Pressan - 14.12.1989, Blaðsíða 1
Jónas Jónasson
um bókaskríftir
fyrír börn>
flmmtíu
ara
útvarps■
afmæli
o.fl.
Barnabækur hafa lengi og munu vonandi ófram
gegna veigamiklu hlutverki i bókmenntasögunni.
Þetta hlutverk er að hvetja börn til lestrar og þar
með fróðleiksöflunar, auk þess sem fullorðnir, t.d.
foreldrar, nó til barnanna með því að lesa fyrir þau
bækur.
EFTIR ÁRNA MAGNÚSSON
Börnin þurfa ekki að kunna sjálf
að lesa því hver sá sem hefur ein-
hvern tíma lesið fallega bók fyrir
barn, sem til dæmis er á leiðinni í
háttinn, þekkir þá gleði sem barnið
sýnir lesandanum.
Því miður eru þeir til sem líta á
barnabækur sem annars flokks
bækur og telja sjá ástæðu til að gera
slíku efni hátt undir höfði. Eflaust
má líka segja með sanni að á hverju
ári komi út barnabækur sem hefðu
betur sómt sér áfram í geymslu höf-
undarins, en það á ekki eingöngu
við um barnabækur heldur bækur
almennt.
En það koma líka út góðar bækur
og þar með góðar barnabækur, eftir
höfunda sem leggja sig fram við að
skrifa fallega fyrir börn.
Jónas Jónasson er líklega best
þekktur sem útvarpsmaður en hann
hefur einnig skrifað nokkrar bækur,
þar á meðal barnabækur. Það er lið-
ið hátt á annan áratug síðan út kom
eftir hann barnabók sem heitir
„Polli, ég og allir hinir ", bók sem
Jónas fékk reyndar verðlaun fyrir á
sínum tíma. Hún fjallaði um lífið í
Skerjafirðinum á árum áður og lýsti
því á sérstakan hátt; strákapörum
og góðverkum, sorg og gleði. Nú er
komin út ný barnabók eftir hann.
Gat ekki setið að-
gerðalaus í heilt ár
Blaðamaður mælti sér mót við
Jónas i útvarpshúsinu við Efstaleiti
að kvöldi dags. Þegar þangað kom
var hann í óða önn að stjórna upp:
töku á áramótagleði fyrir rás eitt. í
Jónas Jónasson, rithöfundur og útvarpsmaður, á 50 ára útvarps-
afmæli á þessu ári. „Ég hef ákveðið að hætta f byrjun árs 1992. Þá
geng ég héðan út!"
Saumastofu útvarpsins var saman
kominn fríður hópur fólks á besta
aldri — úr félagi eldri borgara.
Þarna var sungið og dansað, farið
með þulur og fleira í þeim dúr.
Á milli laga gaf Jónas sér tíma til
að tylla sér í leðursófa á Markúsar-
torgi þar sem niður í gosbrunni
heyrðist í fjarska.
— Hver eru tildrög þessurar bók-
ar, Brúdan hans Borgþórs?
,,Eg var í ársfríi í Kaupmanna-
höfn. Þegar ég hafði verið þar í svo-
lítinn tíma komst ég að því að þó ég
væri óskaplega latur væri ég ekki
svo latur að ég gæti setið aðgerða-
laus í heilt ár. Þá kom það til að
Gunnvör Braga, stórvinkona mín,
sem stýrir barna- og unglingadeild
útvarpsins, bað mig aö skrifa sögu
fyrir morgunstund barnanna, sem
flytja átti í desember. Ég ákvað að
gera þetta og byrjaöi á sögunni í
október og lauk henni í nóvember.
Eftir á fór ég svo að hugsa svolítið
um þessa sögu og við þann þanka-
gang komst ég að þeirri niðurstöðu
að það heyrðu alls ekki allir það
sem færi í loftið. Því datt mér í hug
að það væri einhver kjarni í sögunni
sem hægt væri að lesa á bók. Ég
settist niður, umskrifaði söguna og
bauð hana Æskunni, að gamni.
Þeir tóku þessu vel og því er bókin
nú komin út.
Þetta er ævintýri eins og ég vil
hafa þau. Þarna eru engir týndir
krakkar, engin undarleg hljóð, ekk-
ert ógnvænlegt. Þetta er ævintýri
eins og þau sem mér voru sögð í
Skerjafirðinum þegar ég var polli.
Það gerist í landi friðar og ástar
enda veitir kannski ekki af því að
segja börnum slikar sögur í þeim
brjálaða heimi sem við lifum í.
Þegar ég skrifaði þessa bók reyndi
ég að stilla strengi þess hljóðfæris
sem ég er — reyndi að vanda mig.
Ég lagði áherslu á að bókin yrði Ijúf
og falleg. Einn gagnrýnandi virðist
hins vegar ekki alveg vera sáttur við
stíl bókarinnar, telur kannski að
orðavalið eigi að vera samkvæmt
einhverri dagblaðsfyrirmynd en
þannig er það ekki hjá mér. Annars
er náttúrulega annarra að dæma
um árangurinn."
Slcrifa fyrir börn
eins og fólk
— Nú hefur þú ádur skrifad
barnabók. Hvers vegna þessi les-.
endahópur?
,,Það er rétt, þetta er önnur barna-
Hvað rímar
á móti orðinu ást?
Eða sögninni að ylja? Rímorðabókin er óvenjuleg
orðabók, ómissandi fyrir alla sem hafa gaman
af að leika sér- með orð og rím og skemmta
sér við að setja saman vísur. Rímorðabókin
- bók sem bendir á möguleikana og vísar
á orðið sem vantar.
IÐUNN