Tíminn - 31.12.1969, Qupperneq 11
TÍMINN
11
MIÐVlKUI>AGTJR 31. ðesember 1969
HAFNARFJÖRÐUR
Pípulagningasveinn eða maður vanur pípulögnum
óskast strax. — Sími 50269.
TILKYNNING
frá Heílsuverndarstöðinni
Kópavogi - Barnadeild -
Frá 1. janúar 1970, verður sú breyting á starfsemi
stöðvarinnar að eingöngu verður um pantaða tima
að ræða, til ónæmisaðgerða og ungbamaeftirlits.
Forsvarsmönnum bama á aldrinum 3ja mánaða
til 7 ára, ber því að panta viðtalstíma fyrir þau.
Pantanir teknar í síma 40400 mánudaga, þriðju-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9—12 f.h.
Stöðin er starfrækt eins og áður fyrir böm 0—2
ára, mánud. M. 9—11 f.h., fyrir böm úr vesturbæ.
Þriðjudaga M. 9—11 f.h., fyrir böm úr austurbæ,
og fyrir böm 2—7 ára, föstudaga M. 2—3 e.h.
— Geymið auglýsinguna. —
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Kó^avogs.
I HEIMSFRÉTTUM
i Framhald af bls. 6.
effirtaldar upplýsingar um
Mafíuna koma fram:
Mafían samanstendur af 24
samrýndum fjölskyldum
glaspamanna, eins og áður seg-
ir.
u í þessum fjölskyldum eru
i, einungis ítalir og Sikileyjar-
menn, eSa menn sem ættaðir
eru frá Ítalíu eða Sikiley. Þess
ir menn, einkum þó á austur-
ströndinni, kalla glæpahreyf-
inguna í heild „La Cosa
Nostra“.
Nöfn, sakaskýrslur og helztu
, glæpaverk um 5000 „fjöl-
skyldumeðlima“ liggja nú fyr-
ir hjá lögregluyfirvöldum.
Hver fjölskylda er skipulögð
sem eins konar her. Hverri
fjölskyldu ræður einn foringi
— lrBoss“, — en síðan kemur
aðstoðarforingi, liðsforingj-
TAPAÐ
VESKI
með ökuskírteini og fleiri skil-
ríkjum.
Finnandi vinsamlegast skili
því að Sólvallagötu 66.
Fundarlaun.
ar og ráðgjafi. Hinir lágt settu
í fjölskyldunni eru fcallaðir
hermenn. Lögreglumenn, sem
hafa góð sambönd, þekkja
flesta eða alla í „fjölskyldu"
sinnar þorgar.
„Fjölskyldurnar“ tengjast
hverri annarri, og ððrum
glæpasamtökum utan „La Cosa
Nostra“, með samningum og
samkomulagi, auk þess sem
þær virða allar æðsta vald
„nefndarinnar" svonefndu, en
í henni eiga sæti leiðtogar
voldugustu „fjölskyldnanna".
Þessi glæpahreyfing stjórn-
ar svo til allri ólöglegri fjár-
hættuspilastarfsemi í Banda-
ríkjunum. Hún er einnig svo
til allsráðandi hvað okurlán
snertir — en vextir eru yfir-
leitt 20% á viku — og stjóm-
ar auk þess innflutningi og
heildsölu á eiturlyfjum.
Mafían hefur lagt undir sig
ýmis verkalýðsfélög, og sam-
eina þá tvennt í einu: að neyða
fjármagn út úr atvinnurekend
um og svindla á félagsmönn-
um.
Hið hættulegasta i sambandi
við Mafíuna er þó það, að hún
hefur undanfarin ár lagt undir
sig mikinn f jölda lögmætra fyr
irtækja, og hefur jafnvel svo
til einokun á vissum tegund-
um fyrirtækja í Bandaríkjun-
um. Mafían á alls konar verzi-
unarfyrirtæki, veitingahús,
bari og hótél, verksmiðj-
ur og matvælaframleiðslu-
fyrirtæki, flutningafyrirtæki
og banka, svo nokkuð sé
nefnt.
Það er því marghöfðað,
skrímslið sem bandiaríska lög-
reglan á í höggi við. — ej.
