Pressan - 09.06.1994, Blaðsíða 6

Pressan - 09.06.1994, Blaðsíða 6
mggtjfi Mæstirettur hetur staötest atta manaöa tangelsisdom ytir ö4 ara gomtum kartmanm tyrir kynterö- isafbrot á fimmtán ára drukknum unglingi. Þetta er í þriðja skipti sem viðkomandi brýtur af sér en þó vinnur hann á stað þar sem ástæða er til að ætla að drukknir unglingar komi gjarnan. Maðurinn var vanaður fyrir 22 árum en brýtur nú aftur af sér. naður kynferð- safbrofamaður sér á ný r. '"'r n ’*f' IPPgll € « @ i « « I I IHæstarétti var í síðustu viku staðfestur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur yfir 64 ára göml- um karlmanni. Hafði hann verið dæmdur í héraði fyrir kynferðis- brot og áfengislagabrot, en hann hafði veitt fimmtán ára unglingi áfengi og haft við hann mök. Fyrir það hlaut hann átta mánaða fang- elsi sem Hæstiréttur hefur nú stað- fest. Málið dæmdu hæstaréttar- dómararnir Hrafri Bragason, Garðar Gíslason, Gunnar M. Guð- mundsson, Haraldur Henrysson og Markús Sigurbjömsson pró- fessor. Það sem vekur athygli við þetta mál er að viðkomandi hefur gengist undir vönun, sem virðist hafa komið fyrir lítið. Auk þess vinnur hann á stað þar sem samskipti við börn og unglinga, jafnvel drukkin, eru óhjákvæmileg. Hefur það orðið tilefni til hringinga áhyggjufullra borgara á ritstjórn PRESSUNNAR. Yfirumsjón staðarins skarast hjá nokkrum opinberum aðilum þannig að treglega gekk að finna út nákvæmlega hver hefði þarna með starfsmannamál að gera. Einn starfsmannastjórinn sem haft var samband við sagði: „Ja, þú segir fréttir.“ Önnur viðbrögð fengust ekki. Fyllti piltinn og bar á hann fé Atvikið sem maðurinn er dæmd- ur fyrir nú átti sér stað í Reykjavík síðastliðið haust. Þá kom fórnar- lambið, fimmtán ára piltur, á heimili mannsins, en hann var fjöl- skylduvinur piltsins. Taldi Hæsti- réttur að pilturinn hefði átt greiðan aðgang að áfengi á heimili ákærða og honum hefði átt að vera ljóst að pilturinn mundi nýta sér það. Þar var hann talinn hafa brotið áfengis- lög, en pilturinn varð mjög drukk- inn í umræddri heimsókn. Einnig þótti sannað að ákærði hefði nýtt sér ástand piltsins til kynferðislegra athafna. Bauð hann honurn pening og hefði þannig „með fégjöf tælt piltinn til að þola háttsemi þá, sem í ákæru er lýst...“ eins og segir í niðurstöðu Hæstaréttar. Lauk heimsókn piltsins með þvi að ákærði sleikti á honum enda- þarmsopið uppi í rúmi sínu um leið og hann fróaði sér. Því næst skrifaði ákærði 5.000 króna tékka og fékk piltinum á meðan pilturinn var að klæða sig. Þegar heim kom tóku móðir hans og bróðir eftir því að ekki var allt með felldu. Vegna ölvunar var ekki hægt að yfirheyra hann fýrr en daginn eftir. Kom fram í framburði móður hans að pilturinn hefði verið mjög ölv- aður, verið með uppköstum og lamið rúmið í örvinglun og hryllingi. Haft var samband við lögreglu samdægurs. Var ffamburður hans metinn trú- verðugur. Framburður ákærða var með þeim hætti að hann segist hafa sagt piltinum frá fyrri kynmökum sínum við unga drengi fýrr á árum og boðið honum 2.500 krónur fyrir að eiga við sig mök, pilturinn hefði stungið upp á 10.000 krónum en 5.000 krónur hefðu orðið samkomulagið. Þeir hafi síðan haft mök og eft- ir það hafi pilturinn farið inn á bað, klætt sig og farið. Fjörutíu ára sakaferill Sakaferill ákærða nær allt frá árinu 1954 til 1981, en eftir það hafði hann ekki orðið brotlegur þar til fýrrgreint brot kom ffam. Á áðurgreindum tíma hafði ákærði sætt refsingu 24 sinn- um, m.a. fýrir ölvun, umferðar- lagabrot, hylmingu, þjófnað og fjársvik. Hann var dæmdur fýrir skírlífisbrot árið 1969 og aftur árið 1972, en þá var hann dæmdur fýrir Sakadómi Keflavíkur. Þar var hann sakfelldur fýrir kynmök við tvo pilta, sjö og fimmtán ára, og MATTHÍAS HALLDÓRSSON AÐ- STOÐARLANDLÆKNIR „Atferlið sjálft er stundum svo rótgróið að vönunin ein og sér dugar ekki til.