Pressan - 14.07.1994, Page 6
Guðmundur Ámi Stefáns-
son, núverandi félagsmála-
ráðherra, tók sæti í ríkis-
stjórninni eftir ráðherrahrókering-
ar Alþýðuflokksins á síðasta ári.
Þrátt fyrir stuttan starfstíma bein-
ast nú að honum öll spjót. Hann er
vændur um að skilja heilbrigðis-
ráðuneytið eftir rjúkandi rústir,
hafa farið langt fram úr fjárlögum
og vera búinn að eyða öllum fjár-
veitingum til ráðuneytisins á þessu
ári nú þegar. Þá hafa ýmsar
mannaráðningar hans verið um-
deildar. Rætt er um að ef ekki væri
svona stutt eftir af kjörtímabilinu
væri verulega farið að hitna undir
félagsmálaráðherranum.
Búinn að eyða öllu ráðstöf-
unarfénu
Hún verður ekki skemmtileg set-
an í heilbrigðisráðuneytinu fyrir
Sighvat Björgvinsson það sem eft-
ir er ársins, ef marka má fjárhag
ráðuneytisins þegar hann tók við af
Guðmundi Árna um daginn.
Hann er í stuttu máli sá að þar eru
allir peningar búnir sem til ráðstöf-
unar voru á árinu, þótt enn sé ekki
komið nema fram í miðjan júlí.
Heilbrigðisráðherra hafði til frjálsr-
ar ráðstöfunar átta milljónir sam-
kvæmt fjárlagaliðnum „til ráðstöf-
unar skv. ákvörðun ráðherra"; þær
eru búnar og munu hafa farið í
ýmis verkefni sem Guðmundur
Árni ákvað að brýn væru.
Þar hafa til dæmis vakið athygli
auglýsingaherferðir og annar kynn-
ingarkostnaður sem ráðist var í,
meðal annars á vegum kynningar-
fyrirtækisins Athygli, sem er í eigu
nokkurra samstarfsmanna Guð-
mundar Árna úr blaðamennsku,
meðal annars Ómars Valdimars-
sonar og Guðjóns Amgrímsson-
ar. Þeir höfðu tekið að sér og und-
irbúið kynningarverkefhi fyrir hóp
lyfjaframleiðenda, en tóku betra
tilboði sem barst frá Guðmundi
Árna til að kynna málstað ráðu-
neytisins í sama deilumáli. Útboð
var ekki viðhaft þegar fyrirtækið
var fengið til verksins og deildu
lyfjaframleiðendur á Athygli fyrir
þessa framkomu.
Áður hefur komið ffam að Guð-
mundur Árni hefur farið ráðherra
langlengst frarn úr fjárlögum það
sem af er árinu og hefur eytt á ann-
an milljarð umfram það sem Al-
þingi sagði að hann mætti eyða.
Vafasamar mannaráðningar
Meðal þess sem gagnrýnt hefur
verið af verkum Guðmundar Árna
í heilbrigðisráðuneytinu eru
mannaráðningar hans, sérstaklega
ný staða upplýsingafulltrúa sem í
var ráðinn gamall kunningi hans,
Steen Johansen. Við hann var
gerður sérstakur verktakasamning-
ur sem tryggði honum á þriðja
hundrað þúsund krónur á mánuði.
Sá samningur var uppsegjanlegur
með þriggja mánaða fyrirvara, en
líklega situr Sighvatur ekki uppi
með Steen í þrjá mánuði, því þegar
síðast fféttist var Jón H. Karlsson,
aðstoðarmaður Guðmundar Árna,
að leita að plássi fyrir Steen á skrif-
stofum félagsmálaráðuneytisins.
Þar mun Steen eiga að gegna stöðu
upplýsingafulltrúa, sem líka er ný
staða.
Þegar Guðmundur Árni réð mág
sinn og aðstoðarmann, Jón H.
