Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 7
Nokkrar litlar þverár koma af Fljótsdalsheiði
og falla í Jökulsá og Fljótið að vestanverðu.
Gasið
Frá örófi alda hafa þeir sem búa við Löginn
orðið vitni að margs konar furðulegum fyr-
irbærum sem skrifuð hafa verið á reikning
Ormsins mikla. Undarlegar vakir, sem loft ból-
ar upp um, hafa lengi verið þekktar, og er getið
í fornsögum.
Árið 1963 datt nokkrum Héraðsbúum í hug
að safna gasinu og skoða hvers eðlis það væri.
Tunnu var hvolft yfir eina vökina, og eldur bor-
inn að stút á henni. Þar logaði glatt í nokkra
stund. Gasið var efnagreint og reyndist vera
næstum hreint metan (mýragas). Gasið mynd-
ast við starfsemi baktería í rotnandi jurtaleif-
um, sem huldar eru leir og leðju í botni fljóts-
ins. Hluti þess safnast fyrir í botnleirnum og
brýst stundum upp með offorsi, svo upp koma
háir strókar af gasi og vatni, sem minna á
hvalablástur, eða það rífur með sér flykki úr
botninum og flytur upp á yfirborðið. Sumir
fræðingar hafa talið að gasið kæmi neðan úr
jarðskorpunni, ef til vill frá olíulindum. (Helgi
Hallgrímsson í Týli 12. árg. 1982 og Halldór
Ármannsson og Sigmundur Einarsson í Nátt-
úrufr. 64, árg. 1995).
Lífríki
Lagarfljót er talið fremur næringarsnautt.
Vegna hins mikla dýpis nær Lögurinn ekki að
hlýna fyrr en langt er liðið á sumar. Hitastig
fer sjaldan yfir 10 stig við yfirborð, og neðar er
að jafnaði lægri hiti. Vegna gruggsins þrífast
plöntur og svifgróður aðeins í efsta laginu (um
1-2 m), og þörungar vaxa mest við ströndina og
þar sem grynnst er. Mestur hluti fljótsins er
myrkheimur, þar sem aðeins ljósfælnar bakt-
eríur og stærri dýr geta hafst við.
Lítið er vitað um efnamengun í Lagarfljóti,
en ætla má að hún sé nokkur utan við þéttbýlið
á Miðhéraði. Trúlega eykur hún næringar-
magn fljótsins og er því að sumu leyti hagstæð
fyrir lífverur, en ýmis varasöm efni fljóta að
sjálfsögðu með.
Í Leginum og efri hluta fljótsins eru stofnar
af bleikju (jafnvel tveir) og urriða, sem ganga
að einhverju leyti í þverárnar. Silungsveiði
hefur verið stunduð í fljótinu á öllum öldum
byggðar, og hefur á tímabilum þótt allgóð,
einkum utantil í Leginum, en er nú lítið nýtt.
Sjósilungur og lax ganga upp að Lagarfossi, og
er oft uppgripaveiði í þeim hluta fljótsins. Eitt-
hvað er af hornsíli með löndum. Ýmsar tilraun-
ir hafa verið gerðar til að koma laxi upp í efri
hluta Lagarfljóts og þverár þess, en þær hafa
ennþá borið lítinn árangur.
Í hinum sameiginlega ósi Lagarfljóts og
Jöklu er töluvert af landsel, sem kæpir á eyr-
um í ánni, og selveiði hefur lengi verið stunduð
frá bænum Húsey. Selurinn sést oft inn við
Foss, og grunur er um að hann geti skriðið upp
flúðina, þegar hún er vatnslítil.
Töluvert fuglalíf er á Lagarfljóti, einkum á
neðri hluta þess. Grágæsir eru langmest áber-
andi, og skipta oft þúsundum. Hjá brúnni við
Fellabæ sjást ýmsar endur, stundum í hópum,
svo sem hávella, skúfönd, duggönd og stokk-
önd. Fuglalíf hefur farið vaxandi.
Menning og saga
Nafnið Lögurinn á sér merkilega sögu. Ætla
mætti að það væri hið upprunalega nafn stöðu-
vatnsins, sem fljótið rennur frá og er kennt við,
en svo er ekki. Það er líklega sótt í Heims-
kringlu og aðrar fornsögur, en þar er það not-
að um vatnið eða fjörðinn Mälaren í Svíþjóð,
sem höfuðborgin Stokkhólmur stendur við.
