Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2001, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. ÁGÚST 2001
L IST IR Á MENNINGARNÓTT
Á GÖNGU niður Laugaveginn síðlakvölds á menningarnótt fyrir tveim-ur árum heyrði undirrituð glaðbeitt-an lítinn dreng spyrja föður sinn:
„Pabbi. Hvort er eiginlega Þorláksmessa eða
17. júní?“ Ekki er furða þótt snáðinn hafi orðið
dálítið ringlaður. Stemmningin, gleðin, mann-
fjöldinn og hið virka menningar- og athafnalíf í
miðborginni sem einkennt hefur menningar-
nætur undanfarinna ára er nefnilega einstök
blanda sem erfitt getur verið að lýsa með orð-
um. Af dagskrá dagsins að dæma verður kom-
andi menningarnótt enginn eftirbátur hinna
fyrri. Hátt í eitt hundrað félög, fyrirtæki og
stofnanir og rúmlega eitt þúsund einstaklingar
hafa komið að undirbúningi menningarnætur í
ár. Því má nánast segja að eitthvað forvitnilegt
sé að finna í hverju skúmaskoti miðbæjarins.
Ógerningur er að gera grein fyrir öllu því sem
verður á seyði í dag og í kvöld og er ljóst að
hinn almenni og hraðskreiði borgarbúi mun
aðeins ná að sjá hluta af því sem í boði er. Því
er e.t.v. ráð að staldra við og velta fyrir sér
hvernig best sé að bera sig að við að njóta
menningarnæturinnar.
Tónlist í hverjum kima
Þeir sem lítið eru fyrir eru skipulagningar
geta einfaldlega rölt frá Hlemmi eða Hall-
grímskirkju, niður Laugaveginn eða Skóla-
vörðustíginn, með viðkomu í ýmsum hliðargöt-
um, húsasundum og portum og litið inn í þær
verslanir, stofnanir og fyrirtæki sem opna dyr
sínar þetta kvöld fyrir starfsemi sem varla get-
ur talist hversdagsleg. Djass í Eymundsson,
gítarleikur í Íslandsbanka, ljósmyndasýning í
Sundhöllinni og óperusöngur í Sævari Karli er
meðal þess sem menn mega eiga von á. Á leið-
inni er réttast að skoða vel í búðargluggana
þar sem ungir listamenn hafa unnið hug-
myndarík listaverk á nokkrum stöðum.
Reyndar má segja að tónlist af ýmsu tagi
muni hljóma nánast frá hverju götuhorni á
menningarnótt. Sérstakir suðupunktar verða
m.a. í Hallgrímskirkju, Grófinni, þar sem dans-
að verður á rósum, í bakgarði Gallerís Meist-
ara Jakob, á Thomsen og flestum ölkeldu- og
veitingahúsum bæjarins. Þá er aldrei að vita
hverju eða hverjum vegfarendur mæta á leið
sinni um miðborgina; Götuleikhúsi, Þvotta-
balasveit, eða leiguskáldi sem yrkir ljóð eftir
pöntun.
Börn og árrisulir
Árrisulir og markvissir borgarbúar geta
jafnframt skipulagt bæjarför sína vandlega
fyrir fram að loknu Reykjavíkurmaraþoni og
er þá ráð að leggjast vel yfir dagskrárbækling-
inn góða og gefa hinum ýmsu tónleikum,
gjörningum, opnunum og kynningum gaum
hvað tíma- og staðsetningar varðar. Ástæða er
til að minna á hinar fjölmörgu leiksýningar
ýmissa leikhúsa og leikhópa sem verða á dag-
skrá á menningarnótt.
Börnin ættu að finna eitthvað við sitt hæfi
strax upp úr hádegi. Bylgjulestin mun halda
uppi fjöri á Hafnarbakkanum þar sem loft-
glæframaðurinn IIRO mun jafnframt hrella
sjálfan sig og aðra með áhættuatriði síðar um
daginn. Sögustundir verða í Borgarbókasafn-
inu og Brúðubíllinn mun skemmta við útitaflið
síðdegis. Klukkan þrjú stundvíslega hefst rat-
leikurinn Viltu finna Blíðfinn? sem berast mun
á dularfullar slóðir með endastöð í Hljómskála-
garðinum.
