Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Side 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 L AGARFLJÓT er lygnt og líkist helst stóru stöðuvatni“ ritar Egg- ert Ólafsson í Ferðabók sinni (1772). Hann kallar Lagarfljót mesta vatnsfall landsins, og má það til sanns vegar færa. Þó að nokkur fljót séu lengri og vatnsmeiri, er ekkert fljót á Íslandi til jafnaðar eins djúpt og breitt eins og Lagarfljót. Það er að miklum hluta skipgengt, eina straumvatnið sem áætlunarbátar hafa gengið um hérlendis og ganga enn. Þannig séð er það eina íslenska vatnsfallið sem getur jafnast við stórfljótin í útlöndum. Lygnt og breitt sígur það fram í sinni „dreymnu ró“, víðast án þess að straumur verði greindur, uns það fellur fram af kletta- stalli, síðan aftur jafn værðarlegt, uns það minnist við Jöklu í sameiginlegum ósi. Djúp þess geymir marga dul sem vísindin hafa ekki megnað að skýra. Fljótsdalur er kenndur við Lagarfljót og Héraðið við dalinn. Helstu einkenni Lagarfljót er þannig skapað, að það er bæði stöðuvatn og straumvatn, án þess að nokkur glögg skil séu þar á milli. Eiginlega er það röð af stöðuvötnum, sem vatnsfall rennur í gegn- um. Það er 92 km að lengd, en 140 km ef Jök- ulsá í Fljótsdal er talin með. Efsta vatnið, sem nú kallast Lögurinn, er langstærst, það þriðja stærsta á Íslandi að flat- armáli og rúmmáli, um 25 km langt, allt að 2,5 km breitt, um 53 ferkm og rúmar um 2700 gl. (Þingvallavatn og Þórisvatn eru stærri að fleti en rúma svipað. Blöndulón er líka nokkru stærra að fleti, en mun minna að rúmmáli). Það er líka eitt dýpsta vatn landsins, um 50 m að meðaltali og 112 m mest. Vatnsflöturinn er um 20 m yfir sjávarmáli, og nær botninn því allt að 92 m undir sjávarmál. (Sigurjón Rist: Vatns er þörf. Rv. 1990). Þó ekki gæti sjávarfalla í Leg- inum, eru þar breiðar fjörur, eins og á sjáv- arströndum, en það stafar af vatnsborðssveifl- um, sem geta verið nokkrir metrar. Ströndin er á köflum nokkuð vogskorin og töngótt. Einn tanginn heitir Skarfatangi. Nokkrir hólmar eru við Lagarfljótsbrú vaxnir kjarri. Utan við Egilsstaði eru fjögur minni stöðu- vötn í farvegi fljótsins, sem kallast flóar og eru kenndir við bæi sem við þá standa. Þeir eru innan frá talið: Vífilsstaðaflói, Straumsflói, Steinsvaðsflói og Víðastaðaflói. Flóarnir eru 1- 1,5 km á breidd og 1- 6 km á lengd. Dýpi hefur lítið verið mælt í þeim, en talið er að flestir séu grunnir, um 1-5 m. Í Fljótinu er einn foss, sem fyrrum var tal- inn einn mikilfenglegasti foss landsins, en er nú ekki nema svipur hjá sjón, eftir að fall hans var virkjað um 1975. Hann var oftast nefndur Fossinn í Lagarfljóti, en í seinni tíð Lagarfoss, eftir að samnefnt skip kom til sögunnar. Foss- inn var tvískiptur, og var austurhlutinn fall- foss, um 10 m hár, sem minnti á Goðafoss, en vesturhlutinn flúð, um 100 m breið, með um 17 m falli. Nú er aðeins flúðin eftir, og getur enn orðið býsna tilkomumikil þegar mikið vatn er í fljótinu. (Glettingur 6 (2), 1996). Vegna aðrennslis Jökulsár í Fljótsdal er Lagarfljót með jökulvatnslit allt til ósa. Samt er það mjög breytilegt að lit eftir árstíðum og veðri, grátt, grágrænt, blágrátt, jafnvel heið- blátt. Ekki er víst að það hafi alltaf verið svo. Hluti þess a.m.k. var fjörður á síðjökultíma, og á hlýskeiði fyrir um fimm þúsund árum, var Vatnajökull svo lítill að það gæti hafa verið tært. Gagnsæi er breytilegt eftir árstímum, minnst á vorin í vatnavöxtum, um ½ m, mest síðla vetrar, allt að 2,5 m. Ytri og grynnri hluta fljótsins leggur vana- lega í nóv.-des., en dýpsta hluta Lagarins sjaldan fyrr en í febr.-mars, og stundum ekki. Margar þversprungur myndast í Lagarísnum, heyrast oft miklar drunur þegar hann spring- ur, og stundum rís ísinn meðfram þeim. Ísinn er fagurblár og tær þrátt fyrir gruggið í vatn- inu, en kólfar og verður þá grænn á vorin. Ísa- brot er vanalega um mánaðamótin apríl-maí. Þverár Fljótsdalsárnar eru í beinu framhaldi af Lagarfljóti, en teljast þó ekki til þess í daglegu tali. Keldá fellur af Hraunum, um Suðurdal Fljótsdals, oftast blátær, enda kennd við keld- ur í merkingunni lindir, með miklum hyljum og fögrum fossaföllum í dalbotni, skemmtileg sil- ungsveiðiá. Jökulsá kemur undan Eyjabakka- jökli við rætur Snæfells, grá af jökulkorgi á sumrum, og fellur um Norðurdal Fljótsdals. Meðalrennsli er 27 m³/sek. Í henni er eitthvert mesta fossaval sem um getur í jökulsám hér á landi. (Glettingur 8 (1) og 8 (2-3), 1998). Helstu þverár að austanverðu eru Gilsá, Grímsá og Eyvindará. Grímsá kemur úr Skrið- dal. Í henni er Grímsárvirkjun, byggð 1956-58 við Grímsárfoss, sem þá var þurrkaður. Allar eru dragár og hafa mjög breytilegt rennsli. Morgunblaðið/Guttormur Lagarfljót er að miklum hluta skipgengt, eina straumvatnið sem áætlunarbátar hafa gengið um hérlendis og ganga enn. Myndin er tekin frá Geitargerði. LAGARFLJÓT – MESTA VATNSFALL LANDSINS E F T I R H E L G A H A L L G R Í M S S O N „Lagarfljót er þannig skapað, að það er bæði stöðu- vatn og straumvatn, án þess að nokkur glögg skil séu þar á milli. Eiginlega er það röð af stöðuvötnum, sem vatnsfall rennur í gegnum. Það er 92 km að lengd, en 140 km ef Jökulsá í Fljótsdal er talin með.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.