Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 7 Nokkrar litlar þverár koma af Fljótsdalsheiði og falla í Jökulsá og Fljótið að vestanverðu. Gasið Frá örófi alda hafa þeir sem búa við Löginn orðið vitni að margs konar furðulegum fyr- irbærum sem skrifuð hafa verið á reikning Ormsins mikla. Undarlegar vakir, sem loft ból- ar upp um, hafa lengi verið þekktar, og er getið í fornsögum. Árið 1963 datt nokkrum Héraðsbúum í hug að safna gasinu og skoða hvers eðlis það væri. Tunnu var hvolft yfir eina vökina, og eldur bor- inn að stút á henni. Þar logaði glatt í nokkra stund. Gasið var efnagreint og reyndist vera næstum hreint metan (mýragas). Gasið mynd- ast við starfsemi baktería í rotnandi jurtaleif- um, sem huldar eru leir og leðju í botni fljóts- ins. Hluti þess safnast fyrir í botnleirnum og brýst stundum upp með offorsi, svo upp koma háir strókar af gasi og vatni, sem minna á hvalablástur, eða það rífur með sér flykki úr botninum og flytur upp á yfirborðið. Sumir fræðingar hafa talið að gasið kæmi neðan úr jarðskorpunni, ef til vill frá olíulindum. (Helgi Hallgrímsson í Týli 12. árg. 1982 og Halldór Ármannsson og Sigmundur Einarsson í Nátt- úrufr. 64, árg. 1995). Lífríki Lagarfljót er talið fremur næringarsnautt. Vegna hins mikla dýpis nær Lögurinn ekki að hlýna fyrr en langt er liðið á sumar. Hitastig fer sjaldan yfir 10 stig við yfirborð, og neðar er að jafnaði lægri hiti. Vegna gruggsins þrífast plöntur og svifgróður aðeins í efsta laginu (um 1-2 m), og þörungar vaxa mest við ströndina og þar sem grynnst er. Mestur hluti fljótsins er myrkheimur, þar sem aðeins ljósfælnar bakt- eríur og stærri dýr geta hafst við. Lítið er vitað um efnamengun í Lagarfljóti, en ætla má að hún sé nokkur utan við þéttbýlið á Miðhéraði. Trúlega eykur hún næringar- magn fljótsins og er því að sumu leyti hagstæð fyrir lífverur, en ýmis varasöm efni fljóta að sjálfsögðu með. Í Leginum og efri hluta fljótsins eru stofnar af bleikju (jafnvel tveir) og urriða, sem ganga að einhverju leyti í þverárnar. Silungsveiði hefur verið stunduð í fljótinu á öllum öldum byggðar, og hefur á tímabilum þótt allgóð, einkum utantil í Leginum, en er nú lítið nýtt. Sjósilungur og lax ganga upp að Lagarfossi, og er oft uppgripaveiði í þeim hluta fljótsins. Eitt- hvað er af hornsíli með löndum. Ýmsar tilraun- ir hafa verið gerðar til að koma laxi upp í efri hluta Lagarfljóts og þverár þess, en þær hafa ennþá borið lítinn árangur. Í hinum sameiginlega ósi Lagarfljóts og Jöklu er töluvert af landsel, sem kæpir á eyr- um í ánni, og selveiði hefur lengi verið stunduð frá bænum Húsey. Selurinn sést oft inn við Foss, og grunur er um að hann geti skriðið upp flúðina, þegar hún er vatnslítil. Töluvert fuglalíf er á Lagarfljóti, einkum á neðri hluta þess. Grágæsir eru langmest áber- andi, og skipta oft þúsundum. Hjá brúnni við Fellabæ sjást ýmsar endur, stundum í hópum, svo sem hávella, skúfönd, duggönd og stokk- önd. Fuglalíf hefur farið vaxandi. Menning og saga Nafnið Lögurinn á sér merkilega sögu. Ætla mætti að það væri hið upprunalega nafn stöðu- vatnsins, sem fljótið rennur frá og er kennt við, en svo er ekki. Það er líklega sótt í Heims- kringlu og