Tíminn - 22.11.1969, Side 8
259. tbl. —* Laugardagur 22. nóv. 1969. — 53. árg,
SKYR ÚR UNDANRENNU
DUFTI Á ÍSAFIRÐI
GS-ísafii<5i, föstudag.
Mikill mjólkurskortur hefur
verið hér í haust og mjólkin verið
skömmtuð og er bað ennþá. Venju
lega hefur hún þó aukizt, þegar I fækka. Orsökin er sú, að talsvert
kemur fram á þennan tíma, en minni mjólkurframleiðsla hefur
ekki eru horfur á, að þetta Iagist verið í ár, en undanfarið.
núna, því alltaf er kúnum að I Framhald á bls. 18.
FÉLL AF
8. HÆÐ
OG BEIÐ
BANA
KJ-Reykjavík, föstudag.
f dag um klukkan fjögur
féll 38 ára gömul stúlka ofan
af áttundu hæð á Kleppsvegi
118, og beið bana. Stúlkan átti
Iieima í húsinu.
NÝIFLOKKURINN HEFUR L ÝST
SIG FYLGJANDIEFTA ADILD
— verSi vissum skilyrSum fullnægt. Telur aS EFTA-aSild muni „skapa aukna möguleika um iSnvæSingu og iSnþróun
og eflingu undirstöSuatvinnuvega þjóSarinna og þá sérstaklega sjávarútvegs og fiskiSnaSar."
SAMBANDS-
STJÚRNAR-
FUNDIIR
EJ-Reykjavík, föstudag.
Klukkan hálf níu í kvöld
liófst í Lindarbæ fundur sam-
liandsstjórnar Alþýðusambands
fslands, en slí'kur fundur skal
haldinn a.m.k. einu sinni á ári.
Um 50 menn eiga sæti í sam-
bandsstjórainni, og er við því
búizt að fundur hennar standi
TK-Revkjavík, föstudag.
f stjórnmálaályktun hinna nýju
stjómmálasamtaka þeirra Hanni-
bals Valdimarssonar og Björns
Jónssonar, Samtaka frjálslyndra
og vinstri mannn, er lýst yfir
fylgi við aðild fslands að EFTA,
verði vissum skilyrðum, sem full-
nægja nauðsyn íslendinga á sér-
ákvæðum vegna smæðar þjóð-
félagsins, margvíslegrar sérstöðu
þess og efnahagsástandsins. Telja
samtökin, „að efnahagsleg einangr
nn frá Norðurlöndunum og öðr-
um þjóðum Vestur-Evrópu geti
reynzt hagsmunum þjóðarinnar og
efnalegu og stjórnmálalegu stjálf-
stæði hennar hættulegt“. Þá seg-
ir, að samtökin séu „meðmælt
EFTA-aðild, enda mundi hún
skapa aukna möguleika uin iðn-
væðingu og iðnþróun, og eflingu
undirstöðuatvinnuvega þjóðarinn-
ar og þá sérstaklega sjávariitvegs
og fiskiðnaðar.“
í þeim kafla stjórnmálaálykt-
unar hins nýja stórnmálaflO'kks
segir svo orðrétt um þetta mál:
„Samtökin telja, að efnahags-
leg einangrun frá Norðurlöndun-
um og öðrum þjóðum Vestur-
Evrópu, gieti reynzt hagsmunum
þjóðarinnar og efnalegu og stjórn
málalegu sjálfstæði hennar hættu
legt, og því beri að meta af fullu
raunsæi þá valkosti, sem innan
tíðar munu liggja fyrir varðandi
aðild að EFTA, og taka ákvörð-
un um málið á grundvellj þeirra.
