Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001 15 MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur – frá býli til borgar. Til 31.8. Árnastofnun: Handritasýning opin 11– 16 mánudaga–laugardaga. Til 25.8. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug vígaferli og götulíf víkinganna í York. Til 1. okt. Borgarskjalasafn Reykjavíkur: Svavar Guðnason. Til 9. sept. Galleri@hlemmur.is: Guðrún Vera Hjartardóttir. Til 9.9. Gallerí Hringlist, Keflavík: Sæmundur Gunnarsson. Til 25.8. Gallerí Reykjavík: Árni Rúnar Sverris- son. Til 5.9. Díana Hrafnsdóttir. Til 25.8. Gallerí Sævars Karls: Steinunn Þórar- insdóttir. Til 30.8. Hafnarborg: Margrét Reykdal. Hans Malmberg. Til 27.8. Hallgrímskirkja: Valgarður Gunnars- son. Til 31.8. i8, Klapparstíg 33: Max Cole og Thomas Ruppel. Til 15.9. Íslensk grafík: Steinþrykk frá Færeyj- um. Til 9.9. Listasafn Akureyrar: Per Kirkeby. Hekla Dögg Jónsdóttir. Til 16.9. Listasafn ASÍ: Sjö myndlistarmenn. Til 2.9. Listasafn Borgarness: Helgi Þorgils. Til 7.9. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14–17. Listasafn Íslands: Andspænis nátt- úrunni. Til 2.9. Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn: Svipir lands og sagna. Til 10.2. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Erró. Til 6.1. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Flogið yfir Heklu. Miðrými: Gretar Reynisson. Til 19.8. Austursalur: Jó- hannes S. Kjarval. Til 31.5. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hefð og nýsköpun. Til 30.9. Listhús Ófeigs: Kristín Sigfríð Garðars- dóttir. Til 29.8. Ljósaklif, Hafnarfirði: Hreinn Frið- finnsson. Til 13.9. Man-sýningarsalur: Ragna Leósson og Gabríel Filippusson. Til 21.8. Mokkakaffi: Kristinn Már Ingvarsson. Til 4.9. Norræna húsið: Ljósmyndir Hendriks Relve. Til 23.9. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagna- myndir Ásgríms. Til 1.9. Sjóminjasafn Íslands: Grænlenskur tré- skurður. Til 2.9. Skálholtskirkja: Anna Torfad. og Þor- gerður Sigurðard. Til 31. des. Stöðlakot: Ljósálfar í Skuggahverfi. Til 26.8. Þjóðarbókhlaða: Stefnumót við íslenska sagnahefð. Til 15.9. Brúður Sigríðar Kjaran. Til 15.9. Magnea Ásmundsdótt- ir. Til 1.9. Þjóðmenningarhúsið: Skjöl frá Þjóð- fundinum. Til 15. okt. Landafundir og ragnarök. Upplýsingamiðstöð myndlistar:www.- umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Hallgrímskirkja: Orgelleikarinn Stefan Engels. Kl. 21. Sunnudagur Hallgrímskirkja: Stefan Engels. Kl. 20. Þriðjudagur Langholtskirkja: Gospelsystur Reykja- víkur. Hjómsveit og Egill Ólafsson. Kl. 20 og kl. 22. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Jón Sigurðsson. Kl. 20:30. Fimmtudagur Hafnarborg: Þóra Björnsdóttir, Örvar Már Kristinsson og Ólafur Vignir Al- bertsson. Kl. 20. Hallgrímskirkja: Guðrún Lóa Jónsdótt- ir og Sigrún Magnea Þórstreinsdóttir. Kl. 12. Salurinn, Kópavogi: Atónal-hópurinn. Kl. 20:30. LEIKLIST Borgarleikhúsið: Wake me up, 19. ágúst. Nýlistasafnið: Heimildaleikurinn Venju- lega kona., 18, 19. ágúst. Iðnó: Light Nights, 19., 20. ágúst. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvu- pósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt- ar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U ÞAÐ er 13 manna hópur leikhússástríðu-fólks sem stendur að stofnun leikhúss-ins sem hlotið hefur nafnið Vesturport.Ungur leikstjórnarnemi, Egill Heiðar Anton Pálsson, stýrir verkinu en leikarar eru Nanna Kristín Magnúsdóttir og Víkingur Kristjánsson. Blaðamaður hitti leikarana tvo ásamt Magn- úsi Þór Þorbergssyni dramatúrg í stuttu hléi milli strangra æfinga og undirbúnings, en öll eru þau hluti af hópnum sem stendur að baki Vesturporti. „Við höfum komið þessu upp á mjög stuttum tíma og má segja að undirbún- ingur aðstöðunnar og æfingar hafi runnið nokkuð saman. Við þurftum til dæmis stundum að vinna í alveg massífri lakklykt, sem ég held reyndar að hafi haft mjög góð áhrif á uppsetn- inguna. Nanna fór að minnsta kosti alveg á flug í eitt skiptið,“ segir Víkingur stríðnislega og hin hlæja. Diskópakk er hrátt, áleitið verk um tvo ung- linga, Svín og Písl, sem ætla sér að fagna 17 ára afmælisdeginum sínum á eftirminnilegan hátt í fremur litlausum heimabæ sínum sem gengur undir nafninu Beikonbær. Kvöldið fer hins vegar öðruvísi en ætlað var þegar þau þurfa að takast á við tilfinningar sem eiga erf- itt uppdráttar í hröðum og ofbeldisfullum heimi þeirra. „Svínn og Písl lifa algerlega í sín- um eigin heimi, í nokkurs konar sápukúlu þar sem þau ein skipta máli og ríkja eins og kóngur og drottning. Þau fæddust á sömu fæðingar- stofu, nánast á sama augnabliki, og tengdust þá strax nánum böndum,“ útskýrir Magnús. Nanna Kristín bendir á að leikritið lýsi síðan ákveðnum tímamótum í lífi persónanna. „Þau verða sautján ára og eiga allt í einu að vera orðin fullorðin. Písl uppgötar þrá sína eftir ein- hverju öðru og meiru en Beikonbær hefur upp á að bjóða, hana langar að víkka sjóndeild- arhringinn, en Svínn heldur fast í þeirra gömlu venjur.