Tíminn - 20.12.1969, Qupperneq 5

Tíminn - 20.12.1969, Qupperneq 5
Á jóladagskvöld verður sýnd i sjónvarpinu dagskrá, sem nefnist „Heim aö Hólum'1. Er þar lýst hinu forna biskupssetrl að Hólum í Hjaltadal og getið helztu atriða í sögu staðarins. Þessi mynd er tekin f sumar i Hóladómkirkju, þegar sjón- varpsmenn unnu að myndatökum þar, en kirkjan skipar veglegan sess í dagskránni um Hóla, enda ekki af ástæðu- lausu, þar sem hún er elzta stelnklrkja á íslandi. Altaristafla kirkjunnar er talin vera frá dögum Jóns biskups Arasonar, og mun forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn lýsa henni. Andrés Björnsson útvarpsstjóri mun flytja texta myndarinnar um Hóla ásamt umsjónarmanni þessa dagskrárliðar, Ólafi Ragnarssyni. um leið boðskap að flytja um Biannleg samskipti. Þessar tvær niyndir voru mjög 5óðar, en myndin í kvöld, laugar ag, virðist af öðru-m toga spunn- in. Er þar um dans- og söngva- mynd að ræða, sem gerast á i Marokkó. Hefst hón H. 21,20. Stuttar stjómmálaumræður Á mánudag-s'kvöidið voru um- ræður í sjónvarpssal um EFTA- inálið og mæt-ti þar einn fulltrúi frá hverjum stjórnmálaflokki. — Voru u-m-ferðir tv-ær, sem við höf- um vanizt. En um efnið eru menn rafalaust ekki sammála. Þó er rét-t að benda á það, að þótt forminu «é breytt, þá halda stjórnmála- mennirnir sig yfirleitt við svip- aðan má-lflutning og ella. Það er því helzta breytingin, að þeir verða að segja skoðun sína á mun styttri tíma, og það geri-r mál þeirra — flestra að minnsta kosti — strax betra. Ég teldi eðlilegt, að sjónvarpið afndi til siíkra umræðna um ýmis önnur mál. Það er svo fjöl- margt í stjórnmálum, sem skoð- anaágreiningur er um, og almenn ingi er bezt þjónað með því að ka-lla einhverja af forystu-mönnum flokkanna niður í sjónvarpssal og láta þá deila um þau mál. Þunnur endir Richai'd Kimble hætti f-lótta sín um á þriðjudaginn, og lauk þar með kynnu-m okkar af þeim að- laðandi náunga. En heldur var síðasti þátturinn „þunnur“, sá kafli, sem sýndur var s.l. þriðju- dag, var einn sá lélegasti úr öll- um myndaflokknum. En hvað um það. Kimble hefur stytt mörgum íslendingum stund- ir um langan tima, og skal þakk- að fyrir það og vonað að eitthvað jafngott komi i staðinn á þriðju- dagskvöldmm Jóladagskráin. Og þá er að koma að jólum, og jóladagskrá sjónvarpsins ákveð in. Á aðfangadag, sem er miðviku dagur i næstu viku, hefst sjón- varp M, 14,00 og stendur til kl. 16,20 — og er þá sýnt barnaefni, m.a. Denni dæmalausi og Lassi, en í lokin er fréttaþáttur, sem fjallar um jólaundirbúning og jólahald. Dagskráin á aðfangadagskvöld hefst síðan kl. 22 með aftansöng. Biskupinn yfir íslandi prédikar Að loknu-m aftansöngt eða kl. 23,00, verður endurtekin barna- óperan Amahl og næturgestirnir, og þótt það verk sé gott er vand- séð hvers vegna nauðsynlegt er að hafa endurtekið efni á að- fangadagskvöld. Á jóladag, sem er fimmtudagur, hefst dagskráin kl. 17,30 á jóla- söng Pólyfónkórsins í Kristskirkju í Landakoti — og er enn um end- urtekið efni að ræða, en sjón- varpsmenn virðast hafa sérstakt dálæti á að endurtaka ýmiss kon ar tónlistarverk á jólunum. Klukkan 18.00 er barnatíminn og virðist vel til hans vandað. — Dagskrá k-völdsins hefst síðan eins og venjulega kl. 20,00. Á annan í jólum, föstudag, hefst dagskráin á venjulegum tíma, en aðalefni kvöldsins er hinn um- talaði og dýri Ástardrykk-ur. Hefst sýning óperunnar kl. 20,25 og stend-ur til W. 22.10, en þá er ensk m-ynd um ævi Dickens. — A.K.B.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.