Morgunblaðið - 06.06.2003, Síða 5
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR Á MÖLTU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 B 5
SPJÓTKASTARARNIR Sigrún Fjeldsted og Vigdís Guðjóns-
dóttir stóðu við stóru orðin um að þær ætluðu sér fyrstu tvö
sætin í spjótinu. Frá fyrstu umferð var nokkuð ljóst að sú
eina sem gat ógnað þeim var ekki í stuði þannig að spurn-
ingin var aðeins um hvort hefði betur. Þegar upp var staðið
hafði Sigrún betur, vann Vigdísi með hálfum metra eða svo.
Vigdís tók því ágætlega en sagði að hún hefði unnið með-
altalið. „Öll köstin mín voru í kringum 47 metrana en Sigrún
var aðeins ójafnari þannig að ég vann í keppninni um með-
altalið,“ sagði Vigdís eftir keppnina.
Mótsmet Silju féll
Silja Úlfarsdóttir og Sunna Gestsdóttir komust báðar
nokkuð örugglega í úrslit 200 metra hlaupsins en keppt var í
milliriðlum í gær. Þær hlupu í sitt hvorum riðlinum, Silja
fyrst og fékk tímann 24,67 sekúndur, sem er nokkuð frá
mótsmeti hennar frá því á Íslandi þegar hún hljóp á 24,26
sekúndum. Í síðari riðlum atti Sunna kappi við Mariliu
Gregogiou frá Kýpur og mátti játa sig sigraða. Sunna hljóp á
24,30 en sú kýpverska á 23,65 og setti þar með nýtt mótsmet.
Kaststúlkurnar stóðu
við stóru orðin
KEPPNIN í 100 metra grindahlaupi kvenna var
nokkuð furðuleg. Keppendur voru aðeins fimm,
tvær íslenskar stúlkur, þær Sigurbjörg Ólafs-
dóttir og Vilborg Jóhannsdóttir, tvær stúlkur frá
Kýpur og ein frá Andorra. Keppendur voru kall-
aðir út á braut hálfri klukkustund áður en hlaup-
ið hófst, sem er óvenjulegt, og þær gátu ekkert
annað gert en sitja og bíða eftir að mótshöldurum
þóknaðist að hefja hlaupið. Stúlkan frá Andorra
þjófstartaði í fyrstu tilraun en í þeirri næstu kom-
ust allar af stað en sú frá Andorra hætti eftir
fyrstu grind. Sigurbjörg náði fínu starti og var
fyrst yfir fyrstu grind en fipaðist eitthvað og
komst eftir það alls ekki í takt við hlaupið. Vil-
borg hljóp hins vegar ágætlega og skilaði sér í
þriðja sætið á eftir stúlkunum frá Kýpur.
„Ég náði mér alls ekki á strik. Það var eins og
mér brygði þegar ég sá að ég var fyrst yfir fyrstu
grindina og eftir það náði ég alls engum takti og
þetta var ömurlegt,“ sagði Sigurbjörg.
Furðulegt
grindahlaup
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Lousia Ísaksen í 200 m skriðsundi, þar sem hún varð önnur.
m
-
Hlaupið virtist ætla að þróast einsog búist var við fyrirfram.
Marta og Elisa Vagnini frá San Mar-
ínó hlupu hlið við hlið
fyrstu hringina og
voru komnar nokkuð
á undan öðrum.
Næsti hópur var
skipaður Fríðu Rún og tveimur
Möltustúlkum. Önnur þeirra meidd-
ist snemma og hætti en hin lauk
keppni og náði þriðja sæti. Þegar 800
metrar voru eftir gafst Möltustúlkan
sem fylgdi Mörtu upp og hætti og þá
var Marta örugg – eða svo hélt mað-
ur – með fyrsta sætið og Fríða Rún
örugg með annað sætið því hún hafði
orðið örugga forystu á hina Möltu-
stúlkuna.
En Marta, sem hafði hlaupið vel og
var kominn á gott skrið að því er virt-
ist, náði ekki að ljúka hlaupinu á
þeim hraða sem búast hefði mátt við
og Fríða Rún sá fram á að hún gæti
náð henni, setti allt í botn og skaust
fram úr henni á síðustu 50 metrun-
um. Frábær sprettur hjá henni – síð-
ustu 200 metrana hún hljóp á rétt um
33 sekúndum.
