Tíminn - 14.12.1969, Síða 3

Tíminn - 14.12.1969, Síða 3
Fjögurra laga plata með Heiðursmönnum kom á mark- aðinn í síðustu viku. Þá sendu SG-hljómplötur frá sér þrjár plötur, sem fjallað er um hér í þættinum í dag. Þá eru væntanlegar tvær plötur frá TÓNA-útgáfunni sf. í næstu viku. Þar er um að ræða tveggja laga plötu með Ævintýri og Björgvin, ásamt LP-plötu, þar sem Kirkjukór Akureyrar og Hljómsveit Ingi- mars Eydal skipta bróðurlega með sér flutningi á jólalög- um og sálmum. Frá Fálkanum er væntanleg LP-plata með hinum umdeildu Trúbrot, og lítil plata með lög- unum úr barnaleikritinu „Ferð in til Limbó“. . . Sennilega birtist aukaþáttur af Með á nótunum um miðbik vikunnar. Nútímabörn ~ LP. 12 lög. Útg.: SG-hljómpIötur. „Nútímabörn" nefnist söng- flokkur, sem vakið hefur tölu- verða athygli fyrir söng sinn í sjónvarpi og á skemmtunum víða um landið, þau komu fyrst fram 1968, en ekki alls fyrir löngu leystist söngflokk- urinn upp, en þá höfðu þau lokið við að syngja inn á 12 laga plötu. „Nútímabörnin“ eru: Drífa Kristjánsdóttir, Ágúst Atlason Sveinbjörn Kristjánsson og Sverrir Ólafsson. Flutningur þeirra á þessari plötu er í heild hinn áheyrilegasti, radd irnar falla sérdeilis vel saman, en aftur á móti sýna þau mjög misjafnlega góð tilþrif s em, einstaklingar. Ágúst Atlason ber þar greinilega af, enda syngur hann flesta einsöngs- kaflana og gerir þa@ prýðis- vel. Textarnir eru nær undan- tekningarlaust ákaflega vel gerðir, enda þekkt nöfn á með al höfundanna. í nokkrum laganna eru strengir og blásarar til aðstoð- ar og lífgar það mjög upp á annars heldur tilþrifalítinn gít arleik. Lagavalið er með fjöl- breyttasta móti: ísl. lög, þjóð- lög og dægurlög, sum þeirra hafa þau flutt í sjónvarpinu, en hin eru sérstaklega valin og æfð með þessa LP-plötu í huga. Plötualbúmið er hið glæsileg asta, með fallegri litmynd á titilsíðu. Hljóðritunin fór fram í Ríkisútvarpinu. „Vetrarnótt", lag og Ijóð eft ir Ágúst Atlason, þetta er ann að tveggja laganna á plötunni, sem Ágúst er höfundur að. Þau eru nokkuð keimlík, en bæði vel frambærileg. „Okkar fyrstu fundir“, þetta er nokkurra ára gamalt erlent lag, upphaflega flutt af Bobby Darin. Textinn er eftir Böðvar Guðlaugsson, og er uppfullur af góðu veðri, sólgylltum sund um, kossum og auðvitað ást. í þessu lagi kveður einna mest að aðstoðarhljóðfæmleikurun- um, sérstaklega skemmtilegur undirleikuir og útsetning, en Magnús Ingimarsson útsetti framlag aðstoðarmúsikkant- anna á þessari plötu. „Dauði eins er annars brauð“, þetta lag gerði ástralski söngflokkurinn Seek- ers frægt. Textinn er eftir Þor- stein Eggertsson. I söngn- um mæðir mest á Drífu Kristj- ánsdóttur, en ekki veldur hún söngnum fullkomlega og á köflum er textafram'burðurinn æði óskýr, hins vegar nýtur hún sín bezt, þegar þau syngja öll saman. „Anna litla“, ósköp einföld melódía, franskt þjóðlag. Text- inn er eftir okkar ágæta hag- yrðing, Sigurð Þórarinsson og fjallar um stúlku sem fer í berjamó, hún hittir þar fyrir fjóra yngissveina, og brátt fer leikurinn að æsast. „Drykkjumaðurinn“, lag og ljóð eftir Ágúst Atlason. Ágæt- ur ungtemplarabragur. „Kötturinn ódrepandi", er- lent fjöldaframleiðslulag. Text inn er eftir Maron Vilhjálms- son, en hann er reyndar bróð- ir Vilhjálms og Ellý Vilhjálms. Söngurinn hljómar dálítið ann arlega, og er þar utn að ræða „upptökutrix“. „Konan sem kyndir ofninn minn“, hugljúft lag, sem fell- ur afar vel að ljóði Davíðs Stefánssonar. „Launin sem hún fær eru last og daglegt brauð.