Pressan - 22.12.1993, Page 2
B2
PRESSAN
B O K A -
PLOTU BLA
Miðvikudagurinn 22. desember 1993
A ,< .tfl
l- A, ■) ; i ‘)j
,< .< x xxx »,-lI V.'.Y X V |'V I
? *"$ ‘‘-Sf £> c - c c «C m SyR v -x | ‘I
Kolbrún Bergþórsdóttir er
bókmenntafræðlngur og
kennarl.
Hrafn Jökulsson er rlthöf-
undur og blaðamaður.
Gunnar HJálmarsson er
tónllstarmaður.
Ólafur Haraldsson er bók-
menntafræðlngur.
Jónas Sen er tónlistarmaður.
íslensk skáldverk
Einar Már Guðmundsson: Englar alheimsins
Almenna bókafélagið
★★★★
Besta skáldsaga ársins. Einar hefur lagt í þetta verk alla
hæfileika sína, tilfinningu og þroska. Útkoman er verk sem
hittir lesandann beint í hjartastað. (KB)
Birgir Sigurðsson: Hengiflugið
Forlagið
★★★★
Brakandi snilld. Birgir hefur náð að pakka nútímanum inn
í þessa bók og það liggur við að maður segi einfaldlega takk.
(ÓH)
Guðbergur Bergsson: Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin
geyma
Forlagið
★★★★
Alveg vita siðlaus saga, en sett saman af mikilli list. Full-
þroskuð skáldsaga og aðgengileg í bestu merkingu orðsins.
(ÓH)
Gyrðir Elíasson: Tregahomið
Mál og menning
★★★★
Gyrðir hefur einstakt lag á að smíða samsetningar sem sitja
í minni manns. Hver setning gegnir því hlutverki að skapa
stemmningu. Engu er ofaukið. Listasmíð. (KB)
Bjöm Th. Bjömsson: Falsarinn
Mál og menning
★★★
Stórmerkileg saga sem er ævintýri líkust en þó sönn. Sérlega
áhugaverð og vel skriíuð bók sem ætti að höfða til stórs les-
endahóps. (KB)
Kristján Kristjánsson: Fjórða hæðin
Iðunn
★★★
Ákaflega vel heppnuð saga. Frásagnartæknin er þaulhugsuð
og vel útfærð, þannig að útkoman verður átakamikil saga
og trúverðug lýsing þess tíma og staðar sem hún fjallar um.
(ÖH)
Steinunn Sigurðardóttir. Ástin fískanna
Iðunn
★★★
Kvennabók. Ljúft millispil á rithöftmdarferli Steinunnar,
dálítið angurvær ástarsaga sem ég hef grun um að margar
konur telji sig hafe lifað. (KB)
Valgeir Guðjónsson: Tvær grímur
Mál og menning
★★
Ekki hámenningarlegur litteratúr, en sem skemmtisaga er
bókin dágóð afþreying. Valgeir á létt með að skrifa, en hann
er helstil orðmargur. (KB)
Vilborg Davíðsdóttin Við Urðarbrunn
Mál og menning
★★
Þrátt fyrir greinilega byrjendagalla er bókin mjög skemmti-
leg aflestrar og einkennist af ffásagnargleði. (KB)
Illugi jökulsson: Barnið mitt bamið
Almenna bókafélagið
★★
Yfirhöfuð vel skrifuð saga. Lýsingar og ffamvinda á hörm-
ungum em „trúverðugar“ á sama hátt og sjónvarpsfréttim-
ar. Þetta em staðlaðar hörmungar. (ÓH)
Guðlaugur Arason: Hjartasalt
Mál og menning
★★
Framhald af Pelastikki. Það gengur bókstaflega allt upp hjá
söguhetjunni og fyrir bragðið skapast lítil spenna um
heppni og óheppni, sigur eða ósigur. (ÓH)
Kristján jóhann jónsson: Patt
Lesmál
★★
Snilldarvel gerð sem formleg tilraun um skáldsögu, en
ffamvinda sögunnar er vélræn og ffásögnin eintóna. (ÓH)
Álfrún Gunnlaugsdóttir: Hvatt að rúnum
Mál og menning
★
Textinn er gerilsneyddur allri tilfinningu, einhæfur, þurr og
steríll, enda skrifaður í Norðurlandaverðlaunastílnum.