aðrar fornsögur, en þar er það not- að um vatnið eða fjörðinn Mälaren í Svíþjóð, sem höfuðborgin Stokkhólmur stendur við. Elstu heimildir um Löginn í Lagarfljóti eru frá 1883, í ferðalýsingu Þorvaldar Thoroddsen í Andvara og bréfi Þorvarðar Kjerúlf læknis (Múlaþing 14, 1985), sem líklega er upphafs- maður þess. Nafnið hefur rómantíska tilvísun í ásatrú, því að Snorri segir í Ynglingasögu að Óðinn hafi valið sér bústað við Löginn í Sví- þjóð, og gefið öðrum ásum þar óðul, þar á með- al Frey, sem bjó að Uppsölum. (Við Löginn á Héraði eru tvö örnefni kennd við Frey). Ekki er ljóst hver er upprunaleg merking orðsins Lagarfljót. (Glettingur 6 (2), 1996). Halldór Kiljan Laxness orti eitt af sínum bestu og eftirminnilegustu kvæðum um Hall- ormsstað og Lagarfljót: “Floginn sem eingill austrá Fljótsdalshérað / er ángar ljúft við Fljótsins dreymnu ró / og aldrei hefur áður verið þérað: – á yður prófar hann sína nýju skó.“ Austfirsku skáldin hafa kveðið margt um fljótið, allt frá Rönkufótsrímu Stefáns Ólafs- sonar á 17. öld, sem fjallar á gamansaman hátt um kvikindin í fljótinu, og fram til okkar tíma. Fljótið er líka snar þáttur í Snæfells-málverk- um Steinþórs Eiríkssonar o.fl. Að áliti Einars Pálssonar var Lagarfljót í upphafi helgað gyðjunni Gefjuni, sem Snorri segir að Gylfi Svíakóngur gæfi „plógsland... að launum skemmtunar sinnar. Hún plægði þá upp landsvæði ekki lítið og flutti út á Eyr- arsund, en það heitir nú Sjáland“. Einar telur að Gefjun samsvari hinni fornegypsku gyðju Isis, sem „fæddist“ í hinum miklu óshólmum (deltu) Nílar, og mikið var tignuð í Austurlönd- um nær. Samkvæmt því hefur Gefjun verið snar þáttur í landnámi Fljótsdalshéraðs. Af nafni Isis telja sumir að nafnið Ísland sé dreg- ið. (Einar Pálsson: Stefið. Rvík. 1980). Ormurinn Lagarfljótsormurinn er kunnastur allra vatnaskrímsla hérlendis. Hans er fyrst getið í annál frá miðri 14. öld, og síðan í fjölda heim- ilda á öllum öldum, einnig í erlendum ferða- bókum, landlýsingum og í ritum um skrímsla- fræði, svo frægð hans nær langt út fyrir landsteina. Hann á margt sameiginlegt með frægustu vatnaskrímslum jarðar, svo sem Nessie í Loch Ness á Skotlandi. Þó hefur aldr- ei sést á honum haus né sporður, og því hafa sprottið upp sögur um að hann sé bundinn að framan og aftan, og áttu „Finnar“ að hafa unn- ið það afrek að koma á hann böndum. (Þjóð- sögur Jóns Árnasonar o.fl.) Orminum hafa verið tileinkuð ýmis náttúru- fyrirbæri, eins og fyrr var getið í sambandi við gasið, og reynt hefur verið að skýra tilveru hans á þeim forsendum, eða sem blábera hjátrú. Það hefur þó enn ekki gengið af orm- inum dauðum. Miklu fremur virðist trúin á til- veru hans sem yfirnáttúrlegs fyrirbæris hafa vaxið síðustu árin. Hann er eins konar tákn Héraðsins og verndarvættur, og prýðir merki fjölda félaga og fyrirtækja, hefur jafnvel kom- ist inn í skjaldarmerki ríkisins í formi dreka. Flestir Héraðsbúar vilja hafa sinn orm, og telja sig hafa ýmsar sannanir fyrir tilveru hans. Mikilvægt er talið að umgangast hann með virðingu. (Skyggnt fólk hefur séð orminn í drekalíki yfir fljótinu). Auk ormsins er getið um tvær aðrar furðuskepnur í fljótinu, skötuna undan bænum Straumi, og