Karlsson, sem formann stjórnar
ríkisspítala skömmu fyrir síðustu
áramót þótti mörgum sem Guð-
mundur hefði stigið skrefi lengra
en aðrir ráðherrar Alþýðuflokksins
sem þó höfðu verið harðlega gagn-
rýndir fyrir að ráða vini og kunn-
ingja til starfa og tryggja samflokks-
mönnum sínum bitlinga innan
ríkiskerfisins. Daginn eftir að Jón
var ráðinn tóku sem kunnugt er
gildi lög sem banna ráðherra að
hafa afskipti af meðferð mála sem
snerta vandamenn hans, en sem
yfirmaður heilbrigðismála hefði
Guðmundur Árni fengið til með-
ferðar verk mágs síns. Þótt lögin
hafi ekki öðlast gildi fyrr en um
áramót lá vilji Alþingis ljós fyrir
með samþykkt þeirra, en Guð-
mundur kaus að ráða mág sinn
nokkrum klukkutímum áður en
lögin tóku gildi. Gera má ráð fyrir
að Jón hefði talizt vanhæfur í stöð-
una ef hann hefði verið ráðinn
hálfum sólarhring síðar.
Rannsókn í Hafnarfirði á
greiðslum til vinar Guð-
mundar
Verk Guðmundar í ríkisstjórn
eru ekki aðeins gagnrýnd. Hann
hefur verið sakaður um það af pól-
itískum andstæðingum að skilja illa
við fjármál bæjarsjóðs Hafnarfjarð-
ar og rekja margir kratar fall meiri-
hlutans í bænum til þess.
Þegar kratarnir misstu meiri-
hluta sinni í bænum í vor ákvað
nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðubandalagsins að
fá hlutlausan aðila til að gera út-
tekt á fjárreiðum bæjarsjóðs. Til
verksins voru fengnir Löggiltir
endurskoðendur hf. og eiga þeir að
skila meginniðurstöðum sínum
fyrir mánaðamótin ágúst-septem-
ber.
Altalað er meðal bæjarfulltrúa að
eitt af því sem þeir hafi rekið sig á
og talið ástæðu til að rannsaka bet-
ur séu greiðslur til náins vinar
Guðmundar Árna, séra Önundar
Bjömssonar, en Guðmundur Árni
réð hann til þess að sinna ýmsum
kynningar- og útgáfumálum fyrir
Hafnarfjarðarbæ. Önundur sá
meðal annars um útgáfu handbók-
ar upp á rúmlega eitthundrað síður
og gerði ýmiss konar pésa fyrir fyr-
irtæki og stofhanir bæjarins. Þeir
Guðmundur Ámi störfuðu á sín-
um tíma saman í bókaforlaginu
Tákni sem varð gjaldþrota og Ön-
undur un leið persónulega.
Það sem meint rannsókn er sögð
beinast að er hvort einhverjar
greiðslur til Önundar hafi verið
færðar á nafn einhvers annars
vegna þeirrar staðreyndar að hann
er gjaldþrota og stórskuldugur,
meðal annars við skattyfirvöld.
Þegar þessi frétt var borin undir
nokkra bæjarfulltrúa meirihlutans í
Hafnarfirði könnuðust þeir allir
við hana en treystu sér ekki til að
staðfesta hana.
Magnús Jón Ámason bæjar-
stjóri vildi lítið tjá sig um þetta mál
en sagði efhislega að ef eitthvað
gmggugt kæmi í ljós við úttekt
endurskoðendanna yrði það að
sjálfsögðu kannað. Jóhann G.
Bergþórsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, staðfesti að hann
hefði heyrt þessari sögu fleygt. „Ég
hef enga staðfestingu fengið á
henni en ef um slíkt hefur verið að
ræða kemur það í ljós þegar athug-
uninni er lokið.“
Floklcsbróðir hans, Magnús
Gunnarssson, tók í sama streng.
