Vísir - 24.06.1981, Blaðsíða 2

Vísir - 24.06.1981, Blaðsíða 2
Hvemig finnst þér for- seti íslands, frú Vigdis Fihnbogadóttir, hafa staðið sig i starfi? Helgi Baldvinsson, verkamaöur: Bara sæmilega held ég, en ég kaus hana ekki. Björg ólafsdóttir, vinnur á sjúkrahiisi: Alveg skinandi vel. Og ég er alveg sérstaklega hrifin af heimsókn hennar til Strandasýslu. ÞaB er nauðsynlegt að forsetinn fari á þessa afskekktu staði. Guðjón Kristmannsson, ínn- heimtumaöur:" HUn hefur staðið sig ljómandi vel, mælsk og ágæt kona sem kemur mjög vel fyrir. Guðmundur ólafsson, stýri- maður: Mjög vel. Hún kemur vel fyrir I alla staði. VÍSIR MiÖvikudagur 24. júni 1981 C „Ég hlakka tll að takast á við Detta starf” - segir Páll borstelnsson, nvskipaöur norgartógeti vlð embælti yfimorgarfógetans I Reykiavik Það er Páll Þorsteinsson, ný- skipaður borgarfógeti viö em- bætti yfirborgarfógetans i Reykjavik, sem svo mælir. Páll er fæddur i Arnesi i Strandasýslu 1943. Foreldrar hans eru séra Þorsteinn Björnsson, fyrrverandi Frikirkjuprestur, og Sigurrós Torfadóttir. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum i Reykjavik 1966 og hóf siðan nám i lögfræði viö Háskóla tslands, sem hann lauk 1973. Hann er kvæntur Guðrúnu Kristinu Þórsdóttur og eiga þau tvö börn. „Eftir aö ég lauk lögfræðinám- inu hóf ég störf sem fulltrúi hjá bæjarfógetanum i Keflavik og siöan fór ég til Sauðárkróks og vann hjá bæjarfógetanum þar. A báðum þessum stöðum var ég aö- eins i stuttan tima, en engu að sið- ur var þaö góður skóli. Það var svo ’74 eða um ári eftir aö ég lauk lögfræöiprófinu, að ég réði mig sem fulltrúa hjá Borgarfógetan- um i Reykjavik i skiptaréttinum. Þar var ég i um þaö bil eitt ár eöa þar til ég fór að vinna hjá Gjald- heimtunni sem deildarstjóri og þar hef ég verið siðan.” — 1 hverju verður starf þitt sem borgarfógeti fólgiö? „Þaö er einkum fólgiö i aö gera lögtök fyrir Gjaldheimtuna.” — Veröur þetta starf að ein- hverju frábrugðiö þinum fyrri störfum? „Það má segja, að munurinn liggi einkum i þvi aö áður var ég starfsmaður Gjaldheimtunnar og deildarstjóri innheimtudeildar, en nú verö ég rikisstarfsmaður aftur og dómari eða fógeti i lög- tökum.” — En hvaö gerir nýskipaður borgarfógeti i fristundum sinum? „Ja, þær eru nú ekki margar sem gefast, en mitt helsta áhuga- mál held ég sé skiöaiþróttin og ég fer á skiöi yfir vetrartimann eins oft og færi gefst. Að öðru leyti eyði ég fristundunum meö fjöl- skyldunni,” sagði Páll Þorsteins- son. —KÞ Páll Þorsteinsson tekur við starfi borgarfógeta fyrsta júlf næstkom- ,ndi’ (Vísism.ÞG) Dr. Gunnar Thoroddsen Framtak Gunnars Athygli vakti að i ágætu ávarpi forsætisráðherra 17. junl, drap hann sér- staklega á þau vandamál sem steðja að þjóðinni vegna utbreiðslu og áhrifa vímugjafa og eiturefna. ÖII þjóðin þyrfti að búast til varnar og allir að leggjast á eitt I þessu fyrirbyggingar- og björgunarstarfi. Gunnar Thoroddsen ætlarekki að láta sitjavið orðin tóm, þvf nu vinnur aðstoðarmaður forsætis- ráöherra að þvi að koma á fundi með þeim aðilum sem vinna að þessum málum og verður þar væntanlega fjallaö um hvernig auka megi sam- vinnu og það starf sem þegar er fyrir hendi. Er þetta lofsvert framtak sem vonandi ber góðan árangur. Sæmundur Guövinsson skrifar eri' Blað gefur úl nýtt niað Eftir mánaðamótin hefur göngu sina á Akur- eyri nýtt blað, Akur- eyrarblaðiö. Það er félagsskapurinn Biað sf„ sem stendur að útgáf- unni.en að honum standa Geir S.O. Björnsson, Bjarni Sigurðsson, Gunn- ar Þórsson, Guðbrandur Magnússon, Einar Árna- son og Ragnar Þorvalds- son. Þrlr þeir slðast- nefndu verða starfsmenn blaðsins, en þeir hafa all- ir verið starfsmenn I Prentverki Odds Björns- sonar. Þrlr