Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Síða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 MARGIR hafa vafalaust beðið nýrrar spennusögu þeirra Stephens King og Peters Straub með eftirvæntingu. Höf- undarnir tveir hafa áður sent frá sér sögu sem þeir skrifuðu í samein- ingu, The Tal- isman, en hún hlaut mikið lof eft- ir að hún kom út árið 1984. Þar seg- ir frá drengnum Jack Sawyer, sem ferðast til ann- arrar víddar til að bjarga móður sinni undan hörmuleg- um dauðdaga og bjarga heiminum frá hruni. Í Black House: A Novel sem út kemur um miðjan september halda þeir King og Straub áfram með æv- intýrið og er Sawyer orðinn tuttugu árum eldri þegar framhaldið hefst. Hann man ekkert af atburðum for- tíðar, en þegar hann fer að rannsaka röð óhugnanlegra morða verður hann knúinn til að halda aftur í háskaför á hinar dularfullu slóðir. Hinn yfirskilvitlegi íslenski hestur Í ÁGÚSTMÁNUÐI kom út forvitnileg bók eftir bandaríkjakonuna Nancy Marie Brown. Hún er sérstök áhuga- manneskja um útreiðar og Ísland, og lýsir bókin ævintýralegri leit hennar að hinum fullkomna íslenska hesti. Bókin heitir A Good Horse Has No Col- or (Góður hestur hefur engan lit) og kryddar Brown þar frásögn af eigin reynslu með vísunum í þjóðsögur og ævintýri, í Íslendingasögurnar og í hið hefðbundna ferðasagnaform. Í bókinni lýsir höfundur eiginleikum íslenska hestsins af ástríðu og innsæi – skap- gerð hans, fegurð og fortíð jafnframt því sem hún lýsir því hvernig ferðin, sem farin var til að kynnast íslenska hestinum og umhverfi hans, varð um leið nokkurs konar hamingjuleit henn- ar sjálfrar. Nancy Marie Brown er ritstjóri við Penn State University. Hún er búsett í Pennsylvaníu og þetta er hennar fyrsta bók. Bush veginn og metinn Í KJÖLFAR hinna umdeildu forseta- kosninga í Bandaríkjunum, hafa komið út fjölmargar bækur sem fara mis- gaumgæflega í saumana á forseta- málum þar í landi. Ein slík bók sem verið hefur áber- andi í hillum betri bókabúða í Banda- ríkjum undanfarið, fer heldur ómjúk- um höndum um þann forseta sem á endanum hreppti stólinn eftirsótta. Hún heitir The Bush Dyslexicon: Observations on a National Disorder (Mismælasafn Bush: Hugleiðing um þjóðarheilkenni). Þar ræðir Mark Crispin Miller, prófessor við New York University, framkomu, talsmáta og til- svör Bush forseta, sem orðið hefur mörgum umtals- og gamanefni, sökum ýmissa misbresta í máli forsetans. Tek- ur Miller aragrúa dæma af mismælum Bush, erfiðleikum hans við að tjá sig og mynda setningarfræðilega réttar setningar, og undarlegum ummælum og tilsvörum. Þótt Miller telji þetta bera vitni um að forsetinn hafi mjög slaka tungumálakunnáttu og takmark- aða almenna þekkingu, sé hann engu að síður kænn og ákveðinn, nægilega kænn til að fá bandarísku þjóðina til að kjósa slíkan mann í forsetastól. ERLENDAR BÆKUR King og Straub taka upp þráðinn George W. Bush Stephen King Þ ETTA er lífið,“ segir rödd ungs manns yfir mynd í nýlegri sjón- varpsauglýsingu um gosdrykk. Hann er reyndar ekki að tala um gosdrykkinn, heldur það líf sem hann og vinir hans lifa í sjálfri auglýsingunni. Og það má til sanns vegar færa að oft er lífið auglýsing. „Á okkar öld læsist heimurinn skyndilega um okkur,“ segir Kundera í List skáldsögunnar. Á nýrri öld læsist auglýsingin um okkur. Sú var tíð að fátt var til dægradvalar síðsum- ars í Reykjavík annað en miklar vörusýningar í Laugardalshöll. Þangað drógust tugþúsundir í einhvers konar leiðslu, eða andlegu og líkam- legu reiðileysi, til að að valsa á milli auglýs- inga- og sölubása, þiggja ókeypis matarörðu á matvæla- og uppskriftakynningum, ókeypis kynningaráskrift í einn mánuð að dagblaði, ókeypis blöðrur handa krökkunum með áprentuðum auglýsingum, ókeypis derhúfu eða bol með