Tíminn - 14.12.1969, Side 13
SUNNUDAGUR 14. desember 1969.
TÍMINN
ífþróttahreyfingia í landinu
á vii3 mikla fjárhagsörðugleika
að glíma — og það er engin
launung, að það háir starfsemi
hennar mjög. Gísli Halídórsson,
forseti ÍSÍ, benti nýlega á þá
staðreynd, að hin Norðurlönd-
in veittu allt að þrisvar sinnum
meira fé til íþróttastarfsemi á
hvern íbúa en gert er á íslandi.
Sýnir það ljóslega, hve langt
við höfum dregizt aftur úr ,á
þessu sviði.
Stunduim hefur manni fund-
izt skorta á skilning meðal al-
þingismanna á málefnum í-
þróttahreýfi'ngarinnar, eii nú
hefur það gerzt, að Halldór E.
Sigurðsson og fleiri hafa flutt
þingsályktunartillögu um áætl-
anagerð um fjárhagsaðstoð við
íþróttahreyfinguna. Leggur
hann tii, að vkipuð venði nefnd,
sem í eigi sæti fonseti ISÍ, for-
maður UMFÍ, íþróttafuliltrúi
ríkisins og tveir fulltrúar kosn-
ir . af Alþinigi. I greinargerð
sagði Halldór m. a.:
„Hlutvrek þessarar nefndar á
að vera að gera fjárhagsáætl-
un fyrir fþnóttastarfsemina
í landinu, þó ekki mannvirki.
Skal fyrsta áætlunin gerð fyrir
árið 1971, en eftir það skulu
áætlanir gilda til fjögurra ára.
Þó má endurskoða þær að
tveim árum liðnum frá því, að
þær hafa verið gerðar, ef ein-
hverjir nefndarmenn óska
þess. Við áætlunargerðina skal
hafa hliðsjón af fjárframlög-
um annarra þjóða til íþrótta-
starfseminnar til dæmis Norð-
urlandaþjóðanna, og keppt
verði að því með áætlunargerð
inni, að fjárskortur hamli ekki
getu ísienzkra íþróttamanna.
Við gerð fjárlaga hverju sinni
skal áætlun þessi lögð til
grundvallar í fjárframlögum
ríkissjóðs til íþróttastarfsem-
innar. Kostnaður við áætlunar
gerðina greiðist af fjárveitingu
til íþróttastarfseminnar. Eins
og fram kemur í greinargerð
þeirri, sem fylgir með þess-
ari þin'gsályktunarti'llögu, hafa
allverulegar umræður orðið
á yfirstandandi ári um
getu íslenzkra íþróttamanna í
keppni við erlenda íþrótta-
menn. Það orkar ekki tvímæl-
is, að allt frá upphafi sögu ís-
lands hefur íslenzka þjóðin
átt íþróttamenn, sem hafa get-
ið sér frægðarorð meðal ann-
arra þjóða og svo er enn og
það er mikils virði fyrir þjóð-
ina og æsku landsins, að svo
verði áfram.
Nú hefur íslepzkum íþrótta
mönnum oftar gengið miður í
keppni vio erlenda íþrótta-
menn heldur en óskað hefði
verið eftir, og hafa margar
ástæður verið færðar fram fyr-
ir því, að svo hefur farið. Nú
er það ekki mitt eða okkar
flutningsmanna þessarar til-
lögu að dæma um, hversu hald
góðar þær röksemdir eru, er
þar hafa verið greindar. Hitt
er okkur ljóst og við höfum
veitt því athygli, að í umræð-
um um þetta mál hefur það
mjög komið fram, að fjárhag-
ur íslenzkrar íþróttahreyfing-
ar væri mjög bágborinn, og
hefur þar fyrst og fremst ver-
ið til umræðu fjárhagur þeirra
á sviði íþróttamála. Það hef-
ur komið fram hjá mörgum I-
þróttamönnum, sem um þetta
hafa rætt í blöðum, að einmitt
llfcil fjárhagsgeta þeiirra dragi
mjög úr afrekum þeirra á sviði
íþrótta og horfi þar til mikilla
vandræða.