Virðist allt mjög vitsmunalegt, en ekki var það gaman. (KB)
Hannes Sigfússon: Ljósin blakta
Mál og-menning
★
Frásagnarhátturinn, óskoruð samúð söguhöfundar með
tólf öldungum, ásamt svolítið klisjukenndri kaldhæðni,
bera verðugt söguefhi ofurliði. (ÓH)
Njörður P. Njarðvílc Hafborg
Iðunn
★
Lítt effirminnileg saga. Persónusköpun er ábótavant, bygg-
ing ekki nógu markviss og stíllinn tUþrifalítill. (KB)
Rúnar Helgi Vignisson: Strandhögg
Forlagið
★
Verðug yrkisefni og ágætar hugmyndir sem höfundi tekst
þó ekki að blása nægilegu lífi í. (KB)
Sindri Freysson: Ósýnilegar sögur
Forlagið
Þetta er hreint afleit bók. Uppskrúfaðra málfar er tæplega
til í nokkrum öðrum íslenskum texta. (ÓH)
Björgúlfur Ólafsson: Kvennagaldur
Almenna bókafélagið
&
Það er sjálfsagt að gefa ungum höfundum tækifæri, en hér
er ekki vott af hæfileikum að finna. Vandræðaleg mistök ffá
upphafi til enda. (KB)
Æviminningar
jóhanna Kristjónsdóttir: Perlur og steinar — árin með
Jökli
Almenna bókafélagið
★★★★
Jóhanna er hetja þessarar bókar, bæði sem penni og per-
sóna. Henni tekst meistaralega að koma til skila því sem
hún ætlaði sér. (ÓH)
Guðjón Friðriksson: Ljónið öskrar
Iðunn
★★★★
Guðjón hefur unnið mikið affek. Söguskoðanir hans eru
trúverðugar og athyglisverðar og stíllinn vandaður og læsi-
legur. (HJ)
Jónína Michaelsdóttin Karólína
Forlagið
★★★
Ljúf lesning og listilega færð í letur. Tugir litmynda auka
gildi bókarinnar til muna. (HJ)
Gyifi Gröndal: Eldhress í heila öld
Forlagið
★★★
Endurminningar Eiríks Kristóferssonar veita heillandi inn-
sýn í veröld sem var. Sá sem ekki hrífst af ffásögninni hlýtur
að vera vel og rækilega dauður úr öllum æðum. (HJ)
ömólfur Ámason: Járnkarlinn
Skjaldborg
★★
Ljómandi læsileg og ffóðleg bók um umdeildan pólitíkus,
en helstil langdregin á köflum. (HJ)
Gyifi Þ. Gíslason: Viðreisnarárin
Almenna bókafélagið
★★
Gylfi er „grand old man“ íslenskra stjórnmála og menn
leggja við hlustir þegar hann tekur til máls. Bókin er afar
fróðleg, en fráleitt eins safarík og efni stóðu tiL (HJ)
Þorsteinn E. Jónsson: Viðburðarík flugmannsævi
Setberg
★★
Þorsteinn er asvintýramaður að upplagi og virðist margoff
hafa beinlínis lagt lykkjur á leið sína til að sneiða hjá vegi
dygðarinnar. (HJ)
Hafdis L. Pétursdóttin í viðjum vímu og vændis
Skjaldborg
★
Matthildur Jónsdóttir Campbell sýnir umtalsvert hugrekki
með því að segja sögu sína, en söguritari veldur alls ekki
viðfangsefninu. (HJ)
Jónas Jónasson: Til em fræ
Fróði
★
Textinn er lipur eins og Jónasar er von og vísa, en þessi litla
bók er ffemur í ætt tímaritsgreina en metnaðarfuUra ævi-
sagna. Það er synd. (HJ)
Gils Guðmundsson: Þegar hugsjónir rætast — Ævi Odds
á Reykjalundi
ísafold
★
Að mörgu leyti eins og hálfunnið handrit að mjög forvitni-
legri bók. Gils hefði mátt vinna betur úr heimildum. (HJ)
ómar Ragnarsson: Manga með svartan vanga
Fróði
Ómar leggur upp með sallagott efni í höndunum, en klúðr-
ar því. Hann er því miður sneyddur rithöfiindarhæfileik-
um. (HJ)
Ljóð
í andófinu—pólsk nútímaljóð
Geirlaugur Magnússon þýddi.