selinn undir Lag- arfossi. Samgöngur og nýting Íslaust er Lagarfljót mikill farartálmi, enda óvíða reitt nema á Úthéraði, þegar lítið vatn er í því, en þar voru nokkur vöð, svo sem Ein- hleypingsvað við Eyvindarárós, og Steinsvað innan við Lagarfoss. Lögferjur voru á nokkrum stöðum. Aðalferj- an var löngum við Ekkjufell. Hjá Straumi í Tungu var svokölluð svifferja, byggð um sama leyti, sú eina af því tagi hér á landi. Þrátt fyrir nafnið sveif hún ekki, heldur var þetta bátur, sem var festur við loftstreng, og togaður yfir með vindu. Svipuð ferja var á Jökulsá í Fljóts- dal. Hún var kölluð straumferja, því að bátnum var skástillt með köðlum og straumurinn lát- inn knýja hana áfram. Á Jökulsá voru kláfar eins og á Jökulsá á Dal. Laust eftir aldamótin 1900 var byggð þar 300 m löng timburbrú tekin í notkun 1905. Hún þótti á sínum tíma mikið undur, og var í marga áratugi langlengsta brú landsins. Lagarfljót ísi lagt hefur verið mikil sam- göngubót á öllum öldum. Segja má að þá hafi opnast breið og bein vetrarbraut um endilangt Hérað, sem hægt var að ferðast um á alls kyns farartækjum, á skautum, sleðum og jafnvel bíl- um. Í Fljótsdæla sögu eru skemmtilegar frá- sagnir af ferðum Droplaugarsona á fljótinu. Þessi braut var samt ekki hættulaus, og því hefur fljótið tekið hærri toll af mannslífum en flest önnur vatnsföll. Það krafðist sinna fórna. Þorvaldur faðir Droplaugarsona drukknaði í fljótinu, og sömuleiðis Droplaug kona Helga Ásbjarnarsonar. Sama ár og Lagarfljótsbrúin var vígð (1905) hófust áætlunarferðir með vélbáti á Leginum, frá Egilsstöðum að Brekku. Þessi bátur var nefndur „Lagarfljótsormurinn“, og stofnað var samnefnt hlutafélag um rekstur hans. (Hluta- bréfin voru með skrautlegri mynd af ormin- um). Þrátt fyrir nokkur „skipbrot“ héldust þessar ferðir þar til vegur kom í Fljótsdal 1935. Nokkrum sinnum var reynt að endur- vekja þær með litlum bátum. Árið 1999 hófust svo reglulegar ferðir að nýju, frá Egilsstöðum í Hallormsstað, með allstórum fljótabáti, sem nú ber nafn ormsins. Snemma á 20. öldinni voru gerðar tilraunir með vöruflutninga á bát- um inn í Lagarfljótsós. Þær reyndust erfiðar og hættulegar og var því hætt. (Múlaþing 11, 1981). Hin hefðbundna nýting Lagarfljóts í gegn- um aldir hefur verið til silungsveiða og sam- gangna. Árið 1975 bættist við raforkufram- leiðsla, þegar Lagarfossvirkjun var byggð. Virkjunin stórskemmdi fossinn í fljótinu, eins og fyrr greinir. Þá var áætlað að nota Löginn til miðlunar og hækka meðalvatnsborð allt að tveimur metrum. Af því tilefni fóru fram ýt- arlegar mælingar og rannsóknir á lægsta land- inu (nesjunum) við fljótið á árunum 1975-1977. Sæst var á um ½ m meðalhækkun á vatnsborði við Lagarfljótsbrú yfir veturinn. Út við virkjun getur sú hækkun hins vegar numið allt að tveimur metrum, og hefur hún leitt til nokkurs landbrots við fljótið, einkum á svæðinu þaðan og inn undir Egilsstaði. Skaðabætur hafa verið greiddar landeigendum (1987), en hér er úr- bóta þörf, ef stöðva á landbrotið. Vernd og vá Lagarfljót er ekkert venjulegt vatnsfall, sama frá hvaða sjónarhorni er litið: náttúru, mannlífi eða menningu. Draga verður í efa, að nokkurt vatnsfall á Íslandi komist