Elstu heimildir um Löginn í Lagarfljóti eru frá
1883, í ferðalýsingu Þorvaldar Thoroddsen í
Andvara og bréfi Þorvarðar Kjerúlf læknis
(Múlaþing 14, 1985), sem líklega er upphafs-
maður þess. Nafnið hefur rómantíska tilvísun í
ásatrú, því að Snorri segir í Ynglingasögu að
Óðinn hafi valið sér bústað við Löginn í Sví-
þjóð, og gefið öðrum ásum þar óðul, þar á með-
al Frey, sem bjó að Uppsölum. (Við Löginn á
Héraði eru tvö örnefni kennd við Frey). Ekki
er ljóst hver er upprunaleg merking orðsins
Lagarfljót. (Glettingur 6 (2), 1996).
Halldór Kiljan Laxness orti eitt af sínum
bestu og eftirminnilegustu kvæðum um Hall-
ormsstað og Lagarfljót: “Floginn sem eingill
austrá Fljótsdalshérað / er ángar ljúft við
Fljótsins dreymnu ró / og aldrei hefur áður
verið þérað: – á yður prófar hann sína nýju
skó.“ Austfirsku skáldin hafa kveðið margt um
fljótið, allt frá Rönkufótsrímu Stefáns Ólafs-
sonar á 17. öld, sem fjallar á gamansaman hátt
um kvikindin í fljótinu, og fram til okkar tíma.
Fljótið er líka snar þáttur í Snæfells-málverk-
um Steinþórs Eiríkssonar o.fl.
Að áliti Einars Pálssonar var Lagarfljót í
upphafi helgað gyðjunni Gefjuni, sem Snorri
segir að Gylfi Svíakóngur gæfi „plógsland... að
launum skemmtunar sinnar. Hún plægði þá
upp landsvæði ekki lítið og flutti út á Eyr-
arsund, en það heitir nú Sjáland“. Einar telur
að Gefjun samsvari hinni fornegypsku gyðju
Isis, sem „fæddist“ í hinum miklu óshólmum
(deltu) Nílar, og mikið var tignuð í Austurlönd-
um nær. Samkvæmt því hefur Gefjun verið
snar þáttur í landnámi Fljótsdalshéraðs. Af
nafni Isis telja sumir að nafnið Ísland sé dreg-
ið. (Einar Pálsson: Stefið. Rvík. 1980).
Ormurinn
Lagarfljótsormurinn er kunnastur allra
vatnaskrímsla hérlendis. Hans er fyrst getið í
annál frá miðri 14. öld, og síðan í fjölda heim-
ilda á öllum öldum, einnig í erlendum ferða-
bókum, landlýsingum og í ritum um skrímsla-
fræði, svo frægð hans nær langt út fyrir
landsteina. Hann á margt sameiginlegt með
frægustu vatnaskrímslum jarðar, svo sem
Nessie í Loch Ness á Skotlandi. Þó hefur aldr-
ei sést á honum haus né sporður, og því hafa
sprottið upp sögur um að hann sé bundinn að
framan og aftan, og áttu „Finnar“ að hafa unn-
ið það afrek að koma á hann böndum. (Þjóð-
sögur Jóns Árnasonar o.fl.)
Orminum hafa verið tileinkuð ýmis náttúru-
fyrirbæri, eins og fyrr var getið í sambandi við
gasið, og reynt hefur verið að skýra tilveru
hans á þeim forsendum, eða sem blábera
hjátrú. Það hefur þó enn ekki gengið af orm-
inum dauðum. Miklu fremur virðist trúin á til-
veru hans sem yfirnáttúrlegs fyrirbæris hafa
vaxið síðustu árin. Hann er eins konar tákn
Héraðsins og verndarvættur, og prýðir merki
fjölda félaga og fyrirtækja, hefur jafnvel kom-
ist inn í skjaldarmerki ríkisins í formi dreka.
Flestir Héraðsbúar vilja hafa sinn orm, og
telja sig hafa ýmsar sannanir fyrir tilveru
hans. Mikilvægt er talið að umgangast hann
með virðingu. (Skyggnt fólk hefur séð orminn í
drekalíki yfir fljótinu). Auk ormsins er getið
um tvær aðrar furðuskepnur í fljótinu, skötuna
undan bænum Straumi, og selinn undir Lag-
arfossi.
