Pressan - 09.06.1994, Blaðsíða 2
JIGDÍS
FINNBOGA-
DÓTTIR
jyrir kröftugt
og afgerandi
viðtal í Mann-
lífi
SPURNINGIN
Mun sagan end-
urtaka sig á
laugardaginn,
Kjartan?
„Það þýðir ekki að leggja
svona leik íyrir mig. Ég hef ekki
hugmynd um þetta, það er svo
einfalt.“
]ón Baldvin felldi Kjartan Jó-
hannsson úr formannssæti Al-
þýðuflokksins fyrir tíu árum
og nú er það spumingin hvort
Jóhanna velti Jóni Baldvini úr
sessi á flokksþingi krata á laug-
ardaginn.
FYRST & FREMST
Sighvatur á sjónum
Sem kunnugt er fór Sighvatur
Björgvinsson viðskiptaráðherra til
útlanda í síðustu viku og var ekki
væntanlegur heim fýrr en rétt fyrir
flokksþing Alþýðuflokksins. Heim-
ildir okkar innan Alþýðuflokksins
herma að Sighvatur sé í óvenjulegri
siglingu, sem sagt að hann hafi tek-
ið sér far með Brúarfossi Eimskipa-
félagsins sér til hressingar og hefur
því væntanlega verið að stytta sér
stundir í Rotterdam. Samkvæmt
upplýsingum Eimskips átti Brúar-
foss að leggja af stað frá Rotterdam
í gær, miðvikudag, á leið til Reykja-
víkur, með einni viðkomu. Okkur
er ekki kunnugt um hvort ráðherr-
ann ætlaði sömu leið með skipinu
heim eða hvort hann ætlaði að
tryggja sér hraðskreiðari fararskjóta
til að komast í hasarinn heima...
Hitnar í kolunum í
Eistlandi
Athafnamaðurinn Guðmundur
I. Guðmundsson í Vöktun lætur
ekki deigan síga. Nú segir hann að
bandarískir aðilar hafi boðið Vökt-
un að starfrækja öryggisþjónustu í
Eistlandi. Sjálfur fari hann út til
Bandaríkjanna í ágúst og í kjölfarið
fari tíu íslendingar ffá fyrirtækinu
til Eistlands í haust. Fyrirtækið hef-
ur verið nokkuð umdeilt, það tók
meintan handrukkara upp á band
án þess að sannanir fengjust fýrir
athæfi hans, þeir fluttu inn táraga-
spenna eins og frægt er orðið og
lentu í miklum deilum við lögregl-
una vegna einkennisbúninga sinna
sem þóttu of líkir lögreglubúning-
unum. Guðmundur er nú titlaður
forstjóri fýrirtækisins en fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráðinn
Guðni Guðnason, bardagamaður
meðmeiru...
íslenskir peningar?
Yfirtakan á Stöð 2 vakti mikla at-
hygli og ekki eru öll kurl komin til
grafar í því máli. Síðasta föstudag
var boðað til stjórnarfundar sem
haldinn verður á morgun, föstu-
dag, kl. 3. Á þeim fundi verður
boðað til hluthafafundar þar sem
nýr meirihluti fjórmenningana og
Sigurjóns Sighvatssonar tekur við.
Ekki er búið að ákveða tímasetn-
inguna á þeim fundi, nýi meiri-
hlutinn vill að hann verði boðaður
eftir 1-2 vikur en fráfarandi meiri-
hluti stendur fast á því að hann
skuli boðaður eftir 1-á vikur.
Ýmsar kenningar hafa verið á
lofti um hver sé raunverulegur eig-
andi hlutabréfanna sem Sigurjón
keypti og hafa margir bent á Jón
Ólafsson í því sambandi. Rök-
semdir fýrir því eru að á skulda-
bréfi í Skandía eru rituð nöfn
þeirra Jóns, Sigurjóns, Haralds
Haraldssonar og Jóhanns J. Ólafs-
sonar auk þess sem fullsannað
þykir að kaupin hafi verið fjár-
mögnuð innanlands. Hvað sem því
líður er ljóst að búið er að skrá
bréfin sem eign Sigurjóns hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu...
