Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 13 Þ EGAR Steinunn Helga Sigurðar- dóttir myndlistarkona ákvað að hóa saman nokkrum vinum sín- um, fór það ekki fram hjá neinum bæjarbúa í Lejre á Sjálandi. Raunar bárust fregnirnar allt til Kaupmannahafnar og listunnend- ur þaðan hafa streymt til þessa litla bæjar til að sjá hvað Steinunn og 44 vinir hennar og kunningjar hafa sett saman. Öll 45 eru myndlistarmenn og lögðu bæinn undir sig í bókstaflegri merkingu, því hópurinn fékk 24 bæjarbúa til að opna heimili sín og sýna lista- verkin í herbergjum, bílskúrum og stofum. Bærinn aldrei samur aftur Steinunn Helga fer ekki troðnar slóðir í sýn- ingarhaldi og hefur hugmyndin um Camp Lejre, eins og sýningin kallast, vakið athygli. Tæplega 1.000 manns komu á sýningaropnunina í Lejre sl. laugardag og röltu að því búnu um bæinn vopnaðir korti til að finna sýningarstað- ina. Þeir sem opnað höfðu heimili sín gerðu gott betur, því flestir buðu upp á kaffi og kökur. Heitið Camp Lejre getur staðið fyrir búðir, átök, nú eða verið skammstöfun fyrir hvað svo sem mönnum dettur í hug, segir Steinunn Helga. Hún hefur ásamt fjórum öðrum staðið í ströngu við undirbúning sýningarinnar sl. sjö mánuði og segist hafa vakið furðu margra bæj- arbúa, sem þó létu margir heillast af hugmynd- inni og ákváðu að taka þátt í henni. „Ég heyrði konu segja að Lejre yrði aldrei samur aftur,“ segir Steinunn og brosir breitt. Ástæðuna fyrir að halda sýninguna í Lejre segir Steinunn einfaldlega þá að hún hefur búið í bænum undanfarin fimm ár og langaði til að hóa saman vinum og kunningjum úr röðum þýskra, íslenskra, franskra, hollenskra og nor- rænna listamanna. Alls eru tólf Íslendingar í hópnum, þau Alda Sigurðardóttir, Ásmundur Ásmundsson, Harpa Arnardóttir, Hlynur Halls- son, Margrét Blöndal, Berlind Sigurðardóttir, Erling Klingenberg, Inga Jónsdóttir, Ragna Róbertsdóttir, Ingólfur Arnarsson, Finnnbogi Pétursson og Steinunn Helga. Verkin sem sýnd eru í Lejre þær þrjár helgar sem sýningin stendur yfir eru af ýmsum toga; innsetningar, uppistand, óperusöngur, hefð- bundin myndlist, skúlptúrar og svo mætti lengi telja. Verkin eru gerð sérstaklega fyrir Lejre og miðast við það rými sem listamönnunum var úthlutað. Gallerí á hjóli, sundsprettur með áli og fagurri konu, hraun á vegg, minningar á póst- kortum, hljóðverk, yfirbyggðar svalir og annað blasti við gestum í Lejre. Mörg verkanna geisla af húmor og gleði yfir því að taka þátt í svo óvenjulegu sýningarhaldi og vegfarendur, margir vopnaðir kortum, brostu og heilsuðu hverjir öðrum, sameinaðir í listrænni fjársjóðs- leit. Camp Höfn í Hornafirði Á Kongebrovej 10 hafði franski listamaðurinn Al Masson sett upp verkið „Leyndarmál fjöl- skyldunnar“ og hjónin Lene Quisten og Bjarne Andersen buðu í bæinn og brostu leyndardóms- full þegar spurt var kurteislega hvar listaverkið væri. Það fannst þó fljótt, hurð í hálfa gátt, sem ekki var hægt að opna hvernig sem reynt var. Innan úr herberginu bárust dularfullir tónar og barnalegar teikningar þöktu veggina að því er best var séð. Hvað innandyra var verður ekki upplýst. Gestirnir gátu hins vegar huggað sig við kaffi og súkkulaðikökur og spjallað við listamanninn og húsráðendur, sem höfðu kynnst býsna vel á meðan undirbúningi og sýningarhaldi hefur staðið og kváðust þakklát fyrir þessi óvenjulegu kynni af listinni. Og það voru fleiri, því þátttakendurnir í sýn- ingunni vilja ólmir setja hana upp að nýju. Hef- ur þegar verið ákveðið að setja upp Camp Höfn í Hornafirði sumarið 2002 og árið þar á eftir verður leikurinn endurtekinn í Weimar í Þýska- landi. LISTIN Í BÆINN Íslenskir, þýskir og danskir myndlistarmenn sýna inni á heimilum fólks í danska bænum Lejre. URÐUR GUNNARSDÓTTIR brá sér í bæjarferð. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Urður Steinunn Helga Sigurðardóttir myndlistarkona.Býkúpa þar sem njóta má næðis um stund. EDINBORGARHÁTÍÐIN stend- ur yfir þessa dagana, en hátíðin setur jafnan sterkan svip á skoskt menningarlíf í ágústmán- uði, og einkennist borgin af fjöl- breyttu menningarlífi nú sem fyrri daginn. Dagskrárliðir hinnar hefð- bundnu Edinborgarhátíðar tengjast eingöngu óperu, leik- ritum og tónleikum, og verður m.a. boðið upp á leikrit eftir bandaríska tónsmiðinn John Cage, auk þess sem rússneski balletdansarinn Mikhail Bar- ishnykov mun bregða sér í kjól í tilefni af uppsetningu sinni á póstmódernísku dansverki frá sjöunda áratugnum. En Bar- ishnykov, sem kominn er á sex- tugsaldur, kveðst aldrei hafa verið í betra formi. Ýmsar áhugaverðar myndlist- arsýningar er einnig