auglýsingum í bak og fyrir, hlusta á nýjustu græjurnar, horfa á nýjustu sjón- varpstækin, máta sig við nýjustu eldhúsinn- réttinguna, garðhúsgögnin, baðtækin eða borðstofusettið, fara heim með litla fjölskyldu- bílinn stútfullan af allrahanda auglýsinga- og kynningarefni, velta örmagna inn í vanbúna kjallaraíbúð þar sem allt var enn ógreitt, og byrja að reikna hversu marga mánuði tæki að greiða fyrir þetta eða hitt á vörusýningunni sem hafði kitlað neyslutaugina. Margir eyddu þannig heilum ágústdögum, komu mettir heim með fangið fullt af lesefni og hausinn fullan af tilboðum. Margir fóru oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á sömu vöru- sýninguna þó fjarri færi því að aðgangur væri ókeypis. Líf í auglýsingum. Snjöll sölu- mennska í fásinninu. Æ síðan hafa auglýsendur leitast við að búa til alltumvefjandi auglýsingaumhverfi fyrir neytandann. Best hefur tekist að koma því inn að auglýsingin sé skemmtiefni og afþreying en ekki það sem hún er í raun, en nýjasta afrekið er að taka sneið úr leikinni kvikmynd og breyta aðalpersónu hennar í auglýsingu. Ann- að verður naumast sagt um jöskun hins trú- verðuga karakters úr Íslenska draumnum hans Róberts Douglas. Gagnrýnin í þessari ágætu kvikmynd verður markleysa og hjóm ef þeirri auglýsingaherðferð linnir ekki brátt. Undanfarið hefur sú umræða kviknað á ný, kröftugri en nokkru sinni, að Ríkisútvarpið verði að hverfa af auglýsingamarkaði svo „frjálsu“ stöðvarnar fái dafnað, gegn því að RÚV verði tryggt rekstrarfé eftir öðrum leið- um. Ekki mun ég sakna auglýsinga úr RÚV, hvarf þeirra eykur svigrúm alvöru dagskrár- gerðar. Lesnar auglýsingar í RÚV hafa þó þann kost umfram leiknar að þær koma erindi sínu skýrt til skila, æsingalaust, án umbúða og þykjast ekki vera annað en þær eru. Þær eru ódýrar og leiða ekki síður til viðskipta en aug- lýsingar sem fara mikinn og umvefja bráð sína. „Frjálsar“ útvarpsstöðvar eru reyndar á auglýsingamarkaði á mun ísmeygilegri hátt en þær vilja vera láta, því „dagskráin“ sýnist þar skipulögð til að selja tónlist af spilunarlista, eða hvað annað sem hangir á tónlistarspýt- unni, hvort heldur eru útihátíðir eða leiksýn- ingar. Varla er sú sölumennska ókeypis, eða hvað? Á þeim stöðvum er lífið orðið alltumvefj- andi auglýsing. FJÖLMIÐLAR LÍFIÐ ER AUGLÝSING Og það má til sanns vegar færa að oft er lífið auglýsing. „Á okkar öld læsist heimurinn skyndilega um okkur,“ segir Kundera í List skáldsögunnar. Á nýrri öld læsist auglýsingin um okkur. Á R N I I B S E N I Hvar liggja mörk menningar? Þetta er spurn-ing sem fræðimenn og listamenn og flestir sem komið hafa nærri menningarumræðu af ein- hverju tagi hafa velt fyrir sér í áraraðir. Síðast- liðin ár hafa flestir þokast í átt að víðari skil- greiningum en áður tíðkuðust. Sumir vilja ganga alla leið og segja að menningin eigi sér engin mörk, allt sé menning, menning sé allt. II Í hópi fræðimanna eru það einkum menn-ingarfræðingar sem kjósa þetta víða sjón- arhorn. Í menningarfræðum hefur verið leitast við að rannsaka mannlíf og menningu á þver- faglegum grundvelli. Menningarfræðin nýtir sér sjónarhorn hinna margvíslegu fræðigreina hug- og félagsvísindanna og fer jafnframt yfir hefð- bundna múra hvað varðar viðfangsefni. Enginn vafi leikur á því að þessi unga (en þó nær hálfr- ar aldar gamla) fræðigrein hefur með þessum hætti skapað afar áhugaverða deiglu sem ómögulegt er að vita hvað á eftir að koma upp úr. III Ný uppskrift að menningunni er ef til villeitt af því. Markalínur menningar hafa sjaldan verið jafnóljósar. Þetta kann skilgrein- ingarsjúkur samtíminn að taka óstinnt upp. Samspil ólíkra orðræðuhefða opnar aftur á móti óneitanlega nýja og oft óvænta sýn á menningu og samfélag. Þannig hefur það til dæmis veitt nýjan