Hörpuútgáfan.
★★★★
Einhver ánægjulegustu tíðindi ársins fyrir ljóðavini. Það
leynir sér ekki að Geirlaugur Magnússon hefiir vandað til
verksins. (HJ)
Kristín Ómarsdóttin Þema á gömlu veitingahúsi
Mál og menning
★★★
Ljóðin em fjársjóður þeirrar náttúm að engir tveir lesendur
munu finna sömu gullin. í því er galdur Kristínar fólginn.
(HJ)
Sveinn Yngvi Egilsson: Aðflutt landslag
Mál og menning
★★★
Sveinn er mesta efni sem ffam hefur komið býsna lengi.
Galdurinn er fólginn í látlausum stílnum. Þar finna lesend-
ur ánægjuleg ævintýri. (HJ)
Eysteinn Bjömsson: Dagnætur
Norðurljós
★★★
Bók sem stendur traustum fótum í fornum kveðskap um
leið og farið er með yrkisefhin á einlægan, frjóan og lifandi
hátt. (ÓH)
Hannes Pétursson: Eldhylur
Iðunn
★★★
Afar vönduð bók, agað og vel stillt verk þroskaðs ljóðskálds,
haganlega gert að öllu leyti. Hún á effir að ffeista úr bóka-
hillunni í ffamtíðinni. (ÓH)
Jólaljóð: Gylfi Gröndal valdi
Forlagið
★★★
Ljóðin em skemmtilega ólík, bókin fjölbreytt og Gylfa hef-
ur tekist vel upp við valið á ljóðunum. (HJ)
Ferskeytlan—vísur og stef frá ýmsum tímum
Almenna bókafélagið
★★
Fullfijálslega valið efhi, en hreinar perlur-inn*n um annað
sem hefur minna skáldskapargildi. Um leið vísast lýsandi
fyrir hina einkennilega samsettu þjóðarsál. (KB)
Kristján Þórður Hrafnsson: Húsin og götumar
Almenna bókafélagið
★
Eitt gott Ijóð er næg réttlæting heillar ljóðabókar. Þessi er
vel réttlætanleg. (ÓH)
Hrólfur Sveinsson: Ljóðmæli
Mál og menning
Hrólfur er mesti leirhnoðari og bögubósi sem sést hefur
lengi. Það er ójafnt skipt skáldgáfunni milli þeirra ffænda,
Hrólfs og Helga Hálfdanarsonar.
Lausavísur frá 1400-1900
Sveinbjöm Beinteinsson safnaði
Hörpuútgáfan
Því miður bregst Sveinbimi illa bogalistin. Bókin er einn
allsheijar öskuhaugur þarsem öllu asgir saman: leirburði,
hnoði, lágkúru — og snilld. (HJ)
Aðrar bækur
Unnur Jökulsdóttir og Þorbjöm Magnússon: Kría siglir
um Suðurhöf
Mál og menning
★★★★
Heillandi ferðasaga, ákaflega skemmtileg og ffæðandi bók,
skrifuð af þekkingu og fordómaleysi. Þeir sem unna góðum
ferðasögum mega ekki missa af henni. (KB)
Handbók Epíktets
Almenna bókafélagið
★★★★
Gullkom hins grísk-rómverska heimspekings óaðfinnan-
lega þýdd af dr. Brodda Jóhannessyni, einum fárra sem hafa
fullkomið vald á íslenskri tungu. (KB)
Vetrarvirki Bjöms Th. Björnssonar: Afmæliskveðja frá
nemendum
Mál og menning
★★
Ekki mikil tíðindi ffá listffæðilegu sjónarmiði, enda nokkur
tilfinningasemi sem réð hugmyndinni að útgáfunni, ffekar
en ffæðileg eða listræn markmið. (GJÁ)
Stefán Jón Hafstein: New York, New York
Mál og menning
★★
Nokkuð trúverðug mynd af lífi utangarðsfólks í New York,
en aðalsögupersónan, Kristinn, verður svolítið útundan.
