Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 8

Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 15. febr. 1990 PRESSAH VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Jónína Leósdóttir Ómar Friðriksson Bladamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Adda Steina Björnsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Ljósmyndari: Einar Ólason Útlit: Anna Th. Rögnvaldsdóttir , Prófarkalestur: Sigríöur H. Gunnarsdóttir Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi. Áskriftargjald: Pressan og Alþýöublaöiö: 1000 kr. á mánuöi. Verö í lausasölu: 150 kr. eintakiö. Berstrípadir atvinnuumsækjendur Engin sérstök takmörk eru sett í lögum fyrir því hve ítarlegra upplýsinga atvinnurekandi getur leyft sér að krefjast af atvinnuumsækjendum. í PRESSUNNI í dag kemur fram að engar reglur eru til um um hvað er spurt á umsóknareyðublöðum og er vinnuveitanda í rauninni í sjálfsvald sett hversu langt hann gengur í þeim efnum. Þá er vel þekkt að sum fyrir- tæki láta ekki svo lítið að svara þeim sem sækja um starf eða senda þeim til baka gögn sem þeir leggja fram. Fram kemur í úttekt blaðsins á þessum málum að fjöldamargt fólk í atvinnuleit skráir sig hjá ráðningar- stofum. Þar þurfa menn oft að tína til ótrúlega ítarlegar upplýsingar um sjálfa sig. Engar hömlur eru á því að slík- ar trúnaðarupplýsingar séu tölvuskráðar. Ekkert eftirlit er með því að ráðningarstofur veiti ekki vinnuveitend- um allar þær persónulegu upplýsingar sem umsækjandi gefur ráðningarstofunni í trúnaði. í reglum sem Vinnuveitendasamband íslands hefur sett segir að engar sérstakar skorður séu reistar við því um hvað sé spurt á umsóknareyðublöðum og skuli það ráðast af mati hvers og eins hvað hann telur innan marka velsæmis. Að sjálfsögðu er hverjum og einum það í sjálfsvald sett hvort hann gefur upplýsingar um sig og sína persónulegu hagi þegar hann sækir um atvinnu. En það er alvarlegt mál ef komin eru upp gagnasöfn um persónuleg trúnaðarmál víðsvegar í þjóðfélaginu, sem lúta engu eftirliti og óljósum lagareglum um kerfis- bundna skráningu upplýsinga um einkahagi fólks. í grein PRESSUNNAR kemur fram að gagnaverndar- nefnd Evrópubandalagsins hefur fjallað sérstaklega um mál af þessum toga og gert samþykktir sem hafa ekki einu sinni veriö þýddar yfir á íslensku. Hér hefur löggjaf- inn sofið á verðinum. í dag eru það aðeins almennar siðareglur sem fólk getur stutt sig við og treyst að farið sé eftir. I n JLh m Pólitísk þankabrot skrifa Birgir Árna- *■ ■ ■ ^ I son, aöstoöarmaöur viöskipta- og iön- aðarráðherra, Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, og BolliHéð- insson hagfræðingur. Fleira þarf til „Kjarasamningarnir út af fyrir sig tryggja ekki nema tímabundna hjöðnun verðbólgunnar" Það er að bera í bakkafull- an lækinn að fjalla um ný- gerða kjarasamninga en þó langar mig ti! þess að leggja nokkur orð í belg. Engir samningar sem ég man eftir hafa fengið jafnmikið lof og prís úr öllum áttum. Því mætti ætla að hér væru á ferðinni sannkallaðir krafta- verkasamningar. Svo er þó ekki þegar betur er að gáð. Meginmarkmið samning- anna er að ná verðbólgu hér niður á svipað stig og í ná- grannalöndunum í lok þessa árs. Góðar líkur eru á því að þetta takist eins og vindar blása nú í samfélaginu. Að- ferðin er hins vegar einföld og hefur verið kunn um langt árabil: Að semja um litlar kauphækkanir og halda genginu föstu yfir ákveðið tímabil. Með þessu móti fjar- ar