Reynist þeir kostir fullnægja
nauðsyn íslendinga á sérálkvæðum
vegna smæðar þjóðfélagsins, marg
víslegrar sérstöðu þess og efna-
hagsástandsins, eins og það er nú,
eru samtökin meðmælt EFTA-
aðild, enda mundi hún skapa
aukna möguleika um iðnvæðingu
og iðnþróun þjlóðarinnar og þá
sérstaklega sjávarútvegs og fisk-
iðnaðar.
Samtökin leggja þó áiherzlu á,
að EFTA-aðild mum því aðeins
reynast þjóðinni hagstæð og auð-
velda sókn hennar til bættra iífs-
kjara, sem henni er nú nauðsyn,
að gerbreytí verci um stefnu í
efnahagsmálum, í þá átt, sem Sam
tök frjálslyndra og vinstri
mamna leggja til.“
20-30 SKIP AÐ SÍLD-
Fundur um atvinnu-
mál á Selfossi
fram á sunnudag.
Meðal mála, sem rædd verða
i fundinum, má nefna lffeyris-
sjóðsmálið, kjaramálin og at-
vinnumálin. Þá þykir senni-
legt, að einhverjar umræður
fari fram um hugsanlega aðild
íslands að EFTA — en mið-
stjórn ASÍ mun hafa átt fund
tueð fulltrúum rikisstjóraarinn
:>.r um það mál og fengið upp-
'ýsingar hjá þeim.
Akureyri
Framsóknarfé
lögin á Akur-
eyri efna til
fundar f Félags
heimilinu,
Hafnarstræti
90, laugardag
inn 22. nóv. kl.
3 síðdegis.
Ingvar
Gíslason,
alþingismaður hefur tramsögu
um EFTA-málið.
Bjarni Bragi Jóns
son forstjóri Efna
lagsstfonunar-
innar
Hinn 21. nióvember 1969 var
Bjarai Bragi Jónsson, hagfræð
ingur skipaður forstjóri Efna-
hafsstofnunarinnar frá 1. nóv-
ember 1969 að telja.
Forsætisráðuneytið,
21. nóvember 1969.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness
lieldur framsóknarvist í félags
heimili sínu, Sunnubraut 21,
sunnudaginn 23. nóv. kl. 20,30.
Ölhim heimill aðgangur meðan
luisrúm leyfir.
VEIÐUM UNDIR JÖKL1
FB-Reykjavík, föstudag.
f kvöld voru komin milli tutt-
ugu og þrjátíu skip á veiðisvæð-
ið undan Jökli, þar sem síldar-!
leitarskipið Árni Friðriksson fann
síldartorfur í nótt. Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur á Árna
Friðrikssyni sagði, að síldin hefði
Framtið vinstri
hreyfingar
Félag nngra Framsóknarmanna |
í Reykjavík helður almennan fé- j
lagsfund fimmtudaginn 27. nóvem |
ber í Glaumbæ og hefst kl. 20,30.
Á dagskrá verður: Framtíð
vinstri hreyfingar á íslandi. Fram
sögumenn Ólafur Hannibalsson,
ritstjóri og Tómas Karlsson, rit- í
stjómarfulltrúi.
verið á 60 faðma dýpi, þegar
hún fannst í nótt, og hefði því
ekkert orðið af veiði í morgun,
þegar fyrstu skipin komu á miðin.
Sfldartorfumar fundust 232 gráð-
ur réttvísandi, eða um 60 sjómfl-
ur frá Jökli.
Fyrstu bátarnir komu þangað
um kl. hálf fimm, en voru ekki
almennt komnir fyrr en um klukk
an sex eða þar eftir. Þá var síld-
in á 60 faðma dýpi, og of djúpt
til þess að kasta á hana. I nótt
var líka norðaustan kaldi á þess-
um slóðum, en í kvöld var veður
hægara, þannig að Hjálmar <-agði,
að það ætti ekki að þuri„ að
hamla veiði. Toriurnar sagði hann
að hefðu verið stórar og fallegar.