Auk þess hefði þurff mun meiri stillingu í stílinn. (KB)
Barna- og unglingabækur
Mats Wahh Húsbóndinn
Mál og menning
★★★★
Wahl kann sannarlega að segja unglingasögu; ffásögnin er
full af fjöri og spennu og lesandinn lifir sig inn í söguna.
Sérlega góð þýðing. (KB)
Einar Kárason: Didda dojojong og Dúi dúgnaskítur
Mál og menning
★★★
Skrifuð af miklu fjöri, er rík að kímni og ftill af litríkum og
effirminnilegum persónum. örugg skemmtun fyrir böm
og fullorðna. (KB)
Þórunn Sigurðardóttir: Klukkan Kassíópeia og húsið í
dalnum
Mál og menning
★★
Skemmtileg og nokkuð spennandi saga, skrifuð í einföld-
um og tilgerðarlausum stíl. Persónusköpun er trúverðug og
ýkjulaus. (KB)
Ingibjörg Einarsdóttir og Þorsteinn Erlingsson: Vá! Ástir
og átök í unglingaheimi
Almenna bókafélagið
★★
Persónumar em yfirleitt smellnar og skemmtilegar. Stíllinn
er læsilegur og off fjömgur: kjamgóð nútímaíslenska, ríku-
lega krydduð með slettum. (HJ)
Guðrún Helgadóttir: Litlu greyin
Iðunn
★★
Hefur ágætan boðskap fram að færa, en er ekki í hópi betri
verka Guðrúnar. Henni hefur off tekist betur upp í mann-
lýsingum. (KB)
Jónína Leósdóttin Sundur og saman
Fróði
★
Þessa sögu skortir bæði hlýju og dýpt. Það em ágætar hug-
myndir í henni, en það er Úla úr þeim unnið. (KB)
Gunnhildur Hrólfsdóttir: Komdu að kyssa
ísafold
★
Textinn er þokkalega lipur, en hvergi bregður fyrir skáld-
legum tilþrifum, sem svo em kölluð. Mann langar ekkert
óskaplega mikið til að hitta sögupersónumar affur. (HJ)
Iæif Esper Andersen: Brennd á báli
Mál og menning
★
Sérlega drungaleg og þunglyndisleg unglingabók, samtöl
stirð, persónur daufgerðar og engin frásagnargleði. Allt
fremur niðurdrepandi. (KB)
Þýðingar
David Lodge: Lítill heimur
Mál og menning
★★★★
Bók sem mælir með sér sjálf. Líldega skemmtilestur ársins.
(KB)
Ljudmila Petmshevskaja: ódauðleg ást
Mál og menning.
★★★★
Bók sem ætti að vekja aðdáun bókmenntaunnenda. ömgg-
ur, einfaldur og hnitmiðaður stíll. Framúrskarandi þýðing.
(KB)
Mario Vargas Llosa: Hver myrti Móleró?
Almenna bókafélagið.
★★★★
Ef ykkur finnst þið of off lesa innihaldslítil skáldverk sem
hreyfa ekki við ykkur, þá lesið þessa sögu. (KB)
Ian McEwan: Vinarþel ókunnugra
Almenna bókafélagið
★★★
Mjög sennilega það besta sem McEwan hefur skrifeð. Ekki
handa viðkvæmum sálum, en ætti að verða effirlætislesning
töfferanna í intelligensíunni. Prýðilega þýdd. (KB)
A.J. Quinnell: Blóðfjötrar
Almenna bókafélagið.
★★★
Sérlega ánasgjuleg lesning, ein fárra spennubóka sem segja
má að séu geðfelldar og notalegar. (KB)
Torgny Lindgren: Fimmfingramandlan
Mál og menning
★★★
Lindgren er ömgglega í hópi bestu sögumanna á Norður-
löndum, hugmyndaríkur og óhræddur við að staðfæra,
endurskapa og gefa gömlum goðsögum nýja og ferska
merkingu. (KB)
Plötur
Jet Black Joe: You Ain’t Here
Spor
★★★★
Vel pæld, kraffmikil og tormelt rokkplata sem vinnur vel á
og ^r allt öðmvísi en aðrar plötur sem koma út um jólin.
