Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 1
Laugardagur
8. nóvember 2003
Prentsmiðja
Árvakurs hf.
Skoðum
umhverfið
með listinni
Í Myndlistaskólanum í Reykjavík er boðið upp
á myndlistarnámskeið fyrir krakka á grunn-
skólaaldri. Námskeiðin eru einu sinni í viku í
tvo til þrjá tíma í senn og því fá krakkarnir á
námskeiðinu tækifæri til að vinna stærri og
tímafrekari verkefni en hægt er að vinna í
myndmennt í grunnskólunum.
Þóra Sigurðardóttir, skólastjóri Myndlista-
skólans, segir að námskeiðin séu mjög fjöl-
breytt. Krökkunum sé skipt upp í hópa eftir
aldri og hóparnir síðan settir í verkefni þar
sem bæði sé unnið með mismunandi innihald
og mismunandi efni.
„Við erum ekki með sérstök námskeið í
ákveðnum myndlistargreinum heldur fléttum
við allt saman, segir Þóra. „Við stefnum að því
að nemendurnir kynnist öllum greinum mynd-
listarinnar en annars er það tilviljun á hvaða
greinar áherslurnar eru mestar á hverju nám-
skeiði.
Við tökum til dæmis fyrir verkefni þar sem
við erum að fást við liti en mismunandi litir
eins og krítarlitir, þekjulitir og vatnslitir hafa
mismunandi eiginleika. Það fer svo eftir því
hvað maður er að fást við og hvað maður vill fá
fram, hvernig liti maður velur.“
Reynum að sjá raunveruleikann
Þóra segir að kennararnir í skólanum líti á
teikningu sem rannsóknar- og undirbúnings-
tæki. „Við erum ekki að teikna til að búa til fal-
legar myndir, þó að það verði oft til fallegar
myndir, heldur teiknum við til að skoða,“ segir
hún.
„Það er einmitt það sem myndlistin gengur
út á, að opna augun fyrir þeim veruleika sem
við hrærumst í. Við erum að reyna að opna
augun fyrir því sem er næst okkur og því sem
við eigum kannski erfiðast með að koma auga
á af því að það er svo nálægt okkur.“
Þóra segir að til þess að tengjast þessum
raunveruleika sem best noti nemendurnir í
Myndlistaskólanum ýmis óhefðbundin efni í
bland við hefðbundin efni eins og t.d. málningu
og leir. „Við notum mikið af efni sem oft er
hent og tengjum það við alla þessa sóun og
eyðslu sem er í gangi. Þannig tengjum við
hugsun inn í verkefnin um leið og við erum að
vinna með raunverulegt umhverfi,“ segir hún.
Leirað eftir teikningum.
ÞAÐ hafa margir krakkar gaman af því að
teikna og föndra og margir gera það líka alveg
listavel eins og sjá má af teikningunum sem
við fáum sendar hingar á barnablaðið.
Til að teikna fallegar myndir þarf maður
fyrst og fremst að vera duglegur að æfa sig en
þeir sem hafa mikinn áhuga geta líka farið á
myndlistarnámskeið.
Í Reykjavík eru margs konar námskeið í
boði þar sem krakkar geta lært bæði teikn-
ingu og aðra listsköpun eins og til dæmis leir-
mótun. Við fórum nýlega í heimsókn í Mynd-
listaskólann í Reykjavík þar sem við rákumst
á hóp krakka sem voru að móta leir bæði í
höndunum og í rennsluvélum.
Guðbjörg Káradóttir, kennari á námskeið-
inu, segir að krakkarnir hafi byrjað á því að
vinna frjálst með steinleir, til að kynnast
leirnum. Síðan hafi þau farið að undirbúa sig
undir að gera stórt ker úr rauðleir sem sé að-
alverkefnið á námskeiðinu.
„Við byrjuðum á því að skoða bækur og
teikna myndinar sem við ætlum að skreyta
kerið okkar með,“ segir hún.
„Formið sem við notum er frá fornöld og
því skoðuðum við bækur um upphaf leirlistar
á Grikklandi og eyjunum í kringum Grikk-
land. Við vinnum formið út frá því sem við
sjáum í bókunum en tengjum þetta síðan inn í
okkar raunveruleika með skreytingunum sem
við teiknum fyrst á blað og síðan á kerin.“
Guðbjörg segir að það séu goðsögur og frá-
sagnir af hernaði málaðar á gömlu grísku ker-
in en að krakkarnir á námskeiðinu teikni sög-
ur úr sínum eigin raunveruleika og skreyti
kerin sín með þeim.
Teiknað með oddhvössu áhaldi
Þegar búið er að teikna mynd af kerinu er
það mótað úr leirnum í höndunum. Síðan er
svartur eða hvítur leirlitur borinn á það og
myndir teiknaðar í leirlitinn með oddkvössu
áhaldi þannig að rauði litirinn komi aftur í
ljós.
Kerin eru síðan brennd í sérstökum ofnum
þegar búið er að skreyta þau. Þau eru líka
glerjuð að innan en krakkarnir ráða því sjálfir
hvort þau eru glerjuð að utan en þá þarf að
gera það með penslum.
Guðbjörg kennari segir að krakkarnir séu allir mjög áhugasamir og að þess vegna gangi þeim vel.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Leir mótaður
í höndum og vélum
Kerið teiknað
Baldur Kolbeinn Halldórsson, sem er tíu ára, er
á sínu fyrsta námskeiði í Myndlistaskólanum og
finnst það gaman. Á myndinni er hann með
myndina sem hann teiknaði af kerinu sínu.
Júlía Bjarnadóttir, sem er tíu ára, er á sínu
fyrsta leirmótunarnámskeiði en hún hefur verið
á teikninámskeiðum í Myndlistarskólanum frá
því hún var sjö ára. Júlía var að móta kerið sitt
þegar við komum í heimsókn.
„Fyrst gerum við botninn með því að búa til
litla skál. Svo búum við til litlar pylsur úr leirn-
um og límum þær ofan á kerröndina með leirlími
sem er búið til úr leir og vatni. Áður en við ger-
um það verðum við samt að skrapa ofan af
börmunum til að opna leirinn,“ sagði hún.
Kerið mótað
Tveir draugar giftust og níu mánuðum seinna eignuðust þeir vasaklút.