Pressan - 14.07.1994, Page 4
Hvernig fer heimsmeistarakeppnin?
BRASSARNIR
LANGLÍKLEGASTIR ®
PRESSAN leitaði álits um áhugamanna — og áhugalausra — um úrslit heimsmeistaramótsins sem verða á
sunnudag. Nær helmingur spáir Brasilíu sigri. Rétt er að taka fram að könnunin var gerð skömmu áður en
undanúrslitin hófust á miðvikudagskvöld.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttin
„Italir verða heimsmeistarar, vinna
Búlgari 2-1 í undanúrslitum og
lenda á móti Svíum í úrslitaleikn-
um en Svíamir vinna Brasilíu 1-0.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttin
„Brasilía vinnur keppnina, þeir
leika við ítali í úrslitum og ég þori
ekki að spá meira en eins marks
mun.“
Ami Páll Ámason:
„Brasilía spilar gegn Búlgaríu og
vinnur3-l.“
Guðmundur Malmquist:
„Brasilia.“
Auður Eir Vilhjálmsdóttin
„Ég spái Svíþjóð.“
Gunnar Þorsteinsson:
„Ég er nú einn af fáum íslending-
um sem fylgjast ekkert með. Eigum
við ekki að segja Brasilía.“
kvaldfrettunum.
beinar útsending-
ar frá HM?
„pao er mikil reiði og sársauki
á spítulunum með að missa af
fréttunum. Það er ógurlegt að
fréttirnar skuli teknar af okkur
og það er mikil reiði meðal
fólks, ekki síður yngra fólks-
ins. Ég hef gaman af að horfa á
fótbolta svolitla stund og mað-
urinn minn, sem er 85 ára, er
sólginn í þetta. En við viljum
hafa fréttirnar á venjulegum
tíma. Þetta verður að vera í
föstu formi. Þótt þetta sé holl
og skemmtileg íþrótt má ekki
taka fréttirnar frá okkur og
þetta lýsir stjornleysi á háu
stigi hjá Heimi Steinssyni. Og
maður þolir nú ekki lengi frétt-
irnar á Stöð 2. Við viljum frek-
ar missa af kvöldmatnum en
Ragnhildur Vigfúsdóttir:
„Ég giska á Brasilíu.“
SIGURÐUR PÁLSSON:
„Italía vinnur Búlgaríu á endanum,
eftir vítaspyrnukeppni. Brasilíu-
menn vinna Svía og svo ítalina í
úrslitum og verða heimsmeistarar.
Ég þori ekki að spá um nákvæmar
tölur.“
Margrét Erimannsdóttrn
„Ég kemst ekki hjá því að fylgjast
með þessari keppni því allir aðrir á
heimilinu eru á kafi í HM. Ég veit
meira að segja að fallegasta mark
vikunnar var númer 62. Ég veðja á
Brasilíu.“
SAN FIMMTUDAGURINN 14.
1994
Friðrik Ólafsson:
„Mér líst skást á Brasilíumennina.“
HELGI HJÖRVAR:
„Ítalía-Búlgaría 2-1, Brasilía-Sví-
þjóð 2-0. Svíþjóð vinnur Búlgari,
segjum 2-1, og Brasilía vinnur Ital-
íu í úrslitum 3-2.“
Höskuldur Jónsson:
„Ég fylgist ekkert með og veit varla
hverjir taka þátt, en ég sá leik Svía
og Rúmveija fyrir tilviljun og spái
því að Svíar vinni.“
Guðlaugur Þorvaldsson:
„Ég spái og vona að Búlgaría vinni
Ítalíu og að Svíþjóð vinni Brasilíu,
en ég held nú samt að Brasilía verði
sterkari og spili við Búlgaríu í úr-
slitum. Brasilía vinnur þann leik
3-1.“
SVAVAR GESTSSON:
„Ég veðja á að Búlgaría vinni Ítalíu
með einu marki og Svíar vinni
Brasilíu, en það verður knappt.
ítalir vinna þá Brasilíu í leiknum
um þriðja sætið og Búlgarir vinna
Svíþjóð. Þú heyrir að ég ligg yfir
þessu en ég er ekki alveg viss um að
ég horfi á þetta.“
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR:
„Búlgaría vinnur Ítalíu 2—1. Gegn
betri vitund segi ég að Svíþjóð
vinni Brasilíu mjög óvænt 3-2.
Búlgaría er komin svo skemmtilega
langt að ég held að þeir vinni í úr-
slitaleiknum 4—2. Þessi þarna
Hristo verður stjama leiksins."
Magnús L. Sveinsson:
„Italimir syngja svo asskoti vel. Ég
veðja á þá.“
Ólafúr Davíðsson:
„Ég spái því að Ítalía og Brasilía
keppi til úrslita og Ítalía vinni.“
Jóhannes Nordal:
„Ég hef ekki myndað mér neina
skoðun á því.“
Tómas R. Einarsson:
„Ég vona að það verði Brasilíu-
menn, engin spuming.“
Valgerður H. Bjamadóttin
„Þótt mér þyki gaman að spá hef
ég bara ekkert spáð í þetta. Ég vona
bara að þeir sem tapa fari ekki að
drepa einhvem og misþyrma kon-
unum sínum. Ég treysti eiginlega
Svíum best til þess að tapa.“