Lesbók Morgunblaðsins - 24.08.2002, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.08.2002, Blaðsíða 4
U M miðjan fimmta áratug síðustu aldar vafrar ungur maður um götur New York borgar. Í staðinn fyrir að vera í skólanum er hann að fylgjast með mannlífinu. Unglingurinn kemur að sorgmæddum sölumanni í blaðsöluturni. Maðurinn lætur sig engu skipta þegar drengurinn tekur upp myndavél og smellir af honum mynd. Nokkrum dögum síðar birtist myndin á for- síðu tímaritsins Look. Ljósmyndaranum tókst að mynda tilfinningar heillar þjóðar í sorg vegna dauða Franklins Delano Roose- velts, forseta Bandaríkjanna, en fyrir vikið festist nafn ljósmyndarans í huga glöggra manna og frammistaða hans þar gaf honum tækifæri til að reyna fyrir sér í kvikmynd- um. Drengurinn var leikstjórinn frægi Stanley Kubrick (1928–1999). Hjá tímaritinu Look starfaði Kubrick í lausamennsku frá árinu 1945 allt til ársins 1951. Þá fór fyrst að kveða að leikstjóra- hæfileikum hans en á ferlinum gerði hann þrettán kvikmyndir í fullri lengd. Það er ekki ýkja mikið miðað við það hversu lengi hann starfaði við greinina, þó er sérstaklega aðdáunarvert að Kubrick gerði kvikmynd í flestum kvikmyndagreinum. Slíkt vekur þá spurningu hvort hægt sé að greina einhver sérstök einkenni eða minni í annars ólíkum kvikmyndum hans. Til að athuga það má byrja á því að líta til ársins 1979 en um mitt árið var hópur fólks að vinna við nýja kvik- mynd í EMI Elstree Studios kvikmynda- verinu við Borehamwood í Englandi. Við stjórnvölinn var Stanley Kubrick og við- fangsefnið var hryllingsmyndin The Shining (1980). Á því tímabili er leikstjórinn sagður hafa hringt í Stephen King, höfund samnefndrar bókar, en Kubrick hafði ásamt Diane John- son gert handrit kvikmyndarinnar. Hann vekur King snemma morguns með símtali sem mun hafa verið í styttra lagi. Kubrick vildi vita hvort King tryði á líf eftir dauðann og svaraði King spurningunni játandi. Ku- brick spyr þá aftur hvort það þýði að allar hryllingssögur séu á endanum bjartsýnar; hver er hryllingur dauðans ef það er líf eftir dauðann? King spyr þá Kubrick: „Stanley, hvað með helvíti?“ Kubrick svarar: „Ég trúi ekki á helvíti!“ og slítur símtalinu. Spurning Kubricks til Kings er síður en svo flókin því yfirleitt trúir fólk annaðhvort á líf eftir dauðann eða ekki. Afstaða Ku- bricks er ekki augljós en önnur spurning nokkuð skyld þessari væri hvort Kubrick hafi trúað á Guð. Það er ekki hægt að svara því með fullri vissu en eitt er víst, í kvik- myndinni The Shining (1980) leika dularfull öfl lausum hala og öll trú á skynsemi verður að engu. Þarna er á ferðinni ákveðið minni sem er ætíð sterkt í kvikmyndum Kubricks. Átök tveggja heima: Í senn ytri þættir og innra líf sálarinnar. Þetta eru ofuröfl og of- urátök; átök raunveruleika og fantasíu. Tvískiptingu þá er finna má í kvikmynd- um Kubricks má kenna við tvo heima: Venjulegan og óvenjulegan heim. Venjulegi heimurinn er oft sá heimur sem „venjulegt“ nútímafólk þekkir kannski hvað best en óvenjulegi heimurinn er hinsvegar dularfull- ur og fjarstæðukenndur. Það er heimur án reglna og ef það fyrirfinnast reglur í þeim heimi eru þær undarlegar og óskynsam- legar. Átök milli þessara tveggja heima má að einhverju leyti finna í öllum kvikmyndum Kubricks. Til umfjöllunar hér á eftir eru tvær kvik- myndir Kubricks sem virðast við fyrstu sýn nokkuð ólíkar, enda tilheyra þær mismun- andi kvikmyndagreinum, 2001: A Space Odyssey (1968) er vísindakvikmynd og The Shining (1980) er hryllingsmynd. Í þessum kvikmyndum eru þó átök tveggja heima skýr. Togstreita tveggja heima Í riti sínu The Birth of Tragedy (1967) heldur Friedrich Nietzsche því fram að í mannssálinni takist á tvö öfl. Það eru skyn- semi og tilfinningar. Í gríska goðaheiminum tákna Apollon og Díónýsus þessi öfl. Apoll- on-aflið (skynsemin) leitar jafnvægis í skipulagningu og álítur alla lífsfyllingu að finna í þessum heimi. Fylgjendur Díónýsus- ar (tilfinninga) trúðu hinsvegar á annan heim þar sem hið sanna væri að finna. Með drykkju og villtri hegðun gætu þeir komist í samband við þennan heim. Friedrich Nietzsche velur grísku goðin Apollon og Díónýsus sem tákn fyrir tvö öfl mannssálarinnar. Hagsýni og skynsemi eru tákn guðsins Apollons en í kynlegum heimi Díónýsusar ríkir brjálsemi og óstjórn. Andstæðurnar skynsemi og tilfinningar, tvö öfl sem herja á mannssálina og form tveggja heima, eru því Nietzsche hugleikn- ar. Birting þeirra í listum eru í formi raunsæis og fantasíu. Þessi kenning Nietzsches er grunnur margra fræðimanna sem skrifað hafa um þessa tvo heima. Í bók- inni The Fantastic: A Structural Approach to a Literary Genre (1987), telur Tzvetan Todorov fantasíuna vera „hikið“ sem verður þegar ekki er mögulegt að ákveða hvort at- riði í atburðarásinni gerist á raunverulegum forsendum eða yfirnáttúrulegum. Að lokum slítur lesandinn sig þó yfirleitt frá þessu „hiki“ en þá hefur hann um tvennt að velja: Ókennd (e. uncanny) eða hið undursamlega (e. marvelous). Þegar lesandinn upplifir ókenndina getur atburður verið mjög dularfullur og jafnvel ógnvekjandi en samt er hann móttækilegur fyrir forsendum raunveruleikans – fantasían er útskýrð. Hið undursamlega á sér hins- vegar stað þegar lesandinn samþykkir und- ur verksins á nýjum forsendum og jafnvel nýjum lögmálum. Þar eru atburðir ekki mót- tækilegir fyrir forsendum raunveruleikans, og nær því lesandinn fullri innlifun í heimi fantasíunnar — fantasían er samþykkt. Hin fullkomna fantasía er togstreitan sem mynd- ast milli þessara tveggja skiptinga. STANLEY KUBRICK: HÖFUNDUR TVEGGJA HEIMA E F T I R A R N A R PÁ L S S O N Í kvikmyndinni The Shin- ing (1980) leika dularfull öfl lausum hala og öll trú á skynsemi verður að engu. Þarna er á ferðinni ákveðið minni sem er ætíð sterkt í kvikmyndum Stanleys Kubricks. Átök tveggja heima: Í senn ytri þættir og innra líf sálar- innar. Þetta eru ofuröfl og ofurátök; átök raunveru- leika og fantasíu. Auk The Shining verður hér fjallað um 2001: A Space Odyssey. Stanley Kubrick 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. ÁGÚST 2002

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.