“ ósæmilega hegðun við þann þriðja, átta ára. í öllum tilvikum gerðist þetta inni á herbergi mannsins. Þeim elsta veitti hann áfengi svo hann varð ölvaður, lagðist ofan á hann, fór um hann höndum, kyssti hann og reyndi að tæla til kyn- maka. I sakavottorði viðkomandi kemur ffam að árið 1968 var hann dæmdur í Noregi í tólf mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðs- bundna, fyrir „skirlífisbrot, þjóffiað og stórþjófnað“. Var honum vísað úr landi eftir þetta. Árið 1976 var hann dærndur í Keflavík fýrir fjár- svik og fékk þá fimmtán mánaða fangelsi. Einn örfárra sem hafa verið vanaðir En árið 1972, þegar ákærði ffamdi annað kynferðisafbrot sitt, var hann vanaður. Það virðist hafa DR. GUNNLAUGUR ÞÓRÐAR- SON „Áhugaleysið á þessum mál- um hjá stjórnvöldum og dóms- kerfinu er sláandi.“ haldið framferði hans niðri þar til nú. Að sögn dr. Gunnlaugs Þórðar- sonar hæstaréttarlögmanns, sem nokkuð hefur fjallað um vönun og stutt beitingu hennar, eru þau tilvik þar sem hún hefur verið viðhöfð á síðustu áratugum „teljandi á fingr- um annarrar handar“. Gunnlaugur sagði að slíkt væri ekki gert nema menn samþykktu það sjálfviljugir. Hann sagði að þrjár mismunandi aðgerðir væru þekktar. 1 fýrsta lagi að fjarlægja eistu með skurðaðgerð og eru þá settar plastkúlur í staðinn til að menn beri ekki útlitslýti af. Þetta er svokölluð gelding eða af- kynjun. Önnur aðferð er vönun, þar sem skorið er á sáðgöng. Hvor- ug þessara aðferða hefur áhrif á heiladingulinn þannig að áfram verður einhver hormónastarfsemi. Sagðist Gunnlaugur vera lang- hlynntastur þriðju aðferðinni en henni er beitt viða í Evrópu og á Norðurlöndunum. Það er vönun með lyfjagjöf. Hún er líka meira í samræmi við þá venju að hér á landi eru ekki stundaðar líkamlegar refsingar. „Ég talaði fýrst um það að rétt væri að gelda menn alger- lega sem lentu oftar en einu sinni í kynferðisglæpum, því annað virtist ekki duga. Seinna kom til lyfjageld- ing og er hægt að halda í skefjum svona óeðli eða ofhleðslu af kyn- kvöt með lyfjagjöf einu sinni í mánuði. Þetta er sú aðferð sem ætti að beita en við erum ekki ennþá famir að gera það. Gagnvart sí- brotamönnum á þessu sviði er það það eina rétta. Þeir geta kannski lagast eftir fimm, sex ár, maður veit aldrei. Þá er langmannúðlegast að gera þetta með lyfjum.“ Taldi Gunnlaugur að áhugaleysið á þess- um málum hjá stjórnvöldum og dómskerfinu væri sláandi. En getur vanaður maður framið kynferðisafbrot? Að sögn Matthí- asar Halldórssonar aðstoðarland- læknis ætti vönun að minnka kyn- ferðislöngun viðkomandi og gerir það. „Svona menn geta hins vegar haldið áffam að ffemja afbrot sem eru hluti af tilverunni hjá þeim. At- ferlið sjálft er stundum svo rótgróið að vönunin ein og sér dugar ekki til.“ Kom ffam hjá Matthíasi að kynlöngun vanaðra manna ætti að hverfa að stórum hluta en ennþá væri þó hormónastarfsemi virk, t.d. í nýrnahettunum, sem gæti að ein- hveiju leyti skýrt hvað gerðist. Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR Auðbrekku 14, sími 64 21 41 « 4 4 4 4 4 « 6 PRÉSSAN FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994 H

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.