þeir fyrst nefndu eru hins vegar stjórnendur þess fyrir- tækis. Telja margir kunnugir, að þessi útgáfa sé þeirra mótleikur við ákvörðun Dags, að setja upp eigin prentsmiöju, sem á að vera komin I gagn Iárslok. Er ekki ein- ungis að Prentverksmenn verði af prentun Dags, því aö auki hefur Dagur með sér hæfa og reynda starfsmenn úr prent- smiðjunni. Erfiður róður Aðstandendur Akur- eyrarblaðsins segja að blaðið verði „óháð og frjálst” og þaö sé fyrsta sllka blaðiö á Akureyri. Það er að vlsu ekki rétt, þvl oft hafa þar verið gef- in út blöð áður, sem hafa ekki veriö öðrum háð en eigendum slnum. Nægir að nefna Eyrartiðindi, sem gefin voru út I prentaraverkfalli á árun- um. Guðbrandur Magnús- son veröur ritstjóri nýja biaösins. Hann hefur áður komið við sögu blaðaút- gáfu á Akureyri, þvl á slnum tlma gaf hann út blað Marxista á Akur- eyri. Einnig hefur hann getið sér gott orö fyrir Ut- varpsþætti sina. Það er hins vegar hætt við að róðurinn verði erfiður með Akureyrarblaðið, þvl Dagur byr að „Mogga- veldi” á biaðamarkaðin- um fyrir norðan. • Ljósastaurar í irlðargöngu Þjóðviljinn brást illa við þegar Vlsir leyföi sér aö spyrja lögreglu um áætlaðan fjölda fundar- manna á útifundi friðar- göngumanna. Vlsir greindi frá þeim fjölda sem á fundinum var að ágiskun lögreglu en sagði lika hver fjöldinn hefði veriö að dómi fundarboð- enda og skakkaði ekki nema fimm þúsund manns eða svo. Visir lætr ur lesendum eftir að draga slnar ályktanir af þessum mun. Hins vegar er spaugi- legt að lesa gagnrýni Þjóðviljans á þá mynd sem Vísir birti af göng- unni þegar hún fór um Garðabæ, en Þjóðviljinn segir Ijósmyndara Visis hafa beitt aðdráttarlins- um til að minnka göng- una! Herstöðvaand- stæöingur I Garöabæ hafi talið ljósastaurana á myndinni og þeir veriö milli niu og tiu. A milli þess fyrsta og slðasta séu um 600 metrar og siöan reiknar herstöövaand- stæðingur Þjóöviljans það út, að milli Ijós- astauranna hafi rúmast 1200 manns. Þetta kallar maöur nú röksemda- færslu! • Jónas Guðmundsson. Jönas og læknadellan Mikið hefur verið rætt og ritað um læknadeiluna og afleiöingar hennar. Jónas Guðmundsson rit- höfundur lýsti ástandinu I hnotskurn með þeim orð- um, að óskalagaþáttur sjúklinga væri nálega eini þáttur lækningastarfs i landinu sem nú gengi snurðulaust fyrir sig. • Fiakkarlnn Þórunn Eins og fram hefur komið I fréttum Visis, þá liggur Slippstöðin meö óselt nótaveiðiskip, sem gengur undir nafninu „Flakkarinn”. Nokkrir kaupendur hafa verið volgir, en ekkert hefur þó orðiö úr samningum enn. Hins vegar varð að skrá skipið, þar sem smiði þess var fjármögnuö að nokkru leyti með lánum úr Fiskveiðisjóöi.Þá varð að gefa þvi nafn. Hlaut það nafnið „Þórunn hyrna” á pappirum. Ekki er þó kunnugt, að sú sæmdarkona hafi verið haldin neinu flökkueðii. Andrés Indriðason Skrlfar og sljórnar Andrés Indriðason hef- ur samið leikrit fyrir Leikfélag Kópavogs og mun það verða frumsýnt með haustinu undir leik- stjórn Andrésar. Kópa- vogstiðindi ræddu við Andrés Indriðason á dög- unum og sagöi þá höfund- urinn meðal annars: „Þetta er svo nýtt af nálinni, að það er bara ekki komið á það endan- legt heiti enn sem komið er. En það gerist I Reykjavik eða Kópavogi á þessu ári og er svona, getum við sagt, dálitill spéspegiil af veruleikan- um, af fjölskyldulifi. Þar er til dæmis komiö inn á samskipti foreldra og barna. Viö gætum ef til vill sagt, að þetta væru góðlátlegar fjöiskyldu- myndir, máske séð með augum yngri fjölskyldu- meðlima.” Þess má geta, að þessa dagana er verið að taka upp sjónvarpsleikritið Kusk á hvitflibbann eftir Davið Oddsson og er Andrés Indriöason þar leikstjóri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.