs- inga þaðan en frá Norðurlöndum þar sem unnið er meira í því að nýta þá skóga sem fyrir voru. Á Bretlands- eyjum eru hins vegar svæði þar sem aðstæður eru hvað líkastar okkar.“ Hafa menn þar gert greinagóðar leiðbeiningar fyrir sitt fólk að fara eftir? „Já, þar hafa menn sett fram mjög greinagóðar leiðbeiningar, bæði í prentuðu máli og á Netinu til að skoða og fara eftir. Við stefnum að því að gefa okkar leiðbeiningar út bæði í bæklingi og á Netinu.“ Nú er þessi starfshópur mjög víð- tækur ef svo má segja, er það mik- ilvægt til framgangs þessu verkefni? „Já, það er afar mikilvægt að að þessari vinnu komi bæði opinberar stofnanir og frjáls félagasamtök. Með þessu móti næst „þverfagleg“ nálgun að viðfangsefninu, ef svo má segja. Líka ber þess að geta að til stendur að senda leiðbeiningarnar til umsagnar enn fleiri hagsmunaaðila en þeirra sem aðild eiga að umrædd- um starfshópi.“ Eru þið í þessum leiðbeiningum að hafa skoðanir á hvað á að rækta og hvar? „Við erum í þessari vinnu að veita leiðbeiningar innan ramma núgild- andi laga og reglugerða um skóga og skógrækt. Hún tengist mörgum lagasetningum eins og skipulags- lögum, náttúruverndarlögum og skógræktarlögum. Þessi starfs- hópur er fyrst og fremst að veita leiðbeiningar um hvað beri að varast við skógrækt en ekki að leggja beint mat á ákveðin landsvæði. Við höfum hins vegar unnið að því að afla okkur allra fyrirliggjandi heimilda hvað varðar þetta málefni þannig að þær séu aðgengilegar á einum stað.“ Leiðbeiningar um nýræktun skógar Jón Geir Pétursson skógfræðingur ásamt Margréti Guðjónsdóttur frá Dals- mynni, skógræktarfrömuði á Snæfellsnesi. Skóga landsins ber að fella að landslaginu eins og kostur er. Gott dæmi um það er skógurinn á Mógilsá í Kollafirði sem fellur vel að landslaginu í Esjuhlíðum. Skógrækt e r mörgum hug le ik in en það e r marg t sem teng is t henn i sem fó lk þar f að v i ta áður en haf is t e r handa. Jón Ge i r Pétu rsson skógf ræðingur e r í fo rsvar i f y r i r s ta r fshóp sem er að semja le iðbe in ingar um ný - ræktun og meðferð skóga. Leiðbeiningar vinnuhópsins eiga að gagnast öllum þeim sem stunda skógrækt í landinu. Myndin er úr Hamrahlíðar- skógi Skógræktarfélags Mosfellsbæjar. Ný ræktun Umsjón og viðtöl: Guðrún Guðlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.