Tíminn - 14.12.1969, Side 2

Tíminn - 14.12.1969, Side 2
TIMINN SUNNUDAGUR 14. descmber 1969. KIRKJA fSLANDS f UPPHAFI KIRKJUÁRS 1970 Stundum er litazt um af stórum sjónarhólum til þess að átta sig betur á umhverfinu og finna hvert stefnir, þegar verið er í ferðalagi á langri leið. Ekki er þó hægt að segja, að hér sé um háan sjónarhól að ræða, þar sem aðeins eru ein áramót, sem fáir veita athygli, fyrsti sunnudagur í að- ventu, upphaf kirkjuársins. En hins vegar eru ýmis teikn á lofti og hræringar í heimi, sem vert er að skyggn- ast eftir um langan veg í far- kosti Drottins, skipi kirkjunn- ar. Fyrst er nú það, að kirkjan, íslenzka þjóðkirkjan hefur stig ið stórt spor um leið og hún er orðin með opinberlega í al- þj óðah j álpar starf i. En það er hin svonefnda Flughjálp, sem nú er aðallega stunduð í sambandi við styrj- öld og hungur í Nígeríu og Biafna. Má segja, að þetta sé fjar- lægur o3 furðulegur vettvang- ur. En hváð er stórt og hvað er smátt? Og nú eru fjarlægð- ir ólíkar því, sem áður var og ísland í brennidepli heims hve- nær sem vera skal, ef ekki í dag þá á morgun. Og ekki nema stekkjargata austur og suður í heim, mælt í klukkustundum á tunglfaraöld mannkyns. Eng inn veit nú, hve vandasamt umsvifamikið, álbyrgðarþungt og þó dásamlegt starf Flug- FRAMFARIRNAR ERU ÖRAR hjálpar getur orðið. Þá vil ég næst nefna kristni boðið í Konsó, sem er ákaflega skylt viðfangsefni og Flug- hjálp. En samt annars eðlis og á öðru stigi, þar eð það hefur verið stundað árum sam- an af fólki úr íslenzku þjóð- kirkjunni, sem þó hefur nokk- uð farið eigin götur. Mun fátt eða ekkert á veg- um og í starfi íslenzkrar kristni á þessari öld vekja meiri athygli, þegar tímar líða, en einmitt þetta kristniboð, og þá ekki sízt fórnarstarf og dug- ur íslenzku hjúkrunarkonunn- ar Ingunnar G-ísladóttur, sem lengst hefur unnið þarna suður í svörtustu Afríku. Verið þar brautrýðjandi í líknarmálum og hjúkrun við frumstæð og erfið skilyrði byrjandans. Og auk hennar margir aðrir unn- ið hliðstæð afrek. En snertir þetta nokkuð ís- lenzku kirkjuna nú fremur en fyrr? Þar er því til að svara, að með biskupsbréfi 31. okt. 1969 er eins og áður er getið í , þessum þáttum mælzt til þess að einn og sami dagur verði í öllum kirkjum og söfnuðum landsins helgaður kristniboði, sem sagt viðurkenndur og ákveðinn Kristniboðsdagur, með ræðuhöldum hvatningu og fjársöfnun þessari mikilvægu starfsemi til stuðnings og efl- ingar. Þetta er stórt spor í rétta átt, ef vel er haldið fram og upp til frama og heiðurs allri Guðs kristni bæði í þessu litla landi og heiminum, sem þráir líkn og frið, sem andi Krists einn má veita frá kynslóð til kynslóðar. Þá skal því ekki gleymt, að biskup og nokkrir prestar þjóð kirkjunnar hafa á þessu ári og raunar fyrr unnið markvisst með ungu áhugafólki og for- ystuliði æskunnar að undirbún ingi að stofnun fslenzki’a Frið- arsveita og hefur nú formlega verið hafii: slík starfsemi hér í sambandi við Mellemfolkeligt Samvirke í Danmörku. Og þeg- ar á næsta ári má gera ráð fyrir, að íslenzkir sjálfboðalið- ar leggi af stað til starfa og leiðbeiningar hjá þróunarþjóð um, að meira eða minna leyfi undir merkjum íslenzku kirkj unnar. Ennfremur má minna á það að nú virðist svo sem Félags- leg starfsemi safnaða sé að vinna sér fullan þegnrétt og vekja verðuga athygli. Má þar nefna, að synodus 'í vor mun hafa verið helguð umræðum og íhugun þeirra mála. Og enn- fremur var athyglisverður kirkjufundur um félagsstarf safnaða á Akureyri í haust dagana 24.—26. október. Og þar var hinn nývígði vígslu- biskup Hólastiftis í forsæti. Mörg mál voru rædd eins og oftar á slíkum fundum. En sérstaklega um starf sóknar- nefnda, sem e; nú orðið nokk- uð fjarlægt og óraunverulegt víða miðað við umsvif og hraða nútímans. Og taldi fund- urinn nauðsynlegt að stofna til fræðslunámskeiða fyrir safn aðarstarfsfólk, þar sem leið- beint yrði í margs konar fé- lagsmélum viðvfkjandi fund- arhöldum, félagsstofriun og starfrækslu, nefndarstörfum, og þó sérstaklega veittar leið- beiningar um aðstöðu og fram gang í þjónustu við guðsþjón- ustur, helgisiði og samkomur í kirkjunum sjálfum bæði sem meðhjálparar, kirkjuverðir, söngstjórar og aðstoðarmenn. Ennfremur var þar rætt um störf safnaðarsystna eða dia- konissa og nauðsyn slíkrar starfsemi í fjölmennum söfn- uðum. Að lokum skal hér aðeins ynnt að því fyrirbrigði í helgi- haldi eða kirkjustarfi þessa liðna árs, sem fengið hefur heitið Pop-messur eða dægur- tíðir til bráðaþirgða að minnsta kosti, þótt va'rla séu það mess- ur enn sem komið er hér á landi. Þetta framtak unga fólks- ins hefur mælzt hér misjafn- lega fyrir og verið af ýmsum. illa tekið eins og mörgum ný- græðingi í byrjun. En áreiðan- lega er þarna athyglis- verð starfsemi á ferð, svar við djúpri þörf tilbeiðsluþyrstra, en vanræktra sálna á trúar- leiðum. Aðferðir og skipulag þarf að athuga betur. Fara ekki of geyst af stað. Gleyma ekki anda og friði Krists í öll- um hávaðanum, sem nútíma- æskan óskar eftir og temur sér. Þeir, sem mest hneykslast hafa ýmislegt til síns máls. En þeir eða þær ættu að vera stödd t.d. í St. Pauls-kirkjunni í London, einu stærsta og frægasta musteri heimsins troð fullri af bítlum 03 hippum, sjá svo helztu kirkjunnar menn í Bretlandi, sjálfu viðurkennd- asta vígi kristins dóms í ver- öldinni koma fram í helgiklæð- um eða hversdagsbúningi og tala við þennan mislita söfn- uð, sem hlustar með hljóðri andakt eins og gert var í ís- lenzkri baðstofu hér áður fyrr. Þá gæti hvarflað í huga spurn ingin: Er þetta það sem koma skal? Árelíus Níelsson. REYKJAVIK ■:é' \ ■ Fyrsta listræna bókin, sem Reykvikingar eignast um borg sína. Bók, sem Reyk- víkingar munu gefa vinum sínum hvar sem er — inn- aniands og utan. HEIMSKKINGLA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.