Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 1
Laugardagur 13. mars 2004 Af hverju hætti sjóliðinn á kafbátnum? Prentsmiðja Árvakurs hf. Elín Andrea Vikse Helgadóttir, sem er níu ára og á heima á Súða- vík, teiknaði þessa fallegu mynd af Baldri hafstrák og Önnu haf- meyju ásamt einhverjum fiskum. Krakkarnir í hafinu Flestum finnst gott að vera umluktir vatni, bæði þegar þeir eru að leika sér, slaka á og gera æfingar til að styrkja líkamann. Þannig eru sundlaugar í mörgum flottustu höllum heimsins og vitað er að fólk stundaði sund- íþróttir á tímum Forn-Egypta, Forn-Grikkja og Rómverja. Íslendingar hafa líka stundað sund alveg frá landnámsöld og í Íslendingasögunum er til fræg saga af því þegar kappinn Kjartan Ólafsson heillaði bæði kónginn og drottn- inguna í Noregi með sundfimi sinni. Þetta var fyrir um það bil þúsund árum og enn þann dag í dag er sund ein af þeim íþróttum sem Íslendingum hefur gengið hvað best í á stórum íþróttamótum. Það er því ekkert skrýtið að margir íslenskir krakk- ar skuli hafa áhuga á að æfa sund. Kristrún Gústafsdóttir æfði sund frá því hún var níu ára og þar til hún var þrettán ára og starfar nú sem þjálfari hjá sundfélaginu Ægi. Við báðum hana að segja okkur aðeins frá þessari íþrótt sem flestir Íslendingar eru svo heppnir að kunna svolítið í. „Það er auðvitað gott fyrir alla að vera vel syndir,“ segir Kristrún. „Svo er þetta skemmtileg einstaklingsíþrótt þar sem maður þarf ekki að treysta á aðra til að ná árangri. Maður verður að læra að treysta á sjálfan sig til að ná árangri í sundi og ég held að það sé gott fyrir krakka. Svo er líka miklu erfiðara að meiða sig í sundi en í flest- um öðrum íþróttum.“ Hvað þarf maður að gera til að ná árangri í sundi? „Til að byrja með er það fyrst og fremst styrkur krakkanna sem ræður því hvað þau ná góðum árangri en þegar lengra er komið fer tæknin að skipta meira máli. Ungir krakkar hafa ekki alltaf styrk til að tileinka sér rétta tækni en þegar þau eldast skiptir miklu máli að ná réttu tækninni.“ Geturðu nefnt dæmi um tækni sem skipt- ir máli? „Já, í bringusundi skiptir til dæmis máli að láta sig renna vel eftir hvert tak því þá fer maður hraðar. Sumir gera sundtökin líkaþannig að þeir ýta höndunum niður í tökunum en það er erfiðara og dregur því úr hraðanum.“ Hvað þurfa krakkar að læra sem vilja æfa sund? „Þau þurfa að læra flugsund, baksund, bringusund og skriðsund.“ Er það erfitt? „Það er mjög misjafnt hvað krakkar eru fljótir að ná hverju sundi fyrir sig. Flug- sundið er líkamlega erfiðast því maður þarf að lyfta öllum efri líkamanum upp úr vatn- inu til að anda en sumir eru samt mjög fljót- ir að ná því. Svo finnst öðrum baksundið erfiðara þannig að það er bara misjafnt hvað fólk ræður best við. Það eiga þó allir að geta náð þessu og ég hef tekið eftir því að því áhugasamari sem krakkarnir eru því betri verða þeir.“ Eru flestir í þessu til að geta tekið þátt í sundkeppnum? „Það er svolítið misjafnt. Sumir eru með mikið keppnisskap og verða rosalega ánægðir þegar það er keppni framundan en aðrir eru alls ekki í þessu til að keppa.“ Sund í gamni og alvöru Morgunblaðið/Golli Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, sem er átta ára, og Ægir Benediktsson, sem er níu ára, æfa sund hjá Sund- félaginu Ægi. Af hverju fóruð þið að æfa sund? Krakkarnir: Af því okkur finnst svo gaman í sundi. Af hverju er það gaman? Ægir: Ég hef bara alltaf haft gaman af að fara í sund. Hvað eruð þið búin að æfa lengi? Guðrún: Ég er búin að æfa í eitt ár. Ægir: Ég er búinn að æfa í þrjú ár en áður en ég fór að æfa lék ég mér alltaf í sundi og fór á sundnámskeið. Voruð þið þá orðin flugsynd þegar þið byrjuðuð? Guðrún: Já. Hvað æfið þið oft í viku? Krakkarnir: Fjórum sinnum. Hafið þið tekið þátt í sundkeppnum? Krakkarnir: Já, nokkrum. Hvernig hefur gengið? Krakkarnir: Bara vel. Í hvaða sundgreinum gengur ykkur best? Ægir: Baksundi og bringusundi. Guðrún: Mér finnst bringusund best og svo finnst mér líka gaman í flug- sundi af því að þá dríf ég miklu lengra. Ægir: Mér finnst flugsund erfiðast af því mér finnst erfitt að lyfta upp hönd- unum. Svalir sundkrakkar Morgunblaðið/Golli Það er nú gott að kunna að synda þegar maður lendir í þessum aðstæðum … Svar:Til að geta sofið við opinn glugga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.