17. júní í stofunni
Þeir sem ekki nenna á Þingvöll
17. júní geta allt eins verið heima
— sérstaklega ef það verður rign-
ing og rok — því Ríkissjónvarpið
verður með níu tíma dagskrá frá
hátíðahöldunum. Meðal efnis sem
notað verður sem innskot eru
þjóðlegir pistlar frá jafnólíku fólki
og Steinunni Sigurðardóttur,
Thor Vilhjálmssyni, Amal Rún
Qase, Uluga Jökulssyni og Dr.
Gunna, en samtals fengu um tíu
manns að spreyta sig. Beðið var
um u.þ.b. þriggja mínútna pistla
en þátttakendurnir voru svo fullir
af lýðveldiskærleik að senda þurfti
flesta pistlahöfundana heim til að
endurskrifa og stytta verkin...
Ný Heimsmynd
í byrjun næstu viku lítur ný og
breytt Heimsmynd dagsins ljós.
Sem kunnugt er urðu eigenda-
skipti á tímaritinu fýrr á þessu ári
er Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri AB og PRESSUNN-
AR, keypti blaðið af Herdísi Þor-
geirsdóttur, ritstjóra þess og eig-
anda um árabil. í kjölfar kaupanna
hefur blaðið tekið gagngerum
breytingum, jafnt í efnistökum
sem broti, og útliti þess verið gjör-
breytt undir stjórn Jökuls Tómas-
sonar. Forsíða næsta tölublaðs
Heimsmyndar vísar til viðtals við
Margréti Þórhildi II Danadrottn-
ingu sem ritstjórinn, Vilborg Ein-
arsdóttir, tók sjálf í tilefni lýðveldi-
sárs, en Margrét var sem kunnugt
er íslensk prinsessa í fjögur ár. Ríf-
lega þrjátíu síður í blaðinu verða
undirlagðar umfjöllun um mat og
drykk undir stjórn listakokksins
Sigurðar Hall og svo dæmi sé tekið
kynnt veitingahús ársins. Þá eru
ljósmyndir fýrirferðarmiklar í þess-
ari nýju Heimsmynd og mikil um-
fjöllun um tfsku, til að mynda tvær
tískusyrpur, önnur undir stjórn
Maríu Guðmundsdóttur og hin í
umsjá Bemharðs Valssonar í Par-
ís...
Guðni dregur upp
veskið
Sættir hafa tekist í máli Sverris
Amar Sigurjónssonar viðskipta-
fræðings og Guðna Ágústssonar,
alþingismanns og fyrrverandi
bankaráðsformanns Búnaðarbank-
ans. Eftir nokkur orðaskipti eftir að
svokallað „vopnasölumál“ kom
upp í Búnaðarbankanum í fýrra
ákvað Sverrir Örn að höfða meið-
yrðamál á hendur Guðna. Guðni
Skikkaður til að skila pen-
ingum gegn loforði um að
hann fái bá aftur síðar
PRESSAN hefur heimildir fyrir
því að farið hafi verið fram á það
við Snorra Þórisson kvikmynda-
gerðarmann að hann skili 30
milljóna króna styrk sem hann
fékk úthlutað úr Kvikmyndasjóði
íslands snemma á þessu ári til að
gera kvikmyndina Agnesi, gegn
vilyrði um að hann fái úr sjóðn-
um sömu upphæð næst þegar
úthlutað verður. Eftir því sem
næst verður komist er þetta tfl-
boð Kvikmyndasjóðs alger ný-
lunda. Ekki hafi tfl að mynda Ág-
úst Guðmundsson fengið sams-
konar loforð þegar hann skflaði
inn peningum tfl sjóðsins á sín-
um tíma. Vekur tilboð þetta
furðu margra kvimyndagerðar-
manna, sem tala jaftivel um sví-
virðu. PRESSAN náði tali af
Snorra og spurði hann hvort rétt
væri.
