Pressan - 14.12.1989, Side 7
Fimmtudagur 14. des. 1989
7
Björgvin Halldórsson og gestir
ALLIR FÁ ÞÁ
EITTHVAÐ
FALLEGT
Björgvini Halldórssyni er margt til lista
lagt. Til dæmis þaö að vinna jólaplötur
sem þorri þjóöarinnar tekur tveimur
höndum. Skemmst er að minnast Skífu-
plötunnar Jólagesta sem seldist i stórum
upplögum — og selst enn. — Á Allir fá þá
eitthvað fallegt er Björgvin enn við sama
heygarðshornið. Hann syngur sjálfur á
plötunni eins og honum einum er lagið og
fær að auki til liðs við sig valinkunna gesti.
Þeirra á meðal eru Guðrún Gunnarsdóttir,
Eyjólfur Kristjánsson, Ruth Reginalds, Ari
Jónsson og Svala Björgvinsdóttir.
SKÍFAN
Síðan skein sól
ÉG STEND Á
SKÝI
Hægt og sígandi hefur hljómsveitin Síð-
an skein sól hækkaö í áliti hjá unnendum
íslenskrar dægurtónlistar. Fjórmenning-
arnir Helgi Björnsson, Eyjólfur Jóhanns-
son, Ingólfur Sigurðsson og Jakob Magn-
ússon einsettu sér að ná vel saman og
læra hver á annan áður en þeir sneru sér
af krafti að plötuupptökum. Platan Siðan
skein sól sem Skífan gaf út með þeim í
fyrra sannaði að mikíls var að vænta frá
hljómsveitinni. Og með þeirri nýju, Ég
stend á skýi, sýna piltarnir svo um munar
hvað í þeim býr.
SKÍFAN
Sjllr QsmrsM
jns Wiilltr
lltlir ismil
Silirtirhiiiii
Tómas R. Einarsson og félagar
NÝR TÓNN
Þegar Tómas R. Einarsson lagði nikkuna
á hilluna og sneri sér að kontrabassanum
eignaðist hin göfuga tónlist djassinn öfl-
ugan baráttumann á landi hér. Nýr tónn er
án efa kórónan á ferli hans. Hér leika Tóm-
as og félagar nokkra ópusa eftir hann. Og
félagarnir eru engir aukvisar í djassinum.
EyþórGunnarssonferfimum höndum um
píanóið, Pétur Östlund leikur á trommur,
Sigurður Flosason blæs í saxófón og Jens
Winther í trompet. — Platan sem djass-
unnendur taka fagnandi.
SKÍFAN
ÆVI MIN OG
SAGAN SEM
MÁTTI EKKI SEGJA
Endurminningar Björns Sv. Björnssonar,
eftir Nönnu Rögnvaldardóttur.
Þetta er ævisaga elsta sonar fyrsta forseta íslands, Sveins Björnssonar, sem
gegndi herþjónustu í Waffen-SS í síðari heimsstyrjöldinni og var m.a. fréttaritari
á austurvígstöðvunum. í kynningu forlagsins á bókinni segir m.a.:
„Er Björn Sv. Björnsson kom heim til íslands árið 1946 eftirað hafa setið í fang-
elsi í Danmörku sakaður um stríðsglæpi beið faðir hans, forseti íslands, komu
hans á Bessastöðum. Hann tók af Birni loforð um aðsegja sögu sína aldrei. Siðan
var ferill hans á styrjaldarárunum þoku hulinn.
Um hann og verk hans spunnust ótal sögusagnir manna á meðal og ekki var
minna skrafað um lausn hans úr fangelsi. Voru sögurnar sannar? Um það feng-
ust engin svör, því Björn hélt loforðið er hann gaf foreldrum sínum um að ræða
aldrei þetta tímabil ævi sinnar og hafa ekkert samband við fyrri félaga.
Ferill hans var litríkur og ævintýralegur og spor hans hafa víða legið, en jafnan
hefur þó hvílt skuggi yfir hluta af ævi hans og mörgum spurningum hefur verið
ósvarað. Eftir meira en fjörutíu ára þögn segir hann sögu sína sjálfur í fyrsta sinn
— söguna sem ekki mátti segja.
IÐUNN
MEÐ FIÐRING I
TÁNUM
— Unglingabók eftir Þorgrím Þráinsson.
Frjálst framtak hf. hefur sent frá sér bókina MEÐ FIÐRING í TÁNUM eftir Þor-
grím Þráinsson. Þetta er hans fyrsta bók.