að finna í borginni þessa dagana að mati dagblaðsins Sunday Times og nægir þar að nefna Konur Rem- brandts sem Scottish National Gallery safnið býður upp á, en þar má finna jafnt þekkt sem óþekkt verk meistarans, skissur og meistaraverk. Súrealistinn og ljósmyndarinn heitir sýning í skoska nútímalistasafninu á verkum safnarans og listamanns- ins Roland Penrose og ljósmynd- arans, konu hans, Lee Miller sem telja má til femínískra íkona. Og loks má nefna að Fruit- market-galleríið hýsir fyrstu sýninguna á verkum Bandaríkja- mannsins Jeff Koons, sem efnt hefur verið til í Bretlandi. Jaðardagská Edinborg- arhátíðarinnar hefur líkt og fyrri daginn vakið mikla lukku meðal gagnrýnenda og áhorf- enda, en þar má að venju finna áhugaverða grínista, m.a. John Moloney, sem hlaut Fastest Joke Turnaround verðlaunin, og Adam Bloom sem tekur rapp- arann Eminem á beinið. Einleik- urinn „Runt“ hefur vakið nokkra athygli og þykir höfundurinn og leikarinn Michael Philip Ed- wards sýna þar sannfærandi leik. Sala listaverka leyfð BANDARÍSKUR alríkisdómari dæmdi á dögunum að borg- arstjórn Rudolph Guilianis væri ekki stætt á að sekta listaverka- sala á götum New York borgar, en reglugerð borgarinnar kveð- ur svo á um að kaupa þurfi sér- stakt leyfi til að mega selja bæk- ur og listaverk á götum úti. En ákvörðun þessi er talin hafa áhrif á listamenn sem selja verk sín á götum úti, m.a. fyrir fram- an Metropolitan-listasafnið og hafa listamennirnir haldið því fram í málaferlum sínum, að reglugerðin skerði tjáning- arfrelsi þeirra. Dómur alrík- isdómarans kemur í kjölfar úr- skurðar ríkisdómstóls New York er einnig dæmdi listamönnunum í vil, en borgaryfirvöld hafa nú þegar lýst því yfir að þau muni áfrýja dómunum. Að sögn Robin Binder, lögmanns borgarinnar, er sala listaverka á götum úti bæði óviðeigandi og uppáþrengj- andi. Deila borgaryfirvalda við listamennina hefur staðið yfir frá því 1998 er reynt var að koma reglu á þann hóp götulista- manna sem safnast saman utan við Metropolitan-safnið, með því að úthluta 24 leyfum mán- aðarlega gegn 25 dollara greiðslu og með hótun um 1.000 dollara sekt fyrir sölu í leyf- isleysi. Fjölbreytt Edinborgar- hátíð ERLENT LÍTIÐ hefur verið um sýningar á íslenskum kvikmyndum í Danmörku sl. ár og því hefur því framtaki að halda íslenska kvikmyndaviku verið fagnað. Alls hafa sjö myndir verið sýndar og fara tvær þeirra í almenna dreifingu að vik- unni lokinni; Ungfrúin góða og húsið og 101 Reykjavík. Sú fyrrnefnda hefur hlotið ágæta dóma í dönsku blöðunum, sem þó kvarta undan myndmálinu, er þau segja stirt. Auk áðurnefndra mynda eru Englar al- heimsins, Ikingut, Íslenski draumurinn, Perlur og svín og Fiaskó sýndar. Þær og 101 Reykja- vík hafa hins vegar ekki hlotið umfjöllun í dönskum fjölmiðlum. Heiður hússins, eins og mynd Guðnýjar Halldórsdóttur kallast upp á dönsku, hefur vakið mesta athygli enda mætti Guðný á frum- sýninguna og hefur verið við hana rætt í stærstu blöðunum. Gagnrýnendur ljúka allir sem einn lofsorði á söguna og handritið. Þá þykir leikurinn fram- úrskarandi, einkum vekur Tinna Gunnlaugs- dóttir hrifningu fyrir túlkun sína á Þuríði. Einn gagnrýnendanna skammast þó yfir því að Svíinn Reine Brynjolfsson skuli fenginn til að leika Dana. Það sem gagnrýnendunum þykir á vanta er myndmálið og persónusköpunin, auk þess sem þeir segja hana drungalega. Gagnrýnandi danska sjónvarpsins segir myndmálið í anda Strindbergs, dimmt og gamaldags. Í Jyllands- Posten segir að myndin sé „mun fremur áhugaverð, vegna efnisins... en velheppnuð, því leikstjóranum tekst ekki alltaf að færa vanda- málin nálægt áhorfandanum, svo honum finn- ist þau koma sér við. Sálfræðin er götótt og það vantar betri umhverfislýsingar...Engu að síður fylgist áhorfandinn með af áhuga og þeg- ar myndin er best... grípur hún mann. En heildin er ójöfn“. Gagnrýnandi Berlingske Tidende er á svip- uðum nótum, segir leik Tinnu og Ragnhildar Gísladóttur frábæran. Myndin sé virðulegt og siðprútt melódrama þar sem harmleikurinn sé undirstrikaður með tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar. „Sagan er á stundum við það að kafna í dapurlegum hátíðleik sínum en rétt eins og skörp lýsing á skelfilegri konu, sem er reiðubúin að gera hvað sem er til að verja félagslega stöðu sína, býr Heiður hússins yfir reiði og hörku.“ Danir ánægðir með Ungfrúna góðu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Jim Smart Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson fara með aðalhlutverk í Ungfrúnni góðu og húsinu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.