“ „La, la, la“, þetta lag er sótt til Spánar, og er sannarlega vel þess virði. Baldur Pálma- son samdi textann. „Vestast í vesturbænum“, franskt þjóðlag, textinn er eftir Sigurð Þórarinsson. „Landabrugg“, bráðfjörugt írskt þjóðlag. Það er álitamál, hvort innihald textans varðar ekki við lög, því þar kemur m.a. uppskrift af „Landa“- bruggi. Höfundurinn er Maron Vilhjálmsson, og er framlag hans á þessari plötu hið at- hyglisverðasta. „Hvenær vöknum við“, gam- alt lag frá Beatles, sem ég er persónulega c ðinn dauðleiður á. Textinn er eftir Ómar Ragn- arsson. „Lifandi er ég,“ norskt þjóð lag. Textinn er eftir Sigurð Þórarinsson og er :nilldarvel gerður. Líkið rís upp ög segir: „Lifandi er ég og útförin plat“ en ekkjan bregzt hin versta við: „Betur trúi ég læknunum en bullinu í þér“. Flutningur Nútímabarna á þessu lagi er sérstaklega góður, þau reyna að ná fram viðeigandi drauga- stemmningu, og tekst það bærilega, en því er ekki að neita, að það hefði verið hægt að hafa lagið ennþá magnaðra, með ýmsum hljóð-„effektum“. JÓLIN HENNAR ÖMMU — LP. ÚTG.: SG-IILJÓM- PLÖTUR. Hópur barna kemur í heim- sókn til ömmu um jólin, hún 0<J GREITIE EjDRN,!^Ö=\! SvlW um IníT - . Koæ vqshn Egiteð \ StýiinTaí1isvv|sr¥i segir þeim frá jólunum í gacnla daga, og börnin syngja fyrir ömmu sína og rifja upp eitt jólaballið, þegar jólasveinninn kom í heimsókn. Þetta efni setti Svavar Gests í leikritsform, og býður upp á það á jólaplötu útgáfu sinnar í ár. Hugmyndin er góð, og kvæði og sálmar vel valdir, en atriðin ná ekki nægilega vel saman, þannig að hugmynd in „heimsókn til ömmu um jólin“, nýtist ekki nema að takmörkuðu leyti, og virkar ósannfærandi. Það hefði strax sett meiri sannfærandi heild- arsvip á leikritið, ef pabbi hefði lagt orð í belg, í stað þess að láta sér nægja að syngja með börnunum. Fyrir bragðið tengist .lutverk hans ekki 'nægilega söguþræðinum. Með hlutverk ömmu fer Guð- rún Stephensen, og gerir því mjög þokkaleg skil. Pabbinn er enginn annar en Guðmund- ur Jónsson. Börnin tvö, sem tala við ömmu, eru leikin af Ólafi Flosasyni og Dóru Björg- vinsdóttur, en bau sem syngja, eru börn úr Melaskóla. Magn- ús Pétursson annaðist útsetn- ingu, kór og hljómsveitar- stjórn. Gu'ðmundur syngur með börnunum, í Betlehem er barn oss fætt og Heims um ból. Undirleik á orgel Dómkirkj- unnar annast Sigurður ísólfs- son, og það gerir hann einn- ig, er börnin flytja Ó, Jesú bróðir bezti, og Ástarfaðir him inhæða. Inn í frásögn ömmu er fléttað kvæðum eftir Jó- hannes úr Kötlum, og þau syngja jólalög. Einnig gefur að heyra heimsókn Kertasník- is, sem hljóðrituð var á jóla- balli fyrir nokkrum árum, með hlutverk Kertasníkis fer Ólaf- ur Magnússon frá Mosfelli, og gerir því sérstaklega skemmti- leg skil. Þótt atriðin á þessari hljóm- plötu tengist ekki nœgil'ega vel saman, þá eru þau út af fyrir 'sig mjög vel valin til flutn- ings á jólaplötu, efnið er fjöl- breytt og vel flutt, sérstaklega er athyglisverður flutningur „ömmu“ á kvæðum Jóhannes- ar úr Kötlum, og vafalaust þykir börnunum það forvitni- leg frásögn. TÓNAKVARTKTTINN — FJÖGUR LÖG. ÚTG: SG- HLJÓMPLÖTUR. Þá fær eldri kynslóðin eitt- hvað við sitt hæfi og hættir að formæla „bítlagarginu", á meðan Tónakvartettinn flytur fjóra góða og gamla sjómanna valsa, Ég kveð, Stýrimanna- • valsinn, Svífur um mar, og Kost- ervalsinn. Tónakvartettinn frá Húsa- vík er skipaður ágætum söng- mönnum, þetta er önnur plat- an, sem kvartettinn syngur inn á, sú fyrri kom út fyrir tæpum þrem árum, og fékk góðar móttökur, og enn í dag heyrast lög af _ henni í óska- lagaþáttunum. Á þeirri plötu var hinn hefðbundni píanó- undirleikur, en ,á þessari plötu koma fleiri hljóðfæri við sögu, en þar kveður þó mest að lip- urlegum harmór.ikkuleik Grett is Björnssonar. Benedikt Viggósson. Sumargjöf Tekið verður á móti umsóknum fyrir börn á nýtt dagheimili við Sólheima, Sunnuborg, mánudaginn 15. desember og næstu daga frá kl. 9—11 f.h., sími 36385. Forstöðukonan er til viðtals á sama tíma. Stjórn Sumargjafar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.