Samgöngur og nýting
Íslaust er Lagarfljót mikill farartálmi, enda
óvíða reitt nema á Úthéraði, þegar lítið vatn er
í því, en þar voru nokkur vöð, svo sem Ein-
hleypingsvað við Eyvindarárós, og Steinsvað
innan við Lagarfoss.
Lögferjur voru á nokkrum stöðum. Aðalferj-
an var löngum við Ekkjufell. Hjá Straumi í
Tungu var svokölluð svifferja, byggð um sama
leyti, sú eina af því tagi hér á landi. Þrátt fyrir
nafnið sveif hún ekki, heldur var þetta bátur,
sem var festur við loftstreng, og togaður yfir
með vindu. Svipuð ferja var á Jökulsá í Fljóts-
dal. Hún var kölluð straumferja, því að bátnum
var skástillt með köðlum og straumurinn lát-
inn knýja hana áfram. Á Jökulsá voru kláfar
eins og á Jökulsá á Dal.
Laust eftir aldamótin 1900 var byggð þar
300 m löng timburbrú tekin í notkun 1905. Hún
þótti á sínum tíma mikið undur, og var í marga
áratugi langlengsta brú landsins.
Lagarfljót ísi lagt hefur verið mikil sam-
göngubót á öllum öldum. Segja má að þá hafi
opnast breið og bein vetrarbraut um endilangt
Hérað, sem hægt var að ferðast um á alls kyns
farartækjum, á skautum, sleðum og jafnvel bíl-
um. Í Fljótsdæla sögu eru skemmtilegar frá-
sagnir af ferðum Droplaugarsona á fljótinu.
Þessi braut var samt ekki hættulaus, og því
hefur fljótið tekið hærri toll af mannslífum en
flest önnur vatnsföll. Það krafðist sinna fórna.
Þorvaldur faðir Droplaugarsona drukknaði í
fljótinu, og sömuleiðis Droplaug kona Helga
Ásbjarnarsonar.
Sama ár og Lagarfljótsbrúin var vígð (1905)
hófust áætlunarferðir með vélbáti á Leginum,
frá Egilsstöðum að Brekku. Þessi bátur var
nefndur „Lagarfljótsormurinn“, og stofnað var
samnefnt hlutafélag um rekstur hans. (Hluta-
bréfin voru með skrautlegri mynd af ormin-
um). Þrátt fyrir nokkur „skipbrot“ héldust
þessar ferðir þar til vegur kom í Fljótsdal
1935. Nokkrum sinnum var reynt að endur-
vekja þær með litlum bátum. Árið 1999 hófust
svo reglulegar ferðir að nýju, frá Egilsstöðum í
Hallormsstað, með allstórum fljótabáti, sem
nú ber nafn ormsins. Snemma á 20. öldinni
voru gerðar tilraunir með vöruflutninga á bát-
um inn í Lagarfljótsós. Þær reyndust erfiðar
og hættulegar og var því hætt. (Múlaþing 11,
1981).
Hin hefðbundna nýting Lagarfljóts í gegn-
um aldir hefur verið til silungsveiða og sam-
gangna. Árið 1975 bættist við raforkufram-
leiðsla, þegar Lagarfossvirkjun var byggð.
Virkjunin stórskemmdi fossinn í fljótinu, eins
og fyrr greinir. Þá var áætlað að nota Löginn
til miðlunar og hækka meðalvatnsborð allt að
tveimur metrum. Af því tilefni fóru fram ýt-
arlegar mælingar og rannsóknir á lægsta land-
inu (nesjunum) við fljótið á árunum 1975-1977.
Sæst var á um ½ m meðalhækkun á vatnsborði
við Lagarfljótsbrú yfir veturinn. Út við virkjun
getur sú hækkun hins vegar numið allt að
tveimur metrum, og hefur hún leitt til nokkurs
landbrots við fljótið, einkum á svæðinu þaðan
og inn undir Egilsstaði. Skaðabætur hafa verið
greiddar landeigendum (1987), en hér er úr-
bóta þörf, ef stöðva á landbrotið.
