Tíminn - 14.12.1969, Qupperneq 6

Tíminn - 14.12.1969, Qupperneq 6
6 TIMINN SUNNUDAGUR 14. desember 1969. Falsaði ur he L í,LLl ■ Ifum Falsaði í þremur heimsálfum Fyrir rúmu ári kom út í Sviss bók, þar sem segir m.a. frá hiaum furðulega Alfredo Donadieu, sem framleiddi fals *ða peninga í stórum stíl og flúði tvívegis frá Djöflaeynni. Saga hans er ein af mörgum í bók, sem þýzkur ritstjóri hefur samið, og ber nafnið „Vorsicht Falschgeld" og var gefin út hjá Schweizer Ver- lagshaus 1 Zurich. 1 henni segja frægustu og illræmdustu myntfaisarar frá, tækni þeirra er lýst, og greint frá ástæðun- um til þess, að upp komst um þá — og einnig í sumum til- fellum hvers vegna svo varð ekki. Falski maj órinn frá Mexíkó skipar áberandi sess í þessum mislita, en einnág litríka söfn- uði. Ástæðurnar til þess eru m.a* þær, að hann er einn af fáum, sem með góðum árangri hafa rekið „fyrirtæki“ sitt í þremur heimsálfum, og meira að segja um skeið sem opin- ber embættismaður fasista- stjórnarinnar á Ítalíu, að hon- um tókst tvívegis að flýja frá hinni iilliræmdu famgamýlendu Frakka, Djöflaeynni, og að þrátt fyrir starf sitt sem pen- ingafalsari, hafði hann tíma til að lifa fjölbreyttu ástalífi. Hann skildi eftir eiginkonur, vanræktar ástkonur og grát- andi vinkonur í ýmsum lönd- um og heimsálfum. ÞesSi ó- venjulegi maður, Alfredo, fæddist 17. febrúar árið 1900 í Marseilles og er sonur ít- alsks steinsmiðs, sem hafði það að sérgrein að smíða leg- steina. Ný atvinna Alfredo, sem þá hafði ætt- arnafnið Donadieu, ólst upp á góðu miðstéttarheimili. Ekki var það skortur eða peninga- áhyggjur, sem hröktu hann út á braut afbrotanna. Hann stóð sig illa í skóla og var látinn fara .ð vinna sem leturgrafari í gimsteinaverzlun móðurbróð ur síns, Victors Barbos. Hann hafði mikla hæfileika sem let- "% I a1*' f ER ÞETTA GÓÐ GJÖF? Tvímælalaust. Við höfum sýnt nokkrum konum þessa fögru vöru og þær hafa lokiS upp einum munni um ágæti hennar — og þær dáðust að fögr- um gjafaumbúðunum. Þér getið valið um „ELATION" og „MIDNIGHT" SKIN PERFUME og BARNAPÚÐUR í tvenns konar pakkningum — á 988 krónur og á 735 krónur. Fæst í flestum apótekum og snyrtivöruverzlunum. Gjöf sem gleður sérhverja konu Heildsölubirgðir: G. Ólafsson h.f., Aðalstræti 4. urgrafari, og það var ástæðan fyrir því, að dag einn í marz 1918 kom ítalskur viðskipta- vinur inn í búðina og kynnti sig sem Alberto Sampietro, og spurði hvort Alfredo vildi ekki snæða með sér miðdegis- verð á veitingahúsi, sig lang- aði til að ræða við unga mann inn um skemmtilegt verkefni. Alfredo komst fljótt að raun um, að Alberto átti mjög hríf- andi systur, sem hét María, en af henni varð Alfredo óðara yfir sig ástfanginn. Hann tók þegar að ausa yfir hana gjöf- um, enda þótt bróðir stúlk- unnar segði, að þess gerðist ekki þörf, „hún elskaði Al- fredo sjálfs hans vegna“. Gjaf- irnar voru dýrar og brátt var hann kominn í fjárhagserfið- leika. Um þetta leyti kynnti Al- berto hann fyrir einum af „beztu vinum sínum“, Emilio Petacci, sem sagði, að hann þyrfti á duglegum leturgrafara að halda, sem kæmi til með að hafa miklar tekjur, en sá Alfredo, Donadieu eftir aS hann var handtekinn í Mexíkóborg. Hann gekk einnig undir nafni vinar síns Enrico Sampietro. væri hængur á, að „starfið gæti orðið hættulegt — við framleiðum nefnilega pen- inga“. Alfredo skildi ekki, hvað um var að ræða, en svo áttaði hann sig og tók fljótt þessu tilboði. Hærri tekjur þýddu aukin tækifæri til að ausa gjöf um yfir Maríu, og hann treysti á hæfileika