Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Page 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 ÁR HVERT býður Reykjavíkurborgeinu sveitarfélagi að gerast sérstak-ur gestur menningarnætur og í árer röðin komin að Hornafirði. Meg- inviðburður fjölbreyttrar dagskrár þeirra Hornfirðinga á menningarnótt er án efa opn- un sýningar á verkum eftir Svavar Guðnason í eigu sveitarfélagsins Hornafjarðar, heimahér- aðs listamannsins. Sýningin verður í Grófar- húsinu við Tryggvagötu og verður opnuð kl. 16 á morgun. Myndirnar sem eru til sýnis eru hluti af gjöf Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars, en á und- anförnum árum hefur hún afhent sveitarfélag- inu fjölda mynda eftir eiginmann sinn. Einnig hafa vinir þeirra hjóna gefið margar myndir til eignar fyrir milligöngu Ástu. „Það verður ákaflega stór stund fyrir okkur að geta komið með svo stóran listviðburð til Reykjavíkur, enda er þessu venjulega öfugt farið,“ segir Gísli Sverrir Árnason, forstöðumaður Menn- ingarmiðstöðvar Hornafjarðar, sem stendur fyrir sýningunni í samvinnu við Borgarskjala- safn Reykjavíkur. Í kringum fimmtíu af þeim tæplega hundrað myndum sem sveitarfélagið hefur eignast á undanförnum árum verða til sýnis og er þar um að ræða verk af marg- víslegum toga og frá ólíkum tímum í ferli Svavars. „Það verður ekki mikið um þessi stóru olíumálverk sem Svavar er kannski þekktastur fyrir, en þó eru nokkur slík, bæði stór og lítil. Að miklu leyti er um að ræða ým- iss konar myndir, s.s. vatnslitamyndir, túss- og krítarteikningar og skissur. Þannig má segja að sýningin gefi nokkuð gott sýnishorn af öllum ferli Svavars og að safnið sem slíkt sé mikilvægt innlegg í rannsóknir á sögu og verkum listamannsins.“ Á sýningunni er að finna talsvert af mynd- um sem ekki hafa komið áður fyrir sjónir al- mennings. „Í gjöfinni sem Ásta bætti við safn okkar á þessu ári eru að mínu viti margar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður. Þannig að við erum sannarlega að koma með eitthvað alveg óvænt inn í menningarnóttina.“ Dagskrá Hornfirðinga á menningarnótt hefst kl. 14 með ávörpum borgarstjóra Reykjavíkur og bæjarstjóra Hornafjarðar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Segir Gísli dagskrána, sem felur m.a. í sér söng karlakórsins Jökuls, kynningu á ýmiss konar starfsemi bæjarins og upplestur á ljóðum Þórbergs Þórðarsonar, miða að því að gefa sýnishorn af því besta sem héraðið hefur að bjóða, bæði í náttúru og menningu. „Auk þess að reyna að gefa mynd af menningarlífi bæjarins og þeirri uppbygg- ingu sem á sér þar stað um þessar mundir minnum við einnig á hina tvo miklu andans menn úr sögu héraðsins, þá Svavar Guðnason og Þórberg Þórðarson. Þá ákváðum við að taka með okkur örlítið sýnishorn af Vatnajökli sem gnæfir hér yfir byggðinni. Við tókum um tíu tonn af klaka úr jöklinum, sem verið er að flytja til Reykjavíkur, og verður „Vatnajök- ull“ þannig afhjúpaður kl. 11 á morgun við að- alinngang Ráðhússins.“ Um kvöldið mun Al- bert Eymundsson bæjarstjóri bjóða Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra upp á dálitla kennslu í Hornafjarðarmanna í Ráð- húsinu. Það er gamalt hornfirskt spil sem Al- bert hefur verið mikill frumkvöðull í að end- urvekja. Síðan mun hverjum þeim sem þora bjóðast að spila manna við Albert,“ segir Gísli að lokum. Sýningin á verkum Svavars Guðnasonar í Grófarhúsinu verður opin milli kl. 13 og 17 og stendur til 9. september. Veglegt framlag Hornfirð- inga til menningarnætur Morgunblaðið/Jim Smart Inga Jónsdóttir, formaður menningarmálanefndar Hornafjarðar, og Gísli Sverrir Árnason, for- stöðumaður menningarmiðstöðvarinnar, voru önnum kafin við að stilla upp fyrir sýningu á verk- um Svavars Guðnasonar í Grófarhúsinu við Tryggvagötu í gær. SÝNING á steinþrykkjum, sem öll eru unnin á grafíkverkstæði í Þórs- höfn í Færeyjum, verður opnuð í dag, laugardag kl. 18 í sal félagsins Íslensk grafík í Tryggvagötu 17. Sýningin er fyrsti vísirinn að sam- starfi á milli félagsins Íslensk grafík og verkstæðisins í Færeyjum en fyr- irhuguð er sýning á vegum félagsins árið 