Vernd og vá
Lagarfljót er ekkert venjulegt vatnsfall,
sama frá hvaða sjónarhorni er litið: náttúru,
mannlífi eða menningu. Draga verður í efa, að
nokkurt vatnsfall á Íslandi komist þar í sam-
jöfnuð. Jafnvel má ólíklegt telja, að nokkurt
samsvarandi vatnsfall sé til á jörðinni, þó það
verði seint sannað. Verndargildi Lagarfljóts er
því mjög mikið á landsmælikvarða og jafnvel á
heimsmælikvarða. Fyrir Hérað og Héraðsbúa
er það nánast eins og æðakerfið í mannslík-
amanum. Verði Lagarfljóti spillt er allt lífkerfi
þessa fagra héraðs í hættu, mannlíf og menn-
ing þar með talin.
Síðustu ár hefur ferðaiðjan skapað Lagar-
fljóti nýja ímynd, einkum með siglingum fljóts-
bátsins sem hófust 1999. Ljóst er að þessi þátt-
ur á eftir að aukast verulega á næstu árum.
Áætluð er lagning göngu- og hjólreiðabrautar
umhverfis Löginn, og undirbúningur hafinn að
kynningarátaki fyrir ferðamenn. Uppbygging
fræðslustofu til kynningar á fljótinu og um-
hverfi þess er líka á dagskrá, útgáfa kynning-
arrita o.fl. Innan fárra áratuga verður um-
hverfi Lagarins orðið gróðri vafið, sem eykur
enn á útivistargildi þess og fegurð.
Nú eru blikur á lofti eins og alkunnugt er.
Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið beita sér fyr-
ir risavirkjun í Jökulsá á Dal, með stíflu við
Kárahnjúka, og myndun jökulvatnslóns á
stærð við Löginn. Frá þessu mikla lóni er áætl-
að að veita vatni Jöklu um jarðgöng austur í
Norðurdal Fljótsdals, þar sem stöðvarhús yrði
byggt fyrir 700 MW virkjun. Þaðan rynni vatn-
ið í Jökulsá í Fljótsdal og með henni í Lag-
arfljót, sem myndi tvöfaldast að meðalrennsli
við Lagarfoss.
Jökla er aurugsta jökulsá landsins, og þó að
grófasti aurinn falli út í Hálslóni, er talið að
gruggið í Lagarfljóti muni fjór- eða fimmfald-
ast við þessa breytingu, og gegnsæi vatnsins
minnka um helming eða meira. Samkvæmt ný-
legri tilraun með blöndun vatns úr Jöklu og
Lagarfljóti myndi fljótið verða mun brúnleit-
ara eftir samveituna. (Morgunbl. 1.3.01). Þá
mun meðalhiti vatnsins lækka í Leginum að
sumarlagi um hálfa til heila gráðu. Lífsskilyrði
munu því að sjálfsögðu versna.
Til að forðast flóðahættu er talið nauðsyn-
legt að grafa rennu í farveg fljótsins utan við
Lagarfljótsbrú og sprengja niður klapparhaft
við Lagarfoss, sem heldur uppi núverandi
vatnsborði ofan þess. Neðan við Lagarfoss
gæti meðalhækkun orðið um ½ metri, og gæti
þar einnig þurft að breikka farveginn og rétta
úr honum, ella er hætta á miklu landbroti.
Ströndin við Héraðsflóa mun eyðast um nokk-
ur hundruð metra á næstu öld, og ósar fljót-
anna þar með breytast.
Hér er um stórkostlegt inngrip að ræða í
náttúru Lagarfljóts og Jöklu og raunar alls
Fljótsdalshéraðs, mun stærra í sniðum og víð-
tækara en áður hefur þekkst hér á landi. Von-
andi sjá stjórnvöld að sér í tíma, og taka mark
á niðurstöðum umhverfismats sem nýlega var
kynnt. Annars gæti orðið hér eitt mesta um-
hverfisslys sem um getur í okkar heimshluta.
Höfundur er líffræðingur og búsettur
á Egilsstöðum.
Lagarfljót er ekkert venjulegt vatnsfall,
sama frá hvaða sjónarhorni er litið: náttúru,
mannlífi eða menningu. Draga verður í efa,
að nokkurt vatnsfall á Íslandi komist þar í
samjöfnuð. Jafnvel má ólíklegt telja, að
nokkurt samsvarandi vatnsfall sé til á
jörðinni, þó það verði seint sannað.
!