MEÐ FIÐRING í TÁNUM er unglingasaga. Aðalsöguhetja bókarinnar, Kiddi, er
13 ára Reykjavíkurpiltur sem á sér þann draum heitastan að verða fræg knatt-
spyrnuhetja. En mörg Ijón eru í veginum. Kiddi fer í sveit og þar kynnist hánn
jafnöldru sinni, Reykjavíkurstúlkunni Sóleyju. Hann verður hrifinn af henni og
neytir allra bragða til að kynnast henni sem best. Kiddi keppir á íþróttamóti í
sveitinni og þar hittir hann fyrir Bjössa og klíku hans sem öllu vilja ráða. Á ballinu
að kvöldi gerist röð vandræðalegra atvika og Kiddi óttast að hann sé búinn að
klúðra öllu sambandi við Sóleyju.
Dvölin í sveitinni og æfingarnar gera Kidda mjög gott og þegar hann kemur
aftur til Reykjavíkur síðsumars gerast óvæntir atburðir.
Höfundur bókarinnar, Þorgrímur Þráinsson, er landskunnur íþróttamaður.
Hann hefur leikið marga landsleiki í knattspyrnu og verið fyrirliði meistaraflokks
Vals. Þorgrímur hef ur starfað sem blaðamaður um árabil og m.a. er hann ritstjórí
íþróttablaðsins.
MEÐ FIÐRING í TÁNUM er 140 blaðsíður. Bókin er prentunnin í Prentstofu G.
Benediktssonar en kápu hannaði Auglýsingadeild Frjáls framtaks hf.
FRJÁLST FRAMTAK
ÍSLENZK ÁSTALJÓÐ
Snorri Hjartarson valdi Ijóðin. í bókinni eru 70 Ijóð eftir 50
íslensk skáld, öll Ijóðin eru listaverk. Snorri Hjartarson var
einn af öndvegishöfundum íslenskrar Ijóðlistar á þessari öld.
Nafn hans tryggir vandað Ijóðaval.
Verð: 1950 kr.
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
Sálmar og kvæði - úrval
Fyrra bindið er Passíusálmarnir í útgáfu Helga Skúla Kjart-
anssonar, en síðara bindið er safn sálma og kvæða, úrval,
tekið saman af Páli Bjarnasyni cand. mag. Hallgrímur Péturs-
son er eitt mesta trúarskáld okkar fyrr og síðar, en hann orti
einnig gamankvæði, stökur, lausavísur og rímur. Einstaklega
fallegt og eigulegt ritsafn sem á erindi inn á hvert heimili.
Verð: 4975 kr.
AFLAKÓNGAR OG
ATHAFNAMENN III
I þessu síðasta bindi ritsafnsins eru stór-
fróðleg viðtöl Hjartar Gíslasonar við
útvegsmenn og skipstjóra úr öllum lands-
fjórðungum. Viðmælendur eru: Guðrún
Lárusdóttir, Hafnarfirði, Ólafur Örn
Jónsson, Reykjavík, Ingvi Rafn Alberts-
son, Eskifirði, Runólfur Hallfreðsson,
Akranesi, Örn Erlingsson, Keflavík og
Guðbjartur Ásgeirsson, (safirði. Þetta er
bók sem fjallar í máli og myndum um það
sem efst er á baugi í íslenskum sjávarút-
vegi og gefur raunsanna mynd af lífi sjó-
manna.
Verð: 2980 kr.
BÆNDUR Á
HVUNNDAGSFÖTUM
Samtalsbók Helga Bjarnasonar um
nútíma bændur, líf þeirra, búskap og
áhugamál, félagsstörf og skoðanir. Þau
sem segja frá eru: Aðalsteinn Aðalsteins-
son á Vaðbrekku, Guðrún Egilsdóttir í
Holtsseli, Pálmi Jónsson á Akri, Ólafur
Eggertsson á Þorvaldseyri, Jóhannes
Kristjánsson á Höfðabrekku og Þórólfur
Sveinsson á Ferjubakka. 120 Ijósmyndir
prýða bókina. Hún er fróðleiksnáma um líf
og störf bænda.
Verð: 3280 kr.
Br.ttó Iy»0>an**i tóksaman
LÍFSREYNSLA III
í þessu lokabindi safnsins er sem fyrr
skyggnst inn í margþætta reynslu fólks úr
öllum landshlutum. Meðal efnis erfrásögn
Sigríðar Guðmundsdóttur af hjúkrunar-
störfum hennar í Eþíópíu, sagt frá ótrúlegri
björgun Islendings úr námuslysi á Sval-
barða, frásögn Ágústu Guðmundsdóttur
sem lamaðist i mótorhjólaslysi og lýsing
Einars Sigurfinnssonar á martröð alkóhól-
istans. Einnig frásagnir af björgun úr lífs-
háska á sjó og landi. Ógleymanleg og
áhrifamikil bók.
Verð: 2980 kr.
eftirniinnilegri
og séistaeöriteynslu
HÖRPUÚTGÁFAN
Stekkjarholti 8-10, 300 Akranes
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
EB. NÝR DAGUR.