skilning á borgarskipulagi að beita á það bókmenntafræðilegum lestri. Táknfræðin hefur og gagnast vel við að varpa ljósi á áhrif fjölmiðla og pólitíska umræðu. Sömuleiðis hafa kenningar í málheimspeki og málvísindum opnað nýjar víddir í rannsóknum á valdastrúktúr samfélaga. Þannig mætti lengi telja. IVMenningin stendur því á afar áhugaverð-um og skapandi mærum einhvers sem er og einhvers sem er ekki, einhvers sem má og ein- hvers sem má ekki. Menningarnótt í Reykjavík er ágætt dæmi um þetta. Þau hátíðarhöld sem farið hafa fram í kringum afmæli borgarinnar ár hvert síðastliðin fimm ár hafa lýst ákaflega víðum skilningi á menningarhugtakinu. Hin umdeildu mörk lágmenningar og hámenningar eru þar hvergi sýnileg. Popp og rapp eru þar jafngild menning og strengjakvartett eftir Brahms. Á dagskránni eru bókmenntalestrar á börum og skrúðgöngur minnihlutahópa. Flestir hinna tugþúsunda sem fara í bæinn þetta kvöld telja sig þó hafa notið menningar með því einu að rölta milli reykmettaðra kráa. Og hápunktur kvöldsins og eins konar hátindur íslenskrar menningar ár hvert er hin víðfræga flugeldasýn- ing. Enginn menningarviðburður dregur að annan eins fjölda gesta. V Íslensk menning er flugeldasýning. Íslenskmenning er á uppleið. Íslensk menning er að springa út. Fjölbreytnin er ríkjandi. Allt gengur, allt er leyfilegt. Og úr verður þessi eldfima sam- ræða sem sumir skilja hvorki upp né niður í en aðrir vilja efla og auka. Enn aðrir líta svo á að hún hljóti að endurspegla ríkjandi ástand í víð- um skilningi og því sé hún áhugaverð í sjálfri sér. NEÐANMÁLS EIN af glæsilegustu flugeldasýn- ingum síðari ára í Reykjavík var haldin á menningarnótt í fyrra. Margir voru ánægðir með að fá að sjá flugeldana en það voru þó nokkrir sem stöldruðu við og spurðu: „Hver borgar eiginlega fyrir þetta?“ Flugeldasýningar eru nefnilega aldrei ókeypis og hér á frelsi.is í fyrra voru borgaryfirvöld gagnrýnd harðlega fyrir að eyða peningum skattborgaranna í flug- elda. [...] Frelsarinn hefur auðvitað mjög gaman af flugeldasýningum en hann vill ekki að fólk sé skyldað til að borga fyrir þær. En ætli borg- arbúar vilji að borgin standi fyrir flugeldasýningum? Margir myndu væntanlega svara því játandi og segja að skattpeningunum okkar sé varið í margt vitlausara. En hvað ef borgarbúar væru í raun og veru beðnir um að kaupa flugeldana? Hvað ef borgarstjórinn eða bæj- arstjórinn í þínum heimabæ kæmi til þín og segði: „Vilt þú kaupa þennan flugeld svo við getum skot- ið honum upp í kvöld?“ Hvað myndir þú segja? Eitt stjörnuljós fyrir Frelsarann, takk. Sigþrúður Ármann Frelsi.is www.frelsi.is Kúltúrnöldrarinn Kúltúrnöldrarinn kvartar yfir skorti á frumleika og nöldrar yfir sameiningu bókaforlaga, en mígur utan í fræga rithöfunda. Afbrigði kúltúrnöldrarans er bókmennta- fræðinöldrarinn, sem felur nöldrið í háleitu orðagjálfri. Allir þessir eiga það sameiginlegt að þykjast á ein- hvern hátt vera á undan öllum öðr- um í umræðunni. Allt sem hinir segja er út í hött. Kúltúrnöldrarinn óskar sér til hamingju með að vera nokkurs konar verndari íslenskrar menningar. Hann hjalar mak- indalega í cocktailboðum, fer á fundi í útlöndum, klappar rithöf- undum á öxlina. Hann hefur þá kenningu að nú horfi ekki lengur til framfara að hafa neitt á móti feit- um gróðahyggjumönnum með vindil, sem áður var hans ær og kýr að úthúða, en nú er hann orðinn einmitt einn af þeim. Það er næsta ólíft í Reykjavík fyr- ir nöldurkór sem kyrjar undir ómennskunni og söngurinn gengur undir nafninu þjóðmálaumræða. Þessi umræða stendur allri al- mennilegri gagnrýni fyrir þrifum. Svarthöfði Kistan.is www.kistan.is Morgunblaðið/Sigurður Jökull Menningarnæturblús. EITT STJÖRNULJÓS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.