Aldrei þessu vant kemur íslensk hljómsveit á óvart. (GH)
Sigurður Flosason: Gengið á iagjð
Jazzís / Japis
★★★★
Það er mikill fengur að þessari plötu. Lagasmíðarnar em
flestar mjög heilsteyptar og á köflum gullfellegar. (GH)
Rabbi: Ef ég hefði vængi
R músík / Japis
★★★★
Rabbi er í fremstu línu sem persónulegur og frábær laga-
smiður. Vandað popp og heildartónninn sterkur. (GH)
Yukatan: Safiiar guðum (safiiar frímerkjum)
Smelddeysa / Japis
★★★
Helvíti fin plata! Neðanjarðarrokk, andsnúið viðteknum
poppgildum og á litla möguleika á almennri athygli eða
spilun á Bylgjunni. (GH)
Blásarakvintett Reykjavíkun Verk eftir Barber og Beach
Chandos
★★★
Ákaflega vandað og vel spilað en líka fullvandað og var-
fæmislegt á köflum. (JS)
KK band: Hotel Föroyar
Bein leið / Japis
★★★
Góð plata og skemmtileg. Nóg af hinum létta KK-filingi, en
einnig margt sem sýnir að bandið er síður en svo staðnað.
(GH)
Nýdönslc Hunang
Skífen
★★★
Hér er sáð í sama beð og áður, en ekkert óvænt til. Gott
popp, er platan ber þó hættuleg merki um yfirvofandi
stöðnun. (GH)
Todmobile: Spillt
Spor
★★★
Hér er allt pottþétt, bæði spilamennska og frágangur. Það
skiptast á góð lög og lög sem sogast í hið risavaxna miðj-
umoðssvarthol dasgurtónlistarinnar. (GH)
Bubbi Morthens: Lífið er ljúft
Skífan
★★★
Einföld, værukær og þægileg plata, gamaldags og lág-
stemmd. Fjandi hentug við arininn á vetrarkvöldum, en
ekkert tímamótaverk. (GH)
Bubbleflies: The World is Still Alive
Hljómalind
★★★
Kærkomin skurðaðgerð á skvapkenndu íslensku tónlistar-
lífi. Bjartasta vonin, engin spuming. (GH)
Ýmsir flytjendur. Núll og nix
Smekkleysa
★★★
Mælir blóðþrýstinginn í músíklífinu með 33 hljómsveitum,
mikið af því undirgangatónlist sem aldrei fær að heyrast í
útvarpi. Þörf útgáfe. (GH)
Ámi Johnsen
Milljónaútgáfan
Eindrangur/Japis
★★1/2
Ámi getur raulað sig fyrirhafharlaust í gegnum hálff lag og
hljómað eins og hver önnur varðeldabytta í hinni árlegu
útilegu. Textamir sumir geggjað mgl og stuðrembingurinn
á suðupunkti. (GH)
Orri Harðarson: Drög að heimkomu
Jepsen/Japis
★★1/2
Tvítugur trúbadúr, en það heyrist ekki á plötunni. Frekar
eins og hér sé á ferð lífsreyndur og sigldur maður. Ekki
byltingarkennt, en ágætt innlegg og nauðsynlegt. (GH)
Súkkat: Súkkat
Bein leið / Japis
★★
Ein sniðugasta platan í ár, vel heppnuð heimild um skond-
ið skemmtiatriði, en verður seint talin byltingarkennt inn-
legg í íslenskt tónlistarlíf. (GH)
Hemmi Gunn og Rúni Júl syngja fyrir bömin
Geimsteinn
★★
Hemmi er laglaus að vanda, en gleðin geislar af honum.
Varla fyrir böm yfir tíu ára aldri. (GH)
Pétur Hjaltested: Bamabros
Hljóðsmiðjan
★★
Ágætur samtíningur af þekktum lögum, en bætir litlu við.
