Morgunblaðið - 09.07.2003, Blaðsíða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
VW með flest einkaleyfi bílaframleiðenda
60 umsóknir vegna
DSG-gírkassans
Á ÁRINU 2002 var Volkswagen
fremst í flokki meðal bílaframleið-
enda í Þýskalandi hvað varðar um-
sóknir um einkaleyfi. Tölur frá þýsku
einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstof-
unni sýna að stærsti bílaframleiðandi
í Evrópu lagði fram 1.302 umsóknir
um einkaleyfi á síðasta ári. Volks-
wagen var einnig með flest einkaleyfi
á árinu 2001. Í Neðra-Saxlandi var
samsteypan með fleiri umsóknir en
nokkuð annað fyrirtæki á árinu 2002
– um 44 prósent af einkaleyfaum-
sóknum í Neðra-Saxlandi komu frá
Wolfsburg.
Meira en 60 einkaleyfaumsóknir
komu frá verkfræðingum samsteyp-
unnar og voru vegna nýja „direct
shift gearbox“ (DSG) gírkassans.
Þessi sex þrepa gírkassi tvinnar sam-
an kosti sjálfskiptingar og hefðbund-
ins handskipts gírkassa; Hraðar
skiptingar og minni eldsneytiseyðslu.
DSG-gírkassinn er með tvær kúp-
lingar; Önnur kúplingin sér um odda-
tölugírana og hin um þá með jöfnu
töluna. Þegar bílnum er ekið í einum
gír er næsti gír þegar tengdur hinni
kúplingunni, en ekki í sambandi. Gír-
skiptingin á sér stað á tveimur til
þremur hundruðustu úr sekúndu án
þess að hafa áhrif á drifkraftinn.
Meira en 40 af hundraði einkaleyf-
anna sem gefin voru út á árinu 2002
voru vegna meðhöndlunar á út-
blæstri í FSI-vélunum. Allar FSI-
vélarnar í núverandi línu Lupo, Polo,
Golf, Bora og Touran uppfylla Euro
4-staðalinn varðandi útblástur.
Rannsókna- og þróunardeild
Volkswagen í Wolfsburg er með um
það bil 10.000 starfsmenn. Samsteyp-
an er með eigin hönnunarmiðstöð,
tvenn veðurfræðileg vindgöng,
reynsluakstursbraut með árekstra-
prófunarmiðstöð og tvo skála þar
sem áhrif frá rafsegulbylgjum á raf-
eindakerfi bílanna eru prófuð. Til við-
bótar hefur rannsókna- og þróunar-
deildin yfir að ráða reynsluaksturs-
og prófunarsvæði sem nær yfir ellefu
ferkílómetra. Þar er að finna allar
hugsanlegar gerðir vegyfirborðs og í
hvaða ástandi sem hugsast getur.
Samsteypan er einnig með þróunar-
starfsemi í Tékklandi, á Spáni, í
Brasilíu, Mexíkó, Suður-Afríku og
Kína.
LÁGT gengi japanska jensins og yf-
irvofandi fæðing nýrrar kynslóðar
veldur því að nú fæst Subaru Leg-
acy-aldrifsbíllinn á hagstæðu verði.
Legacy er eins og hluti af íslenskri
bílamenningu, svo algengur er þessi
bíll á götunum hérlendis. Ástæð-
urnar eru augljósar: Sítengt aldrif,
mikið pláss og vönduð smíði. Leg-
acy er ekki ævintýralegur bíll;
miklu fremur íhaldssamur í útliti og
það hentar mörgum bílkaupendum
sem ekki vilja berast á.
Legacy er stór millistærðarbíll og
umtalsvert stærri en litli bróðir,
Impreza. Algengastur er hann hér á
landi í langbaksforminu. Þar hafa
menn í einum bíl fyrirtaks ferðabíl
með miklu innanrými og öllum
helstu þægindum og aksturseigin-
leika sem njóta sín til fulls jafnt á
malbiki sem möl. Fyrir ekki svo
löngu var það helst verðið sem fældi
suma frá því að festa kaup á þessum
bíl en það ætti enginn að vera svik-
inn af verðinu núna. Beinskiptur
langbakur með 2ja lítra, 125 hest-
afla vélinni, kostar 2.415.000 krón-
ur, og þegar bætt er við rafeinda-
stýrðri, fjögurra þrepa
sjálfskiptingunni bætast ekki við
nema 80.000 krónur, samtals þá
2.495.000 krónur. Til samanburðar
má nefna að Ford Mondeo fimm
dyra með 2,0 l vél kostar 2.365.000
krónur og VW Passat 2.300.000
krónur, hvorugur með sítengda al-
drifið.
Nýr Legacy verður kynntur á
næsta ári og núverandi gerð er því
að renna sitt skeið. Þetta hefur bæði
kosti og galla í för með sér. Kost-
irnir eru þeir að bíllinn er á óvenju
hagstæðu verði og auk þess er hér
um þrautreynda framleiðslu að
ræða sem er löngu komin yfir alla
fæðingargalla. Ókosturinn gæti
hins vegar verið sá að menn sitja
uppi með gamla hönnun og hugs-
anlega gæti orðið meira verðfall
þegar kynslóðaskipti verða.
Þetta er eitthvað sem menn verða
að vega og meta en alltént er ljóst
að Legacy, þessi þægilegi og vand-
aði ferðabíll, er nú fáanlegur á tals-
vert hagstæðu verði.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson.
Subaru Legacy fæst nú á hagstæðu verði.
Dökkt yfirbragð er á mælaborðinu.
Farangursrýmið er 455 lítrar og stækkanlegt í 1.646 lítra.
Góð kaup
Subaru Legacy
á 2,4 milljónir
REYNSLUAKSTUR
Subaru Legacy
Guðjón Guðmundsson
Vél: 1.994 rúmsentimetr-
ar, fjórir strokkar.
Afl: 125 hestöfl við 5.600
snúninga á mínútu.
Tog: 184 Nm við 3.600
snúninga á mínútu.
Framfjöðrun: Sjálfstæð
McPherson.
Afturfjöðrun: Fjölliða
gormafjöðrun.
Hemlar: Diskar, kældir að
framan.
Lengd: 4.680 mm.
Hröðun: 11,1 sekúnda.
Hámarkshraði: 188 km/
klst.
Eyðsla: 9,6 lítrar í blönd-
uðum akstri.
Verð: 2.415.000 kr.
Subaru Legacy
2.0 langbakur
Rétt lausnarorð er: Alltaf velkominn.
Ingibjörg Haraldsdóttir, Suðurbraut 10. hlýtur vinninginn
sem er bón og þvottur hjá KIA ÍSLAND, Flatahrauni 31, Hafnarfirði.
KIA Í S L A N D
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • WWW.KIA.IS
Bílar sem borga sig!