„Ég hef verið beittur ákveðn-
um þrýstingi frá Kvikmyndasjóði
og mér boðið ýmislegt frá hon-
um. Ég er ekki endanlega búinn
að taka ákvörðun um hvað ég
geri. Ég geri það einhvern næstu
daga.“
Hljóðar tilboð Kvikmyndasjóðs
semsagt upp á loforð ef þú skilar
peningunum?
„Það er eitthvað í þessa áttina
sem stjórn Kvikmyndasjóðs er að
bauka.“
Veistu afhverju Kvikmyndasjóður
beitirþessari aðferð tiúna?
„Þeir eru kannski í fýrsta sinn
farnir að hugsa eitthvað um
rekstur sjóðsins.“
Meginástæða þess að Snorri náði
ekki að uppfýlla skilyrðið fýrir
úthlutun Kvikmyndasjóðs er sú
að hann hefur ekki náð að fjár-
magna Agnesi með öðrum hætti
eins og ætíast var til.
„Ég var sallarólegur þar til nið-
urstaðan kom frá Norræna kvik-
myndasjóðnum, þar sem ég sótti
um styrk. En sjóðurinn reyndist
tómur — nema fýrir það sem
þegar hefur verið eymamerkt —
svo ég verð að leita nýrra leiða. “
Áttu enn von á einhverju jjár-
magtii?
„Já.“
Nýtt fýrirkomulag var tekið upp
hjá Kvikmyndasjóði við síðustu
úthlutun þannig að nú er ekki
lengur um eiginlega úthlutun að
ræða heldur aðeins loforð um
úthlutun að uppfýlltum ákveðn-
um skflyrðum. Sjálfur segist
Snorri hafa átt stóran þátt í þeim
breytingum.
Fœr þá einhver annar vilyrði í
staðinn?
„Já, og það finnst mér ósköp
eðlflegt. Ef ég næ ekki að nýta
styrkinn í haust þá fýndist mér
auðvitað — ef ég sæti hinum
megin borðsins — hið versta mál
ef peningarnir lægju ónotaðir.
Það tekur oft langan tíma að loka
svona dæmi.“
Ef af því verður að Snorri þurfi
að „skila“ vilyrðinu er líklegt að
þeir Jón Tryggvason, Þráinn
Bertelsson, Andrés Indriðason
eða félagarnir Hallur Helgason
og Freyr Þormóðsson berjist um
bitann.
hafði svarað nokkuð kröftuglega
því sem hann taldi vera árásir á
bankann og meðal annars sakað
Sverri um kúgun. Það var upphafið
að málaferlum Sverris. Þegar taka
átti málið fýrir I Héraðsdómi
Reykjavíkur hafði lögmaður Sverr-
is samband við lögmann Guðna og
lagði fram sáttaboð. Þvi tók Guðni
en í sáttagerðinni sem lögð var
fram í Héraðsdómi segir Guðni að
ekki hafi verið ætlun sín að móðga
neinn eða særa með ummælum
sínum. Auk þess féllst Guðni á að
borga lögmannskostnað Sverris og
150 þúsund krónur f bætur eða
samtals 250 þúsund krónur. Enn er
hins vegar í gangi skaðabótamál á
hendur bankanum vegna riftunar
viðskiptasamninga...
Jói útstrikaður
Umræða hefur orðið um útstrik-
anir í Reykjavík í sveitarstjórnar-
kosningunum, en slíkar útstrikanir
voru viðhafðar víðar. Má þar með-
al annars nefna að Jóhann G. Berg-
þórsson, bæjarstjórnarfulltrúi sjálf-
stæðismanna f Hafnarfirði, fékk á
annað hundrað útstrikanir á með-
an oddviti þeirra í Hafnarfirði,
Magnús Gunnarsson, fékk tvær.