Fín handa yngstu bömunum, en fylgir þeim ekki fram á
gelgjuskeiðið eins og bestu bamaplötur gera. (GH)
Margrét Ömólfsdóttir: Hvað á að gera?
Skífan
★★
Barnaplatan sem Þursaflokkurinn hefði gert, hátíðleg og
menningarleg, lítið um ærsl og skrípalæti, betur til þess fall-
in að koma börnum í háttinn en halda þeim vakandi. (GH)
Kammersveit Reykjavíkun Jólatónleikar
Kammersveit Reykjavíkur
★★
Það er kraffur, fegurð og léttleiki yfir flutningnum, en tals-
vert bergmál í upptökunni svo stundum jaðrar við að allt
drukkni í óskiljanlegum gný. (JS)
HörðurTorfason: Gull
Ofar / Japis
★★
Hörður hefur off verið kraffmeiri, ákveðnari og fjölbreytt-
ari. Þeir sem kæra sig kollótta um yfirbyggingu og vilja hafa
trúbadorinn ómengaðan fá hinsvegar úr nógu að moða.
(GH)
Páll óskan Stuð
Smekkleysa
★★
Páll óskar er eini maðurinn á landinu sem á séns í að gera
þessu sjúskaða tónlistarformi skil svo mark sé á takandi.
Sem diskóplata er hún fin og Palli er fínn raulari. (GH)
Stefán Hilmarsson: Líf
Spor
★★
Stefán leggur ekki í að gera neitt nýstárlegt, frumlegt eða
ferskt Úrvinnslan er hefðbundin og spilamennskan líflítil,
en fagmannleg. (GH)
Indverska prinsessan Leonde: Story from Brooklyn
Panton
★★
Ber með sér klassískt yfirbragð evrópskrar úrkynjunar og
ætti vel heima sem sándtrakk í þýskri klámmynd. Prinsess-
an gerir þessu velkta klámdiskói frábær skil. (GH)
Móa syngun Lögin við vinnuna
Smelddeysa
★★
Lögin þekkja allir og platan h'ður hjá eins og hvert annað
umhverfishljóð. Þetta er stemmningarplata og ekki verri er
hver önnur kertaljósaplata. (GH)
Halli: Undir hömrunum háu
★★
Nýr Bjartmar, á köflum sérhannað jogginggallapopp, en
eldd ýkja effirminnilegt. (GH)
Ýmsir flytjendun Kærleikur
Skífan
★
Sæmileg sjoppuplata sem verður engum til ffamdráttar,
hvorki söngvurum, hljóðfæraleikurum né lögunum sjálf-
um, sem fólk ætti frekar að afla sér í upprunalegu útgáfun-
um. (GH)
Herbert Guðmundsson: Being human
HG Records / Japis
®
Ótrúlega máttlaus og óspennandi plata, svo dautt, marg-
notað og tilfinningalaust efni að það líður næstum yfir
mann af leiðindum. (GH)
Endurútgáfur
Megas: Paradísarfuglinn
Skífan
★★★★
Hér er drepið niður á öllum skeiðum meistarans og þetta er
allt sígild snilld sem enginn ætti að missa af. Ómissandi
plata. (GH)
Purrkur Pilnikk: Ekki enn
Gramm/Smekkleysa
★★★★
Fullt af frábærum lögum og heildarandinn skemmtilega
ftillur af nýjungum. Textar Einars Amar úr reykvísku um-
hverfi annó 1981 veita leitandi unglingum vonandi jafn-
mikinn innblástur nú og þá. (GH)
Ýmsir flytjendun Rokk í Reykjavík
Hugrenningur/Smekkleysa
★★★
Misjafnar upptökur en nauðsynleg plata í skápnum til upp-
rifjunar þeim sem náttúrulaust nútímapopp hrellir sem
mest. (GH)
Stuðmenn: Stuðmenn
Skífan
★★
Þessi útgáfa er ekki góð eða nauðsynleg. Flestar plötur
Stuðmanna em enn föanlegar og vanda hefði átt betur til
lagavals og frágangs pakkans. (GH)