Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.2002, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 2. MARS 2002 15 l i s t a s a f n k ó p a v o g s gerðarsafn, hamraborg 4 , kópavogi 9 . febrúar–3. mars 2002 opnunartímar: þriðjudagur–sunnudagur kl . 11–17 leiðsögn: guðbjörg kristjánsdóttir , forstöðumaður fimmtudagur, laugardagur og sunnudagur kl . 15 aðgangur ókeypis www.carnegieartaward.com MYNDLIST Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn- ing opin þri.- fös. 14-16. Til 15.5. Galleri@hlemmur.is: L. Pérez de Siles de Castro og Ólafur Á. Ólafsson. Til 2.3. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Daði Guð- björnsson. Til 24.3. Gallerí Reykjavík: Guðfinna Hjálmars- dóttir. Til 20.3. Ingibjörg Klemenzdóttir. Til 12.3. Gerðarsafn: Carnegie Art Award.Til 3.3. Gerðuberg: Þetta vil ég sjá – Eva María Jónsdóttir. Til 23.3. Hafnarborg: Svifið seglum þöndum. Sverrissalur: Skipamódel Gríms Karls- sonar. Til 8.4. Hallgrímskirkja: Sigtryggur Bjarni Baldvinsson. Til 20.5. i8: Helena Hietanen. Til 2.3. Íslensk grafík: Guðný Björk Guðjóns- dóttir. Til 24.3. Langholtskirkja: Kristján Davíðsson og Ásgerður Búadóttir. Til 23.4. Listasafn Ak: Sigurjón Ólafsson. Vest- ursalur: Katrín Elvarsdóttir. Til 7.4. Listasafn ASÍ: Inga Sólveig Friðjóns- dóttir, ljósmyndir. Gryfja: Íris Elfa Frið- riksdóttir. Til 10.3. Listasafn Borgarness: Björg Örvar, Gunnar Karlsson, Jón Axel Björnsson og Valgarður Gunnarsson. Til 3.4. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug- ardaga og sunnudag kl. 14-17. Listasafn Íslands: Úr eigu safnsins – fjórar sýningar. Til 14.4. Finnbogi Pét- ursson. Til 14.4. Listasafn Rvíkur - Hafnarhús: Bernd Koberling. Til 3.3. Breiðholtið. Til 5.5. Listasafn Rvíkur - Kjarvalsstaðir: Aust- ursalur: Jóhannes S. Kjarval. Til 31.5. Innsetning Hannesar Lárussonar. Hall- steinn Sigurðsson og Þór Vigfússon. Til 1.4. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Kyn- legir kvistir. Til 5.5. Listasalurinn Man: Ingibjörg Hjartar- dóttir, Kristín J. Guðmundsdóttir og Re- bekka Gunnarsdóttir. Til 10.3. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Guð- mundur Ingólfsson. Til 24.3. Norræna húsið: Norræna vatnslitasafn- inu. Til 24.3. Húðflúr. Til 17.3. ReykjavíkurAkademían: Hjálmar Stef- ánsson. Til 3.4. Straumur: Bjarki Reyr Ásmundsson og Arsineh Houspian. Til 3.3. Þjóðarbókhlaða: Gerla. Til 8.3. Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og ragnarök. TÓNLIST Laugardagur Borgarleikhúsið: Caput. Kl. 15.15. Salurinn: Blásarasveit Reykjavíkur og strengjakvartett. Kl. 17. Ýmir: Laugardagskvöld á Gili: Kl. 22. Sunnudagur Norræna húsið: Jonas Larsson slag- verk. Kl. 17. Laugarneskirkja: Kammersveit Nýja tónlistarskólans. Kl. 20. Íslenska óperan: Signý Sæmundsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Fríða Sæ- mundsdóttir. Kl. 12.15. Miðvikudagur Norræna húsið: Auður Hafsteinsdóttir, Nína Margrét Grímsdóttir. Kl. 12:30. DANS Borgarleikh: Íslenski dansflokkurinn: Through Nana’s eyes, Lore, lau., fim. Bylting hinna miðaldra, mið. frums. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Jón Oddur og Jón Bjarni, frums. lau. Anna Karenina, fim., fös. Syngjandi í rigningunni, lau. Með fulla vasa af grjóti, lau., sun., fim., fös. Hver er hræddur við Virginíu Woolf, lau., sun., fim., fös. Karíus og Baktus, sun. Borgarleikhúsið: Boðorðin 9, sun. Með vífið í lúkunum, fös. Fyrst er að fæðast, lau., sun., fim. Jón Gnarr, fös. Common Couple, sun. Píkusögur, lau., fös. Gest- urinn, lau., fös. Íslenska óperan: Leikur á borði, lau., fös. Möguleikhúsið: Prumpuhóllinn, sun. Skuggal., mið. Hafnarfjarðarleikhúsið: Rauðhetta, lau., sun. Vesturport: Lykill um hálsinn, frums. lau. Sun., fim., fös. Nemendaleikhúsið: Íslands þúsund ár, lau. Leikfélag Akureyrar: Slavar, lau. Gull- brúðkaup, sun. