Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 1
2003  FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ BLAÐ B FRAMARAR sögðu í gær Kristni Rúnari Jónssyni, þjálfara úrvals- deildarliðs félagsins í knattspyrnu, upp störfum en hann hefur stýrt því í hálft þriðja ár. Eftirmaður hans hafði ekki fundist í gærkvöld og munu Brynjar Jóhannesson og Guð- mundur Hreiðarsson stjórna æf- ingu liðsins í dag. „Ekki skemmtileg ákvörðun“ „Þetta var ekki skemmtileg ákvörðun. Kristinn hefur lagt allt sem hann átti í þetta starf og við höfum verið ánægðir með hann lengst af. Undanfarin tvö ár hefur liðið spilað ljómandi góða knatt- spyrnu þó að úrslitin hafi oft látið á sér standa, en í lokaleikjum vorsins og þeim sem búnir eru af Íslands- mótinu hefur liðið hins vegar leikið afleitlega. Úrlausnir voru ekki sjá- anlegar og því ákváðum við að stíga þetta skref núna þar sem þetta var eini tíminn fyrir þjálf- araskipti ef þau ættu á annað borð að eiga sér stað,“ sagði Brynjar Jó- hannesson, framkvæmdastjóri hlutafélagsins Fram, Fótbolta- félags Reykjavíkur, sem sér um rekstur elstu flokka Fram, í samtali við Morgunblaðið í gær. Kristinn tók við Framliðinu haustið 2000. Þetta er í þriðja skipt- ið á nokkrum árum sem fyrrver- andi leikmenn Fram, sem þjálfuðu liðið, eru leystir frá störfum. Mar- teinn Geirsson 1995 og Guðmundur Torfason 2000. Magnús Jónsson tók við starfi Marteins og Pétur Ormslev við starfi Guðmundar, en Pétur stjórn- aði Framliðinu aðeins í tveimur leikjum. RONNIE Hartvig, nýi Daninn sem er á leið til knattspyrnuliðs KA, byrj- ar dvöl sína hjá félaginu í leikbanni. Hartvig, sem er 25 ára varnarmaður og kemur frá 1. deildarfélaginu Hellerup IK, átti eftir að afplána tveggja leikja bann í Danmörku og þarf hann að taka það út hér á landi. Hann er þegar búinn að taka út fyrri leikinn þó hann sé ekki kominn til landsins. Gengið var frá félaga- skiptunum þann 31. maí, sem var lokadagur áður en „glugganum“ fyr- ir félagaskipti milli landa var lokað hérlendis. Þar með var Hartvig í banni þegar KA tók á móti KR á þriðjudagskvöldið og verður einnig í banni þegar KA sækir Selfoss heim í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar eftir viku. Hartvig, sem er væntanlegur til landsins um helgina, getur því spilað með KA þegar liðið sækir Skaga- menn heim í 5. umferð úrvalsdeild- arinnar mánudaginn 16. júní. Mikil meiðsli hafa herjað á KA-menn að undanförnu og Hartvig ætti því að vera þeim kærkominn liðsauki. Hartvig byrjar í banni hjá KA Þetta er sérstök stund fyrir migað spila minn síðasta alvöru leik á Íslandi. Vonandi verður þetta skemmtilegur leikur fyrir mig og ég hlakka mjög til stundarinnar. En til þess að geta kvatt ís- lenska knattspyrnuunnendur al- mennilega þurfum við að fá sigur á móti Færeyingum. Við erum komnir með nýja þálfara og þeim fylgja nýj- ar áherslur eins og alltaf með nýja menn, sama hvort um er að ræða leikmenn eða þjálfara. Þeir hafa rætt við okkur og sagt hvað þeir vilja fá út úr leik okkar. Við höfum verið að vinna með hugmyndafræði þeirra hér á æfingum og það hefur gengið vel enda góð stemmning í hópnum. Ég óttast ekki að það sé vanmat í hópnum því Færeyingar hafa náð í góð úrslit að undanförnu. Þannig að það skal enginn halda að við getum bara labbað inn í þennan leik og haldið að þetta komi allt af sjálfu sér. En að sama skapi viljum við trúa því og treysta að við séum með betra lið en Færeyingarnir og með góðum leik ættum við að sigra. Nú ætla ég að einbeita mér að því að klára þessa síðustu leiki mína með sóma,“ sagði Guðni, sem telur að hann hafi tekið út sinn skammt af knattspyrnu. „Ég er næstum orðinn þrjátíu og átta – eins og börnin segja. Þetta hefur gengið vel undanfarin ár og mig langar að hætta þegar ég stend enn fyrir mínu. Svo hef ég líka að mörgu öðru að hyggja. Fjölskyld- an flutti heim á undan mér og nú get ég snúið mér að henni,“ sagði Guðni Bergsson í samtali við Morgunblaðið á Laugardalsvelli í gær. Morgunblaðið/Golli Guðni Bergsson umkringdur ungum aðdáendum eftir landsliðsæfingu í gær á Laugardalsvell- inum, þar sem hann gaf sér tíma til að gefa þeim eiginhandaráritanir á myndir sem Hekla gaf. Guðni vill kveðja með sigurleik GUÐNI Bergsson, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, leikur á morgun kveðjuleik sinn á Laugardalsvelli – þegar Ísland mætir Færeyjum. Leikurinn er 80. leikur Guðna með íslenska landsliðinu. Guðni hefur ekki spilað leik á Laugardalsvelli síðan Ís- land tapaði gegn Írum hinn 6. september árið 1997, en þá var hann fyrirliði liðsins. Guðni var valinn aftur í landsliðið fyrr á þessu ári þegar liðið lék gegn Skotum. Eftir Hjörvar Hafliðason B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KÖRFUKNATTLEIKSMENN STEFNA Á GULL Á MÖLTU / B6 Kristni sagt upp hjá Fram LOGI Gunnarsson, körfuknattleiksmaður, mun leika á æfingamóti á Spáni að loknum Smá- þjóðaleikunum á Möltu. Þar mun Logi reyna fyrir sér hjá Valladolid sem leikur í efstu deild á Spáni en að margra mati er sú deild önnur í röðinni hvað styrkleika varðar á eftir NBA- deildinni. „Ég mun leika nokkra leiki á sér- stöku móti sem sett er upp til þess að þeir geti skoðað leikmenn. Það veit enginn hvað mun gerast í framhaldinu en ég er með allar klær úti þessa dagana í gegnum umboðsmann minn,“ sagði Logi í gær en hann lék með Ulm í þýsku 2. deildinni s.l. vetur. „Síðar í sumar mun ég fara til Frakklands þar sem ég mun æfa og leika með nokkrum frönskum liðum þannig að ég fæ ekki mikið sumarfrí að þessu sinni, enda er ég í atvinnuleit,“ sagði Logi en hann valdi að semja ekki við Ulm á ný. Logi til reynslu hjá Valladolid

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.