“ „Enda er erfitt að yfirgefa sápukúl- una, að skilja við þann heim sem þau hafa skapað sér og er bara einn stór leikur. Þannig hafa þau ýtt sannleikanum og staðreyndunum frá sér en þurfa nú að horfast í augu við þær,“ bætir Víkingur við. En hvernig varð þetta verk fyrir valinu sem byrjunarverkefni Vesturports? „Við fengum hreinlega áhuga á þessu verki, það er kröftugt og hentar vel því sem við erum að reyna að gera hérna í leikhúsinu,“ segir Nanna. „Ég held kannski að þetta sé hópur sem er að leita að einhverju sem talar meira til hans en það sem gengur og gerist í leikhúsinu. Þetta verk fjallar um ungt fólk og er skrifað af ungum höf- undi, þannig að það talaði strax til okkar,“ bæt- ir Magnús við. Víkingur segir verkið einnig hafa ákveðna sérstöðu, þar sem það sé ákaf- lega „leikhúslegt“. „Höfundurinn leikur sér markvisst með sjálft formið, sjálfa nærveru leikhússins, í stað þess að reyna að skapa ein- hvers konar raunveruleikalíkingu. Þess vegna er mjög gaman að vinna með þetta stykki því það kallar á að möguleikar leikhússins séu nýttir til hins ýtrasta.“ Hópurinn ætlar að halda tvær sýningar á Diskópakki á menningarnótt. Frumsýning verður kl. 18 og önnur sýning kl. 21. Milli kl. 14 og 16 verður jafnframt opið hús þar sem gest- um og gangandi gefst kostur á að líta inn í Vesturporti, skoða aðstöðuna og fá innsýn í þá starfsemi sem þar er verið að skapa. Diskópakk verður á fjölunum öll kvöld nema mánudagskvöld fram til 6. september. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Víkingur Kristjánsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Egill Heiðar Anton Pálsson við æfingar á Diskópakki. Einkaheimur vina Á menningarnótt stígur nýtt leikhús fullskapað fram á sjónarsviðið með frumsýningu á leikverkinu Diskópakk eftir írska leik- skáldið Enda Walsh. ÞAÐ má með sanni segja að miðborgin muni iða af lífi á Menningarnótt. Hjónin og vísna- vinirnir Anna Pálína Árnadóttir og Aðal- steinn Ásberg bjóða gestum næturinnar heim í stofu til sín á Laufásvegi 64, þar sem þau munu halda þrenna tónleika, þar sem flutt verður vísnatónlist fyrir alla fjölskylduna. Hverjir tónleikar verða rúmur hálftími á lengd og hefjast klukkan 20, 21 og 22. En hvernig kom þeim þessi nýstárlega hug- mynd í hug? „Hugmyndin kom nú upp hjá okkur á síðustu menningarnótt. Þá héldum við partí í tilefni kvöldsins og var stemmn- ingin mikil. Þá datt okkur í hug að gaman gæti verið að halda tónleika hérna í stofunni. Við dóttir mín bjuggum til fána sem við ætl- um að hengja í tré hérna fyrir utan svo fólk eigi auðvelt með að finna okkur,“ segir Anna Pálína Árnadóttir söngkona. „Við höfum líka oft sagt að vísnatónlistin sé eiginlega nokk- urs konar kammertónlist. Hún krefst nálægð- ar í afmörkuðu herbergi, það má kannski kalla hana kammertónlist nútímans. Við rek- um einnig lítið fyrirtæki hérna á efri hæðinni, Dimmu, sem segja má að eigi þátt í menning- arnóttinni með þessu móti,“ bætir hún við. Anna Pálína og Aðalsteinn hafa unnið að því að flytja og gefa út vísnatónlist um tíu ára skeið, og munu þau flytja úrval af því sem þau hafa fengist við á sínum ferli. Á dagskrá eru norrænar perlur, íslenska vísnatónlist og lög eftir Aðalstein og munu börnin fá að heyra Bullutröllalagið og lög um Krúsilíus og félaga. Þá mun Aðalsteinn lesa ljóð úr ljóða- bók sinni sem út kemur í haust. „Síðan munu félagar okkar sem við höfum verið að vinna með í gegnum árin reka inn höfuðið og taka þátt í tónleikahaldinu, auk þess sem gestir geta trallað með lögunum, sem flest eru mörgum kunn. Annars munum við bara spila þetta af fingrum fram, eftir því hvaða hópur verður mættur hér í stofuna hverju sinni. En það verður bæði nýtt og gamalt efni, fyrir unga sem aldna,“ segir Anna Pálína. Sungið heima í stofu Morgunblaðið/Golli Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg munu halda tónleika heima í stofu á menningarnótt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.