Vísir - 30.09.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 30.09.1981, Blaðsíða 12
12 VÍSIR Miðvikudagur 30. september 1981 SLÍTUR. SLATUR. SLATUR Siltllllð ai hverju um malargerð í siáturtíð Sláturtíðin er hafin eins og flestir hafa víst orðið varir við og miklar annir fram- undan hjá þeim húsmæðrum sem nýta sér allt það hráefni sem nú er á markaðnum. Margar yngri konur virðast smeykar við sláturgerð og telja það mikinn vanda að búa til blóðmör og lifrarpylsu. En það er mesta vitleysa. Aðferðin er sáraeinföld og því til sönnunar brugðum við okkur í Húsmæðra- kennaraskólann og fengum önnu Guðmundsdóttur kennara ásamt nokkrum nemendum til að sýna okkur hvernig farið er að. Ennfremur birtum við uppskriftir hennar að blóðmör og lifrarpylsu, ásamt öðrum að kæfu, rúllupylsu og lifrarrétti. Hráefnið fæst mest allt úr slátur- skömmtunum sem nú fást hjá SS í Austur- veri og Glæsibæ. Eru það fimm slátur í poka, en í því felst eftirfarandi: 5 þindar, 5 lif rar, 5 hjörtu, 10 nýru, 5 háls- æðar 5 kg mör, 5 Itr. blóð, og 5 sviðnir hausar. Kostar skammturinn 211 krónur og miðað við hversu mikið má nýta allan þennan mat, er það víst vel sloppið. Svona gerum við Degar við Dúum til slátur Og þá eru þaft myndirnar af sláturgerðinni. Þa6 er blóömör sem viö sjáum búinn til, en aöferöin viö lifrarpylsu er eins nema hvaö hakka þarf lifrina fyrst. Lifrarpylsuhræra á einnig aö vera mun þykkari en blóömörinn. Þaö eru þær Anna Guömundsdóttir, húsmæörakennari, Gréta Kaldalóns kennari viö KHl ásamt tveimur nemendum hennar, Ásdisi og Helgu, sem aöstoöuöu okkur. Mörinn þarf aö hreinsa og skera i smábita. Vambirnar eru látnar liggja i köldu saltvatni og siöan hreinsaöar vandlega, utan sem innan. Uppskriftlr: Hollt, gott og pjóðlegt Blóðmör 3 1 blóö 6 dl vatn 4 1/2 msk salt 750 g haframjöl 1 1/2 kg rúgmjöl 1 1/2 kg mör. Lifrarpylsa 1 kg lifur 11/2 — 2 msk. salt 6 dl undanrenna 150 g haframjöl 550 g rúgmjöl 600 g mör. Kæfa 2 1/2 kg kjöt (slög, þindar, háls- æöar og annaö kjöt sem til fell- ur) 700 g mör 70 g laukur 80 g salt 1 tsk pipar 1 tsk. allrahanda 1 tsk negull Kjötiö þvegiö, soöiö i litlu vatni meö mörnum lauknum og salti. Sé kjötiö feitt er dregiö úr mörnum. Þegar beinin hafa losnaö frá er kjötiö laukurinn og mörinn saxaö. Soöiö fleytt og þaö soöiö niöur. Notiö meira af fitunni i kæfuna en af soöinu. Kæfan hnoöuö og krydduö meöan hún er aö kólna og bragöbætiö eftir smekk. Hana má svo frysta og sjóöa niöur eftir vild. Til tilbreytingar má setja klipptan graslauk, saxaöa stein- selju og fleiri kryddtegundir eftir smekk. Lifrarkæfa 250 g lifur 100-200 g flesk eöa mör 2 litlir laukar 30 g smjörlíki 30 g hveiti 21/2 dl m jdlk (eöa undanrenna) salt, pipar, allrahanda eftir smekk. Lifrin lögö i vatn i ca 1/2 klst. Sé notaö flesk er þaö skoriö i þunnar ræmur og raöaö innan i aflangt kökumót. Himnurnar skornar i burtu af lifrinni og hún siöan ásamt lauknum