Greinflegt er að Jóhann er um-
deildur maður. Einnig má geta
þess að Þorgils Óttar Mathiesen
fékk um tuttugu útstriknair og
varð í öðru sæti á eftir Jóhanni...
Sýsli gefur sig ekki
Dálítið óvenjulegt mál er nú rek-
ið fýrir Héraðsdómi Reykjavíkur
en Jieita má að Jón Eysteinsson,
sýslumaður í Keflavík, sé að stefna
vegna ákvörðunar sýslumannsins í
Reykjavík. Málið er tilkomið vegna
þess að embætti sýslumannsins í
Keflavík er með kröfu í gangi á
hendur Samskipum vegna
ógreiddra aðflutningsgjalda af
farmi sem reyndist ekki finnast í
þrotabúi Vörumóttökunnar í
Keflavík. Þegar þannig stendur á er
flutningsaðilinn ábyrgur fýrir
gjöldunum og hefur því verið reynt
að gera fjárnám þar. Samskipa-
menn segja að krafan, sem er upp á
rúma milljón króna, sé fýrnd en
sýslumaðurinn reyndi að fýlgja
henni eftir...
Ósætti veldur brottför
Ingimundar
I gær var tillcynnt að Ingjmund-
ur Sigfússon hygðist láta af störf-
um hjá fjölskyldufýrirtækinu
Heldu hf., þar sem frann hefur ver-
ið við stjórnvölinn árum saman.
Ingimundur seldi systkinum sín-
um þremur hlut sinn, en hvert um
sig áttu þau 25 prósent hlutafjár í
fýrirtækinu. Ekki er vitað frvað
Ingimundur hyggst taka sér fýrir
hendur, en þessi álcvörðun átti sér
langan aðdraganda og er einungis
síðasti kaflinn í langri sögu ósam-
komulags um hvernig hag fyrir-
tækisins væri best borgið...
Sjaldan ein báran
stök
Málþing dómara og lögmanna á
Þingvöllum 27. maí síðastliðinn
var sögulegt, eins og fjallað er um
annars staðar í blaðinu. Senuþjóf-
urinn var Hrafn Bragason, forseti
Hæstaréttar. Ekki einasta tókst
honum að móðga lögmenn fýrir
hönd Tómasar Gunnarssonar
hæstaréttarlögmanns heldur fór
hann einnig með rangt mál þegar
hann vitnaði í fornsögurnar. Hann
hóf mál sitt á því að segja að mál-
flutningur lögmanna í dag minnti
sig á Bandamannasögu. I þann tíð
hafi menn sérstaklega lagt sig eftir
því að eyðileggja málatilbúnað
annarra. Viðstadda, sem sæmilega
læsir eru í fornbókmenntunum,
rak ekki minni tfl að hafa séð þessa
stað í Bandamannasögu og var
málið því borið undir lagaprófess-
orinn og sagnffæðinginn Sigurð
Líndal. Hann kvað upp þann dóm
að Hrafn hlyti að misminna eitt-
hvað...
Ámundi hættur á Alþýðu-
blaðinu?
Glöggir lesendur Alþýðublaðsins
hafa eflaust tekið eftir að síðan á
þriðjudag hefur vantað í blaðhaus
þess nafn fframkvæmdastjórans,
Ámunda Ámundasonar. Titillinn
er enn á sínum stað, en ekkert nafn
f>TÍr aftan hann. Ámundi mun
sjálfur hafa haft frumkvæði að
þessari breytingu, en hann hefur
verið afar ósáttur við starfsfólk og
vinnubrögð á blaðinu að undan-
förnu. Á skrifstofum flokks og
blaðs er reyndar fullyrt að Ámundi
hafi sagt upp störfum, en það
fékkst ekki staðfest. Það hljóta þó
að teljast í það minnsta ákveðnir
tilburðir til uppsagnar að fjarlægja
sjálfan sig úr blaðhausnum...
2 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994