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is SÝNING á Diabolus, verki Finnboga Péturs- sonar, verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, laugardag. Verkið hannaði hann og smíðaði fyrir íslenska sýningarskálann á myndlistar-tvíæringnum í Feneyjum á Ítalíu 2001 en þar var hann fulltrúi Íslands. Diabolus er innsetning í formi hljóð- skúlptúrs. Í öðrum enda verksins eru org- elpípa og hátalari sem geta myndað tóninn (diabolus in musica) sem kaþólska kirkjan bannaði um skeið á miðöldum. Finnbogi Pétursson (f. 1959) menntaðist í myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og Jan van Eyck Akademie í Maas- tricht, Hollandi. Hann hefur lagt sérstaka stund á gerð hljóðverka sem hann kallar oft „teikningar“ eða „skúlptúra“ í loftinu. Sýningunni lýkur 14. apríl. Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Ókeypis aðgangur er á miðvikudögum. Morgunblaðið/Ásdís Finnbogi Pétursson inni í verki sínu. Innstir eru hljóðgjafarnir tveir. „DIABOLUS“ Í LISTA- SAFNI ÍSLANDS S ÆNSKI slagverksleikarinn Jonas Larsson kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu á morgun, sunnudag, kl. 17. Á efnisskrá eru sex verk eftir fimm höfunda, þar af þrjú frumflutt. „Það er svo merkilegt að öll tónskáldin þrjú verða viðstödd,“ segir eitt tónskáldanna sem fær verk frumflutt, Áskell Másson, en hin eru Bandaríkjamað- urinn Stuart Saunders Smith og Svíinn Fred- rik Österling. „Það er ekki á hverjum degi að það gerist.“ Að auki leik- ur Jonas verk eftir James Tenney og Frank Cox. Að sögn Ás- kels setti Jonas efnisskrána saman sérstak- lega fyrir þessa tónleika en sér- staða hans er nokkur í heimi slagverksins. „Hann er þekktur fyrir að leika gjarnan verk sem eru alveg einstaklega erfið í flutn- ingi og taka langan tíma í æfingu og vinnslu. Að því leytinu til er þetta mjög sér- stök efnisskrá. Þetta er efnisskrá sem er harla ólíklegt að við fáum að heyra einhvern annan spila,“ segir Áskell. Aura nefnist verk Áskels sem frumflutt verður á morgun. „Aura þýðir útgeislun og þetta er alveg glænýtt verk, samið um síð- ustu jól. Nafnið er í takt við viðfangsefnið en verkið er skrifað fyrir klukkuspil og crotales, sem eru litlar bjöllur. Það er heil- mikið að gerast í þessu verki.“ Hreifst af leik Jonasar Fundum Jonasar og Áskels bar fyrst saman í háskólabænum Akron í Bandaríkj- um fyrir sléttum fjórum árum. „Ég hafði unnið með landa hans og félaga Roger Carlsson í mörg ár en þekkti ekki til Jonas- ar áður. Það var hins vegar afskaplega gam- an að kynnast honum. Hann var þarna með kynningu og tónleika, þar sem hann lék ein- mitt nokkur einstaklega erfið verk eftir ýmsa höfunda, meðal annars Stuart Saund- ers Smith. Ég hreifst strax af leik hans og við fórum að ræða málin. Ég á geysilega stórt og erfitt verk sem heitir Sónata fyrir slagverk, fyrir einn spilara og fjöldan allan af hljóðfærum, og hann sýndi því strax mik- inn áhuga. Eitt leiddi af öðru og við ákváðum að ég semdi nýtt verk sem að ein- hverju leyti yrði byggt á sónötunni. Það er Aura.“ Jonas leikur annað verk eftir Áskel á tón- leikunum, Prim. „Það verk var samið fyrir Gert Mortensen og hefur verið leikið mörg hundruð sinnum og er vel þekkt meðal slag- verksleikara. Prim hefur líka verið kennt í tónlistarháskólum víða um heiminn. Allir konunglegu skólarnir á Norðurlöndum kenna það og sömuleiðis mjög margir há- skólar í Bandaríkjunum og einhverjir í Evr- ópu.“ Áskell þekkir Fredrik Österling ekki en kynntist Stuart Saunders Smith í Banda- ríkjunum. Eiginkona hans rekur útgáfufyr- irtæki, Smith Publications, sem hefur gefið út tvö verka Áskels. „Ég þekki þau fyrst og fremst í gegnum þessa útgáfu.“ Smith-hjónin eru bæði slagverksleikarar og að sögn Áskels semur Stuart einkum og sér í lagi fyrir slagverk. Tónleikarnir eru styrktir af Sænsk-ís- lenska samstarfssjóðnum og Svenska riks- konserter en þeir eru haldnir í samvinnu við Vetrarhátíðina í Reykjavík. Slagverksleikarinn Jonas Larsson á tónleikum í Norræna húsinu SÉRSTÖK EFNISSKRÁ Jonas Larsson frumflytur þrjú verk á tónleikunum á morgun. Áskell Másson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.