„Ég hef heyrt þetta án þess að fá
það staðfest og slíkar upplýsingar
hafa ekki verið lagðar fram hjá
okkur í bæjarstjórninni. En þetta er
sérkennilegt mál ef það er svona
vaxið, vægast sagt.“
Önundur Bjömsson sagði sjálf-
ur í samtali við PRESSUNA að
hann hefði verið ráðinn sem verk-
taki af þáverandi meirihluta í bæj-
arstjóratíð Guðmundar Árna og
hefði nótur fyrir öllum þeim
greiðslum sem hann hefði fengið
frá bæjarsjóði Hafharfjarðar. Hann
neitaði því alfarið að það ætti við
rök að styðjast að einhverjar
greiðslur til hans hefðu verið á
nafni einhvers annars.
Ef þessi útbreiddi orðrómur
reynist réttur gæti staða Guð-
mundar Árna í ríkisstjórninni ver-
ið í hættu. Og þegar orðrómurinn
er svo magnaður að bæjarfulltrúar
tjá sig um hann opinberlega má
ætla að Önundur eigi rétt á að hið
sanna komi í ljós án tafar.
Karl Th. Birgisson
Styrmir Guðlaugsson
GUDMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
sætir vaxandi gagnrýni fyrir frammistöðu sína í heilbrigðisráðuneytinu. Honum tókst að eyða öllum
þeim peningum sem ráðuneytið hefur til frjálsrar ráðstöfunar í ár á sex mánuðum. Hann fór auk
þess langt fram úr fjárlögum síðasta árs. Þá hafa margar mannaráðninga hans þótt vafasamar.
SÉRA ÖNUNDUR BJÖRNSSON
er náinn vinur Guðmundar
Árna. Nú eru til athugunar
greiðslur til hans frá Hafnar-
fjarðarbæ fyrir verk sem Guð-
mundur Árni réð hann til í bæj-
arstjóratíð sinni.
JÓHANN G. BERGÞÓRSSON
BÆJARFULLTRÚI
segir að hann hafi heyrt því
fleygt að ekki sé allt með
felldu með greiðslur til Önund-
ar Björnssonar en hann geti
ekki staðfest að svo sé.
ÓMAR VALDIMARSSON OG GUÐJÓN ARNGRÍMSSON
eru gamlir félagar Guðmundar Árna úr blaðamennskunni. Lyfja-
framleiðendur höfðu ráðið fyrirtæki þeirra, Athygli, til kynningar-
starfs í deilunum við heilbrigðisráðherra í vetur. Guðmundur Arni
bauð betur og keypti þá yfir í sínar herbúðir.
SIGHVATUR BJÖRGVINSSON
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
tók við vægast sagt erfiðu búi í
heilbrigðisráðuneytinu af Guð-
mundi Árna við stólaskiptin í
ríkisstjórninni. Engir peningar
eru eftir.
JÓN KARLSSON, AÐSTOÐAR-
MAÐUR FÉLAGSMÁLARÁÐ-
HERRA
er jafnframt mágur hans. Guð-
mundur Árni réð hann daginn
áður en lög tóku gildi sem
bönnuðu ráðherrum að ráða þá
sem tengjast þeim fjölskyldu-
böndum. Með því hunsaði ráð-
herrann ótvíræðan vilja Alþing-
is.
Gerningar Guðmundar Arna
undir smásjánnl
Guðmundur Árni Stefánsson var
hálft ár að tæma peningakassa heil-
brigðisráðuneytisins. Um leið fór
hann á annan millj arð fram úr fj ár-
lögum. Hann sætir gagnrýni fyrir
vafasamar mannaráðningar til rík-
isins. Þá eru greiðslur úr bæjarsjóði
Hafnarfjarðar til náins vinar hans
undir smásj ánni við úttekt á fj ár-
reiðum bæjarsjóðs.
6 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. JÚLÍ 1994