Pressan - 14.07.1994, Side 8
EITTGATA 15
Steingrímur býr nú í húsnæði á vegum Félagsmálastofnunar. Það stendur við útivistarsvæði Árbæinga.
Enn rísa íbúar upp gegn nærveru Steingríms Njálssonar
Steingrímur Njálsson fékk inni hjá Félagsmálastofnun við Rauðavatn.
íbúar Árbæjar eru óttaslegnir og hafa hafið undirskriftasöfnun vegna
hess og varað öll barnaheimili við honum. íbúarnir ætla sjálfir að vakta
lúsið, sem stendur við útivistarsvæði þeirra. Kerfið er ráðþrota gagnvart
vandamálum Steingríms.
Síðustu daga hefur talsvert borið
á því að óttaslegnar mæður hafi
hringt í lögregluna, Félagsmála-
stofnun og reyndar inn til okkar og
lýst áhyggjum sínum vegna nýs ná-
granna í Árbæ. Um er að ræða
Steingrím Njálsson, þekktasta
kynferðisafbrotamann íslands.
Uggur fólks virðist ekki með öllu
ástæðulaus, því Steingrímur hefur
þrettán sinnurn verið dæmdur fyrir
kynferðisafbrot gagnvart drengjum
á aldrinum sjö til fimmtán ára, flest
mjög andstyggileg og eyðileggjandi
fýrir þá sem urðu fýrir þeim. Frá
1963-1992 hlaut hann 26 refsi-
dóma fyrir kynferðisafbrot, þjófn-
að, líkamsárás, fjársvik, skjalafals
ásamt ölvun og réttindaleysi við
akstur. Samanlögð refsivist hans
samkvæmt þessum dómum var ell-
efu ár og þrír og hálfur mánuður.
Þar að auki hefur hann verið sekt-
aður sextán sinnum fýrir áfengis-
og umferðarlagabrot.
8 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. JÚLÍ 1994
Óttaslegnir íbúar blása
í herlúðra
„Menn eru mjög óttaslegnir og
tilbúnir að blása í herlúðra," segir
Ársæll Már Gunnarsson, formað-
ur foreldrafélags Árbæjarskóla, en
hann er jafnframt formaður Fram-
farafélags Seláss og Árbæjar. „Hann
hefur mér vitanlega ekkert gert af
sér enn sem komið er, en það er al-
veg ljóst að það kemur mjög harð-
orð yfirlýsing frá okkur. Þetta er
ekki lausn á þeim vanda sem þjóð-
félagið á að bjóða upp á — að færa
menn á milli hverfa. Þetta er orðið
alveg óþolandi með þessi gráu
svæði í kringum Reykjavík sem
ekki eru undir neinu eftirliti,“ segir
Ársæll, en fýrir nokkrum árum var
lögreglustöðin í Árbæ lögð niður
og hverfastöð opnuð í staðinn uppi
í Grafarvogi. Ársæll segir að henni
hafi verið „rænt“.
Undirskriftasöfnun og
barnaheimili vöruð við
Samkvæmt traustum heimildum
PRESSUNNAR er ekki nema um
hálfúr mánuður síðan Steingrímur
fluttist upp í Árbæ og býr hann nú
í húsnæði á vegum Félagsmála-
stofnunar við Rauðavatn, sem
nefnt er Eittgata 15. íbúarnir hafa
þegar risið upp og eru tilbúnir til
aðgerða, en Ársæll segir að eðlileg-
ast sé að taka púlsinn fýrst og
kanna málin. Foreldra- og hverfa-
félögin í Árbæ eru orðin vel skipu-
lögð og sagðist Ársæll þegar hafa
haft samband við formenn annarra
foreldra- og hverfafélaga, sem væru
nú að ræða við sitt fólk. Þá vissi Ár-
sæll til þess að undirskriftasöfnun
væri hafin meðal fólks í húsunum
næst Rauðavatni, en ekki náðist
samband við aðstandendur þeirrar
söfnunar. Einnig sagði Ársæll að
kunningjakona sín hefði gengið í
öll barnaheimili í grenndinni til að