verðbólgan út á tiltölulega skömmum tíma. Það er í raun með ólíkindum að kjara- samningar á þessum nótum hafi ekki verið gerðir fyrir löngu. En kjarasamningarnir út af fyrir sig tryggja ekki nema tímabundna hjöðnun verð- bólgunnar. Verðbólgudraug- urinn verður áfram á sveimi í íslensku efnahagslífi. Þá fela kjarasamningarnir í sér al- menna kaupmáttarrýrnun og er hún verðið sem launafólk greiðir fyrir verðbólguhjöðn- unina. Það tækifæri sem gefst á næstu tveimur árum til að tryggja varanlegan stöðug- leika í verðlagsmálum hér á landi og leggja grunn að efna- hagslegum framförum þarf að nota vel, að öðrum kosti er hætt við því að við höldum áfram að dragast aftur úr ná- grannaþjóðunum hvað lífs- kjör varðar. — o — o — Þetta er stórt og víðfeðmt verkefni sem ekki verða gerð viðhlítandi skil í stuttum pistli. Athyglin þarf að bein- ast að umbótum á eftirfar- andi sviðum: — í atvinnumálum — í gengismálum — í peningamálum — í ríkisfjármálum I atvinnumálum þarf að bæta og jafna starfsskilyrði atvinnugreina og stuðla að aukinni hagkvæmni. I sjávar- útvegi þarf að taka upp veiði- leyfasölu, hugsanlega með lækkun raungengis fyrst í stað, sem einnig myndi bæta samkeppnisstöðu innlends iðnaðar og koma á betra skipulagi í útflutningsmálum. Auka þarf athafnafrelsi ein- stakra sjávarvöruútflytjenda en jafnframt gæta að heildar- hagsmunum. í þessu sam- bandi þarf að kanna hlutverk innlendra fiskmarkaða. í landbúnaði þarf að gerbreyta um stefnu og hverfa af braut ríkisábyrgðar á framleiðslu í þessari grein. í áföngum þarf að laga innlendan landbúnað að samkeppni við innflutn- ing. Aukin samkeppni milli innlendra framleiðenda og við innflutning er árangurs- ríkasta leiðin til þess að halda aftur af matvælaverði. Ráð- ast þarf í áframhaldandi upp- byggingu orkufrekrar stór- iðju hér á landi í samstarfi við erlend fyrirtæki. Þar skiptir meira máli að úr fram- kvæmdum verði en hvar framkvæmdirnar verða. í gengismálum þarf að tryggja meiri festu en verið hefur. Yfirlýsingar stjórn- valda um að genginu verði haldið föstu hvað sem tautar og raular hrökkva skammt. Vænlegasta leiðin er að gera fast gengi að hluta af alþjóð- legum skuldbindingum ís- lendinga til dæmis með þátt- töku í evrópska myntkerfinu. Nokkur EFTA-ríki íhuga nú þennan kost og ættum við að gera það einnig. í peningamálum er brýn- asta verkefnið að opna ís- lenska fjármagnsmarkaðinn gagnvart útlöndum í sam- ræmi við þær breytingar sem eru að verða á viðskiptum með fjármagn og fjármála- þjónustu í Evrópu. Það er nauðsynlegt að íslensk fyrir- tæki fái notið fjármagnsþjón- ustu á sömu kjörum og er- lendir keppinautar og ís- lenskir sparifjáreigendur eiga að fá að ávaxta sitt fé er- lendis. Jafnframt myndi opn- un íslenska fjármagnsmark- aðarins veita ákvörðunum og athöfnum stjórnvalda mikils- vert aðhald, sem hingað til hefur skort og stuðlað að óábyrgri meðferð fjármuna. í ríkisfjármálum er fyrst og fremst við stjórnmálaleg- an vanda að etja. Það vantar skýrar línur um það hversu stóran skerf af þjóðartekjum opinber þjónusta og opinber- ar framkvæmdir eiga að taka til sín. Á alþjóðlegan mæli- kvarða virðist þessi skerfur ekki stór hér á landi en að sama skapi virðist skattþol ís- lendinga tiltölulega lítið. Hér gildir að sníða sér stakk eftir vexti og verja fjármunum skynsamlega. Fjárveitinga- vald ríkisins er í höndum Al- þingis og þar skara þingmenn hver eld að sinni köku. Ráð- herrar eru jafnan engu betri, því þeir