Hagyrtir og taktvissir krakkar og unglingar
munu kveðast á í rímnaflæðikeppninni á Ing-
ólfstorgi rétt eftir kvöldmat og verður spenn-
andi að fylgjast með þeirri viðureign. Listræn-
ir unglingar geta staldrað við undir norður-
vegg Grófarhússins þar sem Borgarbókasafnið
býður upp á graffitíleiðsögn.
Slóð fortíðar fetuð
Listastofnanir miðborgarinnar munu bjóða
borgarbúa velkomna með ýmsum hætti og
verður víða boðið upp á leiðsögn um listsýn-
ingar. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir
umfangsmikilli dagskrá, með miðstöð í Hafn-
arhúsinu við Tryggvagötu. Þá getur myndlist-
aráhugafólk þrætt gallerí og söfn á ferð sinni
um bæinn, því víða standa yfir myndlistarsýn-
ingar, og margar verða opnaðar í dag, auk þess
sem miðborgarlistamenn opna vinnustofur
fyrir forvitnum gestum.
Sögu og fortíð borgarinnar verður gaumur
gefinn um nónbil þegar lagt verður í sögu-
göngu undir leiðsögn borgarminjavarðar frá
gamla kirkjugarðinum við Aðalstræti og um
elsta hluta borgarinnar. Í opnu húsi að Austur-
stræti 20 mun mönnum jafnframt gefast kost-
ur á að kynna sér sögu þess húss og að lokum
geta göngumenn og aðrir látið festa sig á filmu
í fortíðarbúningi í Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur. Í Stöðlakoti er jafnframt í gangi ljósmynda-
sýning sem veltir fyrir sér framtíð miðborg-
arinnar með því að beina sjónum að
Skuggahverfinu gamla sem áform hafa verið
uppi um að breyta í háhýsahverfi.
Flugeldar og söngur
Klukkan ellefu að kvöldi verður botninn
sleginn í hátíðarhöld menningarnæturinnar á
Arnarhóli og Hafnarbakkanum. Samsöngur
menningarnæturgesta undir stjórn Óperu-
kórsins og Garðars Cortes og trumbuspil slag-
verkshópsins Benda munu skapa andrúmsloft
gleði og samveru og að lokum fara flugeldar á
loft frá Faxagarði. Að því búnu geta orkumikl-
ir borgarbúar sótt tónleika eða dansleiki sem
haldnir verða á miðnætti á ólíkum stöðum.
Gleðilega menningarnótt!
Nótt menningar og
lista í borginni
Menningarnótt í miðborg Reykjavíkur, sem haldin
verður í sjötta sinn í dag, er nú orðið árvisst tilhlökk-
unarefni í borgarlífinu. HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
greinir hér frá niðurstöðum rannsóknar sinnar
á dagskrá næturinnar og gefur góð ráð.
!"
#
#
$
%&#
(
%&#
(
)
"
$& +
&
#
, &
& #
&
- -
,
$&
.
"
(
&"/
,
0
+
$& "(
,
$ & ( "
,
$1,
,
2
'
,
$
&
/
,
3
#
.
+(&
,
$
&
$/"
+
$-
#
,
2
%
1
,
#
&
&
,
,
4
,
,
+
#
+ 5
$
(
*
$
(
*
% ,
0
*
.
"
(
5
"
(
(
$& %
& (
*
,
,
,
5 , &
#
$ 0
$
*
" !#$ % &'!
! "
#
$
%&'
( )
*
+ * ' , ./0.11
heida@mbl.is
HALLGRÍMSKIRKJA mun ekki láta sitt eft-
ir liggja í listaveislunni sem framundan er á
menningarnóttinni. Fjölbreytt dagskrá verð-
ur í kirkjunni frá kl. 17 til miðnættis, til skipt-
is í sjálfu kirkjuskipinu og í safnaðarsalnum,
þar sem Kaffi Guðríðar, kaffihús Mótettukórs
Hallgrímskirkju, býður upp á veitingar.
Tónleikahald hefst í kirkjunni strax kl. 12 á
hádegi þegar þýski organistinn Stefan Engels
spilar tónlist eftir Bach, Vierne og Widor á
hádegistónleikum. Sjálf menningarnæturdag-
skráin hefst svo kl. 17, þegar sönghópurinn
Skvísurnar, sem skipaður er góðu úrvali úr
kvennaröddum Mótettukórsins, mun
skemmta sér og öðrum á heillandi hátt.