þar í sam- jöfnuð. Jafnvel má ólíklegt telja, að nokkurt samsvarandi vatnsfall sé til á jörðinni, þó það verði seint sannað. Verndargildi Lagarfljóts er því mjög mikið á landsmælikvarða og jafnvel á heimsmælikvarða. Fyrir Hérað og Héraðsbúa er það nánast eins og æðakerfið í mannslík- amanum. Verði Lagarfljóti spillt er allt lífkerfi þessa fagra héraðs í hættu, mannlíf og menn- ing þar með talin. Síðustu ár hefur ferðaiðjan skapað Lagar- fljóti nýja ímynd, einkum með siglingum fljóts- bátsins sem hófust 1999. Ljóst er að þessi þátt- ur á eftir að aukast verulega á næstu árum. Áætluð er lagning göngu- og hjólreiðabrautar umhverfis Löginn, og undirbúningur hafinn að kynningarátaki fyrir ferðamenn. Uppbygging fræðslustofu til kynningar á fljótinu og um- hverfi þess er líka á dagskrá, útgáfa kynning- arrita o.fl. Innan fárra áratuga verður um- hverfi Lagarins orðið gróðri vafið, sem eykur enn á útivistargildi þess og fegurð. Nú eru blikur á lofti eins og alkunnugt er. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið beita sér fyr- ir risavirkjun í Jökulsá á Dal, með stíflu við Kárahnjúka, og myndun jökulvatnslóns á stærð við Löginn. Frá þessu mikla lóni er áætl- að að veita vatni Jöklu um jarðgöng austur í Norðurdal Fljótsdals, þar sem stöðvarhús yrði byggt fyrir 700 MW virkjun. Þaðan rynni vatn- ið í Jökulsá í Fljótsdal og með henni í Lag- arfljót, sem myndi tvöfaldast að meðalrennsli við Lagarfoss. Jökla er aurugsta jökulsá landsins, og þó að grófasti aurinn falli út í Hálslóni, er talið að gruggið í Lagarfljóti muni fjór- eða fimmfald- ast við þessa breytingu, og gegnsæi vatnsins minnka um helming eða meira. Samkvæmt ný- legri tilraun með blöndun vatns úr Jöklu og Lagarfljóti myndi fljótið verða mun brúnleit- ara eftir samveituna. (Morgunbl. 1.3.01). Þá mun meðalhiti vatnsins lækka í Leginum að sumarlagi um hálfa til heila gráðu. Lífsskilyrði munu því að sjálfsögðu versna. Til að forðast flóðahættu er talið nauðsyn- legt að grafa rennu í farveg fljótsins utan við Lagarfljótsbrú og sprengja niður klapparhaft við Lagarfoss, sem heldur uppi núverandi vatnsborði ofan þess. Neðan við Lagarfoss gæti meðalhækkun orðið um ½ metri, og gæti þar einnig þurft að breikka farveginn og rétta úr honum, ella er hætta á miklu landbroti. Ströndin við Héraðsflóa mun eyðast um nokk- ur hundruð metra á næstu öld, og ósar fljót- anna þar með breytast. Hér er um stórkostlegt inngrip að ræða í náttúru Lagarfljóts og Jöklu og raunar alls Fljótsdalshéraðs, mun stærra í sniðum og víð- tækara en áður hefur þekkst hér á landi. Von- andi sjá stjórnvöld að sér í tíma, og taka mark á niðurstöðum umhverfismats sem nýlega var kynnt. Annars gæti orðið hér eitt mesta um- hverfisslys sem um getur í okkar heimshluta. Höfundur er líffræðingur og búsettur á Egilsstöðum. Lagarfljót er ekkert venjulegt vatnsfall, sama frá hvaða sjónarhorni er litið: náttúru, mannlífi eða menningu. Draga verður í efa, að nokkurt vatnsfall á Íslandi komist þar í samjöfnuð. Jafnvel má ólíklegt telja, að nokkurt samsvarandi vatnsfall sé til á jörðinni, þó það verði seint sannað.                                  ! 

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.