Nú er það öllum ljóst, að
íþróttahreyfingin er þýðingar-
mikil fyrir æsku þessa lands
og fyrir þjóðina í heild, og
þjóðin verður að gefa þessum
málum gaum, fjármálum
íþróttahreyfingarinnar eins og
öðrum málum, því þetta er eitt
af hennar vandamálum, sem
úr verður að bæta. Á siðari
árum hefur mjög verið horfið
að því að gera áætlanir um
fjárframlög og uppbyggingu
' hinnar ýmsu starfsemi í þjóð-
félaginu. Okku. flutnings-
mönnutm þessarar þintgsálykt-
unartillögu finnst því ástæða
til, að gerð verði áætlun um
nýtingu þeirrar fjárhagsaðstoð
ar, sem þjóðfélagið getur látið
í té hverju sinni, og til þess
að gera þá áætlun verði þeir
kvaddir til, sem bezta þekk-
ingu hafa og standa í forystu
í félagsmálahreyfingum æsk-
unnar í landinu, bæði fþrótta-
samband íslands og Ung-
mennafélagi íslands og svo sá
embættismaður ríkisins, sem
sérstaiklega fjallar um íþrótta-
mál og hefur sýnt þeim mál-
um mikinn áhuga og mikinn
dugnað. Enn fremur leggjum
við til með tillögu okkar, að
þetta verði tengt Alþingi með
því, að tveir fulltrúar ver'ði
þaðan. Það er sikoðun okkar,
að þessi uppibygging eða þetta
form á uppbyggingu mætti
verða til þess að skilningur
yrði almennari á fjárþörf til
þessarar félagsstarfsemi og að
íþróttamenr. ættu með þessum
hætti betri möguleika til þess
að koma málum sínum á fram-
færi heldur en verið hefur og
nú er.
Nú er það ljóst, að til þess
að úr þessu verði bætt, verður
auðvitað aukin fjárveiting að
koma til. En það er okkar skoð
un, að íslenzka þjóðin vilji
sinna þessum málum með
þeim hætti og hér muni ekki
verða um það stórfellda fjár-
13
veitingu að ræða, að það hefði
nein teljandi áhrif á fjárlög
íslenzka ríicisins, heldur mætti
mteð þessum hætti nýta þetta
mikið betur og byggja þetta
kerfi upp og auðvitað að
hvetja okkar íjwíittamenn til
meiri dáða og meiri afreka
með því að styðja þá betur
fjárhagslega. Við erum sam-
mála um það flutningsmenn,
að það sé nauðsynlegt, aið Al-
þingi sinni þessu máli og
styðji íþróttaæsku okkar með
ráði og dáð. Þess vegna höf-
um við leyft okkur að flytja
þessa tillögu, sem við vonum,
að verði til þess að bæta úr
þessu máli. Við treystum því,
að hér á hæstvirtu Alþingi
verði tekið á þessu máli með
skilningi og málið megi ná
fram að ganga.“
Vonandi verður þessi þings-
ályktunartillaiga samþykkt,
enda ekki vanþörf á því, að
íþróttahreyfingin rétti úr þeim
fjárhagslega kút, sem hún hef-
ur verdð í. —alf.
EFLUM OKKAR
HEIMABYGGÐ
★
SKIPTUM VIÐ
SPARISJÓÐINN
SAMBANÐ ÍSL. SPARISJÓÐA
OG VANDIÐ
- VEBZLÍO
I KAUPFELAGINU
ummmimiiumii.Hui
Steinlausar
fúsinur
frá Califormu
iiuiiy uniinjiuijiiiiuiiimiiiiiiiniinn^inj
m
'nmnimtimnimmmui'imnn nniii'ipi
^Úrvals-
kgkur úr
Kobin ;i
Hoorf -Jl
Ódýrt
&gott
NEZO
SERAFFINEERD Zílt
SlllllTIVOLIHIII Mlll
H3P1PU
borðsalt
FYR8TA FLOKKS
SKOZKT
BeWs
hafra
mjöl
í5og25kg pokum
Vöruvaltð er tntðað við þörf yðar,
að þér fúíð gœðavöru ú
hagkvœmasta verði mögulegu.
Alíar þessar vörur og míkíð fleíra
fúið þér í KAUPFÉLACINU.
SPARIÐ OG VANDID VALIÐ - VERZLID í KAUPFÉLAGINU