gerast yfirleitt hags- munagæsluaðilar fyrir þá þjóðfélagshópa sem undir ráðuneyti þeirra falla. Það verður að gera meiri kröfur til íslenskra stjórnmála- manna en nú tíðkast. Þeir eiga að gæta almannahags- muna en ekki sérhagsmuna. Hér þarf að koma til breytt kosningafyrirkomulag sem tryggi að atkvæði allra kjós- enda vegi jafnt. — o — o — Þessi snubbótta upptalning á umbótaverkefnum sem sinna þarf á næstu misserum og árum er langt frá því að vera tæmandi. Þá eru þetta ekki tæknileg umbótaatriði sem allir geta orðið sammála um. Hér eru á ferðinni stór- pólitísk mál sem myndu hafa áhrif á tekjuskiptingu og bú- setu í landinu og tengsl ís- lands við umheiminn um langa framtíð. Það er til marks um þann hnút sem ís- lensk stjórnmál eru í að eng- inn flokkur eða stjórnmála- hreyfing hefur nema örfá þessara atriða á stefnuskrá sinni. Nýgerðir kjarasamningar geta orðið fyrsta skrefið í átt að nýju íslandi, en miklu fleira þarf til. Það er glund- roðinn í stjórnmálunum sem er helsti Þrándur í Götu fram- fara. hin pressan Þjóðviljinn hefur mörg líf og kemur út eftir helgi þótt Guð- rún Helgadóttir haldi annað. — Hallur Páll Jónsson, fram- kvæmdastjóri Þjóðviljans, í samtali við DV. Eggjastríð i uppsiglingu? — Fyrirsögn i Alþýðublaöinu. 4923% verðbólga á síðasta ári — Fyrirsögn á grein um efnahags- ástandið i Argentinu. timinn. Það er löngu vitað að skynsemin er kvenkyns. En getur verið að hún sé líka þingeysk? — Þrándur í Þjóðviljanum. Það þarf alls ekki að vera slæmt að vera í pels í rigningu. Sum þessara dýra eru vön að berjast við snjó og rigningu. Hefur nokkur séð mink með regnhlíf? — Úr grein um loðfeldi i Morgun- blaðinu. Hvað kostar það fjölskylduna, borgina, ríkið og mannkynið að hafa mig og alla mína ágætu þjáningarbræður og -systur sitjandi þarna í Tryggvagötunni (eða á Hring- brautinni) í rándýrum bifreið- um að íhuga tilgang lífsins í um það bil 32.400 mínútur á ári? — Ólafur Haukur Simonarson rit- höfundur i pistli í Þjóöviljanum. Persónulega treysti ég mér til að skrifa eina skáldsögu á þeim tíma á hverju ári sem ég sit fastur í einhvers konar um- ferðarlanglokum hér í Reykja- vík. — Úr sömu grein Ólafs Hauks Sim- onarsonar. Hvers á skotíþróttin að gjalda? — Fyrirsögn á íþróttasiöu DV. Peningar eru ekki ávísun á ham- ingju — en hvort sem þá ert fyrir austan eöa vestan þá gera einhverjir aurar í vasa óhamingjuna bœrilegri. — Árni Bergmann í ÞjóðviljanumT Auðvitað kann eitthvað að vera missagt um smáatriði í greininni í Heimsmynd... — Herdis Þorgeirsdóttir, ritstjóri Heimsmyndar, i svargrein sinni í Morgunblaöinu. Ég var orðin ritstjóri áður en Jón Óttar varð sjónvarps- stjóri. Ég er enn ritstjóri en hann er ekki sjónvarpsstjóri. — Herdis Þorgeirsdóttir ritstjóri i sömu svargrein. .. .get ég huggað hana með því að sneplar af þessu tagi eiga sér fjarskylda ættingja er- lendis í „blöðum" á borð við „National Enquierer" og „News of the World"... — Jón Óttar Ragnarsson í svari sinu við svargrein Herdisar Þorgeirsdótt- ur i Morgunblaðinu. Blaðamennska af þessu tagi, þar sem 90% eru heimilda- lausar gróusögur og 10% sannleikur, er .eftir því sem ég veit, einstæð í heiminum. — Jón Óttar Ragnarsson, fyrrum sjónvarpsstjóri, í samtali við Morg- unblaðið um greinarskrif HEIMS- MYNDAR. Ef Herdís heldur að hún sé sloppin þá er það misskilning- ur. — Svargrein Jóns Óttars við grein Herdisar Þorgeirsd. Morgunblaðið.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.