í kvöld, þegar við ræddum við
Hjálmar, um kl. 8, var aðeins eitt
skip, Harpa, búið að kasta, en
ekki var vitað, hvað hafði komið
úr því kasti.
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur, hefur skýrt frá þvi, að síldin
sem nú veiðist, sé íslenzk síld, sé
hún á þriðja ári og óvenjulega
stór. Er hún um 5 cm. lengri að
meðaltali en venjulega, eða um
30 cm.
Jakob segir, að smásíldarveiði-
bannið, sem sett var, sé nú farið
að bera árangur. Hefði það bann
ekki komið til, telur hann, að
nú væri ekki um þá síld að ræða,
sem verið er að veiða. Hvað of-
veiði viðkemur nú, segir Jakob
að frá áramótum hafi aðeins
veiðzt um 17 þús. lestir, en talið
sé að óhætt væri að veiða um 50
þúsund lestir, án þess að valda
tjóni á síldarstofninum. Hanu
sagði þó, að þrátt fyrir hátt vehð
á síldinni í dag, væri engan veg-
inn réttlætanlegt að fara fram úr
þeirri hámarksveiði.
Félag ungra Framsóknarmnana
og Framsóknarfélag Selfoss halda
fnnd um atvinnumál, fimmtudag-
inn 4. des. n.k. kl. 21,00, í veit-
ingasal Hótcl Selfoss. Frummæl-
endur verða Sigurður Ingi Sigurðs
son, oddviti og Steingrímur Her-
mannsson, framkvæmdastj. Fund-
urinn er opinn öllum áhugamönn-
um um atvinnumál.
KAFFIFUNDUR
Framsóknarfé-
lag Reyk.iavíkur
heldur kaffiíund
næstlk. sunnudiag
kL 2 e. h. í nýja
salnum í Fram-
sóknarhúsinu við
Frlkirkjuveg.
Fundarefni:
Drög að nýju
frumivarpi um
verzlunarálagningu og fl. Frum
mælendur á fundinum verða Er-
lendur Einarsson, forstjóri SÍS,
Sigurður Magnússon, framkvæmda
stjóri Kaupmannasamtaka íslands
og Jón Sigurðsson, formaður Sjó
mjannasambands íslands. — Fund urinn verður öllum opinn og eftir framsöguræður verða frjálsar um ræður.
[ pl
p
new * m, 'I . iii 1 • K iMJÍ '
J .. m
Sigurður
Jón
I
1
S-DEGINUM FRESTAD!
KJ-Reykjavík, föstudag.
Nú mun vera ákveðið, að fresta
S-degi, deginum sem gjörbreyt-
ing verður á leiðakerfi Strætis-
vagna Reykjavíkur.
Brej’tingin á leiðarkerfinu hef-
ur lengi verið á döfinni, og nú slð-
ast stóð aðallega á þvi, að nægj-
anlega góð aðstaða fengist á
Hlemmtorgi fyrir strætisvagn-
ana. Voru uppi ráðagerðir um, að
láta breytinguna fara fram núna
i endaðan nóvember, eða byrjun
desember, og skýrt var frá því á
blaðamanr.afundi, að brejdingin
yrði á næstunni. Hins vegar mun
nú ekki talið fært, að láta breyt-
inguna fara fram núna, og era
þár aðallega tvær orsakir, sem
valda mestu. í öðra lagi er, að
veður getur verið mjög óhagstætt
á breytingadaginn, og næstu daga
á eftir sem myndi óhjákvæmi-
lega hafa erfiðleika i för með sér.
í öðru lagi stórkemmdust tveir
nýir vagnar SVR í árekstri á
Skúlagötunni nýlega, og má tyrir-
tækið varla við að vera án
tveggja nýrra vagna þegar kannski
þari að grípa til aukavagna á
fyrstu dögum breytingarinnar.
Síðustu áætlanir um S-dag
munu hljóða upp á, að breytingin
á leiðakerfinu muni eiga sér stað
í marz eða apríl.