Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 1
Laugardagur
13. mars 2004
Af hverju hætti sjóliðinn á kafbátnum?
Prentsmiðja
Árvakurs hf.
Elín Andrea Vikse Helgadóttir,
sem er níu ára og á heima á Súða-
vík, teiknaði þessa fallegu mynd
af Baldri hafstrák og Önnu haf-
meyju ásamt einhverjum fiskum.
Krakkarnir
í hafinu
Flestum finnst gott að vera umluktir vatni,
bæði þegar þeir eru að leika sér, slaka á og
gera æfingar til að styrkja líkamann. Þannig
eru sundlaugar í mörgum flottustu höllum
heimsins og vitað er að fólk stundaði sund-
íþróttir á tímum Forn-Egypta, Forn-Grikkja
og Rómverja.
Íslendingar hafa líka stundað sund alveg
frá landnámsöld og í Íslendingasögunum er
til fræg saga af því þegar kappinn Kjartan
Ólafsson heillaði bæði kónginn og drottn-
inguna í Noregi með sundfimi sinni.
Þetta var fyrir um það bil þúsund árum og
enn þann dag í dag er sund ein af þeim
íþróttum sem Íslendingum hefur gengið
hvað best í á stórum íþróttamótum. Það er
því ekkert skrýtið að margir íslenskir krakk-
ar skuli hafa áhuga á að æfa sund.
Kristrún Gústafsdóttir æfði sund frá því
hún var níu ára og þar til hún var þrettán ára
og starfar nú sem þjálfari hjá sundfélaginu
Ægi. Við báðum hana að segja okkur aðeins
frá þessari íþrótt sem flestir Íslendingar eru
svo heppnir að kunna svolítið í.
„Það er auðvitað gott fyrir alla að vera
vel syndir,“ segir Kristrún. „Svo er þetta
skemmtileg einstaklingsíþrótt þar sem
maður þarf ekki að treysta á aðra til að ná
árangri. Maður verður að læra að treysta á
sjálfan sig til að ná árangri í sundi og ég
held að það sé gott fyrir krakka. Svo er líka
miklu erfiðara að meiða sig í sundi en í flest-
um öðrum íþróttum.“
Hvað þarf maður að gera til að ná árangri
í sundi?
„Til að byrja með er það fyrst og fremst
styrkur krakkanna sem ræður því hvað þau
ná góðum árangri en þegar lengra er komið
fer tæknin að skipta meira máli. Ungir
krakkar hafa ekki alltaf styrk til að tileinka
sér rétta tækni en þegar þau eldast skiptir
miklu máli að ná réttu tækninni.“
Geturðu nefnt dæmi um tækni sem skipt-
ir máli?
„Já, í bringusundi skiptir til dæmis máli
að láta sig renna vel eftir hvert tak því þá
fer maður hraðar. Sumir gera sundtökin
líkaþannig að þeir ýta höndunum niður í
tökunum en það er erfiðara og dregur því
úr hraðanum.“
Hvað þurfa krakkar að læra sem vilja
æfa sund?
„Þau þurfa að læra flugsund, baksund,
bringusund og skriðsund.“
Er það erfitt?
„Það er mjög misjafnt hvað krakkar eru
fljótir að ná hverju sundi fyrir sig. Flug-
sundið er líkamlega erfiðast því maður þarf
að lyfta öllum efri líkamanum upp úr vatn-
inu til að anda en sumir eru samt mjög fljót-
ir að ná því. Svo finnst öðrum baksundið
erfiðara þannig að það er bara misjafnt
hvað fólk ræður best við. Það eiga þó allir
að geta náð þessu og ég hef tekið eftir því að
því áhugasamari sem krakkarnir eru því
betri verða þeir.“
Eru flestir í þessu til að geta tekið þátt í
sundkeppnum?
„Það er svolítið misjafnt. Sumir eru með
mikið keppnisskap og verða rosalega
ánægðir þegar það er keppni framundan en
aðrir eru alls ekki í þessu til að keppa.“
Sund í gamni og alvöru
Morgunblaðið/Golli
Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, sem
er átta ára, og Ægir Benediktsson,
sem er níu ára, æfa sund hjá Sund-
félaginu Ægi.
Af hverju fóruð þið að æfa sund?
Krakkarnir: Af því okkur finnst svo
gaman í sundi.
Af hverju er það gaman?
Ægir: Ég hef bara alltaf haft gaman af
að fara í sund.
Hvað eruð þið búin að æfa lengi?
Guðrún: Ég er búin að æfa í eitt ár.
Ægir: Ég er búinn að æfa í þrjú ár en
áður en ég fór að æfa lék ég mér alltaf í
sundi og fór á sundnámskeið.
Voruð þið þá orðin flugsynd þegar þið
byrjuðuð?
Guðrún: Já.
Hvað æfið þið oft í viku?
Krakkarnir: Fjórum sinnum.
Hafið þið tekið þátt í sundkeppnum?
Krakkarnir: Já, nokkrum.
Hvernig hefur gengið?
Krakkarnir: Bara vel.
Í hvaða sundgreinum gengur ykkur
best?
Ægir: Baksundi og bringusundi.
Guðrún: Mér finnst bringusund best
og svo finnst mér líka gaman í flug-
sundi af því að þá dríf ég miklu lengra.
Ægir: Mér finnst flugsund erfiðast af
því mér finnst erfitt að lyfta upp hönd-
unum.
Svalir
sundkrakkar
Morgunblaðið/Golli
Það er nú gott að kunna að synda þegar
maður lendir í þessum aðstæðum …
Svar:Til að geta sofið við opinn
glugga.