og þvi sem afgangs er af fleskinu sax- aö 4-5 sinnum. Smjörlikiö brætt i potti, hveit- inu hrært út i og þynnt smátt og smátt meö mjólkinni. Kryddaö. Sett i skál og hrært þar til jafn- ingurinn er næstum kaldur, þá er egginu bætt út i og hrært vel. Söxuö lifrin er sett út I og krydd- aö eftir smekk. Þá er deiginu hellt i mótiö og bleyttur smjör- pappir bundinn eöa festur yfir. Sjóöiö I ofnskúffu i ca. 1 klukku- stund. Viö rákumst nýlega á upp- skrift i danska Extra-blaöinu aö rúllupylsu, sem menntamála- ráöherra Dana, Ritt Bjerre- gaard heldur mikiö upp á. Til- legg hennar var einmitt vegna uppskriftasöfnunar fyrir islenskt lambakjöt, svo viö lát- um hana fylgja hér meö. Lambarúllupylsa 2 slög 4 blöö matarlim 1-2 tsk salt pipar 1/2 tsk. allrahanda 1-2 tesk. sellerifræ 1-2 tsk. grænn pipar (paprika) steinselja Breiöiö slögin á bretti og látiö kjötiö snúa upp. Skeriö aöeins af kjötinu þar sem þaö er þykkast U ms jön: Jóhanna Birgisdóttir og saumiö siöan slögin saman. Leggiö matarlimsblööin (sem áöur hafa veriö bleytt) ofan á og dreifiö afgangskjötinu yfir I litlum bitum. Stráiö yfir salti og pipar. Blandiö kryddinu saman og dreifiö jafnt yfir ásamt paprikunni og siöast steinselj- unni yfir allt saman. Rúlliö slögin þétt upp og bindiö fast utan um. Látiö rúllu- pylsuna liggja i 2-3 daga i salt- vatni (1 kg af salti á móti 4 litr- um af vatni) Þegar hún er tekin upp úr, er skolaö vel og siöan soöiö i vatni I ca. 45 minútur. út i vatniö er gott aö setja 1 lauk, 1 niöurskorna gulrót og krydd- jurtabúnt. Látiö rúllupylsuna standa i soöinu þar til hún er hálfköld, þerriö siöan og pressiö. Steiktar lifrarsneiðar 3 laukar 1/2 kg lambalifur 60 g smjörliki 50 g hveiti 1 tsk salt 1/4 tsk. pipar 2 dl vatn eöa soö 2 1/2 dl mjólk 1/2 dl tómatkraftur sósulitur. Skeriö laukana og lifrina i þunnar sneiöar. Brúniö laukinn i helming smjörlikisins og takiö siöan uppúr. Veltiö lifrarsneiö- unum upp úr hveiti meö kryddi og brúniö þær I afgangi smjör- likisins. Steikingartimi um 3 minútur á hvorri hliö. Raöiö sneiöunum á fat og leggið lauk- inn yfir. Látiö vatn eöa soö á pönnuna og látiö sjóöa. Bætiö mjólk, tómatkrafti og sósulit út i. Sósuna má þykkja meö þvi sem eftir er af hveitinu og hella siöan yfir lifrina. Meölæti: Soönar kartöflur og hrásalat. Þá er hægt aö snlöa þær til og sauma saman en skilja veröur eftir nægilegt op til aö troöa i. Blóðinu er hellt i fat i gegnum sigti þvi alltaf geta setiö ein- hverjar trefjar eftir. s Þá er vatni og öllum þurrefnunum bætt út I og hrært vandlega. Hræran er mátuleg þegar sleifin stendur hjálparlaust I henni. Þá er mörinn settur i. Og nú er ekkert eftir nema aö troöa i og sauma fyrir keppina. Þeir mega aöeins vera hálffullir. Þetta er siöan sett i plastpoka I hæfileg- um skömmtum (2-3 keppir i poka) lokaö vel og fryst þar til aö notkun kemur. My„dir G y A

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.