2003 í Listasafni Færeyja. Grafíska verkstæðið er rekið í tengslum við Listasafn Færeyja og staðsett í lystigarðinum í Þórshöfn. Margir kunnir listamenn hafa verið gestir verkstæðisins og starfað að list sinni í Þórshöfn. Bárður Ják- upsson, forstöðumaður Listasafns Færeyja, og Jan Andersson, stein- þrykkjari grafíkverkstæðis Færeyja, hafa valið verk 10 listamanna á þessa sýningu. Þeir eru Bárður Ják- upsson, færeyskur málari og rithöf- undur, Roj Friberg, sænskur málari, grafíker og leikmyndahönnuður, Per Kirkeby, danskur prófessor, málari, grafíker og myndhöggvari, Poul Anker Bech, danskur málari, Jesper Christiansen, danskur málari og Olivur við Neyst, Kári Svensson, Tórbjörn Olsen, Hansina Maria Iver- sen, og Rannvá Kunoy, sem öll eru færeyskir málarar. Jan Andersson forstöðumaður verkstæð- isins hefur ríflega aldarfjórðungs reynslu af vinnu með þekktum listamönnum. Jan flutti árið 1999 ásamt Fríðu Brekku frá verkstæði sínu í Hjörring í Danmörku til Þórshafnar í Færeyjum. Sýningin er styrkt af menningarnótt Reykjavíkur og Samstarfssjóði Nuuk - Reykjavík - Tórshavn. Sýningarsalurinn í Tryggvagötu 17 er op- inn fimmtudaga til sunnudaga kl 14 - 18 og sýningin stendur til 9. september. Andlegt fóður frá Færeyjum Steinþrykk eftir Danann Per Kirkeby, unnið á Grafik- verkstaðnum í Þórshöfn. TVÆR sýningar verða opnaðar í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14–16 í dag, laugardag, kl. 16. Annars vegar málverkasýning Soffíu Sæ- mundsdóttur í Rauðu stofunni og hins vegar sýning á ljósmyndum Ragnars Th. Sigurðs- sonar í Ljósafold og opnuð þar með ný ljós- myndadeild í Galleríi Fold. Sýninguna nefnir listamaðurinn Að Fjallabaki, en myndirnar tók Ragnar í sumar. Soffía lauk prófi frá Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands úr grafíkdeild árið 1991. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Sýning Soffíu nefnist Kveðjustund, en Soffía er um stundarsakir flutt til Bandaríkjanna. Ragnar Th. stundaði nám í ljósmyndun í Svíþjóð og í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann rekur Ljósmyndasafnið Arctic Images, en í því eru meira en 130.000 ljósmyndir sem hann hefur tekið. Sýningarnar standa til 9. sept- ember. Gallerí Fold er opið í dag, laugardag, kl. 10– 14 og 16–1 aðfaranótt sunnudagsins 19. ágúst, en síðan lokað þann dag. Annars er opið dag- lega frá kl. 10–18, laugardaga til kl. 17 og sunnudaga frá kl. 14–17. Eitt af verkum Ragnars Th. Sigurðssonar í Galleríi Fold. Ljósmyndir og mál- verk í Galleríi Fold FYRSTA útilistaverk „Listamannsins á horn- inu“, verður afhjúpað á menningarnótt kl. 22 á túninu fyrir neðan Lindargötu, rétt við Frakkastíg. Verkið nefnist Kraftaverkið og er eftir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. Atburðarásin á sér stað í gegnum myndband, hljóðverk og samsetningu. Sif útskrifaðist frá School of Visual Arts í New York vorið 2000 og hefur tekið virkan þátt í myndlistarlífi Reykjavíkur síðastliðinn vetur. „Listamaðurinn á horninu er röð sýninga á útilistaverkum eftir ýmsa listamenn bæði ís- lenska og erlenda. Með hugmyndinni er ætl- unin að hreyfa við viðteknum hugmyndum um samspil lista og samfélags og leita nýrra leiða til að virkja listamenn til mótunar á sínu nán- asta umhverfi,“ segir Gabríela Friðriksdóttir en hún er umsjónarmaður verkefnisins ásamt Ásmundi Ásmundssyni. Á opnuninni í kvöld gefst áhorfendum kost- ur á að upplifa myndband og hljóðverk auk gjörnings en samsetningin eða hið tímabundna útilistaverk er hægt að skoða alla daga frá opn- unardegi til 1. september. „Þetta verður nokk- urs konar útibíó, leikvangur fyrir skúlptúr og hljóð. Verkið getur komið áhorfendum á óvart en ekki er hægt að gefa upp nákvæmlega hvað gerist á þessari örlagaríku tíundu stundu á menningarnótt,“ segir Gabríela. „Kraftaverkið“ í heild sinni verður endur- tekið á sama stað og tíma, hinn 25. ágúst. Menningaborgarsjóður styrkir verkefni Listamannsins á horninu. Hluti útilistaverksins Kraftaverk. Leikvangur fyrir skúlptúr og hljóð L IST IR Á MENNINGARNÓTT

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.