sína til að búa til falska peningaseðla, og síðar átti eftir að koma í ljós, að það gerði hann með réttu. Síðan fór svikamyllan og peningaprentsmiðjan í gang. Alfredo sagði fljótt upp starfi sínu í gimsteinaverzluninni. Tvöfalt líf var erfitt. Og nú einbeitti hann sér að því að búa til mvndplötur til að prenta eftir fölsku peningana, í byrjun 5 og 10 franka seðla. Magnið var samanlagt 250.000 franka virði og þar af fékk hann 30% í sinn vasa. Hinir nýju vinir hans voru ánægðir. Þeir höfðu uppgötvað sannan sérfræðing á sínu sviði. Alfredo var einnig hamingju samur. María tilbað hann, og hann hafði einnig kynnzt 38 ára gamalli konu úr hópi fals- aranna, sem var enn mjög fög- ur, Antoinette Bresseur. Toin frænka, eins og vinirnir nefndu hana, varð ástmey hans, og hann var í himnaríkissælu, og fölsku peningarnir streymdu úr vélunum. En þá var hann kvaddur í herþjónustu og varð að skilja við Maríu grátandi og sárþjáða Antoinette. Hann kom til vígstöðvanna í júlílok 1918 og í bardögunum við Soissons í byrjun ágúst hæfði sprengjubrot hann með þeim afleiðingum, að hann missti löngutöng á annarri hendi. Að lokinni sjúkrahúslegu fékk hann leyfi. Meðan á því stóð, leið honum svo vel hjá vinkonum sínum tveim, að hann ákvað að fara ekki aftur í herinn. Hann átti nú á hættu að vera dreginn fyrir herrétt, en einnig óttuðust falsararnir, áð upp um bá kæmisf. Af þess- um ástæðum var ákveðið að flytja starfsemina ti' Norður- Afríku. Síðar var byrjað á ný .-í Alisír og nú. á því að' fram- leiða 100 franka seðla. Starf- semin fór fram að baki forn- munaverzlunar. Þangað tóku brátt að koma margir vifð- skiptavinir, sem furðuðu sig á að eigandinn — Sampietro — neitaði alltaf að taka við 100 franka seðlum. Hann vildi ekki fá sína eigin fölsuðu seðla aftur...... Eftir að hafa safnað offjár hélt allur hópurinn til Napólí ' í orlof í íburði og allsnægtum. Þá barst svohljóðandi sím- skeyti frá frú Petacci: „Veðr- ið er gott, komið strax heim aftur", en það merkti, að öllu var óhætt í Frakklandi. Þar beið einnig Toin frænka, sem ekki hafði farið með til Norð- ur-Afríku, en bjóst nú við að geta unnið ástir Alfredo síns á nýjan leik. Nú var hann hins vegar önnum kafinn að sinna Maríu — og í afbrýði og hefndarþorsta fór Antoin- ette til lögreglunnar og kom upp um allan hópinn, einnig fyrrverandi elskhuga sinn. Fyrsti flóttinn. i Emilio og Alfredo voru dæmdir til 10 ára refsivinnu á Djöflaeynni og á aðfangadag 1920 voru þeir, ásamt 400 öðr- um föngum, fluttir um borð í skipið, sem átti að sigla með þá til hinnar fjarlægu fanga- eyjar hinna lifandi dauðu, 15 km úti fyrir strönd Frönsku Guayana. Strax og þangað kom, tók Alfredo að gera áætlanir um flótta. Emilio þorði ekki að flýja, en sex aðrir fangar voru reiðubúnir. Nótt eina tókst þeim að ræna litlum seglbáti, sem fangelsisstjórnin átti, og þeir tóku þegar stefnuna í suð- urátt a< strönd Brasilíu. Þeir voru matar- og vatnslausir og áður en langt um leið að dauða komnir, en þá eygðu þeir land. Báturinn strandaði i rifi og þeir stukku út í sjóinn og syntu síðasta spölinn. Tveir komust ekki alla leið, kraft- arnir voru á þrotum. Þegar hinir fimn. skjögruðu á land, uppgötvuðu þeir sér til skelf- ingar, að þeir voru ekki í Brasilíu. heldur enn í Frönsku Guayana. Þeir héldu af stað í gegnum frumskóginn. Tveir fengu mal- aríu, og dó annar þeirra fljót- lega, en hinn urðu þeir að skilja eftir. Þeir þrír, sem eft- ir lifðu, komust til smáborgar-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.