Klukkustund síðar gefst tónlistarunnendum
kostur á að heyra þrjá af efnilegustu org-
anistum landsins spila tónlist meistaranna á
Klaisorgelið stóra. Kl. 19 leika básúnuleik-
arinn Helgi Hrafn Jónsson og píanistinn Árni
Heiðar Karlsson lög úr ýmsum áttum.
Gestir frá Noregi
Góðir gestir frá Noregi eru næstir á svið,
organistinn Ann Toril Lindstad og básúnu-
leikarinn Birger Carlsen. Þau munu m.a.
leika djassballöður og norsk þjóðlög. Klukkan
21.30 ætla Margrét Sigurðardóttir og Anna
Rún Atladóttir að blanda kirkjugestum fjöl-
breyttan Menningarnæturkokkteil, og að lok-
inni helgistund kl. 22, þar sem næturgestir
geta endurnært lúin bein, mun hinn karl-
mannlegi kvartett Viri Cantantes binda enda-
hnútinn á dagskrána með fjörmiklu pró-
grammi.
Hátíð í
Hallgrímskirkju
BAROKKTÓNLEIKAR sem fyrirhug-
aðir voru kl. 21 á menningarnótt í Lista-
safni Einars Jónssonar falla niður af óvið-
ráðanlegum orsökum. Þess í stað munu
Berglind María Tómasdóttir og Krist-
jana Helgadóttir flautuleikarar flytja
blandaða dagskrá á sama tíma. Síðari
flutningur trommuverks Gunnlaugs
Briem verður kl. 21 í í Landsbankanum í
stað kl. 22. Þá láðist að geta þess að dag-
skrá í Sundhöll Reykjavíkur hefst kl. 20.
Breytingar á
dagskrá menn-
ingarnætur
ÍSLENSKA óperan
opnar dyr sínar gest-
um og gangandi á
menningarnótt. Þar
mun kór Íslensku óp-
erunnar syngja fyrir
næturgesti undir
stjórn Garðars Cort-
es, en einsöngvarar
verða þau Sigrún
Pálmadóttir sópran
og Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenór.
Þau munu flytja
vinsæla kóra, aríur og
dúetta úr óperum og
óperettum eftir Puccini, Verdi, Schubert,
Strauss o.fl. Einnig verða sungin ættjarð-
arlög sem allir þekkja og ættu gestir því að
geta tekið undir. Að lokinni dagskrá í Óp-
erunni verður gengið fylktu liði í vesturátt,
og mun kórinn ásamt Lúðrasveit verkalýðs-
ins koma sér fyrir við Stjórnarráðið gegnt
Arnarhóli þar sem Garðar Cortes mun
stjórna samsöng Menningarnæturgesta.
Dagskráin hefst kl. 20 og verður hún þrí-
tekin, svo sem flestir geti notið sönglistar-
innar í Óperunni á menningarnótt. Hverjir
tónleikar standa í
fjörutíu mínútur og
hefjast á heila tíman-
um, þ.e. kl. 20, 21 og
22.
„Við höfum staðið
fyrir óperuveislu af
þessu tagi alveg frá
fyrstu menningar-
nótt,“ segir Garðar
Cortes. „Það má
segja að dagskráin
verði skemmtilegri
með hverju árinu, og
er þetta nú orðinn
einn af hápunktum
hins blómstrandi starfs Óperukórsins. Inn-
andyra ætlum við sem sagt að bjóða til op-
innar óperuveislu og þar verður textum
dreift meðal gesta og nokkur lög sungin í
samsöng. Um ellefuleytið munum við síðan
ganga syngjandi út, niður Ingólfsstrætið og
Hverfisgötuna að Stjórnarráðinu, þar sem
mannfjöldinn bíður vafalaust eftir okkur,
tilbúinn að hefja upp raust sína í allsherjar
samsöng við undirleik lúðrasveitar,“ segir
Garðar. Það má því vænta skemmtilegs
kvöld í Óperunni á menningarnótt.
Óperuveisla og
samsöngur
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Sigrún
Pálmadóttir