Sigurinn kemur talsvert á óvart
enda hefur Marta verið ókrýnd
drottning þessarar vegalengdar und-
anfarið, en Fríða Rún lét vita af sér
enn og aftur í gærkvöldi.
„Ég veit eiginlega ekki hvað gerð-
ist. Ég setti hlaupið upp eins og ég
byrjaði og ég átti að vinna þetta. Ég
hreinlega veit ekki hvað gerðist, en
það fór eitthvað að hökta þarna í lok-
in,“ sagði Marta eftir hlaupið og
hugsaði sig síðan um í smástund en
sagði síðan: „Nei, ég ætla ekkert að
afsaka mig.“
Ætlaði ekki að sprengja mig
Fríða Rún var að vonum ánægð
eftir að hafa tryggt sér gullið í 5 km
hlaupinu. Hún hljóp mjög vel, fékk
tímann 17.10,14 sem er ekki langt frá
hennar besta tíma sem er 16.55 og sá
tími er orðinn ansi gamall eins og
hún segir sjálf.
„Ég lagði upp með að fara rólega
af stað, ekki sprengja mig eins og
gerðist í 800 metra hlaupinu um dag-
inn. Þá var reyndar vindur líka og
hraðinn var allt of mikill þannig að
það var ömurlegt hlaup. Núna ákvað
ég að fara hægt af stað enda er ég
með astma og þarf að huga aðeins að
því sem ég geri,“ segir Fríða Rún
þegar hún ræðir hvernig hún lagði
hlaupið upp.
Hún var lengst af í þriggja manna
hópi, talsvert fyrir aftan Mörtu og
annan keppenda sem voru fyrstar.
„Ég fylgdist aðeins með þróuninni í
hlaupinu og þegar um 800 metrar
voru eftir sá ég að ég var kominn
talsvert á undan næstu stúlku fyrir
aftan mig þannig að ég hugsaði með
mér að ég hlyti að eiga eitthvað inni
og jók hraðann. Svo sá ég að Marta
var farinn að hiksta eitthvað þannig
að ég ákvað að gefa allt í botn og sjá
hvað það dygði mér. Síðustu 200
metrana hljóp ég mjög vel og fór
fram úr Mörtu á lokasprettinum,“
sagði Fríða Rún.
Hún sagðist hafa farið í slökun í
fyrsta sinn fyrir keppni í gærmorgun
og það hefði verið mjög gott og kom-
ið andlegu hliðinni í lag. „Svo er það
nú svo furðulegt að þegar ég hóta því
að hætta þá byrja ég alltaf að hlaupa
vel aftur. Árið í fyrra var mjög lélegt
og ég var að
hugsa um hvort
ekki væri bara
kominn tími á að
hætta. En þetta
er rosalega gam-
an, það er frábær
andi í liðinu og
maður heyrir
alltaf í einhverj-
um hvetja af pöll-
unum en við höf-
um auðvitað ekki
við heimamönn-
um sem hvetja af
krafti. Þá verður
maður bara illur
og gefur í til að
sýna fókinu hvað
maður getur,“
sagði Fríða Rún
sem var ánægð
með að fá gull-
verðlaun því fyr-
ir tíu árum fékk
hún þrenn gull-
verðlaun og ein
bronsverðlaun.
„Ég varð að
koma heim með
nýjan gullpen-
ing,“ sagði hún.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Martha Ernstdóttir var, eins og sjá má, ekki sátt við sjálfa sig eftir að hafa tapað
óvænt í 5.000 m hlaupinu á Smáþjóðaleikunum á Möltu í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fríða Rún Þórðardóttir fagnar sigrinum í 5 km hlaupi.
Fríða Rún Þórðardóttir vann óvæntan sigur –
vann Mörtu Ernstdóttur í 5.000 metra hlaupinu
„Varð að koma
heim með gull“
FRÍÐA Rún Þórðardóttir sigraði nokkuð óvænt í 5 kílómetra hlaup-
inu á Smáþjóðaleikunum, skaust fram úr Mörtu Ernstdóttur á síð-
ustu metrunum og fagnaði sigri, en mótsmet Mörtu stendur þó enn
síðan 1995, 16.19,31, því tími Fríðu Rúnar í gær var 17.10,14.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Möltu
r
á