Útför verSur gerð frá Jónínu Böðvarsdóttur frá Múlakoti HliSarendakirkiu, laugardaginn 3. janúar, kl. 13,30 Vandamenn
BróSir okkar
Benedikt Ó. Waage
lézt á Landakotsspítalanum þann 29. þ. m.
1 Systkini hins látna.
Vigdís og Ingólfur Ó. Waage.
/
Eina
peningahappdræltið
241.9 milljónir
Geysileg fjölgun vinningá.
Þriðjungur þjóðarinnar á
nú kost á að hljóta vinning.
Heildarfjárhæð vinninga
hækkar í 241,9 milljómr.
4 milljónir
hæsti möguleikinn
Þér getið unnið 4 milljónir
í einum drætti á sama
númer í öllum flokkum.
Verð miðanna er óbreytt.
Miðúraðir
Nú er loks hægt að
sinna hinni stöðugu
eftirspum eftirröðum,
semhafaverið ófáanlegar-
vmdanfarin ár.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
I
/
/
'
I
i
I
)
I
j
I
I
\
I
)
i
}
(
/
/
/
)
(
\
í
I
í
ERLENT YFIRLIT
Framhald af bls. 7
klíkiu- smáþjóða geta stundum
kveikt stænra bál en þeir sjálf
ir ætla eða aðrir gera sér nægi
lega ljóst í upphafi. Slík hætta
er nú vafalaust mest við aust-
an vert Miðjarðarhaf, þar sem
ísraelsmenn neita að fara að
tillögum bæ@i allsherjarþings
og öryggisráðs Sameinuðu þjóð
anna um að láta af hendi her-
teiknu svæðin, fallast á eðli-
legan heimflutning arabisku
flóttamannanna og alþjóðlega
stjórn Jerúsalem. Gegn þessu
yrði hægt að veita ísrael fulla
tryggingu fyrir sjálfstæði þess
í framtíðinnl. Stjórnendur ísra
els virðast treysta á, að þeir
geti haldiið ránsfengnum og
jafnvel fært út kvíarnar. Slíkt
mun þó aðeins auka hatur
Araba og margefla arabísku
skæruliðana. Það er því vafa-
laust rétt hjá U Thant, að
stríðshætta sé nú hvergi meiri
en á þessum slóðum.
í Vietnam og Biafra hafa
heldur glæðzt vonir um frið
satnlega lausn á árinu, sem er
að llða, þótt hún sé þó ef til
vill ekki alveg á næsta leiti.
Fækkum á herliði Bandaríkj-
anna í Vietnam styrkir a. m. k-
þær vonir, að ekki verði þar
um frekari útfærslu á styrj-
öldinni að ræða, en sá ótti var
mikill um skcið.
Þótt ekki hafi komið til stór
styrjaldar á áratugnum 1960
•—70, sýna Vietnam, Biafra og
átök Israelsmanna og Araba,
að ófriðarefnin eru enn fyrir
hendi Og þau munu halda
áfram að vera fyrir hendi
meðan ekki tekst að efla svo
alþjóðlegt samstarf á grund-
velli Sameinuöu þjóðanna, að
slikar deilur verði leystar
friðsamlega með milligöngu
réttsýnna aðila. Efling Sam- .
einuðu þjóðanna þarf að vera \
eitt mikilvægasta verkefni
næsta áratugs.
EINS og hér hefur verið
stuttlega rakið, bíða mannkyns
ins sízt minni verkefni í lok i
þessa áratugs en í upphafi
hans, heldur á margan hátt
meiri og vandleystari. En þau
eru á margan hátt artnars eðlis ;
en hin fyxri voru. Þess vegna >
mega menn ekki halda dauða'
haldi í gaimlar kennisetningar, ■
sem ekki eiga lengur við, eða
fella samtök og flokka í skorð- >
ur, sem tiltoeyra liðnum tíma- ’
Flest bendir ti'l, að uppeldis- .
og félagsmálin verði höfuð-
verkefni komandi áratugs í i
flestum löndum fceims. Það get-'
ur orðið örlagaríkt, hve vel
áttundi áratugurinn nýtist í
þeim efnum. Þ.Þ.